Firebird Jumper With Detachable Collar skrifaði:
I really like this pattern but i find circular needles a problem, can this jumper be done on straight needles ? , sorry i am not an expert but i love to try. and can the same change be for other Knitting patterns. Thankyou for any help you give me Diana
19.10.2020 - 16:25DROPS Design svaraði:
Hi Firebird, We recommend circular needles because the jumper is worked in the round and there are a lot of stitches. But if you find straight needles easier, then using 5 of them (4 for the stitches and 1 to work with) is of course an option, both for this and other patterns. Happy knitting!
20.10.2020 - 08:49
S13v1n skrifaði:
Passt der Pullover in Gr. S für Kleidergröße 36?
15.03.2015 - 18:09DROPS Design svaraði:
Schauen Sie sich für die Größe am besten die Maße in der Skizze unten an, dann sehen Sie, welche Größe Ihnen am besten passt. Normalerweise entspricht Größe S Kleidergröße 36, aber wie gesagt, werfen Sie einen Blick auf die Maße.
15.03.2015 - 22:40Aline skrifaði:
Bonjour, Dans les explications pour l'empiècement, est-ce que vous pourriez m'expliquer ce que signifie : "monter 8 mailles au-dessus des mailles en attente" ? Merci d'avance !
18.03.2014 - 17:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Aline, vous placez en attente les mailles entre les marqueurs indiqués, avant de continuer, montez 8 m et tricotez les mailles suivantes. Bon tricot!
24.03.2014 - 10:33
Astrid.A skrifaði:
Feuer und Flamme ist meine Tochter (15), denn den traut sie sich auch zu.LG
21.06.2013 - 08:29
Michaela skrifaði:
Super schöner Kuschelpulli,freue mich drauf
18.06.2013 - 19:54Teresa skrifaði:
Auch sehr schön, die Farbe ist super und der Pullover wirkt als wäre er einfach zu stricken.
17.06.2013 - 21:13
Karin skrifaði:
Tolle Farben und einfacher Schnitt.
08.06.2013 - 20:33Angie skrifaði:
Magnifiques couleurs pour l'autome et l'hiver trés joli pull
08.06.2013 - 06:19
Gnaegi skrifaði:
ça, c'est LE modèle que j'attendais avec verdi, je me réjoui de commencer!!!
02.06.2013 - 18:49
Silvana Andrea skrifaði:
Dieses Modell spricht mich sehr an.
02.06.2013 - 14:12
Firebird#firebirdsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með laskalínu og lausum kraga úr DROPS Verdi. Stærð S - XXXL
DROPS 150-48 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. ÚTAUKNING (á við um laskaúrtöku): Byrjið á 2 l á undan prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er á milli þessa l), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). ÚRTAKA: Fækkað er um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkað er um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. LEIÐBEININGAR: Ef prjónfestan er ekki rétt á hæðina og prjónað er of fast verður laskalínan of stutt og op fyrir handveg of lítið. Þessu er hægt að stilla af þannig með því að prjóna 1 auka umf án úrtöku með jöfnu millibili á milli úrtöku. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. BERUSTYKKI: Fitjið upp 42-48-54-60-66-72 l LAUST upp á hringprjóna nr 8 með Verdi. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 9 og prjónið stykkið áfram í sléttprjóni. Prjónið nú upphækkun að aftan í hnakka með byrjun frá miðju að aftan þannig: Setjið 1 prjónamerki. Prjónið 7-8-10-11-13-14 l, snúið við og herðið á þræði og prjónið 14-16-20-22-26-28 l, snúið við og herðið á þræði og prjónið 7-8-10-11-13-14 l til baka. Snúið við og prjónið 1 umf (í kringum allt stykkið) aftur að miðju að aftan. Snúið við (= prjónað er nú áfram frá réttu). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið nú 4 ný prjónamerki (fyrir laskalínu) þannig: Prjónið 7-8-10-11-13-14 l frá prjónamerki við miðju að aftan, setjið 1. prjónamerki hér (takið nú frá prjónamerki við miðju að aftan), prjónið 8 l (= ermi), setjið 2. prjónamerki, prjónið 13-16-19-22-25-28 l (= framstykki) og setjið 3. prjónamerki, prjónið 8 l (= ermi), setjið 4. prjónamerki og prjónið 6-8-9-11-12-14 l aftur fram að fyrsta prjónamerki (nú eru 13-16-19-22-25-28 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Aukið út um 1 l hvoru megin við öll prjónamerkin = 8 útaukningar í hverri umf). Aukið út í annarri hverri umf: 10-11-12-13-14-15 sinnum – sjá ÚTAUKNING að ofan = 122-136-150-164-178-192 l. Í næstu umf er prjónað þannig: Setjið 28-30-32-34-36-38 l á milli 1. og 2. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir þær, prjónið fram að 3. prjónamerki, setjið 28-30-32-34-36-38 l á milli 3. og 4. prjónamerkis á þráð, fitjið upp 8 nýjar l yfir þær, prjónið fram að 1. prjónamerki = 82-92-102-112-122-132 l á prjóni. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (það eiga að vera 41-46-51-56-61-66 l á milli prjónamerkja). Stykkið mælist nú héðan. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki í hvorri hlið (= 4 l fleiri), endurtakið útaukningu með 11 cm millibili 3 sinnum (= alls 4 útaukningar)= 98-108-118-128-138-148 l. Prjónið þar til stykkið mælist 44-45-45-45-46-46 cm frá prjónamerki. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið síðan af. Stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm alls frá öxl og niður. ERMI: Passið uppá að liturinn á bandinu passi nokkurn veginn við litinn á fram- og bakstykkinu (byrjið á sama lit á báðum ermum). Setjið l af öðrum þræði á sokkaprjóna nr 9 og takið upp 1 l í hverja af nýju 8 l á fram- og bakstykki = 36-38-40-42-44-46. Setjið 1 prjónamerki við miðju undir ermi (þ.e.a.s. mitt í 8 nýju l). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki (= 2 l færri) – sjá ÚRTAKA að ofan. Fækkið með 16-11-8-14-10-8 cm millibili 2-3-4-2-3-4 sinnum til viðbótar (alls 3-4-5-3-4-5 sinnum )= 30-30-30-36-36-36 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-45-45-44 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónaðar 4 umf garðaprjón. Fellið af. LAUS KRAGI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Fitjið upp 66-68-70-72-74-76 l á hringprjóna nr 9 með 2 þráðum af Verdi. Prjónið garðaprjón með 1 þræði af Verdi þar til stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm. Fellið síðan af með 2 þráðum af Verdi. Stykkið mælist ca 45-46-47-48-49-50 cm. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #firebirdsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 150-48
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.