Nadine skrifaði:
Welk garen is gebruikt voor het vest op de foto? Alpaca silk 01/14 of Vivaldi 01/09?
30.01.2014 - 08:56DROPS Design svaraði:
Hoi Nadine. De model op de foto is in DROPS Vivaldi gebreid.
31.01.2014 - 11:07
Melanie skrifaði:
Wirklich sehr schönes Modell. Hoffe sehr, dass die Anleitung bald kommt - würde es so gerne nachstricken!
28.01.2014 - 10:31
Loretta skrifaði:
E' bellissimo, leggero ed impalpabile l'ideale per la primavera
23.01.2014 - 23:28Monika Nygård skrifaði:
Jätte snygg den kan man inte vara utan.
23.01.2014 - 16:08
Sabine skrifaði:
So schön! Warte schon jeden Tag ungeduldig auf die Anleitung!
23.01.2014 - 13:38
Ing-Marie skrifaði:
När kommer mönstret?
22.01.2014 - 08:29
Janne skrifaði:
Hvornår kommet denn flotte trøje dog på opskrift, jeg ser hver dag, og ser mange andre opskrifter
21.01.2014 - 21:29
Catrin skrifaði:
När kommer mönstret, Nu finns det betydligt fler kommentarer på den här modellen jämfört med många andra.
21.01.2014 - 19:36
Françoise skrifaði:
Exactly what I have been looking for over the past few months. When will the explanations be available ?
21.01.2014 - 14:33
Heather skrifaði:
Beautiful yarn in a very simple yet elegant design.
18.01.2014 - 23:24
Brise d'Ete#brisedetecardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa í tveggja lita klukkuprjóni úr DROPS Brushed Alpaca Silk eða DROPS Vivaldi. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. KLUKKUPRJÓNS LYKKJA: Þegar telja á lykkjurnar, er uppslátturinn ekki talinn sem lykkja. LEIÐBEININGAR-1: Til þess að þetta geti verið tveggja lita klukkuprjón er prjónað fram og til baka á hringprjóna þannig: Prjónið 1. umf eins og útskýrt er frá að neðan, snúið við og byrjið síðan litaskiptingarnar þannig: Prjónið 2. umf eins og útskýrt er frá að neðan með 1 lit og færið síðan allar lykkjurnar á hringprjóninum á annan endann á hringprjóninum þannig að næsta umf sé prjónuð með lit 2 frá sömu hlið á stykkinu – snúið síðan við og næstu 2 umf eru prjónaðar eins og 2 fyrstu – það er sem sagt prjónuð 1 umf með hvorum lit og prjónað er alls 2 umf frá sömu hlið áður en stykkinu er snúið við og prjónað er til baka. LEIÐBEININGAR-2: Ef þú ert í vafa – getur þú alltaf séð hvaða lit á að prjóna með því að sjá að síðasti litur er sýnilegur í kantlykkju. TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið með lit nr 01, natur. * sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, 1 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Snúið við. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið með lit 01, natur * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman. Færið til baka l á hringprjóna þannig að prjónað er frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit (lesið LEIÐBEININGAR 1 og 2). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið með lit 14, ljós grágrænn * Sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn eins og prjóna eigi brugðið. Snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið með lit 01, natur * Prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l br saman. Færið til baka l á hringprjóninn þannig að prjónað er frá sömu hlið einu sinni til viðbótar og skiptið um lit. UMFERÐ 5 (= ranga): Prjónið með lit 14, ljós grágrænn * Sláið uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, prjónið uppsláttinn og óprjónuðu l slétt saman*, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á að slá 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið. Snúið við. Endurtakið umf 2-5. ÚTAUKNING (á við um ermi): Aukið út um 1 l í byrjun á umf eftir 1 kantlykkju og 1 l á undan 1 kantlykkju í lok umf. Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan. ATH: Útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í klukkuprjón. ÚRTAKA 1: Fækkið lykkjum frá réttu í klukkuprjóni þannig: Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið klukkuprjón þar til 3 l er eftir á undan prjónamerki (- sjá TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI að ofan), takið 1 l eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 l slétt saman, steypið síðan óprjónuðu l yfir. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Prjónið klukkuprjón fram að prjónamerki, prjónið 3 l slétt saman. Nú hefur fækkað um 2 lykkjur. ÚRTAKA 2: Fækkið um 2 l með því að prjóna þannig: Takið 1 l óprjónaða, 2 l slétt saman, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í stykkjum sem síðan eru sett á sama prjón og prjónað er fram og til baka til loka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna – sjá LEIÐBEININGAR -1. Fitjið laust upp 96-99-102-105-108-111 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með litnum natur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 65-67-69-71-73-75 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (stillið af að næsta umf sé 2.-2.-2.-3.-3.-2. umf í klukkuprjóni). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellið nú af 1 kantlykkju í hvorri hlið í næstu umf þannig: Fellið af 1 kantlykkju í byrjun á næstu umf með því að prjónað 2 fyrstu l snúnar slétt saman, prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir, prjónið síðustu 2 l slétt saman = 63-65-67-69-71-73 l. Prjónið 1 umf til viðbótar (= 3.-3.-3.-4.-4.-3. umf klukkuprjón). Geymið stykkið og prjónið síðan bæði framstykkin. HÆGRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið laust upp 93-96-99-102-105-108 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með litnum natur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni * 1 l sl, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir, endið á 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni (kantlykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka) = 63-65-67-69-71-73 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 33-34-35-36-37-38 cm (stillið af að næsta umf sé 2.-2.-2.-3.-3.-2. umf í klukkuprjóni). Í næstu umf eru kantlykkjur í hægri hlið felldar af með því að prjóna 2 síðustu l slétt saman = 62-64-66-68-70-72 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf til viðbótar (= 3.-3.-4.-4.-3.- umf í klukkuprjóni). Geymið stykkið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar 1 kantlykkja er felld af þá eru 2 fyrstu l prjónaðar snúnar saman. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 32-32-34-34-35-35 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 6 með litnum natur. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 1 l sl, 2 l í næstu l *, endurtakið frá *-* þar til 1-1-3-3-2-2 l eru eftir, endið á 0-0-2-2-1-1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 47-47-49-49-51-51 l. Prjónið nú TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki innan við 1 kantlykkju – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu í hvorri hlið á stykki með 5-4-4-3-2½-2½ cm millibili 4-6-6-8-8-10 sinnum til viðbótar (= alls 5-7-7-9-9-11 sinnum) = 57-61-63-67-69-73 l. Prjónið klukkuprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki þar til stykkið mælist 35-35-34-34-33-33 cm (stillið af að næsta umf sé 2.-2.-2.-3.-3.-2. umf í klukkuprjóni). Fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið 2 fyrstu l snúnar slétt saman, prjónið eins og áður þar til 2 l eru eftir, 2 l slétt saman = 55-59-61-65-67-71 l. Prjónið síðan 1 umf til viðbótar (= 3.-3.-3.-4.-4.-3. umf í klukkuprjóni) JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki innan við 5 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á milli framstykkis og bakstykkis í hvorri hlið á saman hringprjón með litnum natur og snúið út (= rétta) = 297-311-321-335-345-359 l á prjóni. Setjið nú 1 prjónamerki í skiptingar á milli bakstykkis og erma í hvorri hlið (= alls 6 prjónamerki að meðtöldum prjónamerkjum á ermum). Næsta umf = 4.-4.-4.-5.-5.-4. umf í klukkuprjóni (= ranga). Prjónið 2-3-3-1-1-3 umf í klukkuprjóni áður en komið er að úrtöku fyrir laskalínu á ermum og á bakstykki (ATH: Lykkjum er ekki fækkað á framstykki) í næstu umf (= 2.-3.-3.-2.-2.-3. umf í klukkuprjóni). Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 61-63-65-67-69-71 l í klukkuprjóni eins og áður (uppslátturinn er ekki talinn með sem l – LESIÐ TVEGGJA LITA KLUKKUPRJÓN MEÐ UPPSLÆTTI), prjónið fyrstu 5 l í klukkuprjóni frá ermi eins og áður, fækkið um 2 l á eftir prjónamerki – sjá ÚRTAKA 1 að ofan, haldið áfram í klukkuprjóni þar til 3 l eru eftir á undan næsta prjónamerki á ermi, fækkið um 2 l á undan prjónamerki – sjá ÚRTAKA 1 að ofan, síðustu 5 l frá ermi eru prjónaðar eins og áður, prjónamerki, fækkið nú um 2 l á bakstykki á eftir prjónamerki, prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni á bakstykki, fækkið um 2 l á undan prjónamerki, prjónið fyrstu 5 l á ermi eins og áður, fækkið um 2 l á eftir prjónamerki, haldið áfram í klukkuprjóni þar til 3 l eru eftir á undan næsta prjónamerki á ermi, fækkið um 2 l á undan prjónamerki, þær 5 síðustu l frá ermi eru prjónaðar eins og áður, prjónið nú síðustu 61-63-65-67-69-71 l í klukkuprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður = 12 l færri. Fækkið nú lykkjum mismunandi á ermum og á bakstykki. Ermar: Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 10-10-11-12-13-13 sinnum til viðbótar (þ.e.a.s. fækkið lykkjum í 2.-3.-3.-2.-2.-3. hverri umf í klukkuprjóni = 11-15-13-13-11-15 l eftir á hvorri ermi. Bakstykki: Endurtakið úrtöku á bakstykki í 8. hverri umf 0-0-0-1-2-2 sinnum, síðan í 4. hverri umf 10-10-11-10-9-9 sinnum (þ.e.a.s. fækkið lykkjum í 2.-3.-3.-2.-2.-3. hverri umf í klukkuprjóni)= 19-21-19-21-23-25 l eftir á bakstykki. = 165-179-177-183-185-199 l á prjóni. Síðan í næstu umf (= rétta í S-XL-XXL, ranga í M-L-XXXL) er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, klukkuprjóni eins og áður yfir næstu 61-63-65-67-69-71 l (= framstykki), síðan er prjónað stroff með tveimur litum (þ.e.a.s.s prjónið sl yfir sl í klukkuprjóni í saman lit og klukkuprjóns-l og br yfir br í klukkuprjóni í sama l og klukkuprjóns-l) yfir næstu 41-51-45-47-45-55 l (þ.e.a.s. ermar og bakstykki). ATH: Þ.e.a.s. að uppslátturinn og óprjónaða l eru prjónaðar slétt saman og br er prjónað br JAFNFRAMT er fækkað um 4-14-4-6-2-12 l jafnt yfir, þ.e.a.s. að fækkað er um 2 l 2-7-2-3-1-6 sinnum – sjá ÚRTAKA 2, prjónið nú klukkuprjón eins og áður yfir síðustu 61-63-65-67-69-71 l og 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki) = 161-165-173-177-183-187 l eftir á prjóni. Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, klukkuprjón eins og áður yfir næstu 61-63-65-67-69-71 l (= framstykki), síðan er prjónað sl yfir sl og br yfir br yfir næstu 37-37-41-41-43-43 l, klukkuprjón eins og áður yfir síðustu 61-63-65-67-69-71 l og 1 kantlykkju í garðaprjóni (= framstykki). Fellið af með litnum ljós grágrænn með sl yfir sl og br yfir br – ATH: Uppslátturinn er felldur af eins og lykkja. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brisedetecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.