Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Pistachio |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Snow með djúpri laskalínu og sjalkraga. Stærð S - XXXL
DROPS 149-33 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið sl yfir br og br yfir sl. Endurtakið umf 2. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 12, 20, 28 og 36 cm. STÆRÐ M: 13, 21, 29 og 37 cm. STÆRÐ L: 14, 22, 30 og 38 cm. STÆRÐ XL: 15, 23, 31 og 39 cm. STÆRÐ XXL: 16, 24, 32 og 40 cm. STÆRÐ XXXL: 17, 25, 33 og 41 cm. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Fækkið lykkjum frá réttu þannig: Á undan prjónamerki: Byrjið 3 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, 1 l sl (prjónamerkið er staðsett eftir þessari l). Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 l sl (prjónamerki er staðsett á undan þessari l), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum frá röngu þannig: Á undan prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar brugðið saman, 1 l br (prjónamerki er staðsett á eftir þessa l). Á eftir prjónamerki: Prjónið 1 l br (prjónamerki er staðsett á undan þessari l), 2 l brugðið saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 92-100-108-116-128-136 l (meðtaldar 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 10 með Snow. Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 6 l PERLUPRJÓN (= kantur að framan), stroff 1 l sl, 1 l br þar til 6 l eru eftir, prjónið 6 l perluprjón (= kantur að framan). Prjónið 1 umf frá röngu alveg eins. Prjónið nú sléttprjón með 6 l perluprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 28-29-30-31-32-33 cm prjónið næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 22-24-26-28-31-33 l (= vinstra framstykki), fellið af 8 l, prjónið 32-36-40-44-50-54 l (= bakstykki), fellið af 8 l og prjónið þær 22-24-26-28-31-33 l sem eftir eru (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna. Fitjið laust upp 56-58-60-62-64-66 l á hringprjóna nr 10 með Snow. Prjónið 4 umf í perluprjóni, prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 7 cm er fellt af 8 l í byrjun umf = 48-50-52-54-56-58 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 172-184-196-208-224-236 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið áfram í sléttprjóni og 6 l perluprjóni í hvorri hlið. Nú byrjar úrtaka fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA: Úrtaka er mismunandi á ermum og á fram- og bakstykki – fækkið lykkjum þannig: Á ERMI: Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 17-17-17-17-18-18 sinnum, síðan í hverri umf 3-4-5-6-6-7 sinnum (= 8 l eftir á ermi). Á FRAM- OG BAKSTYKKI: Fækkið lykkjum í 6. hverri umf 2-1-0-0-0-0 sinnum, síðan í 4. hverri umf 7-9-8-8-6-4 sinnum, síðan í annarri hverri umf 0-0-4-5-10-14 sinnum (= 13-14-14-15-15-15 l eftir á hvoru framstykki og 14-16-16-18-18-18 l eftir á bakstykki). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm er prjónuð 1 l sléttprjón inn í kant að framan, þ.e.a.s. fjöldi l með perluprjóni í kanti að framan er aukin og fjöldi l í sléttprjóni á framstykki fækkar (fjöldi l er sá sami), endurtakið með 9-6-7-5-5-6 cm millibili alls 3-4-4-5-5-5 sinnum (= 9-10-10-11-11-11 l með perluprjóni í kanti að framan). Eftir úrtöku eru 56-60-60-64-64-64 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf frá réttu þar sem fækkað er um 8-8-8-10-10-10 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 48-52-52-54-54-54 l. Eftir síðustu umf með úrtöku er prjónuð 1 umf slétt frá röngu jafnframt eru fyrstu 9-10-10-11-11-11 l á prjóni settar á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 30-32-32-32-32-32 l og haldið eftir síðustu 9-10-10-11-11-11 l á prjóni, snúið við. Prjónið nú stuttar umferðir fyrir kraga yfir l á prjóni (haldið áfram í perluprjóni) þannig: * Prjónið 2 umf yfir fyrstu 5-5-5-6-6-6 l við miðju að framan, prjónið 2 umf yfir allar l *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 17-18-18-18-18-18 cm þar sem byrjað var með stuttar umferðir (mælt lengst inn við kraga þar sem stykkið er styst), fellið af. Setjið til baka l af þræði frá hinni hliðinni á prjóninn, prjónið 1 umf slétt frá réttu, prjónið nú stuttar umferðir alveg eins. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumið kant í kant) og saumið við hálsmál aftan við hnakka með smáu spori. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11428 mynstur - 6942 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (43)
Comment obtenir explications de vos modèles en aiguilles droites.. Merci!!!
28.12.2015 - 19:17DROPS Design answered:
Bonjour Mme Martin, on tricote ici le dos et les devants (puis l'empiècement) en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Pour les manches, cliquez ici pour en savoir plus sur l'adaptation des modèles. Bon tricot!
02.01.2016 - 15:00Wanneer de mouwen en lijf samen op een rondbreinaald zijn gezet wordt er dan direct gestart met de mindering of worden er eerst 2 nldn gebreid?
22.11.2015 - 22:14DROPS Design answered:
Beste Chris. Je begint meteen met minderen.
23.11.2015 - 13:33I really enjoy looking at your styles...it appears that over time you are making your patterns easier to read for a novice like me...I could easily see myself knitting this sweater, style is very wearable...as so many of yours are...will have to contact the CA retailer to buy some of your yarn and get started! I hope you never get rid of this site...amo
11.03.2015 - 06:04Begrijp het niet helemaal, minderen op het lijf, hoe???
13.07.2014 - 13:32Danielle Cardinal wrote:
Comment trouver le guide des tailles pour les modèles garnstudio ?
04.02.2014 - 03:33DROPS Design answered:
Bonjour Mme Cardinal, les tailles évoluent avec le temps et sont différentes d'un pays à l'autre, pour trouver la taille idéale pour chaque projet, l'idéal est de mesurer un vêtement analogue que vous aimez et de comparer ces mesures à celles du schéma à la fin des explications. Bon tricot!
04.02.2014 - 09:17Barbara wrote:
I want to start knitting this pattern! Could you please help me with the size.. which size would fits me? is there a guide for sizes?
18.10.2013 - 08:39DROPS Design answered:
Dear Barbara, you will find at the bottom of the pattern a measurement chart with all measures taken flat, from side to side. Check these measurements with one of your garment you like the shape and size and follow the matching size. Happy knitting!
18.10.2013 - 09:40AHA! Jetzt hat es klick gemacht! Aber vielleicht solltet Ihr die Anleitung so ändern das Ihr "AM RUMPFTEIL" durch "Vorderteile & Rumpfteil" ändert denn so versteht man es viel besser, und mach dann auch sinn. LG Jutta
12.09.2013 - 08:57Ich beschreibe mal wie ich stricke vielleicht können Sie mir daran erklären wo der denk Fehler ist. Ich stricke (Seite & Ärmel) 22 M nehme 1 M ab, stricke 2 M (dazwischen der 1.Makierer) & nehme 1 M ab, stricke 46 M (Ärmel) & nehme 1 M ab, stricke 2 M (dazwischen der 2.Makierer) nehme 1 M ab. Rumpf: Stricke 36 M nehme bei der 6. R. eine ab. Und stricke Seite & Ärmel spiegelverkehrt noch mal. So hab ich in der R. 8 M plus evtl. Rumpf 1 M abgenommen (9 M).LG Jutta
11.09.2013 - 16:48DROPS Design answered:
Liebe Jutta, Vorder- und Rückenteil bilden zusammen das Rumpfteil, im Gegensatz zu den Ärmeln. Es wird also an diesen beiden (bzw. drei) Teilen nur in nur in jeder 6. R abgeonmmen.
12.09.2013 - 08:50Hallo, dann versuch ich mal mein Problem zu beschreiben. Ich habe alle Abnahmen wie angegeben gestrickt und es sind nur 6 M (gesamt) übrig geblieben. Ich habe 17 x pro Ärmel für die Raglanschrägung abgenommen und halt im Rumpf wie angegeben usw. Ich weiß nicht genau, wie ich das beschreiben soll. Ich kann nur sagen das ich mit den Abnahmen nicht hin komme so, wie sie da stehen. LG Jutta
10.09.2013 - 19:10DROPS Design answered:
Liebe Jutta, wir haben auf Ihren Input hin die Anleitung nochmals durchgerechnet und sie stimmt. Ich zeige Ihnen hier an Grösse S die Schritte, vielleicht können Sie erkennen, wo Ihr Fehler liegt: Ärmel= 48 M, total 40 Abn = 8 M, Rücken 32 M, total 18 Abn = 14 M, Vorderteil= 22 M, total 9 Abn = 13 M. Auch die Gesamtzahl stimmt: 13+8+14+8+13 = 56 M.
11.09.2013 - 07:58Hallo liebes DROPS-Team, ich habe diese schöne Jacke jetzt auch gestrickt. Leider habe ich bei Größe M dasselbe Problem wie Svenja, dass die Abnahmen nicht stimmen. Können Sie die Art der Abnahmen noch mal genauer beschreiben? Gruß Jutta
05.09.2013 - 14:45DROPS Design answered:
Liebe Jutta, bitte geben Sie uns genau an, in welcher Stelle die Unstimmigkeit ist und wie Sie zu der anderen Maschenzahl kommen, dann können wir dies überprüfen.
05.09.2013 - 16:04