Else-Vibeke skrifaði:
Det ville være dejligt hvis der i opskrifterne var et alternativt farveforslag.
29.04.2014 - 00:35
Lisette skrifaði:
De correctie van 13-02-2014 snap ik niet. Ik heb een afdruk van dit patroon van 04-02-2014 en daar staat precies hetzelfde als nu in het online patroon. Zoals het bij de correctie staat kan ik niet terugvinden.
22.04.2014 - 11:15DROPS Design svaraði:
Hoi Lisette. De fout was dat er stond "af" in het patroon en niet "op" (het moet opzetten zijn in plaats van afkanten).
22.04.2014 - 16:34
Lisette skrifaði:
Ik zie nu dat de hoeveelheid wol van beide soorten behoorlijk aangepast zijn t.o.v. februari. Jammer, want ik ben al begonnen en heb wol in huis. Zijn er nog andere dingen aangepast in het patroon?
21.04.2014 - 22:44DROPS Design svaraði:
Hoi. Alle aanpassingen worden vermeld onder "CORRECTIES".
22.04.2014 - 10:17
Geke Kunst skrifaði:
Is het aantal cm bij het meerderen bij de Linkermouw wel goed? De kleinste maat wordt zo langer, breder dan de grootste maat.
24.02.2014 - 11:41DROPS Design svaraði:
Hoi Geke. Ja, het is correct. De mouwen zijn smaller, maar het achterpand is breder in de grote maten. Zie ook de maattekening onderaan.
24.02.2014 - 12:13
Geke skrifaði:
Komen er aan de zij kant lussen als je telkens wisselt van 2 naar 1 draad of. Moet je telkens opnieuw met 1 of 2 draden beginnen?
19.02.2014 - 19:21DROPS Design svaraði:
Hoi Geke. Je kan de draad mee laten lopen bij het breien van de strepen, dan krijg je geen lussen. Zie hier:
20.02.2014 - 10:00
Heidi skrifaði:
Kan det verkligen gå åt mindre kidsilk än alpaca?????? Kidsilken följer ju med hela tiden och alpacan bara ibland....
31.01.2014 - 11:13DROPS Design svaraði:
Hei Heidi. Ja, det stemmer, Kid-Silk har en löbelaengde paa 400 m per 50 gram og 167 m per 50 gram
31.01.2014 - 11:40
AKIBODE skrifaði:
Finesse et élégance pour ce gilet raffiné.
23.12.2013 - 15:17
Janet skrifaði:
Leichte Sommerjacke-super Teil-ich liebe Flederausärmel.
13.12.2013 - 20:09
Sweet Rose Cardigan#sweetrosecardigan |
||||
|
||||
Prjónuð peysa úr DROPS Kid-Silk og DROPS BabyAlpaca Silk í garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 155-35 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Prjónið nú mynstur með byrjun frá réttu þannig: UMFERÐ 1-4 = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Sil (= 2 þræðir). UMFERÐ 5-8 = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af Kid-Silk. UMFERÐ 9-10: = 2 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk (= 2 þræðir). UMFERÐ 11-14: = 4 umf garðaprjón: sl með 1 þræði af Kid-Silk. Endurtakið umf 1-14. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í 1 l. Þegar aukið er út um 2 l í hvorri hlið er aukið út með því að prjóna 2 lykkjur í hvora af fyrstu 2 og síðustu lykkjum í umferð. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l innan við 1 kantlykkju með því að prjóna 2 l slétt saman. Fækkið um 2 l innan við 1 kantlykkju með því að prjóna 3 l slétt saman. MÆLING: Til að vinstra og hægra framstykki verði jafn breið er mikilvægt að láta stykkið liggja flatt þegar mælt er! HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. Byrjið frá réttu og fellið síðan af þannig: 48-51-52-55-57-60 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman, 7-7-7-7-7-7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman og prjónið sl út umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið. VINSTRI ERMI + FRAM- OG BAKSTYKKI: Byrjið neðst niðri á ermi, fitjið upp nýjar l fyrir framstykki og bakstykki og prjónið fram að miðju að framan. Fitjið laust upp 48-52-54-58-60-64 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af BabyAlpaca Silk og 1 þræði af Kid-Silk = 2 þræðir. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Í næstu umf (= rétta) er prjónað MYNSTUR – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3-2-4-3-3-2 cm er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING! Haldið áfram með útaukningu í hvorri hlið á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili 5 sinnum til viðbótar (= alls 6 sinnum) = 60-64-66-70-72-76 l á prjóni og stykkið mælist nú 11-10-9-8-8-7 cm. Haldið síðan áfram eins og áður, en nú er aukið út um 1 l hvoru megin á stykki í hverri umf frá réttu 7-7-7-7-5-5 sinnum og síðan 2 l í hvorri hlið á stykki í hverri umf frá réttu 1-1-1-1-2-2 sinnum = alls 15-15-15-15-15-15 l útauknar í hvorri hlið frá byrjun og 78-82-84-88-90-94 l á prjóni. Stykkið mælist nú 16-15-14-13-12-11 cm. Í 2 næstu umf eru fitjaðar laust upp 56-57-59-60-62-63 nýjar l í lok hverrar umf = 190-196-202-208-214-220 l. ATH! Stillið mynstrið af þannig að nýjar l eru fitjaðar upp í 2. umf í mynstri með 2 þráðum! Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur eins og áður þar til stykkið mælist alls 31-32-33-33-34-35 cm. Í næstu umf frá réttu eru fyrstu 92-95-98-99-102-105 l prjónaðar áður en þær eru settar á þráð fyrir bakstykki. Fellið nú af næstu 3-3-3-5-5-5 l fyrir hálsmáli, setjið prjónamerki mitt á milli síðustu l sem felld var af og næstu l (= miðja ofan á öxl), fellið af næstu 9 l = 86-89-92-98-98-101 l eftir á vinstra framstykki. Haldið síðan áfram með mynstur eins og áður, JAFNFRAMT er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umf frá réttu þannig: Fellið af 4 l 1 sinni, 3 l 7-7-7-7-6-6 sinnum og 2 l 1-1-2-2-4-4 sinnum (= 27-27-29-29-30-30 l felldar af) = 59-62-63-66-68-71 l eftir. Setjið þær l sem eftir eru á þráð fyrir kant að framan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 59-62-63-66-68-71 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan mynstur eins og áður, JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu þannig: Fitjið upp 2 nýjar l 1-1-2-2-4-4 sinnum, 3 l 7-7-7-7-6-6 sinnum og 4 l 1 sinni (= alls 27-27-29-29-30-30 l fleiri) = 86-89-92-98-98-101 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið bakstykki. BAKSTYKKI OG HÆGRI ERMI: LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Lykkjurnar af bandi eru settar til baka á prjóninn og bakstykkið er prjónað áður en l frá hægra framstykki eru settar á sama prjón. Prjónið nú hægri ermi. Setjið til baka 92-95-98-99-102-105 l af þræði á prjóninn frá bakstykki og haldið áfram með mynstur frá röngu, JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í byrjun á umf fyrir hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA! = 91-94-97-98-101-104 l eftir á prjóni. Haldið síðan áfram með mynstur þar til stykkið mælist 11-11-12-12-13-13 cm frá prjónamerki við miðju ofan á öxl. ATH! Peysan kemur til með að teygjast þegar hún er notuð og það er því mjög mikilvægt að ekki sé prjónað of langt aftan við hnakka! Í lok næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l fyrir hálsmáli í lok umf með því að prjóna 2 l í síðustu l = 92-95-98-99-102-105 l á prjóni. ATH! Hér verður að stilla af mynstur frá hægra framstykki, þannig að næsta umf frá réttu geti byrjað í sömu umf í mynstri bæði á framstykki og á bakstykki! Í næstu umf frá réttu er prjónað yfir allar l í umf áður en fitjað er upp 12-12-12-14-14-14 l fyrir hálsmáli í lok umf. Prjónið síðan allar l af þræði (= hægra framstykki)= 190-196-202-208-214-220 l. Haldið síðan áfram yfir allar l þar til stykkið mælist alls 44-48-52-56-60-64 cm neðst niðri á bakstykki – stillið af mynstur þannig að næsta umf sé umf í mynstri með 2 þráðum! Í byrjun á 2 næstu umf er fellt laust af 56-57-59-60-62-63 l = 78-82-84-88-90-94 l eftir. Áfram í stykkinu eru felldar af l fyrir ermi alveg eins og aukið var út fyrir vinstri ermi þannig: Fellið af l á hvorri hlið á stykki í byrjun á næstu umf þannig: Fellið af 2 l á hvorri hlið á stykki 1-1-1-1-2-2 sinnum og 1 l 7-7-7-7-5-5 sinnum. Haldið síðan áfram eins og áður, en nú er fækkað um 1 l hvoru megin á stykki með ca 1½-1½-1-1-1-1 cm millibili alls 6 sinnum = 48-52-54-58-60-64 l eftir. Haldið síðan áfram með mynstur og stillið af eftir lengd á vinstri ermi. Prjónið 2 umf garðaprjón með 1 þræði af hvorri tegund. . Prjónið 1 umf til baka og fellið síðan laust af. KANTUR AÐ FRAMAN OG HÁLSMÁL: Byrjið frá réttu og meðfram uppfitjunarkanti á hægra framstykki og takið upp 59-62-63-66-68-71 l með 1 þræði af hvorri tegund á hringprjóna nr 6. Haldið áfram að taka upp ca 70-90 l í kringum hálsmál og prjónið þær 59-60-63-66-68-71 l af þræði (þ.e.a.s. á vinstra framstykki). Prjónið 1 umf slétt til baka frá röngu. Haldið síðan áfram með 6 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu eru felldar af l fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Brjótið niður efst á öxl, saumið hliðarsauma og sauma undir ermum í eitt, yst í lykkjubogann. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetrosecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 155-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.