DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Brise d'Ete

Prjónuð peysa í tveggja lita klukkuprjóni úr DROPS Brushed Alpaca Silk eða DROPS Vivaldi. Stærð S - XXXL.

DROPS 152-12
DROPS Design: Mynstur nr as-017
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
100-100-100-125-125-150 gr litur nr 14, ljós grágrænn
100-100-100-125-125-150 gr litur nr 01, natur
Eða notið:
DROPS VIVALDI frá Garnstudio
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 09, ljós blár
100-100-100-150-150-150 gr litur nr 06, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 26 umf með klukkuprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6688.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

KLUKKUPRJÓNS LYKKJA:
Þegar telja á lykkjurnar, er uppslátturinn ekki talinn sem lykkja.

LEIÐBEININGAR-1:
Til þess að þetta geti verið tveggja lita klukkuprjón er prjónað fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið 1. umf eins og útskýrt er frá að neðan, snúið við og byrjið síðan litaskiptingarnar þannig: Prjónið 2. umf eins og útskýrt er frá að neðan með 1 lit og færið síðan allar lykkjurnar á hringprjóninum á annan endann á hringprjóninum þannig að næsta umf sé prjónuð með lit 2 frá sömu hlið á stykkinu – snúið síðan við og næstu 2 umf eru prjónaðar eins og 2 fyrstu – það er sem sagt prjónuð 1 umf með hvorum lit og prjónað er alls 2 umf frá sömu hlið áður en stykkinu er snúið við og prjónað er til baka.

LEIÐBEININGAR-2:
Ef þú ert í vafa – getur þú alltaf séð hvaða lit á að prjóna með því að sjá að síðasti litur er sýnilegur í kantlykkju.

TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI:
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið með lit nr 01, natur.
* sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Snúið við.

UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið með lit 01, natur
* Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman.
Færið til baka l á hringprjóna þannig að prjónað er frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit (lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2).

UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið með lit 14, ljós grágrænn
* Sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn eins og prjóna eigi brugðið. Snúið við.

UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið með lit 01, natur
* Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman.
Færið til baka l á hringprjóninn þannig að prjónað er frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit.

UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið með lit 14, ljós grágrænn
* Sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman*, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Snúið við.

Endurtakið umf 2-5.

ÚTAUKNING (á við um ermi):
Aukið út um 1 l í byrjun á umf eftir 1 kantlykkju og 1 l á undan 1 kantlykkju í lok umf.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón.

ÚRTAKA 1:
Fækkið lykkjum frá réttu í klukkuprjóni þannig:
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið klukkuprjón þar til 3 l er eftir á undan prjónamerki (- sjá TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI að ofan), takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 l slétt saman, steypið síðan óprjónuðu l yfir. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið klukkuprjón fram að prjónamerki, prjónið 3 l slétt saman. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur.

ÚRTAKA 2:
Fækkið um 2 l með því að prjóna þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum sem síðan eru sett á sama prjón og prjónað er fram og til baka til loka.

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna – sjá LEIÐBEININGAR -1.
Fitjið laust upp 96-99-102-105-108-111 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með litnum natur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 65-67-69-71-73-75 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (stillið af að næsta umf sé 2.-2.-2.-3.-3.-2. umf í klukkuprjóni).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Fellið nú af 1 kantlykkju í hvorri hlið í næstu umf þannig: Fellið af 1 kantlykkju í byrjun á næstu umf með því að prjónað 2 fyrstu l snúnar slétt saman, prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir, prjónið síðustu 2 l slétt saman = 63-65-67-69-71-73 l. Prjónið 1 umf til viðbótar (= 3.-3.-3.-4.-4.-3. umf klukkuprjón). Geymið stykkið og prjónið síðan bæði framstykkin.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið laust upp 93-96-99-102-105-108 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með litnum natur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka) = 63-65-67-69-71-73 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (stillið af að næsta umf sé 2.-2.-2.-3.-3.-2. umf í klukkuprjóni). Í næstu umf eru kantlykkjur í hægri hlið felldar af með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman = 62-64-66-68-70-72 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf til viðbótar (= 3.-3.-4.-4.-3.- umf í klukkuprjóni). Geymið stykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar 1 kantlykkja er felld af þá eru 2 fyrstu l prjónaðar snúnar saman.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 32-32-34-34-35-35 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með litnum natur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l í næstu l *, endurtakið frá *-* þar til 1-1-3-3-2-2 l eru eftir, endið á 0-0-2-2-1-1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 47-47-49-49-51-51 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið á stykki með 5-4-4-3-2½-2½ cm millibili 4-6-6-8-8-10 sinnum til viðbótar (= alls 5-7-7-9-9-11 sinnum) = 57-61-63-67-69-73 l. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 35-35-34-34-33-33 cm (stillið af að næsta umf sé 2.-2.-2.-3.-3.-2. umf í klukkuprjóni). Fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið 2 fyrstu l snúnar slétt saman, prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir, 2 l slétt saman = 55-59-61-65-67-71 l. Prjónið síðan 1 umf til viðbótar (= 3.-3.-3.-4.-4.-3. umf í klukkuprjóni) JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki innan við 5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á milli framstykkis og bakstykkis í hvorri hlið á saman hringprjón með litnum natur og snúið út (= rétta) = 297-311-321-335-345-359 l á prjóni. Setjið nú 1 prjónamerki í skiptingar á milli bakstykkis og erma í hvorri hlið (= alls 6 prjónamerki að meðtöldum prjónamerkjum á ermum). Næsta umf = 4.-4.-4.-5.-5.-4. umf í klukkuprjóni (= ranga). Prjónið 2-3-3-1-1-3 umf í klukkuprjóni áður en komið er að úrtöku fyrir laskalínu á ermum og á bakstykki (ATH: Lykkjum er ekki fækkað á framstykki) í næstu umf (= 2.-3.-3.-2.-2.-3. umf í klukkuprjóni). Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 61-63-65-67-69-71 l í klukkuprjóni eins og áður (uppslátturinn er ekki talinn með sem l – LESIÐ TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI), prjónið fyrstu 5 l í klukkuprjóni frá ermi eins og áður, fækkið um 2 l á eftir prjónamerki – sjá ÚRTAKA 1 að ofan, haldið áfram í klukkuprjóni þar til 3 l eru eftir á undan næsta prjónamerki á ermi, fækkið um 2 l á undan prjónamerki – sjá ÚRTAKA 1 að ofan, síðustu 5 l frá ermi eru prjónaðar eins og áður, prjónamerki, fækkið nú um 2 l á bakstykki á eftir prjónamerki, prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni á bakstykki, fækkið um 2 l á undan prjónamerki, prjónið fyrstu 5 l á ermi eins og áður, fækkið um 2 l á eftir prjónamerki, haldið áfram í klukkuprjóni þar til 3 l eru eftir á undan næsta prjónamerki á ermi, fækkið um 2 l á undan prjónamerki, þær 5 síðustu l frá ermi eru prjónaðar eins og áður, prjónið nú síðustu 61-63-65-67-69-71 l í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður = 12 l færri.
Fækkið nú lykkjum mismunandi á ermum og á bakstykki.
Ermar: Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 10-10-11-12-13-13 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. fækkið lykkjum í 2.-3.-3.-2.-2.-3. hverri umf í klukkuprjóni = 11-15-13-13-11-15 l eftir á hvorri ermi.
Bakstykki: Endurtakið úrtöku á bakstykki í 8. hverri umf 0-0-0-1-2-2 sinnum, síðan í 4. hverri umf 10-10-11-10-9-9 sinnum (þ.e.a.s. fækkið lykkjum í 2.-3.-3.-2.-2.-3. hverri umf í klukkuprjóni)= 19-21-19-21-23-25 l eftir á bakstykki. = 165-179-177-183-185-199 l á prjóni.
Síðan í næstu umf (= rétta í S-XL-XXL, ranga í M-L-XXXL) er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, klukkuprjóni eins og áður yfir næstu 61-63-65-67-69-71 l (= framstykki), síðan er prjónað stroff með tveimur litum (þ.e.a.s.s prjónið sl yfir sl í klukkuprjóni í saman lit og klukkuprjóns-l og br yfir br í klukkuprjóni í sama l og klukkuprjóns-l) yfir næstu 41-51-45-47-45-55 l (þ.e.a.s. ermar og bakstykki). ATH: Þ.e.a.s. að uppslátturinn og óprjónaða l eru prjónaðar slétt saman og br er prjónað br JAFNFRAMT er fækkað um 4-14-4-6-2-12 l jafnt yfir, þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l 2-7-2-3-1-6 sinnum – sjá ÚRTAKA 2, prjónið nú klukkuprjón eins og áður yfir síðustu 61-63-65-67-69-71 l og 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki) = 161-165-173-177-183-187 l eftir á prjóni. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, klukkuprjón eins og áður yfir næstu 61-63-65-67-69-71 l (= framstykki), síðan er prjónað sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 37-37-41-41-43-43 l, klukkuprjón eins og áður yfir síðustu 61-63-65-67-69-71 l og 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki).
Fellið af með litnum ljós grágrænn með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Uppslátturinn er felldur af eins og lykkja.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (95)

country flag Regina wrote:

Ich würde mich gerne an der Jacke versuchen und scheitere bereits zu Beginn. Es ist angegeben: ZWEIFARBIGES VOLLPATENT (ungerade M-Zahl) und anschlagen müsste ich bei meiner Größe 96 M.

28.08.2022 - 23:29

DROPS Design answered:

Liebe Regine, für das Rückenteil schlagen Sie 96 Maschen an, aber bei der 1. Reihe nehmen Sie Maschen ab (* 1 M re, 2 M re zusammenstricken *, von *-* wdh bis noch 2 M übrig sind, ) so daß 65 Maschen übrig sind, so ist die Mascheanzahl ungerade. Viel Spaß beims tricken!

29.08.2022 - 09:05

country flag Brigitte wrote:

Ich möchte im Halbpatent Stricken geht das, wenn ja wie?

28.06.2022 - 20:16

DROPS Design answered:

Liebe Brigitte, leider können wir nicht jede Anleitung nach jeder Anfrage anpassen, am besten stricken Sie eine Maschenprobe, so wissen Sie mehr, dann kann Ihnen gerne Ihr DROPS Laden oder ein Strick-Forum damit helfen. Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim stricken!

29.06.2022 - 09:25

country flag Sylvie wrote:

Bonjour. Je voudrais savoir si au lieu de faire des côtes bicolores je pouvais faire les côtés d'une seule couleur et la méthode sera la même où ce sera comme les côtes anglaises normales. Merci pour votre réponse. Cordialement

20.03.2021 - 11:24

DROPS Design answered:

Bonjour Sylvie, si vous tricotez avec une seule couleur, alors les côtes anglaises seront à tricoter en suivant cette méthode. Bon tricot!

22.03.2021 - 07:31

country flag Susanna wrote:

Is this sweater knitted with 1 or 2 threads as it uses 2 different colors? Can it be knitted with only 1 color?

21.02.2021 - 21:09

DROPS Design answered:

Dear Susanna, the seater is knitted with two different color, in a two colored englis rib, both color held single (not double). It can be knitted with one color, but the recult will loose the enhanced ribbest efefxt the modeel on the picture has. Happy Knitting!

21.02.2021 - 21:42

country flag Rita wrote:

Hallo! Ich verstehe die Anleitung für das Rechte Vorderteil überhaupt nicht. Da steht, daß die aufgenommenen Maschen z.B. 93, stetig abgenommen werden sollen (1 M re und 2 M re zusammenstricken), bis nur noch 2 Maschen übrig sind, obwohl in der nächsten Reihe dann steht, daß noch 63 M. übrigbleiben sollten. Es klingt unlogisch. Ich freue mich über die Auflösung des Rätsels! Lieben Gruß

07.07.2020 - 00:11

DROPS Design answered:

Liebe Rita, damit die Anschlagskante elastisch genug wird, schlägt man mehr Maschen als man braucht, bzw 93 M und so stricken: 1 M re (Krausrippe), (1 M re, 2 M re zs) x 30 Mal wiederholen (= über die nächsten 90 Maschen), 2 Maschen bleiben, die stricken Sie: 1 M re, 1 M re (krausrippe). So haben Sie: 1 + (3x30 abgenomen zu 2 x 30) + 2 = 1+ (90 => 60) + 2 = 93 Maschen abgenommen zu 63 Maschen. Viel Spaß beim stricken!

07.07.2020 - 10:12

country flag Francesca wrote:

Buongiorno,\r\nNon capisco sul dietro alla fina dei 33-34-35-36-37-38 cm a costa inglese. Nel ferro successivo quando dite “lavorare come prima” intendete 1 m dir, 2 m insieme a dir o ferro 2 coste inglesi. Con le coste inglesi, considerando i gettati, dopo le riduzioni mi rimarrebbero più di 63-65-67-69-71-73 m.\r\nGrazie

22.01.2020 - 13:35

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Per ferro successivo si intende il ferro 2 delle coste inglesi (per le taglie S - M - L - XXXL), il ferro 3 delle coste inglesi (per le taglie XL - XXL ). Durante questo ferro vengono diminuite 2 maglie, una all'inizio e una alla fine del ferro. Verifichi che il numero delle maglie sia corretto prima delle diminuzioni. Le maglie gettate non vanno contante come maglie. Buon lavoro!

22.01.2020 - 15:24

country flag Carla wrote:

Hallo, heel graag zou ik willen hoe ik 1 steek moet meerderen en minderen. bij tips v h minderen mouw begrijp ik de instr niet! verder staan er alleen tips vh minderen van 2 st maar er wordt in de beschr ook 1 st minderen gevraagd. kunt u mij aub helpen? heb diverse tutorials bekeken maar helaas.

28.05.2019 - 22:47

DROPS Design answered:

Dag Carla,

Bij 'TIPS VOOR HET MEERDEREN (voor de mouw)' staat aangegeven hoe je 1 steek meerdert aan elke kant (voor en na de kantsteek). Op een gegeven moment moet je inderdaad ook minderen bij de mouw, maar hoe je dit doet staat bij de beschrijving van de mous: namelijk 2 steken gedraaid samenbreien.

29.05.2019 - 10:42

Christin wrote:

Hi there! I have been reading through your pattern but I am not sure if I understand it correctly. The back piece requires 99sts (for size M) to be cast on, then I knit in decrease (as it asks to K1, K2tog) until I have 67sts left on my needles, and after that I continue in English Rib. Do I understand the pattern correctly? Thank you and Merry Christmas!

10.12.2018 - 10:47

DROPS Design answered:

Dear Christin, you are right, you cast on more stitches than you need for the English rib, to avoid casting on row being too tight. Merry Christmas and happy knitting!

10.12.2018 - 11:12

country flag Gudrun wrote:

Die Frage wurde in 2014 zwar schon mal gestellt, die Antwort hat mir nicht weitergeholfen. Wie stricke ich das Muster mit nur einer Farbe? Danke vorab!

01.09.2018 - 08:25

DROPS Design answered:

Liebe Gudrun, hier werden dieses Muster mit nur 1 Farbe erklärt. Viel Spaß beim stricken!

04.09.2018 - 11:28

Trisha wrote:

HELP! Just can’t master the English rib -the correct yarn has been purchased, love the look of the finished garment but in despair. Can you recommend an alternative stitch that is within my capabilities. I’ve tried Brioche but cannot grasp this either even though I am a confident knitter and have tried many times using the videos on line. I am almost at the point of giving up!

27.02.2018 - 08:03

DROPS Design answered:

Dear Trisha, English Rib and Brioche is basically the same thing. Do not dispair, please try to see and follow the tutorial videos on our site heret. And do not forget that you can always ask for personal help in teh store you bought your DROPS yarn from. Happy Knitting!

27.02.2018 - 09:04