Jenni skrifaði:
Hei! Täysi aloittelija täällä asialla niin tarkistaisin vaan että kuten kaulurin ohjeessa lukee niin merkkilangan jälkeen kudotaan vain yksi kierros vähäisillä silmukoilla ja sitten hypätään heti alkuperäiseen määrään silmukoita? Eli siis pääntie on takakappaleessa lähes suora? Kiitos!
14.10.2023 - 12:52DROPS Design svaraði:
Kyllä, tämä pitää paikkansa.
18.10.2023 - 16:45
Lara skrifaði:
Ciao, ho provato a realizzare questo modello utilizzando sia il filato sia l’uncinetto indicato da Voi...ma viene molto più grande rispetto alla taglia indicata...come mai? Grazie
25.01.2020 - 11:32DROPS Design svaraði:
Buongiorno, ha controllato che il suo campione corrispondesse a quello indicato prima di iniziare a lavorare? Buon lavoro!
25.01.2020 - 12:52
Helène skrifaði:
Je tricote présentement le plastron et je me demande si nous pouvons relever les mailles pour former le col avec des aiguilles circulaires et fermer le rond? Merci !
25.03.2016 - 01:46DROPS Design svaraði:
Bonjour Hélène, vous pouvez tout à fait utiliser une aiguille circulaire pour relever les mailles et tricoter le col, en fonction de la taille tricotée, il peut s'avérer alors utile d'utiliser la technique dite du magic loop. Bon tricot!
25.03.2016 - 10:52
Maresch Petra skrifaði:
Gibt es eine spezielle Technik, die Ohren so anzunähen, dass sie , wenn man die Mütze aufgesetzt hat auch stehen? Bei mir fallen sie entweder nach hinten oder nach vorne. Habe mir auch schon das Video angeschaut, konnte aber nichts erkennen, was ich da falsch gemacht haben könnte
20.11.2015 - 00:27DROPS Design svaraði:
Sie lassen ja die Ohren unten offen lassen, d.h. sie werden unten nicht zusammengehäkelt. Sie können versuchen, den vorderen und hinteren Teil mit etwas Abstand zueinander anzunähen, eventuell stehen sie dann besser. Oder Sie könnten einen ganz dünnen Draht einziehen, das sollte auf jeden Fall helfen.
24.11.2015 - 22:05
Danielle Jaussent skrifaði:
Je suis en train de réaliser ce bonnet et j'ai des problèmes pour fixer les oreilles. Comment dois-je faire pour les coudre et qu'elles restent bien droites ? Merci pour votre aide. Cordialement.
22.09.2015 - 08:47DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Jaussent, cousez les mailles du bas de l'oreille sur le bonnet, en épinglant auparavant si besoin. À la fin de la vidéo ci-dessous qui montre comment réaliser les oreilles, vous pourrez les voir cousues afin de visualiser comment elles doivent être. Bon assemblage!
22.09.2015 - 11:14
Bianca skrifaði:
Volgens mij staat er een foutje in de beschrijving voor de halswarmer. Bij de beschrijving voor het hals gedeelte staat: haak 1 toer av en haak dan 1 toer recht. Volgens mij moet dit brei zijn ipv haak :). Groetjes Bianca
06.11.2014 - 18:49DROPS Design svaraði:
Hoi Bianca. Ja, je hebt gelijk. Ik heb het patroon aangepast. Bedankt voor het melden!
07.11.2014 - 12:39
Honey Bunny#honeybunnyset |
|
![]() |
![]() |
Hekluð páskahéra / páskakanínu - húfa úr DROPS Lima og prjónað hálsskjól. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-1022 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta hst í umf/röðinni er skipt út fyrir 2 ll, hver umf með hst endar á 1 kl í aðra ll frá byrjun umf. STROFF: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum beige og tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 8 hst um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst umf hringinn = 16 hst. UMFERÐ 3: Heklið * 1 hst í fyrsta hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 hst. UMFERÐ 4: Heklið * 1 hst í hvorn af næstu 2 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 32 hst. UMFERÐ 5: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 3 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 40 hst. UMFERÐ 6: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 4 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 hst. UMFERÐ 7: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 5 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 56 hst. UMFERÐ 8: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 6 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 hst. UMFERÐ 9: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 7 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 72 hst. Héðan er heklað mismunandi eftir stærðum þannig: STÆRÐ 1/2 ára: UMFERÐ 10: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 6 hst jafnt yfir í umf = 78 hst. STÆRÐ 3/4 - 5/6 - 7/8 ára: UMFERÐ 10: Heklið * 1 hst í hvern af næstu 8 hst, 2 hst í næsta *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 hst. UMFERÐ 11: Heklið 1 hst í hvern hst, EN aukið jafnframt út 2-4-6 hst jafnt yfir í umf = 82-84-86 hst. Nú eru 78-82-84-86 hst í umf. Heklið nú 1 hst í hvern hst í hverja umf í öllum stærðum þar til stykkið mælist 18-19-20-21 cm eða að óskaðri lengd. Klippið frá og festið enda. EYRA: Eyrun eru hekluð í tveimur hlutum sem hekluð eru saman. Notið heklunál nr 4 og litinn púðurbleikur, heklið 16 ll. UMFERÐ 1: Snúið stykkinu við og heklið til baka í ll-umf þannig: Heklið 1 hst í 3.ll frá heklunálinni, síðan 1 hst í hverja af næstu 12 ll. Heklið 6 hst í síðustu ll í umf, snúið stykkinu og heklið 1 hst neðan í hverja af 13 ll frá ll-umf = 32 hst. Snúið við. UMFERÐ 2: Heklið 1 hst í hvern af næstu 13 hst, heklið 2 hst í hvern af næstu 6 hst, 1 hst í hvern af síðustu 13 hst = 38 hst. Snúið við. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í litinn beige og heklið 1 hst í hvern af næstu 15 hst, 1 st í næsta og 2 st í hvern af næstu 6 hst, 1 st í næsta hst og 1 hst í hvern af síðustu 15 hst í umf. Heklið 1 eyra til viðbótar á sama hátt. Heklið nú 2 eyru til viðbótar, EN bara í litnum beige (= bakhlið á eyra). Leggið stykki með litnum púðurbleikur ofan á stykki með litnum beige og heklið 1 fl í hverja l í kringum kantinn í gegnum bæði stykkin með litnum beige. Saumið eitt eyra í hvora hlið á húfunni. AUGA: Heklið 3 ll með heklunál nr 4 með litnum brúnn, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 9 hst um hringinn og endið á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur og heklið aftan í lykkjubogann umf hringinn með 2 hst í hvern hst og endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 18 hst. Klippið frá og festið enda. Heklið annað auga á sama hátt og saumið þau niður framan á húfuna. NEF: BLEIKUR HLUTI: Nefið saman stendur af 3 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin. Notið heklunál nr 4 og litinn púðurbleikur. Heklið 10 ll, snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni. Heklið nú í hverja ll í ll-umf þannig: Heklið 1 tbst, 1 þbst, 1 þbst, 1 tbst, 1 st og endið á 3 ll og 1 kl í síðustu ll í umf. Klippið frá og festið enda. HVÍTUR HLUTI NR 1: Notið heklunál nr 4 og litinn natur. Heklið 3 ll, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 9 hst um hringinn og endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst og endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 18 hst. UMFERÐ 3: Heklið 2 hst í fyrsta hst, 1 hst í næsta, 2 hst í næsta, 1 hst í næsta, 2 hst í næsta. Heklið nú 1 st í næsta, 2 st í hvern af næstu 3 hst, 1 st í næsta og endið á 1 hst í hvern af næstu 5 hst. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegn.. HVÍTUR HLUTI NR 2: Notið heklunál nr 4 og litinn natur. Heklið 3 ll, tengið saman í hring með 1 kl í fyrstu ll. UMFERÐ 1: Heklið 9 hst um hringinn og endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 2: Heklið 2 hst í hvern hst og endið á 1 kl í 2. ll frá byrjun umf = 18 hst. UMFERÐ 3: Heklið 1 hst í hvern af fyrstu 5 hst, 1 st í næsta, 2 st í hvern af næstu 3 hst, 1 st í næsta, 2 hst í næsta hst, 1 hst í næsta, 2 hst í næsta, 1 hst í næsta og 2 hst í næsta. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegn. Saumið saman stykki 1 og 2 þannig: Leggið stykkin saman með framhlið upp. Lykkjurnar sem ekki voru heklaðar í umf 3 liggja á mót hvor annarri kant í kant, saumið þær saman. Saumið síðan niður litla hlutann af nefinu sem er bleikur á hvíta hlutann. Að lokum er allt nefið saumað niður framan á húfuna. SKOTT: Gerið smá dúsk með litnum natur ca 5 cm að þvermáli og saumið niður við miðju aftan á húfuna. ------------------------------------------------------- HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er neðst niðri á framstykki og fellt er af neðst niðri á bakstykki, kraginn sjálfur er prjónaður á í lokin. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 42-46-50 l á prjóna nr 4,5 með litnum beige og prjónið GARÐAPRJÓN. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7-9-10 cm fellið af miðju 14-16-18 l af fyrir hálsmáli. Prjónið hvora öxl til loka fyrir sig. ÖXL 1: = 14-15-16 l. Haldið áfram í garðaprjón – jafnframt er l fækkað við hálsmál í annarri hverri umf: 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 3 sinnum = 6-7-8 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15 cm er sett 1 prjónamerki (= miðja ofan á öxl) – héðan er nú mælt! Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l við hálsmál síðan eru l settar á þráð. ÖXL 2: Prjónið eins og Öxl 1. BAKSTYKKI: Setjið til baka l af annarri öxlinni á prjóninn. Fitjið upp 26-28-30 l og setjið l af hinni öxlinni á prjóninn = 42-46-50 l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 11-13-15 cm frá öxl, fellið af. KRAGI: Takið upp ca 76 til 88 l (deilanlegt með 4) í kringum hálsmál á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf br, prjónið síðan 1 umf sl – JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 92-96-100 l. Haldið áfram með stroff. Þegar hálsskjólið mælist ca 7-8-9 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #honeybunnyset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1022
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.