Vermeulen skrifaði:
Super mag niet ontbreken in de gaderobe
27.12.2012 - 13:46Salma skrifaði:
Très très jolie ainsi que toute les modèls.
24.12.2012 - 19:21
Valerie skrifaði:
C est vraiment très joli. On a envie de les porter tout de suite. Vite préparons nos pelotes et nos aiguilles . Bravo aux modèles de garnstudio.
21.12.2012 - 00:47Redouane Malika skrifaði:
Tous les models sont trop jolis
20.12.2012 - 14:34
Petra skrifaði:
Tolles Teil mit klasse Mustern
19.12.2012 - 16:54
Laila Jensen skrifaði:
Rigtig flot med den store krave.
17.12.2012 - 15:06Adriana skrifaði:
Hermoso
14.12.2012 - 17:31
Heidi Poulsen skrifaði:
Hæklet sommervest
13.12.2012 - 14:35
Conni skrifaði:
Wunderschön. Ein Lieblingsteil von mir
12.12.2012 - 14:49
Olga skrifaði:
Beautiful, thx
12.12.2012 - 13:04
Vivien#vivienbolero |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Heklaður bolero úr DROPS Merino Extra Fine. Stærð S - XXXL
DROPS 145-8 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta st í hverri umf er skipt út með 3 ll og hver umf endar með 1 st í 3. ll í byrjun fyrri umf. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið 75-84-93-103 ll með Merino Extra Fine með heklunál nr 4. Snúið við og heklið til baka þannig: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 3-5-7-3 ll, * hoppið yfir 1 ll, heklið 1 fl í hverja af næstu 6 ll * , endurtakið frá *-* út umf = 65-73-81-89 fl (fyrsta ll = 1 fl). Haldið áfram með mynstur eftir mynsturteikningu A.1 – byrjið á umf merktri með 1 ör þannig: a yfir fyrstu 4 l, b þar til 5 l eru eftir, síðan c. Nú eru 8-9-10-11 mynstureiningar eftir af mynstri. Endurtakið næstu 4 umf í mynstri til loka. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Jafnframt þegar stykkið mælist 4-5-6-7 cm, aukið út um 1 st í hvorri hlið – SJÁ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 3-6-10-10 cm millibili 4-2-1-1 sinni til viðbótar – útauknu l eru einungis heklaðar í st. Heklið nú mynstur þar til stykkið mælist 20-21-23-24 cm, klippið ekki frá – haldið áfram með kantstykki. KANTSTYKKI: Byrjið á að heklað 1 umf með fl efst meðfram bakstykki – heklið 71-76-79-85 fl jafnt yfir, haldið áfram með 36-38-41-43 LAUSAR ll (= handvegur), heklið nú 1 fl í hverja fl meðfram neðri kanti á bakstykki, en hoppið yfir 8-9-10-12 l jafnt yfir = 57-64-71-77 fl), haldið áfram með 36-38-41-43 LAUSAR ll (= handvegur), festið með 1 kl í fyrstu fl efst á bakstykki = 200-216-232-248 l alls, klippið frá. Nú byrja allar umf fyrir miðju efst á bakstykki. UMFERÐ 1: Byrjið með 1 kl í miðju fl, heklið nú þannig: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* í kringum allan jakkann og aftur að miðju að aftan, endið umf með 3 ll og 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf = 100-108-116-124- ll-bogar í umf. UMFERÐ 2: Heklið 1 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. Heklið nú eins og umf 2 þar til kanturinn mælist ca 5-6-7-8 cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið 1 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 3 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. Haldið svona áfram með 3 og 4 ll í hvern ll-boga í annað hvert skipti þar til kanturinn mælist ca 9-10-11-12 cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið 2 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. Haldið svona áfram með 4 ll í hvern ll-boga þar til kanturinn mælist ca 12-13-15-17 cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið 2 kl + 1 fl um fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu fl. Haldið svona áfram með 4 og 5 ll í hvern ll-boga í annað hvert skipti þar til kanturinn mælist ca 15-17-19-21 cm. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga (það eiga að vera 5 ll-bogar) – sjá einnig í mynstri A.2, þessi umf er sú sem er merkt með 1 ör í mynstri: Heklið 6 ll, 1 st um sama ll-boga, * 3 st um 4-ll-bogann, 1 st + 3 ll + 1 st um næsta 5-ll-bogann*, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 3 st í síðasta 4-ll-bogann og 1 kl í 3. ll í byrjun umf. NÆST SÍÐASTA UMFERÐIN ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið 3 ll + 4 st um fyrsta 3-ll-boga, * 1 ll, 1 st í miðjuna á 3 st sem heklaðir voru í 4-ll-bogann frá fyrri umf, 1 ll, 5 st um næsta 3-ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 ll, 1 st í miðjuna á síðustu 3 st, 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. SÍÐASTA UMFERÐIN ER HEKLUÐ ÞANNIG: Heklið * 3 ll, 1 st í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir fyrsta st, 1 fl í næsta st, 3 ll, 2 st í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, 1 st í fyrstu ll sem hekluð var, hoppið yfir 1 st, 1 fl um næstu ll, hoppið yfir st á milli st-hópanna, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Kanturinn mælist ca 20-22-24-26 cm. KANTUR Í KRINGUM HANDVEG: Kantur meðfram handveg á bakstykki er heklaður þannig: Heklið 1 kl um fyrsta st, * 3 ll, 1 fl um næsta st *, endurtakið frá *-*. Meðfram handveg á framstykki er heklað þannig: Heklið * 3 ll, hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið á 3 ll og 1 kl í fyrstu kl í byrjun umf. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #vivienbolero eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 5 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-8
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.