Elisa skrifaði:
Semplice ed elegante
16.01.2014 - 17:15
EHRET SYlVIA skrifaði:
Magnifique modèle
14.01.2014 - 10:18
Ingrid skrifaði:
Den gillar jag.Går nog fort att sticka och är användbar.
06.01.2014 - 16:10
Elsa Fediuc skrifaði:
Sehr schön und diskret
05.01.2014 - 06:31
Marianne CONRAD skrifaði:
Très joli
28.12.2013 - 18:35
Monica skrifaði:
Enkel og vaker. passer til alt!
27.12.2013 - 08:27Bettina skrifaði:
Another beautiful set, very refreshing for summer, I like it!
12.12.2013 - 21:25Eurídice Sacramento Mariani skrifaði:
Belíssimo modelo! Delicado e feminino. Seria interessante desenvolver uma versão para grávidas.
12.12.2013 - 20:37
Daniela Massari skrifaði:
Bello lo farei chiuso senza bottoni
11.12.2013 - 20:40
YOLANDA skrifaði:
ME ENCANTA, MUY BONITO Y SU DISEÑO TIPO SWEATER ES PERFECTO TANTO SI CIERRAS LOS BOTONES COMO SI LO DEJAS ABIERTO Y LO ACOMPAÑAS DE UNA BLUSA.
11.12.2013 - 09:30
Sunny Side Cardigan#sunnysidecardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Muskat með gatamynstri á berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 152-10 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikningin sýnir allar umf séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í uppsláttinn í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið aðra og þriðju l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af þegar hnappagatið mælist: STÆRÐ S: 3, 13, 22, 31, 40, 49 og 59 cm STÆRÐ M: 5, 15, 24, 33, 42, 51 og 61 cm STÆRÐ L: 7, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 63 cm STÆRÐ XL: 8, 16, 24, 32, 40, 48, 56 og 65 cm STÆRÐ XXL: 5, 12, 19, 26, 33, 41, 49, 58 og 67 cm STÆRÐ XXL:5, 13, 21, 29, 37, 45, 53, 61 og 69 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 190-210-230-250-270-290 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið frá réttu, 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið og sléttprjón yfir restina af l þar til stykkið mælist 7 cm – munið eftir HNAPPAGAT. Kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan, prjónið 20-20-25-25-30-30 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 1. prjónamerki), prjónið 50-60-60-70-70-80 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 2. prjónamerki), prjónið 40-40-50-50-60-60 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 3. prjónamerki), prjónið 50-60-60-70-70-80 l sl, setjið 1 prjónamerki (= 4. prjónamerki), prjónið 20-20-25-25-30-30 l sl, endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni (= kantlykkjur að framan). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA = 4 l færri í umf. ATH! Lykkjufjöldinn í miðju þ.e.a.s. hvoru megin við l við miðju kant að framan og fyrir miðju að aftan verða eins, fækkið lykkjum frá hlið. Endurtakið úrtöku í 8.-8.-8.-6.-6.-8. umf 6-7-7-9-8-6 sinnum til viðbótar (= alls 7-8-8-10-9-7 úrtökur) = 162-178-198-210-234-262 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 32 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING = 4 l fleiri í umf. A.T.H! Lykkjufjöldinn fyrir miðju þ.e.a.s. hvoru megin við miðju kantlykkju að framan og miðju að aftan verða eins, aukið er út frá hlið. Endurtakið útaukningu í 4.-6.-6.-4.-6.-8. hverri umf 5-4-5-6-5-5 sinnum til viðbótar (= alls 6-5-6-7-6-6 sinnum) = 186-198-222-238-258-286 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir kantlykkjur þar til stykkið mælist 41-43-45-44-46-48 cm. Prjónið nú 2 umf garðaprjón yfir allar l (1. umf frá réttu). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. Fellið nú af fyrir ermi í næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 40-43-49-53-58-65 l sl, fellið af næstu 8 l með garðaprjóni, 80-86-98-106-116-130 l sl, fellið af næstu 8 l í garðaprjóni 40-43-49-53-58-65 l sl og 5 l garðaprjón JAFNFRAM er fækkað um 7-15-12-3-31-28 l jafnt yfir l í sléttprjóni = 163-167-194-219-211-242 l á prjóni. Geymið stykkið og prjónið kant á ermum. KANTUR ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 54-58-62-68-72-76 l á hringprjóna nr 3,5 með Muskat. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 4 l jafnt yfir (þetta er gert til að kanturinn verði ekki of stífur á ermi) = 50-54-58-64-68-72 l á prjóni. Klippið frá og geymið stykkið, prjónið annan kant á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn kant á ermum á sama hringprjón nr 4 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 263-275-310-347-347-386l á prjóni (prjónið ekki l þegar þær eru settar á sama hringprjón). Prjónið 5 kantlykkjur að framan eftir mynstri A.1 (1. umf = ranga) (= 12-12-13-14-14-15 l) 21-22-23-24-24-25 mynstureiningar á breiddina þar til 6 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.1 (þannig að mynstrið verði alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan, og fyrsta l er 2 l slétt saman, prjónið síðustu l sl) og endið á 5 kantlykkjum að framan – munið eftir HNAPPAGAT. Haldið svona áfram með mynstur. Eftir alla úrtöku eru 137-143-149-155-155-161 l á prjóni. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið kant á ermum við fram- og bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sunnysidecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 152-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.