Ilenia skrifaði:
Al termine della prima ripetizione di a2 e a3 sulle maniche restano 7m +77m+7m (tot 91m). se continuo ad applicare le diminuzionii a2 e a3 diventano riduco a 7 le ripetizioni di a1 ma se continuo a fare così fino alle 31 diminuzioni x il corpo restano solo 140 maglie, non 184. Vedo che lo stesso problema esiste x il modello 152-18. Mi aiutate?
23.06.2014 - 00:33
Kerstin skrifaði:
Ett tillägg till mitt tidigare inlägg. Efter 31 minskningar i storlek M blir det 160 maskor kvar. Tack för alla fina mönster
17.06.2014 - 21:14
Kerstin skrifaði:
Det kan inte bli 184(M)maskor kvar efter alla minskningar, eftersom det minskas 4 extra maskor på vart sjätte varv. Har jag fel, eller stämmer inte beskrivningen?
16.06.2014 - 23:30DROPS Design svaraði:
Jo du har 432 m, minsker på bolen 4m x 31 ggr = 124. Minsker enligt diagram 4 x 12 ggr =48. Sedan fortsætter minskningen på ærmen 4 x 19 ggr = 76 = 184 m kvar
02.09.2014 - 11:58
Maria skrifaði:
Den er så smuk! Krydser fingre for, at kunne få opskriften.
27.01.2014 - 10:38
Dorthe skrifaði:
Må bare strikke denne. Så flot.
16.01.2014 - 19:01
Christine skrifaði:
Mal proportionné à mon avis.
06.01.2014 - 17:47
Solveig Lykseth skrifaði:
Nei, denne var lite kledelig!
30.12.2013 - 23:07
Gabriele skrifaði:
Ich finde diese wunderschön und hoffe,dass die Anleitung erscheint.
30.12.2013 - 18:34
Hopla skrifaði:
Nej nej hvor er den grim...
11.12.2013 - 19:35
Karianne skrifaði:
Stort ja!!
11.12.2013 - 15:41
Florentina Jacket#florentinajacket |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Muskat eða DROPS Belle með laskalínu og gatamynstri. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-19 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.3. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING: Aukið er út frá réttu: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið á 4 l á undan prjónamerki, 2 l br, 2 l slétt saman (= 1 l færri). Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Byrjið á 1. l á eftir prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 2 l br (= 1 l færri). HNAPPAGAT: Fellt er ef fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (= 5 kantlykkjur að framan). 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 17, 24, 31, 38 og 45 cm STÆRÐ M: 19, 26, 33, 40 og 47 cm STÆRÐ L: 21, 28, 35, 42 og 49 cm STÆRÐ XL: 23, 30, 37, 44 og 51 cm STÆRÐ XXL: 20, 27, 34, 41, 48 og 55 cm STÆRÐ XXXL: 22, 29, 36, 43, 50 og 57 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 194-194-226-250-274-298 l (meðtaldar eru 5 kantlykkjur við miðju að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið síðan yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, sléttprjón yfir næstu 39-39-47-53-59-65 l, A.1 yfir næstu 14 l, sléttprjón yfir næstu 78-78-94-106-118-130 l (= bakstykki), A.1 yfir næstu 14 l, sléttprjón yfir næstu 39-39-47-53-59-65 l, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið síðan eina umf til baka alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið síðan áfram fram og til baka alveg eins, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l í hvorri hlið við 2 mynstureiningarnar af A.1 í hlið (= 4 l fleiri í umf) – LESIÐ ÚTAUKNING! Byrjið á 1 l á undan A.1 og aukið út þannig: Sláið uppá prjóninn, 1 l sl, A.1 yfir 14 l, 1 l sl, sláið uppá prjóninn (= 2 l fleiri í hvorri hlið). Endurtakið útaukningu með 2½.-2½. - 2.-2.-4.-3½ cm millibili 6-6-6-6-3-3 sinnum til viðbótar alls 7-7-7-7-4-4 sinnum = 222-222-254-278-290-314 l á prjóni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-19-21-23-20-22 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan! Haldið síðan áfram í sléttprjóni, mynstur eftir A.1 og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni þar til stykkið mælist 23-25-22-20-23-21 cm. Í næstu umf frá röngu er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fram að 2 mynstureiningu í hvorri hlið og fellið af 14 l yfir A.1, prjónið allar l yfir bakstykki og fellið síðan af 14 l yfir A.1 í hægri hlið, prjónið út umf og geymið stykkið (= alls 28 l færri) = 51-51-59-65-68-74 l eftir á framstykki og 92-92-108-120-126-138 l eftir á bakstykki (= alls 194-194-226-250-262-286 l eftir á prjóni). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 133-133-147-161-154-168 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat eða Belle. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur þannig: A.1 (= 7 l) yfir allar l í umf = alls 19-19-21-23-22-24 mynstureiningar í umf. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti. ATH! Endið á umf í sléttprjóni sem er eftir umf sem er umf 3 í A.1 (þ.e.a.s. eftir umf 4,8,12 o.s.frv), JAFNFRAMT í þessari umf er fellt af í heilli mynstureiningu í A.1 hvoru megin við prjónamerki (= alls 14 l felldar af undir ermi) = 119-119-133-147-140-154 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 432-432-492-544-542-594 l, setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í 1. umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni 42-42-50-56-59-65 l sléttprjón (= hægra framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 (= 21 l), A.1 alls 11-11-13-15-14-16 sinnum, A.3 (= 21 l), setjið eitt prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 84-84-100-112-118-130 l (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 (= 21 l), A.1 alls 11-11-13-15-14-16 sinnum, A.3 (= 21 l), setjið eitt prjónamerki hér, 42-42-50-56-59-65 l sléttprjón (= vinstra framstykki), 5 kantlykkjur að framan, JAFNFRAMT byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan = 4 l færri. Endurtakið sömu úrtöku í annarri hverri umf 30-30-37-44-44-51 sinnum til viðbótar alls 31-31-38-45-45-52 sinnum, JAFNFRAMT er haldið áfram með mynstur með úrtöku fyrir laskalínu á ermum. ATH! Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með sömu úrtöku í mynstri á ermum og sömu úrtöku fyrir laskalínu á fram- og bakstykki eins og áður. ATH! Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með sömu úrtöku í mynstri á ermum og sömu úrtöku fyrir laskalínu á fram- og bakstykki eins og áður. Þegar úrtöku er lokið eru 164-164-164-156-154-146 l eftir á prjóni. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 20-20-21-20-23-22 l áður en l eru settar á þráð fyrir hálsmáli, haldið áfram yfir ermar og bakstykki eins og áður og setjið þær 18-18-18-18-20-20 l sem eftir eru á þráð. Í næstu 6 umf er haldið áfram með mynstur yfir ermar, sléttprjón yfir bakstykki og úrtöku eins og áður (þ.e.a.s. haldið áfram með úrtöku fyrir laskalínu eins og áður á fram- og bakstykki), JAFNFRAMT er prjónuð er upphækkun aftan við hnakka þannig: Lykkjufjöldinn sem er prjónaður fækkar þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við, prjónið þar til 3 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 9 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 9 l eru eftir. Setjið nú l af þræði aftur á prjóninn, skiptið yfir í hringprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf hringinn í garðaprjóni yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf í kanti með garðaprjóni er lykkjufjöldinn jafnaður út til 153-153-153-144-144-136 l jafnt yfir í umf (en ekki yfir 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið) = 139-139-139-139-134-134 l eftir á prjóni. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #florentinajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.