DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 145-4
DROPS Design: Mynstur nr w-458
Garnflokkur C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
350-400-450-500-550-600 gr litur nr 30, gráblár

DROPS HEKLUNÁL NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 2,5 tbst-hópar í mynstri A.1 verði 10 cm á breidd og 11 fl/st verði 10 cm á breidd.
DROPS PERLUTALA, NR 522: 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2464.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 (mynsturteikning A.3 og A.4 sýna úrtöku fyrir handveg í stærð XXL + XXXL).

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 fl með því að hekla 2 fl í sömu l.

ÚRTAKA (fækkið um 1 fl):
Heklið 1 fl, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið nú næstu fl, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað fram og til baka frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 189-204-219-242-264-287 ll með heklunál nr 6 með Paris, snúið við.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hvora af næstu 2 ll *, endurtakið frá *-* þar til 4-4-4-3-4-3 ll eru eftir, hoppið yfir næstu ll og endið með 1 fl í hverja af síðustu 3-3-3-2-3-2 ll= 126-136-146-161-176-191 fl í umf, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja l frá fyrri umf = 126-136-146-161-176-191 fl, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið eins og umf 2.
UMFERÐ 4: Heklið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið 5 ll (þær jafngilda 1 tbst + 1 ll), * hoppið yfir 4 fl, í næstu fl er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* þar til 5 fl eru eftir, hoppið yfir 4 fl og endið með 1 ll og 1 tbst í síðustu fl = 24-26-28-31-34-37 tbst-hópa, snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 5 ll, um ll-bogann í hverjum tbst-hóp er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst, endið umf með 1 ll og 1 tbst í 4. ll í byrjun fyrri umf = 24-26-28-31-34-37 tbst-hópar, snúið við.

Endurtakið umf 5 þar til stykkið mælist ca 16 cm.
Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 4 ll (þær jafngilda 1 tbst), í ll-bogann í miðju á hverjum tbst-hóp er heklað 2 tbst + 1 ll (í stað 2 ll) + 2 tbst, endið umf með 1 tbst í 4. ll frá byrjun fyrri umf = 24-26-28-31-34-37 tbst-hópar, snúið við.
Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, heklið nú 1 fl í hvern tbst út umf, endið með 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf, snúið við = 98-106-114-126-138-150 fl.
Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: Heklið mynstur eftir mynsturteikningu A.2, þ.e.a.s. heklið 1 ll, heklið nú 1 fl í hverja fl út umf JAFNFRAMT er fækkað um 18-18-18-18-14-14 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚRTAKA = 80-88-96-108-124-136 fl, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 3 ll (þær jafngilda 1 st), heklið nú 1 st í hverja l út umf = 80-88-96-108-124-136 st í umf.
UMFERÐ 3-5: Heklið eins og umf 2 = 80-88-96-108-124-136 st.
UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út þannig: Stærð S + M + L + XL + XXL: Aukið út um 5-9-5-5-5 fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING. Stærð XXXL: Fækkið um 3 l jafnt yfir- LESIÐ ÚRTAKA = 85-97-101-113-129-133 fl, snúið við.
UMFERÐ 7: Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, heklið nú 1 fl í hverja fl frá fyrri umf = 85-97-101-113-129-133 fl, snúið við.
UMFERÐ 8: Heklið 5 ll, * hoppið yfir 3 fl, í næstu fl er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst *, endurtakið frá *-* þar til 4 fl eru eftir í umf, hoppið yfir 3 fl og endið með 1 ll og 1 tbst í síðustu fl í umf = 20-23-24-27-31-32 tbst-hópar í umf, snúið við.
UMFERÐ 9: Heklið nú aftur mynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklið 5 ll, í ll-bogann í miðju hverra tbst-hópa er heklað 2 tbst + 2 ll +2 tbst, endið umf með 1 ll og 1 tbst í 4. ll í byrjun fyrri umf = 20-23-24-27-31-32 tbst-hópar.
Endurtakið umf 9.
JAFNGRAMT þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er stykkinu skipt upp fyrir handveg þannig: Setjið 1 prjónamerki eftir 5-6-6-7-8-8 tbst-hópar frá hvorri hlið (= 10-11-12-13-15-16 tbst-hópar á milli prjónamerkja á bakstykki). Hvort stykki er heklað fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 10-11-12-13-15-16 tbst-hópar.
Haldið áfram fram og til baka með tbst-hópa eins og útskýrt er í A.1. JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í stærð XXL +XXXL þannig: Fækkið um 1 tbst-hóp í byrjun umf eins og útskýrt er í A.3, heklið nú eins og áður þar til 1 tbst-hópur er eftir í umf, endið umf eins og útskýrt er í A.4 (lykkjum er ekki fækkað í öðrum stærðum) = 10-11-12-13-13-14 tbst-hópar eftir í umf. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til 1 umf er eftir þar til stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. Heklið nú 1 umf með tbst-hópum einungis yfir síðustu 3-4-4-5-5-5 tbst-hópa í annarri hliðinni á stykkinu þannig: Heklið 5 ll, * í ll-bogann í miðju á næsta tbst-hóp er heklað 2 tbst + 2 ll +2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-5 sinnum, endið með 1 tbst í síðasta tbst í sama tbst-hóp, snúið við.
Heklið nú 1 umf fl þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, * 1 fl í hvorn af fyrstu 2 tbst, 1 fl um ll-boga í miðjan tbst-hóp, 1 fl í hvorn af næstu 2 tbst *, endurtakið frá *-* alls 3-4-4-5-5-5 sinnum, endið með 1 fl um síðustu ll og 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf = 18-23-23-28-28-28 fl í umf. Klippið frá og festið enda. Endurtakið eins á hinni öxlinni (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir miðju 4-3-4-3-3-4 tbst-hópa = hálsmál).

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 5-6-6-7-8-8 tbst-hópar.
Haldið áfram fram og til baka með tbst-hópum eins og á bakstykki. JAFNFRAMT í umf 1 er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið eins og í stærð XXL + XXXL eins og útskýrt er í A.4 (lykkjum er ekki fækkað í öðrum stærðum) = 5-6-6-7-7-7 tbst-hópar. Haldið áfram með mynstur fram og til baka þar til stykkið mælist ca 64-66-68-70-72-74 cm – passið uppá að heklaðar séu jafnmargar umf með tbst-hópum eins og á bakstykki. Heklið nú 1 umf fl eins og á bakstykki einungis yfir síðustu 3-4-4-5-5-5 tbst-hópa á öxl (þ.e.a.s. ekki er heklað yfir 2 tbst-hópa við hálsmál = kragi) = 18-23-23-28-28-28 fl. Klippið frá og festið enda. Setjið 1 prjónamerki á öxl. Nú eru heklaðir tbst-hópar fram og til baka yfir kraga þannig: Heklið 5 ll, um ll-boga í fyrsta tbst-hóp er heklað 2 tbst + 2 ll + 2 tbst, um ll-boga í næsta tbst-hóp er heklað 2 tbst +2 ll + 2 tbst, heklið 1 ll og endið með 1 tbst í síðasta tbst í sama tbst-hóp. Haldið svona áfram fram og til baka þar til kraginn mælist ca 10-8-10-8-8-10 cm frá prjónamerki á öxl. Nú er 1 umf með fl hekluð þannig: Heklið 1 ll, 1 fl í sömu l, 1 fl um næstu ll, 1 fl í hvorn af fyrstu 2 tbst, 1 fl um ll-boga mitt í tbst-hóp, 1 fl í hvorn af næstu 2 tbst*, endurtakið frá *-* alls 2 sinnum, endið með 1 fl um síðustu ll og 1 fl í 4. ll frá byrjun fyrri umf = 14 fl, klippið frá.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. Þegar lykkjum er fækkað fyrir handveg í stærð XXL + XXXL er fækkað um 1 tbst-hóp eins og útskýrt er í A.3.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið saman kraga við miðju að aftan (saumið kant í kant) og saumið kragann við hálsmálið aftan við hnakka. Saumið tölur í hægra framstykki – sjá mynd. Tölum er hneppt í HEKLAÐUR KANTUR – sjá útskýringu að neðan!

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum allt opið á vestinu og í kringum bæði opin við handveg þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 5 ll, hoppið yfir ca 2½ cm, 1 fl í næstu l/í næsta boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 5 ll og 1 kl í byrjun umf.

Mynstur

symbols = 1 keðjulykkja
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 stuðull
symbols = 1 tvíbrugðinn stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (189)

country flag Sonja wrote:

Die Anleitung ist generell nicht sehr einfach, aber die Beschreibung zum Kragen ist absolut unverständlich, weil es nicht mal kein Bild dazu gibt.

26.08.2023 - 17:50

DROPS Design answered:

Liebe Sonja, für den Kragen häkeln Sie nur die ersten Doppelstäbchen-Gruppen bis dieses Teil 8 oder 10 cm misst, dieses Bändchen häkeln Sie genauso bei beiden Vorderteilen, dann sind sie beide zusammen angenäht (letzte Reihe zusammen), und dann am Halsausschnitt bei dem Rückenteil nähen. In diesem Video zeigen wir, wie so ein Schalkragen gestrickt wird, vielleicht kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim häkeln!

28.08.2023 - 14:00

country flag Angelika Berndt wrote:

Weiß nicht wieviel Luftmaschen ich für das rechte Westentasche anschauen soll. Danke

18.04.2023 - 18:49

DROPS Design answered:

Liebe Frau Berndt, die Weste wird von unten nach oben in einem Stück bis Armlöcher gehäkelt, je nach der Größe häkeln Sie 189 bis 287 Luftmaschen (= 126 bis 191 fM nach der 1. Reihe) dann häkeln Sie die Diagramme wie erklärt bis die Arbeit für die Armlöcher geteilt wird, und jedes Teil wird dann bis zur Schulter separat fertig gehäkelt. Viel Spaß beim häkeln!

19.04.2023 - 07:48

country flag Angelika Berndt wrote:

Komme mit der Anleitung der Weste für linkes und rechtes Vorderteil nicht klar. Weil keine Maschenanzahl zur Aufnahme da bei steht. Soll ich die Hälfte vom Rückenteil aufnehmen ? Oder Danke Mfg. Angelika

18.04.2023 - 16:32

DROPS Design answered:

Liebe Frau Berndt, Rückenteil wird über die mittleren 10-11-12-13-15-16 D-Stb-Gruppen gehäkelt, und jedes Vorderteil über die beidseitigen 5-6-6-7-8-8 D-Stb-Gruppen. In die 2 grösseren Größe wird man für Armausschnitt abnehmen, aber nicht in die anderen Größen; dh häkeln Sie wie erklärt unter RÜCKENTEIL, dann RECHTES VORDERTEIL:; und LINKES VORDERTEIL: . Sollte ich Ihre Frage misverstehen, können Sie vielleicht dann mehr sagen, was Sie hier meinen? Danke im voraus für Ihr Verständnis. Viel Spaß beim häkeln!

18.04.2023 - 16:49

country flag Karin wrote:

Hej, Jag har gjort bakstycket men förstår inte var, och hur, jag ska börja med höger framstycke. Ska jag virka det direkt på bakstycket? I så fall, var och hur börjar jag? Eller ska det virkas helt fristående och sys på bakstycket i efterhand?

29.01.2022 - 19:10

DROPS Design answered:

Hej Karin, de første 45-46-47-48-49-50 cm er hæklet som forstykker og bagstykke i et, når du nu deler til ærmegab hækler du først sidste del af bagstykket og så forstykkerne for sig. God fornøjelse!

03.02.2022 - 14:25

country flag Seija Nilsson wrote:

Hej, jag undrar om framstycket på västen leona. Det står , =5 6 6 7 8 dst -grupper. Var börjar jag med framstycket? Ska de göras separat eller? Jag avslutade ju alla styckerna med 5 dst. Önskar snabbt svar. Mvh Rådvill.

31.05.2021 - 13:58

DROPS Design answered:

Hej Seija, du avslutade när arb mäter 45-46-47-48-49-50 cm, som du delade det för ärmhål så här: sätt 1 markör efter 5-6-6-7-8-8 dst-grupper in från varje sida (= 10-11-12-13-15-16 dst-grupper mellan markörerna på bakst). Varje del virkas sedan för sig. Det är de 5-6-6-7-8-8 dst-grupper du börjar med under HÖGER FRAMST. :)

02.06.2021 - 11:54

country flag Lilia Orozco wrote:

Buenos dias. Me encanta el chaleco. me puede hacer el favor de decirme con cuantas cadenetas se empieza.? este se comienza por abajo o por el hombro

11.05.2021 - 19:01

DROPS Design answered:

Hola Lilia, se empieza con 189-204-219-242-264-287 cadenetas (el numero depende de tu talla). El chaleco se comienza por abajo. Buen trabajo!

13.05.2021 - 17:02

country flag Humera wrote:

Can you plz give me some pictures of the neckline. I cant understand how the collar and the back neckline should be. In the given picture the neckline is coverd by the girl's hair. I am having a hard time imagining it.

12.01.2021 - 16:03

DROPS Design answered:

Dear Humera, we do not have more fotos sorry. Just work the collar over the first stitches towards mid front as explained. These stitches should be worked until this small piece measures 8 or 10 cm depending on the size, then work the last row with double crochets (UK-English crochet terms). Work same band at the end of 2nd front piece; Sew the last row on both bands together (mid back) and then sew these band along neck on back piece. Happy crocheting!

12.01.2021 - 16:58

country flag AISHWARYA wrote:

Hey Thank you so much for your quick help. One more doubt- so the right collar and left collar will be stitched together and then the whole collar will be stitched to neckline? Thank you. Have a nice day.

15.09.2020 - 17:16

DROPS Design answered:

Dear Aishwarya, correct, this video shows a knitted collar that is worked the same way as here, ie a small extention of both front pieces sewn together then along neckline on back piece. Happy crocheting!

16.09.2020 - 08:25

country flag Gunjan wrote:

Hey Thank you for such a beautiful pattern. Back shoulder pattern length will be- 1row less to 68cm and 4tr groups above. And front pattern length will be 68cm except collar. So the length of both won't be same? Then how to join this two pieces? Please help me with this. Thank you.

15.09.2020 - 16:52

DROPS Design answered:

Dear Mrs Gunjan, you have to adjust to the same row as on back piece, so that shoulders are the same. Happy crocheting!

15.09.2020 - 17:11

country flag Aishwarya wrote:

Hi Can you advise for left piece will it be innermost 4tr and outermost 2tr for collar? Also can you advise how to stitch all parts together in detail. Thank you for your help.

15.09.2020 - 15:38

DROPS Design answered:

Dear Aishwarya , on left front piece you will crochet the 4 tr-groups towards shoulder for the shoulder (= on the left side of piece, seen from RS) and over the 2-tr-groups towards mid front (on the left side of piece, seen from RS) - all same way as on right front piece, just reversed = mirrored. Happy crocheting!

15.09.2020 - 15:49