Cille skrifaði:
Babyalpaca Silk er en virkelig lækker kvalitet. God at have på, god at arbejde med og til at betale. Gradueringen af mønsterets størrelse er en virkelig fin detalje. Håber den er taljeret i str. S/M! BabyAlpaca Silk is a lovely quality! Nice to wear, good to work with and yet affordable! The gradual sizing of the motif is a lovely detail! I hope it comes in a good fitted size S/M
14.12.2012 - 22:27
Andrea skrifaði:
Der ist wirklich schön - ein Pulli, den man immer tragen kann. Muss bitte in die Kollektion!
14.12.2012 - 18:17
Hundhammer skrifaði:
Netter Pulli, schöne Form
14.12.2012 - 18:06
Veuillet skrifaði:
Le pull promet d'être douillet par sa forme et la qualité du fil que j'adore tricoter et quel superbe empiècement! bravo!
13.12.2012 - 18:20
Tetsje skrifaði:
Prachtig patroon, mooi model
13.12.2012 - 10:21
July skrifaði:
Mooi model, prachtige kleur
12.12.2012 - 19:32
Sabine skrifaði:
Mooi
12.12.2012 - 14:09
Lisbeth skrifaði:
Ser god og anvendelig ud...
11.12.2012 - 22:56
Helle Kronby skrifaði:
Dejlig anvendelig model - kan bruges til alt
11.12.2012 - 22:25
Astrid Hediger skrifaði:
Gestrickter Halsschmuck
11.12.2012 - 16:20
Sweet Harlequin#sweetharlequinsweater |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og berustykki. Stærð S - XXXL.
DROPS 145-17 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GRAÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf slétt og 1 umf brugðið*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mysnturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 190-212-232-256-284-314 l á hringprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Setjið 2 prjónamerki í stykkið, eitt eftir 95-106-116-128-142-157 l og annað eftir síðustu l í umf (= miðja í hvorri hlið). Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN yfir allar l – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 7 cm er fækkað um 1 l (prjónið 2 l saman) hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (alls 4 úrtökur) = 174-196-216-240-268-298. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki með því að prjóna 2 l sl í l á undan og á eftir prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3½-4-4-4½-4½-5 cm millibili 3 sinnum til viðbótar (alls 4 útaukningar) = 190-212-232-256-284-314 l. Þegar stykkið mælist 36-38-37-39-39-41 cm eru felldar af 8 miðju l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki) 174-196-216-240-268-298 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 55-56-60-62-64-69 l á sokkaprjóna nr 3 með BabyAlpaca Silk. Prjónið 8 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 8-8-6-6-8-8 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í l á undan og á eftir prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2-2-1½-1½ cm millibili 13-13-18-17-21-20 sinnum til viðbótar (alls 14-14-19-18-22-21 útaukningar) = 83-84-98-98-108-111 l. Þegar stykkið mælist 46-46-44-44-43-43 cm er fellt af 8 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við prjónamerki) = 75-76-90-90-100-103 l eftir á prjóni. Geymið stykkið, prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Prjónið 1 umf brugðið frá röngu á fram- og bakstykki, JAFNFRAMT eru l frá ermum prjónaðar inn á prjóninn = 324-348-396-420-468-504 l. Prjónið nú A.1 yfir allar l (27-29-33-35-39-42 mynstureiningar). Þegar A.1 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 270-290-330-350-390-420 l í umf. Haldið áfram með A.2 yfir allar l (27-29-33-35-39-42 mynstureiningar). Þegar A.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 216-232-264-280-312-336 l í umf. Haldið áfram með A.3 yfir allar l (27-29-33-35-39-42 mynstureiningar). Þegar A.3 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 162-174-198-210-234-252 l í umf. Prjónið síðan A.4 yfir allar l (27-29-33-35-39-42 mynstureiningar). Prjónið A.4 alls 1-1-2-2-3-3 sinnum á hæðina, prjónið nú A.5 yfir allar l. Þegar A.5 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina eru 108-116-132-140-156-168 l í umf. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-20-24-36-44 l jafnt yfir = 104-108-112-116-120-124 l. Nú er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka. Allar umf eru prjónaðar slétt. Prjónið frá miðju að framan þannig: Prjónið 62-64-66-68-70-72 l, snúið við og prjónið 20 l til baka. Snúið við og prjónið 30 l. Snúið við og prjónið 40 l. Snúið við og prjónið 50 l. Snúið við og prjónið 60 l. Snúið við og prjónið 70 l. Snúið við og prjónið 80 l. Snúið við og prjónið yfir allar l í umf fram að miðju að framan. Prjónið síðan 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sweetharlequinsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.