DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 25-36
DROPS Design: Mynstur nr bm-065-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Hæð: ca 30 cm (með eyrum)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 gr litur nr 02, natur
50 gr litur nr 07, bleikur
50 gr litur nr 23, ljós beige
50 gr litur nr 28, ljós bleikur
Og notið afgang af litnum svartur fyrir augu, munn og nef.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir blúndu á buxum.
DROPS LJÓS TRÉTALA, NR 503: 1 stk.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Til þess að koma í veg fyrir göt í miðju er byrjað með þessari aðferð:
Haldið í endann og gerið lykkju utan um vinstri vísifingur (frá vinstri til hægri). Haldið í lykkjuna með vinstri þumli og vísifingur. Stingið prjóninum í gegnum lykkjuna, sækið þráðinn frá dokkunni (þ.e.a.s. leggið þráðinn 1 sinni yfir prjóninn frá þér), dragið þráðinn til baka í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum l á prjóni, * stingið inn prjóninum í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (þráðurinn liggur nú aftan við og að þér), dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna, sláið 1 sinni uppá prjóninn (aftan frá og að þér) og dragið uppsláttinn í gegnum síðustu l á hægri prjóni (þ.e.a.s. í síðustu l sem gerð var) *, endurtakið frá *-* þar til 6 l eru á prjóni. Prjónið síðan eins og útskýrt er í mynstri – JAFNFRAMT er dregið í endann á þræðinum svo að lykkjan dragist saman og gatið hverfi.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

RENDUR:
* 4 umferðir í litnum ljós bleikur, 4 umferðir í litnum natur *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KANÍNA / HÉRI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kanínan er hekluð í stykkjum og saumuð saman.

HÖFUÐ:
Stykkið er prjónað í hring á sokkprjóna frá nefi og aftur fyrir.
Gerið GALDRAHRINGUR með litnum ljós beige – sjá útskýringu að ofan = 6 l á prjóni. Skiptið l á 3 sokkaprjóna nr 3 (prjónið með fjórða prjóninum) og prjónið í hring þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 l.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 4: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 l.
UMFERÐ 5: Prjónið slétt.
UMFERÐ 6: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l.
UMFERÐ 7: Prjónið slétt.
UMFERÐ 8: * 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l.
UMFERÐ 9: Prjónið slétt.
UMFERÐ 10: * 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l.
UMFERÐ 11-12: Prjónið slétt = 36 l.
Setjið 1 prjónamerki eftir fyrstu 3 l í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir næstu 6 l. Aukið síðan út um 1 l innan við 2 prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 2 l fleiri). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf, 2 sinnum til viðbótar (= alls 3 útaukningar í hvorri hlið) = 42 l.
UMFERÐ 18-19: Prjónið slétt = 42 l.
UMFERÐ 20: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l.
UMFERÐ 21: Prjónið slétt.
UMFERÐ 22: * 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 l.
UMFERÐ 23: Prjónið slétt.
Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum allar l (án þess að draga saman).
Saumið út augu, munn og nef með litnum svartur, fyllið höfuðið með vatti, herðið að og festið enda (= miðja aftan á höfði).

EYRA:
Stykkið er prjónað í hring neðan frá og upp.
Fitjið upp 8 l með litnum ljós beige og skiptið l niður á 2 sokkaprjóna (prjónið með þriðja prjóninum).
UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l á prjóni.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 5: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l á prjóni.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 20 l á prjóni.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist ca 5½ cm. Fækkið lykkjum síðan þannig:
UMFERÐ 1: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 16 l.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 4 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar = 12 l.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
Haldið áfram að fella af í annarri hverri umf þar til 4 l eru eftir á prjóni (þ.e.a.s. í hverri umf með úrtöku eru prjónaðar 2 l færri á milli úrtöku í hvorri hlið). Í næstu umf eru allar l prjónaðar saman 2 og 2. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum allar l, herðið að og festið.
Brjótið uppá hvora hlið neðst niðri á eyranu inn við miðju svo að það myndist smá brot mitt í eyranu. Saumið saman neðst niðri með nokkrum sporum og saumið eyrað fast á höfuðið.
Prjónið hitt eyrað á sama hátt og saumið niður.

BÚKUR:
Stykkið er prjónað í hring, ofan frá og niður.
Fitjið upp 16 l með litnum ljós beige og skiptið niður á 4 sokkaprjóna (prjónið með þeim fimmta).
UMFERÐ 1-2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 l.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt (uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat).
UMFERÐ 5: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l.
UMFERÐ 6: Prjónið slétt.
UMFERÐ 7: * 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 l.
Prjónið síðan sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 5½ cm. Skiptið yfir í litinn ljós gulur og prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið síðan 8 umf sléttprjón.
Fellið nú af þannig:
UMFERÐ 1: * 6 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 42 l.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt.
UMFERÐ 3: * 5 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 l.
UMFERÐ 4: Prjónið slétt.
Haldið áfram úrtöku í annarri hverri umf (þ.e.a.s í hverri umf með úrtöku er prjónuð 1 l færri áður en 2 l eru prjónaðar saman = 6 l færri í hverri umf) þar til 12 l eru eftir á prjóni, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum l á prjóni (án þess að draga saman). Fyllið búkinn með vatti, dragið þráðinn saman og festið vel. Saumið höfuðið við búkinn (ljós gula stykkið á að snúa niður (= buxur).

FÓTUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka, neðan frá og upp.
Fitjið upp 30 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum ljós beige. Prjónið sléttprjón fram og til baka í 3 cm. Prjónið síðan þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 10 l sl, prjónið 8 næstu l slétt saman 2 og 2, 10 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 26 l.
UMERÐ 2 (= ranga): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5 l br, fellið af næstu 14 l, 5 l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 6 l eftir í hvorri hlið.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 6 fyrstu l á prjóni og síðan 6 næstu l á prjóni (þær 14 l br l mynda nú “gat” í miðju stykki).
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir 12 l með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar sem fæturnir mætast ca 8 cm.
Skiptið yfir í litinn bleikur, prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu. Prjónið nú þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 23 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br en kantlykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar slétt og uppslátturinn er prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.
UMFERÐ 3: * 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 l sl = 34 l.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til fóturinn mælist ca 12 cm, fellið af.
Saumið saman op við miðju ofan á fæti með lykkjuspori. Saumið saman fótinn við miðju undir og haldið áfram upp við miðju að aftan – saumið yst í lykkjubogann. Fyllið fótinn með vatti. Þræðið þráð upp og niður í gegnum affellingarkantinn efst á fæti (á því bleika). Herðið að svo affellingarkanturinn verði aðeins pokalaga.
Prjónið hinn fótinn á sama hátt og saumið báða fæturna við búkinn.

Heklið blúndukant með heklunál nr 3 með litnum bleikur neðst niðri á buxum á hvorum fæti þannig (heklað er í br lykkjuna): 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 fl í næstu br l á buxum *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf. Klippið frá og festið enda.

HENDI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á sokkaprjóna, ofan frá og niður.
Fitjið upp 10 l með litnum ljós beige og prjónið sléttprjón fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til hendin mælist 9 cm. Klippið frá (klippið niður nægilega langt til þess að geta saumað hendina saman), þræðið þráðinn í gegnum allar l á prjóni (= neðst niðri á hendi), herðið að og saumið síðan saman hendina yst í lykkjubogann. Fyllið hendina með vatti og saumið niður efst uppi á búk við háls (neðan við höfuð).
Prjónið hina höndina á sama hátt og saumið niður í gagnstæða hlið.

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna upp við handveg síðan er prjónað fram og til baka.

FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 60 l með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið síðan sléttprjón og RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist ca 9 cm – passið að síðasta umf er rönd með litnum ljós bleikur verði eftir, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 24 l, fellið af næstu 6 l fyrir handveg og prjónið síðustu 24 l. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 20 l með litnum ljós bleikur. Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú sléttprjón og RENDUR í hring. Þegar prjónaðar hafa verið 11 umf með röndum (þ.e.a.s. að síðasta umf með rönd með litnum ljós bleikur er eftir), prjónið næstu umf þannig: Fellið af 6 l fyrir handveg og prjónið næstu 14 l. Klippið frá, geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama prjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (án þess að prjóna l) = 76 l á prjóni. Byrjið umf frá réttu við miðju að aftan á fram- og bakstykki og haldið áfram með rendur þannig (1. umf = natur):
UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 9 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l sl saman, 2 l snúnar slétt saman, 20 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 10 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 9 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 68 l.
Prjónið síðan stykki fram og til baka frá miðju að aftan.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni.
UMFERÐ 3 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 8 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 18 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 8 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 60 l.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni.
UMFERÐ 5 (= rétta): Skiptið yfir í litinn ljós bleikur og prjóni 1 kantlykkju í garðaprjóni, 7 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 16 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 7 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 52 l.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni.
UMFERÐ 7 (= rétta): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 6 l sl, 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 14 l sl (= fram), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 4 l sl (= ermi), 2 l slétt saman, 2 l snúnar slétt saman, 6 l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 44 l.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið br, en kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni.
Skiptið yfir í litinn natur og prjónið næstu umf þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir og endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni = 30 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu, 1 umf slétt frá réttu og 1 umf slétt frá röngu áður en fellt er af með sl frá réttu. Klippið frá og festið enda.

SLAUFA:
Fitjið upp 5 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum bleikur. Prjónið garðaprjón fram og til baka í 8 cm, fellið af. Saumið saman skammhliðar yst í lykkjubogann svo að það myndist hringur. Klippið frá og festið enda. Takið annan þráð, snúið honum nokkrum sinnum utan um slaufuna og festið slaufuna við hálsinn á peysunni.
Klæðið kanínuna / hérann í peysuna og saumið peysuna fasta við búkinn í gegnum bæði stykkin upp við hálsinn að aftan.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Suzanne St-Jacques wrote:

Est-ce vraiment 10 mailles pour les bras, il me semble que c'est peu. Merci

22.03.2023 - 01:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme St-Jacques, il faut bien monter 10 mailles pour les bras et on tricote ensuite en jersey avec 1 m point mousse de chaque côté. Bon tricot!

22.03.2023 - 09:02

country flag Gry Frafjord wrote:

Hei, Har spørsmål ang. hode. Lurer på om omgang starter i siden og bakover til bakhodet, eller i siden og fremover mot ansiktet? Ref. "Sett 1 merke etter de første 3 m på beg av omg og 1 merke etter ytterligere 6 m. Videre økes det 1 m på innsiden av de 2 merkene – LES ØKETIPS (= 2 m økt). Gjenta økningen på hver 2.omg, 2 ganger til (= totalt 3 økninger i hver side) = 42 m." er dette til ansiktet?

05.02.2023 - 18:04

DROPS Design answered:

Hei Gry. Hodet strikkes rundt på fra snuten og bakover (mot bakhodet). Når du skal sette 2 merker i arbeidet og øke, er snuten/ansiktet allerede strikket, nå strikkes det rundt selve hodet. Etter 20. omgang starter fellingene til bakhodet. mvh DROPS Design

06.02.2023 - 11:54

country flag Nelly De Nil wrote:

Er staan geen armen op van het konijn de mouw heeft ook geen hand anders zou ik denken dat dat de arm was voor op te vullen

26.02.2022 - 12:34

DROPS Design answered:

Dag Nelly,

De armen van het konijn staan onder de paragraaf 'Voorpoot' :)

26.02.2022 - 16:23

country flag Solis wrote:

Ska börja på örat. Hur stickar man runt på 2 stickor? Får inte ihop det.

01.04.2019 - 22:05

DROPS Design answered:

Hej. Du stickar på samma sätt som när du har fler stickor. och stickar runt. Du har i detta fall maskorna på två stickor och stickar med en tredje. Lycka till!

05.04.2019 - 10:26

country flag Tanja wrote:

Wo kann ich das Foto des nachgemachten Hasen posten?

28.03.2019 - 09:51

DROPS Design answered:

Liebe Tanja, gerne können Sie das Foto auf unserem Facebook posten, und auch in unserem DROPS Workshop :)

01.04.2019 - 09:36

country flag Marion Böhm wrote:

Stellt der Bereich zwischen den Markierungen am Kopf eine bestimmte Stelle dar?

07.03.2018 - 13:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Böhm, 2 Markierungen werden eingesetzt, und danach nach 1. und vor 2. Markierung zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

07.03.2018 - 15:53

country flag Marion Böhm wrote:

Stellt der Bereich zwischen den Markierungen am Kopf eine bestimmte Stelle dar???

03.03.2018 - 16:54

country flag Marion Böhm wrote:

Beim Übergang zu rosa am Bein soll man nach der ersten Reihe 23 Maschen auf der Nadel haben. Das geht jedoch nicht auf, da das Bein aus "zwei" Teilen besteht und 23 nicht durch 2 teilbar ist. Zudem stricke ich den Bär in Nadelstärke 4, da die Beine ansonsten viel zu dünn würden und keinesfalls die Stärke des Fotos erreichen würden.

08.02.2018 - 17:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Böhm, bei der 3. Reihe werden Sie (2 re, 1 Umschlag) stricken = 34 M am Ende der 3. Reihe. Viel Spaß beim stricken!

09.02.2018 - 09:17

country flag Cindy Marie Vorkinn wrote:

Glem det spørsmålet, oppdaget feilen selv 😊

12.06.2017 - 15:07

country flag Cindy Marie Vorkinn wrote:

Hei, jeg driver for øyeblikket med benet til kaninen, men skjønner ikke helt hva jeg skal gjøre med foten? Har felt av de 14 maskene så de danner et hull eller løkke eller hva dere vil kalle det, men står ikke noe mer om hva man gjør med dette hullet? Syr jeg det sammen så blir det jo verdens minste fot? 🙈

12.06.2017 - 15:01

DROPS Design answered:

Hei Cindy Marie, Benet strikkes nedenfra og opp så du burde ha begynt med foten of avslutte på toppen av benet. De 14 felte maskene er hullet i benet hvor du skal fylle benet med vatt. Så da fortsetter du oppover benet og syr sammen hullet etter du har fylt benet. Håper dette hjelper, Med vennlig hilsen, Deirdre

12.06.2017 - 16:37