DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 152-18
DROPS Design: Mynstur nr r-648
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
500-500-550-600-650-700 gr litur nr 61, ljós beige

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5720.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1-A.3.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að taka upp þráðinn á milli 2 l frá fyrri umf – prjónið þessa lykkju snúna sl, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan til þess að koma í veg fyrir göt.

LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Byrjið á 4 l á undan prjónamerki, 2 l br, 2 l slétt saman (= 1 l færri).
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Byrjið á 1. l á eftir prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, 2 l br (= 1 l færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 212-212-244-268-280-304 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat.
Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Skiptið síðan yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá miðju að aftan þannig: Sléttprjón yfir næstu 46-46-54-60-63-69 l (= bakstykki), A.1 (= 7 l) yfir næstu 14 l, sléttprjón yfir næstu 92-92-108-120-126-138 l (= framstykki), A.1 yfir næstu 14 l, sléttprjón yfir næstu 46-46-54-60-63-69 l (= bakstykki). Haldið síðan áfram í sléttprjóni, mynstur eftir mynsturteikningu A.1 í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25-22-20-23-21 cm.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í næstu umf er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið fram að 2 mynstureiningunum í vinstri hlið og fellið síðan af 14 l yfir A.1, prjónið sléttprjón yfir allar l á framstykki og fellið af 14 l yfir A.1 í hægri hlið, prjónið út um og geymið stykkið (= alls 28 l færri) = 92-92-108-120-126-138 l á bakstykki og á framstykki = alls 184-184-216-240-252-276 l eftir á prjóni.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 133-133-147-161-154-168 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið mynstur þannig: A.1 (= 7 l) yfir allar l í umf = alls 19-19-21-23-22-24 mynstureiningar í umf. Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 5 cm frá uppfitjunarkanti. ATH! Endið á umf í sléttprjóni sem er eftir umf sem er umf 3 í A.1 (þ.e.a.s. eftir umf 4,8,12 o.s.frv), JAFNFRAMT í þessari umf er fellt af í heilli mynstureiningu í A.1 hvoru megin við prjónamerki (= alls 14 l felldar af undir ermi) = 119-119-133-147-140-154 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 422-422-482-534-532-584 l, setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í næstu umf þannig: 46-46-54-60-63-69 l sléttprjón (= bakstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 (= 21 l), A.1 alls 11-11-13-15-14-16 sinnum, A.3 (= 21 l), setjið eitt prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 92-92-108-120-126-138 l (= framstykki), setjið eitt prjónamerki hér, A.2 (= 21 l), A.1 alls 11-11-13-15-14-16 sinnum, A.3 (= 21 l), setjið eitt prjónamerki hér, 46-46-54-60-63-69 l sléttprjón (= bakstykki), JAFNFRAMT byrjar LASKALÍNA Á FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan = 4 l færri. Endurtakið sömu úrtöku í annarri hverri umf 30-30-37-44-44-51 sinnum til viðbótar alls 31-31-38-45-45-52 sinnum, JAFNFRAMT er haldið áfram með mynstur með úrtöku fyrir laskalínu á ermum. ATH! Þegar A.2 og A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram með sömu úrtöku í mynstri á ermum og sömu úrtöku fyrir laskalínu á fram- og bakstykki eins og áður.
Þegar úrtöku er lokið eru 154-154-154-146-144-136 l eftir á prjóni.
Prjónið nú næstu umf frá miðju að aftan þannig:
Haldið áfram eins og áður í sléttprjóni yfir l á bakstykki og mynstur yfir ermi. Prjónið sléttprjón yfir 30-30-32-30-36-34 l á framstykki áður en l á framstykki eru settar á þráð.
Prjónið nú upphækkun fram og til baka við hnakka þannig: Næstu 6 umf eru áfram með mynstri yfir ermar, sléttprjón á bakstykki og úrtöku eins og áður, JAFNFRAMT er prjónuð er upphækkun aftan í hnakka þannig: Lykkjufjöldinn sem er prjónaður fækkar þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á prjóni, snúið við, prjónið þar til 3 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 6 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 9 l eru eftir, snúið við, prjónið þar til 9 l eru eftir. Setjið nú l af þræði aftur á prjóninn, skiptið yfir í hringprjóna nr 3,5 og prjónið 6 umf hringinn í garðaprjóni yfir allar l, JAFNFRAMT í 1. umf á kanti í garðaprjóni er fækkað um 11-11-11-12-10-2 l jafnt yfir = 143-143-143-134-134-134 l eftir á prjóni. Fellið laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.03.2015
FRAM- OG BAKSTYKKI: Nýjar tölur í cm....Haldið síðan áfram með sléttprjóni, mynstur eftir A.1 á hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25-22-20-23-21 cm. MUNIÐ EFTIR PRJÓNFESTU ... BERUSTYKKI: ... þegar úrtöku er lokið eru 154-154-154-146-144-136 l eftir á prjóni... JAFNFRAMT í 1. umf á kanti með garðaprjóni er fellt af 11-11-11-12-10-2 l jafnt yfir = 143-143-143-134-134-134 l eftir á prjóni. Fellið laust af.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l br saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (85)

country flag Linda wrote:

Het laatste stukje van de pas begrijp ik niet. Kunt u mij uitleggen hoe ik het stukje moet doen met de hals en de ronding heen en weer en de 3, 6 en 9 steken en keren.

09.05.2023 - 12:29

DROPS Design answered:

Dag Linda,

De steken van het voorpand heb je op een hulpdraad gezet en je breit nu heen en weer. Je breit eerst tot je nog 3 steken op de linker naald hebt, dan keer je het werk en brei je terug en je breit dan weer tot je 3 steken op de linker naald hebt. In de volgende 2 naalden keer je het werk als je 6 steken over hebt en zo ga je verder zoals beschreven. Op deze manier brei je over steeds minder steken van het achterpand en maak je dus een verhoging aan de achterkant.

13.05.2023 - 09:32

country flag Jeanette Hansen wrote:

Nået til bærestykket hvor ærmerne lige er kommet på. Og sat mærke ved 46 masker på ryggen og så forstår jeg ikke hvordan jeg skal forsætte. Laver medium A2=21 masker, A1 total 11 gange , A3=21 msker sæt et mærke her WHAT

25.05.2022 - 18:43

DROPS Design answered:

Hei Jeanette. Du har 422 masker. Når du har satt alle maskene på samme rundpinne starter du å strikke (midt bak). Strikk 46 masker glattstrikk (= halve bakstk), sett 1.merke her, A.2 (= 21 m), strikk A.1 11 ganger (over 77 masker), A.3 (= 21 m), sett 2. merke her, du har nå strikket over 119 masker = 1.erme. Strikk glattstrikk over de neste 92 maskene (= forstykket). Sett 3. merke, nå strikkes det over 2.erme slik: A.2 (= 21 m), strikk A.1 11 ganger, strikk, A.3 (= 21 m), sett 4. merke her. Til slutt strikkes det 46 masker glattstrikk (=halve bakstykket). Husk at det samtidig felles til RAGLAN, les i oppskriften hvordan det felles og hvor ofte. mvh DROPS Design

30.05.2022 - 08:16

country flag Nathalie wrote:

Bonjour Puis je remplacer le fil muskat par deux fils safran pour réaliser ce pull?

08.05.2022 - 18:39

DROPS Design answered:

Bonjour Nathalie. Non, 2 fils Safran (groupe de fils A) = 1 fil (groupe de fils C) Paris. 1 fil Muskat = groupe de fils B. Bon tricot!

08.05.2022 - 20:07

country flag Anne-Marie wrote:

Efter 31 minskningsvarv är det kvar 154 m (storlek M). Sedan ska man minska på ärmarna OCH minska 11 m på kanten. Det står att det blir kvar 143 m. Hur går det ihop sig?

03.05.2022 - 09:35

DROPS Design answered:

Hej Anne-Marie, När alla minskn är färdiga är det 154 m kvar på st. (dvs inga fler minskn på ärmarna) - 11 maskor = 143 m kvar på st. :)

03.05.2022 - 13:38

country flag Anne-Marie wrote:

Frågan gäller fram och bakstycket på oket. Det är avmaskningar vartannat varv vid ärmarna. Hur stickar jag varvet utan avmaskningar bredvid ärmarna, endast räta maskor eller även aviga maskor (som på avmaskningsvarvet)?

11.04.2022 - 11:50

DROPS Design answered:

Hej Anne-Marie, på ena sidan mot ärmen stickas enligt diagrammet, på andra sidan endast räta maskor. Lycka till :)

03.05.2022 - 09:20

country flag Gigi Geselle wrote:

Bonjour( ma taille xxxl) je comprends votre explications pour l'assemblée mais la quantité a partir (A2 A1 etA3) mais in possible de faire, on commence à 69 ml jersey etc.. Mais quand je compte et je termine avec A3, je me retrouve à la moitié de ma manche donque pas possible Ou est le problème ? J'ai déjà tous essayé dans tous les s'ence !! Ou est le problème ? Je suis une tricoteuses experte mais désolée je vous demande de l'aide svp... Merci.. Gigi

28.03.2022 - 10:38

DROPS Design answered:

Bonjour Gigi,k vous avez 584 mailles et tricotez ainsi: 69 m jersey (dos), A.2 (=21 m), 16 x A.1 (7m) = 112 m en A.1, A.3 (21 m) (manche = 21+112+21= 154 m); 138 m jersey (devant), A.2 (=21 m), 16 x A.1 (7m) = 112 m en A.1, A.3 (21 m) (manche = 21+112+21= 154 m), dos 69 m jersey, vous avez donc bien ainsi = 69+154+138+154+69=584 m. Bon tricot!

28.03.2022 - 11:04

country flag Margarete Lämmlin-Maier wrote:

Hallo , arbeite das Modell in xxl. Beim Zusammennehmen aller Maschen bei Beginn der Raglanschräge solle ich mit 69 M glatt rechts über das Rückenteil und 138 M rechts über das Vorderteil ( dazwischen Ärmel mit Muster ) ich habe aber für Rückenteil und Vorderteil jeweils 138 M ? ist das ein Fehler in der Anleitung und müßten es nicht für das Rückenteil auch 138 M sein? Danke

25.04.2021 - 17:36

DROPS Design answered:

Siehe Antwort unten :)

26.04.2021 - 08:02

country flag Margarete Lämmlin-Maier wrote:

Hallo , arbeite das Modell in xxl. Beim Zusammennehmen aller Maschen bei Beginn der Raglanschräge solle ich mit 69 M glatt rechts über das Rückenteil und 138 M rechts über das Vorderteil ( dazwischen Ärmel mit Muster ) ich habe aber für Rückenteil und Vorderteil jeweils 138 M ? ist das ein Fehler in der Anleitung und müßten es nicht für das Rückenteil auch 138 M sein? Danke

25.04.2021 - 13:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lämmlin-Maier, die Runden beginnen in der Mitte am Rückenteil, dh Sie beginnen mit 69 M für das Rückenteil, 138 M für das Vorderteil und die Runde endet mit 69 M für das Rückenteil = 2x69=138 - Viel Spaß beim stricken!

26.04.2021 - 07:55

country flag Deni wrote:

Hello, I'm knitting XL size and I have come to the point where A2 and A3 have been worked 1 time vertically. Pattern says to proceed with the same dec in pattern on sleeves and for raglan.Can you explain a bit more ,which sections should be repeated now that A2 and A3 are worked once?

04.07.2020 - 13:25

DROPS Design answered:

Dear Deni, after A.2 and A.3 have been worked 1 time in height, repeat diagrams as before: continue working the first stitches on sleeve in A.2 (= over the first 21 stitches), repeat A.1 until 21 sts on sleeve remain and work A.3 over the last 21 stitches. Happy knitting!

06.07.2020 - 08:27

country flag Deni wrote:

Hi,I'm knitting size xl and I'm to point of binding off A1 repetition on sleeves on each side of marker,problem is I did it ok at the beginning of the round but how to decrease before the marker?I bound off 6 sts (from 7 sts section)only and I miss one to complete?thanks

14.05.2020 - 14:32

DROPS Design answered:

Dear Deni, You have to bind off 14 sts mid under sleeve, ie the first 7 sts on the round (= first repeat), work as before (= next row in diagram) until 7 sts remain and bind off the last 7 sts on the round (= last repeat). Happy knitting!

14.05.2020 - 14:51