DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 150-36
DROPS Design: Mynstur nr ab-041
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

Stærð: S/M – L/XL – XXL/XXXL

Efni:
DROPS ALPACA BOUCLÉ frá Garnstudio
400-450-500 gr litur nr 5110, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) nr 10 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l með sléttprjóni verði 10 cm á breidd (1 mynstureining af A.1 mælist ca 5 cm á hæðina).

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca Bouclé
DROPS Alpaca Bouclé
80% Alpakka, 15% Ull, 5% Polyamide
frá 1034.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8272.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sja mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.(þær l sem ekki ganga inn í mynstur eru prjónaðar sl í umf 3 og 7 í mynstri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá hlið fram og til baka, frá ermi og að miðju að framan/miðju að aftan. Það verða 4 jafn stór stykki (2 x bakstykki, 2 x framstykki) sem saumuð eru saman í lokin.

HÆGRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni (= efst á poncho), 57-61-65 l sléttprjón, 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= neðst á poncho). Haldið áfram að prjóna sléttprjón með 4 l garðaprjón að neðan og 1 l garðaprjón að ofan.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 60-61-61 cm er fellt af fyrir hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Fellið af 1. l í umf, prjónið sl út umf = 61-65-69 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl yfir allar l.
UMFERÐ 3: Fellið af fyrstu 2 l í umf, prjónið áfram eftir mynstri A.1 (byrjið á umf 1 = sl yfir allar l) og prjónið sl út umf = 59-63-67 l.
UMFERÐ 4: Prjónið umf 2 í A.1 – þ.e.a.s. sl yfir allar l.
Haldið áfram með A.1 þar til prjónað hefur verið 1 sinni á hæðina. Prjónið nú 2-4-8 umf garðaprjón, fellið LAUST af allar l í næstu umf frá réttu. ATH: PASSIÐ UPPÁ AÐ AFFELLINGARKANTURINN VERÐI EKKI STÍFUR! Stykkið mælist ca 68-69-70 cm mælt í prjónastefnu.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf frá réttu er prjónuð þannig: Prjónið 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= neðst niðri á poncho), 57-61-65 l sléttprjón, 1 kantlykkja í garðaprjóni (= neðst niðri á poncho). Haldið áfram að prjóna sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni að neðan og 1 l garðaprjón að ofan. Þegar stykkið mælist 60-61-61 cm er prjónað áfram eins og á hægra bakstykki. Fellið af fyrir hálsmáli alveg eins, nema spegilmynd – þ.e.a.s. að fellt er af fyrir hálsmáli í byrjun umf frá röngu.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10. Prjónið 4 umf garðaprjón. Í næstu umf frá réttu er prjónuð 1 kantlykkja í garðaprjóni (= efst uppi á poncho), 57-61-65 l sléttprjón, 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= neðst niðri á poncho). Haldið áfram að prjóna sléttprjón með 4 kantlykkjum í garðaprjóni að neðan og 1 kantlykkju í garðaprjóni að ofan. Þegar stykkið mælist 60-61-61 cm fellið af fyrir hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Fellið af 1. l á prjóni, prjónið sl út umf = 61-65-69 l.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl yfir allar l.
UMFERÐ 3: Fellið af fyrstu 2 l í umf, prjónið áfram eftir mynstri A.1 (byrjið á umf 1 = sl yfir allar l) og prjónið sl út umf = 59-63-67 l.
UMFERÐ 4: Prjónið umf 2 í A.1 – þ.e.a.s. sl yfir allar l.
Haldið áfram með A.1 þar til prjónað hefur verið 1 sinni á hæðina. JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli í byrjun á hverri umf frá réttu þannig. Fellið af 4 l alls 3 sinnum = 47-51-55 l eftir á prjóni. Prjónið nú 2-4-8 umf garðaprjón, fellið LAUST af allar l í næstu umf frá réttu. ATH: PASSIÐ UPPÁ AÐ AFFELLINGARKANTURINN VERÐI EKKI STÍFUR! Stykkið mælist ca 68-69-70 cm mælt í prjónastefnu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10.
Prjónið 4 umf garðaprjón. Í næstu umf frá réttu eru prjónaðar 4 kantlykkjur í garðaprjóni (= neðst niðri á poncho), 57-61-65 l sléttprjón (= efst uppi á poncho). Haldið áfram að prjóna sléttprjón með 4 l garðaprjón að neðan og 1 l garðaprjón að ofan. Þegar stykkið mælist 60-61-61 cm er prjónað áfram eins og vinstra framstykki. Fellið af fyrir hálsmáli alveg eins nema spegilmynd – þ.e.a.s. að fellt er af fyrir hálsmáli í byrjun umf frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman hægra og vinstra bakstykki yst í lykkju á affellingarkantinum (= miðja að aftan). Saumið saman hægra og vinstra framstykki alveg eins. Saumið axlasauma. Saumið hliðarsauma í hvorri hlið (= uppfitjunarkantur) þannig: Byrjið frá neðri kanti á fram- og bakstykki, saumið saman þar til 14-15-16 cm eru eftir. Opið sem er eftir er handvegurinn.

KANTUR Á ERMI:
Prjónið upp ca 30-32-34 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10 meðfram öllum handvegi í annarri hliðinni, byrjið undir ermi og prjónið fram og til baka. Í næstu umf er prjóna sl JAFNFRAMT er aukið út um 2 l jafnt yfir = 32-34-36 l. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til kanturinn mælist ca 3-3-3 cm, fellið LAUST af allar l í næstu umf frá réttu. Saumið saman styttri hliðarnar undir ermi yst í lykkjubogann.
Endurtakið á sama hátt meðfram handveg í hinni hliðinni.

KRAGI:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.
Prjónið upp ca 70-74-74 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10 meðfram öllum kanti við hálsmál. Í næstu umf er prjóna br – jafnframt er lykkjufjöldinn jafnaður út að 72-76-76 l.
Prjónið nú A.1 (byrjið á umf 1 í mynstri) 1 sinni á hæðina.
Í næstu umf (= 1. umf í A.1) aukið út um 4 l jafnt yfir í umf = 76-80-80 l. Endurtakið útaukningu með 4 l jafnt yfir í 1. umf í A.1, 2 sinnum til viðbótar (alls 3 útaukningar = 12 l fleiri) = 84-88-88 l á prjóni. Haldið áfram með A.1 þar til kraginn mælist ca 24 cm (endið á umf 4 eða 8 í mynstri). Prjónið 2 umf garðaprjón, fellið LAUST af allar l. Saumið saman kragann við miðju að aftan, saumið yst í lykkjubogann.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.08.2013
undir VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10. Prjónið 4 umf garðaprjón.... Undir HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 62-66-70 l með Alpaca Bouclé á hringprjóna nr 10. Prjónið 4 umf garðaprjón...

Mynstur

symbols = sl frá réttu
symbols = br frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = 2 l sl saman
symbols = prjónastefna
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Iben wrote:

Skal den ikke strikkes med 2 tråde

23.01.2020 - 13:46

DROPS Design answered:

Hej Iben, nej denne poncho er strikket meget løst med 1 tråd DROPS Alpaca boucle. God fornøjelse!

30.01.2020 - 09:02

country flag Francine wrote:

Ok je crois que je si compris je commence a rabattre sur l envers et tricot endroit merci désolée pour le derangement

21.10.2019 - 19:54

country flag Francine wrote:

Bonjour j' aimerais savoir si au demi dos gauche je tricote le diagramme sens inverse c est a dire tous les rangs a l envers merci

18.10.2019 - 17:07

DROPS Design answered:

Bonjour Francine, A.1 va se tricoter également de la même façon que pour le demi-dos droit autrement dit, le 1er rang se tricote sur l'endroit. Bon tricot!

21.10.2019 - 08:47

country flag Suzie Leblanc wrote:

Bonjour, j'ai trouvé ma réponse. Je n'avais pas bien analysé le shéma à la fin. Mille excuses pour le dérangement.

12.01.2019 - 13:04

country flag Suzie Leblanc wrote:

Bonjour, je ne comprends pas très bien à la fin du demi dos - l'ouvrage mesure 68 cm "dans le sens du tricot" (largeur ou hauteur?). Merci à l'avance. C'est un modèle superbe.

12.01.2019 - 05:36

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Leblanc, on tricote dans le sens de la longueur (voir flèches dans le schéma), le demi-dos doit mesurer 68 cm dans le sens du tricot = depuis le rang de montage, ces 68 cm correspondent à la largeur totale du demi-dos (soit 136 cm de largeur totale - cf schéma). Bon tricot!

14.01.2019 - 09:31

country flag Malin Kruska wrote:

En fundering. Om 11 m ska bli 10 cm på bredden. Hur kan det då räcka med 70 m i den största storleken, då den ska bli 77 cm?

03.03.2017 - 18:08

DROPS Design answered:

Hej Malin. Ja, det forstaar jeg, men jeg tror at naar du har strikket delen og maaler den, (Alpaca Bouclé er elastisk og strikkes paa 10 i stedet for 5) - saa vil det vaere mere rum og elasticitet i arbejdet, saa det bliver laengere - isaer ogsaa naar det baeres paa.

06.03.2017 - 15:04

country flag Sonja wrote:

Op mijn tablet word het maatschema en het telpatroon niet weergegeven kunt u hier naar kijken

05.12.2016 - 11:41

DROPS Design answered:

Hoi Sonja. Wij hebben geen problemen op de tablets. Je kan eventueel problemen je cache geheugen op je tablet te clearen.

05.12.2016 - 12:22

Claudia wrote:

Soy nueva tejiendo. Comence con espalda derecha y ya finalizando esta parte me trabe. Me podrian explicar:1-Hilera 1 (= LD): Rem el 1er pt de la hilera. Hilera 3: Rem los primeros 2 pts de la hilera, continuar tejiendo el diagrama A.1 (empezar con la 1ª hilera = tejer todos los pts de derecho) –La abreviatura "REM" me confunde totalmente 2-Hilera 4: Tejer la 2ª hilera en A.1 – Aqui tampo entiendo. Agradezco de antemano su respuesta. Saludos desde Argentina

27.05.2016 - 22:12

DROPS Design answered:

Hola Claudia. (Rem)atar = cerrar los pts uno por uno. A partir de la fila (hilera) 3 comenzamos con el diagrama A.1, donde la primera y segunda fila se trabajan de derecho.

28.05.2016 - 17:11

country flag Réka wrote:

Ha jól értem, a kezdő 62 (S méret) szem elegendő kell, hogy legyen a "szabásmintán" látható 69 cm-hez. Ez így nem jön össze, hisz 62 szemből kb 56 cm széles munkadarabot lehet készíteni. Úgy hiszem, megnövelem a kezdő szemszámot, hogy közelítsek az elvárt 69 cm-s szélességhez. Mi a véleménye? Válaszát előre is köszönöm

14.02.2016 - 14:09

DROPS Design answered:

Kedves Réka, a nagyméretű kötőtű, és az Alpaca Bouclé fonal vastagsága miatt kell viszonylag kevés szemszámmal kezdeni a darabot. Azt javaslom, mindenképpen készítsen kötéspróbát, és annak alapján számítsa ki a kezdéshez szükséges szemek számát.

17.02.2016 - 09:18

country flag Katie wrote:

This is my first pattern I am doing. I am on the third row where you slip knit and psso. Just to make sure but when I start the yo I do not knit a new stitch. Instead I will slip and then knit the yarn from the yo to that stitch? Not sure if I worded it correctly.

01.12.2015 - 16:37

DROPS Design answered:

Dear Katie, on row 3 repeat: *slip 1 as if to K, K1, psso, YO*, you dec 1 st compensated by the yo -number of sts should keep the same. Happy knitting!

01.12.2015 - 17:11