Doris skrifaði:
Für die Romantikerinnen: zum Träumen! Süße Unbeschwertheit!
17.12.2013 - 03:07
Helene skrifaði:
Très joli robe.
14.12.2013 - 09:31
Irene Frydkjær skrifaði:
Så sød
13.12.2013 - 07:22
Bettina skrifaði:
Den er rigtig sød - kunne godt ha brugt lidt flere kjoler i denne ellers fin kollektion
12.12.2013 - 11:44Ni skrifaði:
Wow… I want to learn to knit it right now!!
11.12.2013 - 21:24
Betty Ann skrifaði:
This is the perfect summer dress, it's feminine and stylish.
11.12.2013 - 16:54
YOLANDA skrifaði:
PRECIOSO VESTIDO FELICIDADES, ESTOY DESEANDO TEJERLO. GRACIAS
11.12.2013 - 09:18
Marie-christine skrifaði:
Robe comme j'aime et que j'ai déjà faite avec ce trou trou tout autour de la taille pour y passer un ruban, j'apprécie donc ce modèle dont la couleur et la forme sont à mon goût, la robe est hyper féminine et romantique ! merci à vous !
10.12.2013 - 19:09
Emmanovembre skrifaði:
Elegante!!!
10.12.2013 - 18:31
Daniela Massari skrifaði:
Delizioso
10.12.2013 - 17:21
Yours Truly#yourstrulydress |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr DROPS Muskat með gatamynstri og hringlaga hálsmáli. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-2 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-* MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1-A.5. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 420-460-480-500-540-580 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 1 umf br. Í næstu umf er prjónað mynstur A.1 (= 20 l) yfir allar l (21-23-24-25-27-29 sinnum á breidd). Haldið svona áfram með mynstur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 252-276-288-300-324-348 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 8 cm. Prjónið síðan mynstur eftir A.2 (= 12 l) 21-23-24-25-27-29 sinnum á breiddina. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina mælist stykkið ca 13 cm. Stykkið er nú prjónað áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 25-24-23-22-22-21 cm. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 40-46-48-50-55-60 l, setjið 1. prjónamerkið, prjónið 46-46-48-50-52-54 l, setjið 2. prjónamerki, prjónið 80-92-96-100-110-120 l, setjið 3. prjónamerki, prjónið 46-46-48-50-52-54 l, setjið 4. prjónamerki, prjónið þær 40-46-48-50-55-60 l sem eftir eru. prjónamerki 1 og 2 er á framstykki og prjónamerki 3 og 4 eru á bakstykki. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Í næstu umf er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki – lesið ÚRTAKA = 4 l færri í umf. ATH: Lykkjufjöldinn við miðju að framan og við miðju að aftan verður sá sami, fellið af á hlið. Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf 2-2-2-3-3-3 sinnum til viðbótar, síðan í 4. hverri umf alls 9-8-9-11-12-13 sinnum, síðan í annarri hverri umf alls 12-16-15-9-8-7 sinnum (= alls 24-27-27-24-24-24 úrtökur) = 156-168-180-204-228-252 l eftir á prjóni. Prjónið 4 umf slétt. Stykkið mælist nú ca 53 cm. Prjónið síðan A.3 (= 6 l) yfir allar l 1 sinni á hæðina. Í næstu umf er aukið út um 12-18-20-18-22-20 l jafnt yfir = 168-186-200-222-250-272 l á prjóni. Prjónið næstu umf þannig: Prjónið 6-6-5-6-4-5 l sléttprjón, mynstur A.4 (= 9 l) yfir næstu 72-81-90-99-117-126 l (= 8-9-10-11-13-14 sinnum á breiddina), sléttprjón yfir næstu 12-12-10-12-8-10 l, mynstur A.4 (= 9 l) yfir næstu 72-81-90-99-117-126 l (= 8-9-10-11-13-14 sinnum á breiddina), endið á 6-6-5-6-4-5 l sléttprjón. Prjónið A.4 1 sinni á hæðina, endurtakið mynstur 1 sinni til viðbótar, í átt að ör, JAFNFRAMT í umf með kúlu (þ.e.a.s. umf 9 í mynstri A.4) er prjónað þannig: 4-4-4-5-5-5 l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan (ATH: Í stærð XXL er mynstur nú prjónað yfir 2 l færri vegna garðaprjóns sem síðar er fellt af fyrir handveg), 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, mynstur A.4 (= 9 l) yfir næstu 72-81-90-99-115-126 l, 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, 8-8-8-10-10-10 l garðaprjón (ATH: Í stærð XXL er mynstur nú prjónað yfir 2 l færri vegna garðaprjóns sem síðar er fellt af fyrir handveg), 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, mynstur A.4 (= 9 l) yfir næstu 72-81-90-99-115-126 l, 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, endið á 4-4-4-5-5-5 l garðaprjón. Endurtakið þessa umf 1 sinni til viðbótar. Fellið nú af fyrir handveg þannig: Fellið af fyrstu 4-4-4-5-5-5 l garðaprjón, prjónið 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, mynstur A.4 (= 9 l) yfir næstu 72-81-90-99-115-126 l eins og áður, 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, fellið af næstu 8-8-8-10-10-10 l garðaprjón, 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, mynstur A.4 (= 9 l) yfir næstu 72-81-90-99-115-126 l eins og áður, 2-2-1-1-0-0 l sléttprjón, endið á að fella af 4-4-4-5-5-5 l garðaprjón = 76-85-92-101-115-126 l á framstykki og 76-85-92-101-115-126 l á bakstykki. Klippið frá og festið enda. Næsta umf byrjar við 1. lykkju á framstykki. Prjónið sléttprjón í hvorri hlið í nokkrum af stærðum yfir framstykki eins og áður og mynstur A.4, fitjið upp 50-41-52-61-65-63 l fyrir ermi, prjónið mynstur A.4 og sléttprjón í hvorri hlið í nokkrum af stærðum yfir bakstykki eins og áður, fitjið upp 50-41-52-61-65-63 l fyrir ermi = 252-252-288-324-360-378 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið sléttprjón og mynstur A.4 yfir framstykki eins og áður, 50-41-52-61-65-63 l br, mynstur A.4 yfir bakstykki eins og áður, 50-41-52-61-65-63 l br. Í næstu umf er prjónað eins og áður en það er prjónað sl yfir br í hvorri hlið (= ermar). Endurtakið þessa umf 1 sinni til viðbótar (þ.e.a.s. prjónið br yfir l fyrir ermi). Prjónið síðan mynstur A.5 (= 18 l) yfir allar l með byrjun frá 1. lykkju á framstykki (= 14-14-16-18-20-21 sinnum á breiddina). Prjónið og fellið af eftir A.5. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 112-112-128-144-160-168 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 12-6-18-30-42-46 l jafnt yfir = 100-106-110-114-118-122 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf br og 1 umf sl. Fellið síðan af með sléttum lykkjum frá röngu (þ.e.a.s. snúið stykkinu við). SILKIBORÐI: Þræðið silkiborða inn í gataumferðina (= A.3) neðan við berustykki. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #yourstrulydress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.