AJ skrifaði:
I am making the chicken pants pattern. It says knit with mustard color for 5". No sure if I should measure from the front or back of pants. Because of the extra rows on the back they are different lengths. Thanks
24.03.2015 - 00:59DROPS Design svaraði:
Dear AJ, measure should be done from mid front. Happy knitting!
24.03.2015 - 10:11
Cheeky Chicken#cheekychickentights |
|
![]() |
![]() |
Prjónaðar páskaunga - buxur úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð 2-8 ára. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1023 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 miðjulykkju að framan og að aftan með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Prjónið þar til 2 lykkjjur eru eftir að prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman og síðan 2 lykkjur snúnar slétt saman (prjónamerki er staðsett á milli þessa lykkja). -------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður í hring á hringprjóna og skipt er yfir á sokkaprjóna eftir þörf. BUXUR: Fitjið upp 120-124-128-132 lykkjur á hringprjóna nr 3 með litnum rauður og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið. Prjónið þar til stroffið mælist 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið síðan áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umferð er fækkað um 12 lykkjur jafnt yfir = 108-112-116-120 lykkjur á prjóni. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferð = miðja að aftan. Prjónið 1 umferð til viðbótar en endið á umferð 5 á undan prjónamerki. Geymið stykkið. Prjónið nú 5-5-7-7 litla þríhyrninga sem eru prjónaðir inn aftan á buxum (= kambur). ÞRÍHYRNINGAR: Fitjið upp 2 lykkjur á sokkaprjóna nr 4 með litnum rauður, prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Uppslátturinn er alltaf prjónaður snúinn slétt í næstu umferð til að koma í veg fyrir göt. Prjónið slétt til baka = 3 lykkjur. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka á sokkaprjóninn JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju með því að slá uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið í 3. hverri umferð þar til alls 9 lykkjur eru og 2 uppslættir á prjóni, í næstu umferð er prjónað brugðið, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið. Nú hafa verið prjónaðar 2 umferðir sléttprjón efst á þríhyrning. Setjið þríhyrninginn á þráð. Prjónið alls 5-5-7-7 þríhyrninga og setjið alla saman á sama þráð. Passið uppá að þeir snúi allir í sömu átt, þannig að allir hafa 2 umferðir sléttprjón í sömu hlið. Nú er bakhliðin á buxunum prjónuð. Haldið í þráðinn með þríhyrningunum að réttu á buxunum, passið að það séu 2 umferðir sléttprjón á þríhyrningum en snúa að þér. Prjónið fyrstu lykkju frá fyrsta þríhyrningi saman með fyrstu lykkju á buxum. Haldið áfram að prjóna saman lykkjur af þríhyrningi og buxum þar til prjónað hefur verið yfir 3-3-4-4 þríhyrninga. Prjónið síðan áfram á buxum þar til eftir eru 22-22-33-33 lykkjur á undan fyrsta þríhyrning. Prjónið síðan síðustu 2-2-3-3 þríhyrninga á buxum. Prjónið slétt yfir næstu 5 lykkjur = byrjun á umferð/miðja að aftan, flytjið prjónamerki frá fyrri stað að neðan hingað. Skiptið yfir í litinn gulur og setjið 1 prjónamerki til viðbótar í buxurnar, það er sett eftir 54-56-58-60 lykkjur (= miðja að framan). Síðan er prjónuð upphækkun að aftan í sléttprjóni þannig: Prjónið 8 lykkjur fram hjá prjónamerki við miðju að aftan, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 lykkjur, snúið við, herðið á þræði og haldið áfram að prjóna 8 lykkjur fleiri í hvert skipti þegar snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 80-80-96-96 lykkjur. Snúið við, haldið áfram hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist 13-13-14-15 cm. Geymið stykkið. Prjónið nú stóran þríhyrning (= goggur) sem á að prjóna inn á miðju aftan á buxum alveg eins og litlu þríhyrningarnir efst. STÓR ÞRÍHYRNINGUR: Fitjið upp 2 lykkjur á hringprjóna nr 4 (40 cm) með litnum rauður, prjónið 1 lykkjur slétt, sláið uppá prjóninn, 1 lykkja slétt. Prjónið slétt til baka = 3 lykkjur. Prjónið garðaprjón fram og til baka á hringprjóna JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið í hverri umferð 24-25-26-27 sinnum = 51-53-55-57 lykkjur á prjóni. Í síðustu umferð eru lykkjur prjónaðar brugðið og uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðið. Nú eru 2 umferðir í sléttprjón efst á þríhyrning. Geymið þríhyrninginn og prjónið síðan í hring á buxunum þar til 25-26-27-28 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki við miðju að aftan. Haldið þríhyrningnum að réttu á buxum, passið að 2 umferðir í sléttprjóni á þríhyrningi snúi að þér. Prjónið fyrstu lykkju af þríhyrningi saman við næstu lykkju á buxum. Haldið áfram að prjóna saman lykkjur af þríhyrningi og buxum þar til prjónaðar hafa verið saman allar lykkjur af þríhyrningi, prjónið síðan buxurnar áfram við miðju að aftan. Haldið áfram í sléttprjón eins og áður þar til stykkið mælist 19-19-20-19 cm við miðju að framan. Aukið út um 2 lykkjur framan og að aftan í næstu umferð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð, 2-2-2-3 sinnum til viðbótar (= alls 3-3-3-4 sinnum) = 120-124-128-136 lykkjur. Eftir síðustu útaukningu, fellið af 6-6-6-8 lykkjur við miðju að framan og við miðju að aftan (þ.e.a.s. 3-3-3-4 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin). Stykkið mælist ca 23-23-24-25 cm fyrir miðju að framan. Hvor skálm er nú prjónuð til loka fyrir sig, setjið lykkjur af annarri skálminni á þráð. SKÁLM: = 54-56-58-60 lykkjur. Skiptið lykkjunum niður á 4 sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram í sléttprjón hringinn – setjið 1 prjónamerki innan í skálmina. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 4 cm, nú eru prjónaðar 2 umferðir með litnum natur JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Prjónið síðan með litnum sinnepsgulur og endurtakið úrtöku og 2 umferðir með litnum natur með 2,5-4,5-5,5-7 cm millibili, 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 42-44-46-48 lykkjur. Þegar skálmin mælist 19-28-34-40 cm, skiptið yfir í litinn rauður og prjónið 2 umferðir – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út um 6-8-6-8 lykkjur jafnt yfir = 48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið síðan stroff = 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið með litnum rauður í 10 cm. Fellið síðan laust af með sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Setjið til baka lykkjur frá hinni skálminni á prjóninn og prjónið á sama hátt og fyrri skálm. FRÁGANGUR: Saumið þær 6-6-6-8 lykkjur sem felldar voru af á milli skálma saman yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. AUGA: Fitjið upp 5 lykkjur með litnum dökk blár á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 6 umferðir garðaprjón fram og til baka. Prjónið 1 umferð slétt, snúið stykkinu réttsælis og takið upp 1 lykkjur í hverja rönd í garðaprjóni í hlið á stykki með 1 nýjum sokkaprjóni (= 3 lykkjur), snúið stykkinu aftur og takið upp 5 lykkjur neðan á uppfitjunarkanti með nýjum sokkaprjóni = 13 lykkjur á prjóni. Prjónið slétt til baka og skiptið síðan yfir í litninn natur. Prjónið 5 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 5 lykkjur slétt. Prjónið slétt til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt = 17 lykkjur á prjóni. Prjónið 6 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 6 lykkjur slétt. Prjóni slétt til baka, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt = 21 lykkjur á prjóni Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu. Klippið frá og festið enda. Prjónið annað auga á sama hátt og saumið augun niður aftan á buxurnar beint ofan við stóra þríhyrninginn (= goggur). |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cheekychickentights eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1023
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.