Sarah Helene skrifaði:
Looks so soft and warm--- what an elegant sweater/coat!
04.06.2013 - 02:30
Jonna Simonsen skrifaði:
Super skøn
03.06.2013 - 16:19
Delplanche skrifaði:
Semble chaleureux et vaporeux en même temps
03.06.2013 - 11:58Marisela skrifaði:
Me encantó, muy elegante y diferente
03.06.2013 - 04:05
Esther skrifaði:
Wunderschön je nach Farbe und Wollart wäre es dann mal elegant,mal edel oder sportlich.
02.06.2013 - 11:13
Taina Madol skrifaði:
Ilmava, upea väri, herkullinen, "vilukissalle"!
02.06.2013 - 10:46
Anni Böse skrifaði:
Elegant,elegant
01.06.2013 - 15:25
Mm skrifaði:
Beautiful. I am encouraged that I could maybe do this
01.06.2013 - 06:47
Mm skrifaði:
Beautiful. I am encouraged to take on a mohair project and big needles, new for me.
01.06.2013 - 06:21
Marit skrifaði:
Ganske enkelt: Bare lekker!
01.06.2013 - 02:16
Sheer Bliss#sheerblissjacket |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Vienna eða DROPS Melody með brómberjamynstri og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 150-41 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- BRÓMBERJAMYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 – Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. 1 mynstureining = 4 l. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjóna): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. STUTTAR UMFERÐIR (á við um kant að framan): Til þess að koma í veg fyrir að kantur að framan í garðaprjóni dragist saman við miðju að framan eru prjónaðar stuttar umferðir yfir kant að framan þannig: * Byrjið fyrir miðju að framan, prjónið 19 l garðaprjón, snúið við, herðið á þræði og prjónið 19 l garðaprjón til baka. * Prjónið nú fram og til baka yfir allar l eins og áður. Endurtakið frá *-* ca í 10. hverri umf þar til lykkjur eru fellda af á öxl. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Til að fá pláss fyrir allar l er stykkið prjóna fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 50-58-66 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 12 með Vienna eða Melody. Prjónið BRÓMBERJAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan, með 1 kantlykkju í hvorri hlið í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! (1. umf = ranga). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm eru fitjaðar upp 24-24-24 nýjar l í hvorri hlið fyrir ermar (þ.e.a.s. fitjið upp í lok á 2 næstu umf) = 98-106-114 l. Haldið áfram með brómberjamynstur yfir allar l og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á hvorri ermi. Þegar stykkið mælist 70-74-78 cm eru felldar laust af miðju 14 l fyrir hálsmáli = 42-46-50 l eftir á hvorri öxl. Haldið áfram með brómberjamynstur með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af með sl frá réttu þegar stykkið mælist ca 72-76-80 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-40-44 l (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 19 kantlykkjur að framan í garðaprjóni við miðju að framan með hringprjóna nr 12 með Vienna eða Melody. Prjónið brómberjamynstur með 19 kantlykkjum við miðju að framan í garðaprjóni og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið (1. umf = ranga) – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 7 cm er byrjað að prjóna STUTTAR UMFERÐIR yfir kant að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm eru fitjaðar upp 24-24-24 nýjar l í lok næstu umf frá röngu fyrir ermi = 60-64-68 l. Haldið áfram að prjóna 1 l garðaprjón lengst út á ermi, brómberjamynstur yfir 40-44-48 l og 19 l garðaprjón við miðju að framan. Þegar stykkið mælist ca 72-76-80 cm (passið uppá að eftir 1 umf frá röngu) fellið af fyrstu 42-46-50 l með sl frá réttu. Prjónið slétt yfir 18 kantlykkjur sem eftir eru og setjið þær síðan á þráð fyrir kraga. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd, þ.e.a.s. þegar fitjaðar eru upp nýjar l fyrir ermi þá er það gert í lok umf frá réttu og þegar stykkið mælist ca 72-76-80 cm (passið uppá að 1 umf er frá röngu) prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 18 l garðaprjón og setjið þær síðan á þráð fyrir kraga, fellið af 42-46-50 l sem eftir eru með sl frá réttu, klippið frá. FRÁGANGUR: Saumið axla/yfirermasauma kant í kant. Saumið hliðar- og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju. KRAGI: Setjið til baka 18 l af þræði frá vinstri kanti að framan á hringprjóna nr 12. Prjónið nú með byrjun frá miðju að framan þannig: * Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l, prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka yfir síðustu 12 l við miðju að framan *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist ca 9-10 cm (mælt lengst inn þar sem stykkið er minnst), fellið laust af. Prjónið alveg eins í hægri kanti að framan, en prjónið 1 umf sl frá röngu yfir allar l áður en endurtekið er frá *-*. Saumið saman kraga við miðju að aftan og saumið hann við hálsmál aftan í hnakka kant í kant. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sheerblissjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 15 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-41
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.