DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Campanula

Heklaður kjóll úr DROPS Safran með tölum að framan og bylgjulaga kanti að neðan. Stærð S-XXXL

DROPS 145-9
DROPS Design: Mynstur nr e-206
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio
550-600-700-800-900-1000 gr litur nr 06, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 1 ferningur = ca 6 x 6 cm (þegar ferningurinn er strekktur aðeins) og 23 st og 13 umf með st verði 10 x 10 cm.
DROPS SILFURTALA NR 534: 7 stk

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsta st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll, endið umf á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

HEKLIÐ 2 ST SAMAN:
Heklið 1 st í fyrsta st í umf að neðan, bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næsta st í umf að neðan, þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. Nú hefur fækkað um 1 st.

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum í byrjun umf þannig: Heklið kl yfir þann fjölda st sem fækka á.
Fækkið lykkjum í lok umf þannig: Snúið við þegar eftir er sá fjöldi st sem fækka á.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru ferningarnir heklaðir – þeir eru síðan heklaðir saman jafnóðum. +Síðan er heklað meðfram annarri hliðinni á ferningunum og upp kjólinn og síðan efrihlutann. Að lokum er bylgjulaga kantur heklaður meðfram annarri hliðinni á ferningunum og niður og bylgjulaga kantur í kringum handveg.

FERNINGUR-1:
Sjá einnig mynsturteikningu A.1.
Heklið 4 ll með Safran með heklunál nr 3 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (= 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, 1 fl í næsta st, 1 ll, * 1 fl í næsta st, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 3: Heklið 1 ll, 1 fl í 2. ll frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næstu ll frá fyrri umf *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 4: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll (= horn), 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf (í stað 1 fl um næsta ll-boga). Klippið frá.

FERNINGUR-2:
Heklið á sama hátt og FERNINGUR-1 frá umf 1 til 3.
UMFERÐ 4: Sjá einnig mynsturteikningu A.2.
Heklið þannig: Heklið 2 ll, 1 fl um fyrsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, leggið ferninginn með röngu á móti röngu við FERNINGUR-1, heklið 1 fl um annan stóra ll-bogann á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2, * 2 ll, 1 fl um næsta litla ll-boga á FERNINGUR-1, 2 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2 *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar, 4 ll, 1 fl um næsta stóra ll-boga á FERNINGUR-1 (= horn), 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga á FERNINGUR-2. Heklið nú í kringum FERNINGUR-2 þannig: ** 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga, 8 ll, 1 fl um næsta ll-boga **, endurtakið frá **-** 1 sinni til viðbótar, en endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Klippið frá.

Heklið nú FERNINGUR-2 þar til heklaðir hafa verið alls 22-24-26-28-30-32 ferningar. Síðasti ferningurinn er heklaður saman við næst síðasta ferning og fyrsta ferning, þannig að allir ferningarnir eru tengdir saman í hring.

KJÓLL:
Lesið HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið með Safran og heklunál nr 3 með fram annarri langhliðinni á ferningunum þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 4 st um hvern af stóru ll-bogunum í horninu á ferningunum og 3 st um hvern af litlu ll-bogunum = 14 st hver ferningur og 308-336-364-392-420-448 st alls.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf = miðja að aftan.
UMFERÐ 2: Heklið * 1 st í hvern af fyrstu 5 st, HEKLIÐ 2 ST SAMAN – sjá útskýringu að ofan! *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 264-288-312-336-360-384 st.
UMFERÐ 3: Heklið 1 st í hvern st.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
UMFERÐ 4: Heklið 4 ll, hoppið yfir fyrsta st, * 1 st í næsta st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið 1 st í hvern st og 1 st í hverja ll = 264-288-312-336-360-384 st.
UMFERÐ 6: Heklið 1 st í hvern st.
UMFERÐ 7: Heklið eins og umf 4.
UMFERÐ 8: Heklið eins og umf 5.
UMFERÐ 9: Heklið 1 st í hvern st.
UMFERÐ 10: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 4-6-6-1-8-8, heklið 2 st saman, * 1 st í hvern af 4-5-6-7-8-9 næstu st, heklið 2 st saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 220-247-273-298-324-349 st. Stykkið mælist nú ca 14 cm ásamt hekluðu ferningunum.
Haldið áfram hringinn með 1 st í hvern st.
Þegar stykkið mælist 29-30-31-32-33-34 cm, heklið næstu umf þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 8-3-7-10-0-2 st, heklið 2 st saman, * 1 st í hvern af næstu 8-9-10-11-12-13 st, heklið 2 st saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 198-224-250-275-300-325 st.
Heklið 1 umf með 1 st í hvern st, klippið frá.
Héðan er byrjað að hekla fram og til baka frá miðju að framan svo að það myndist op fyrir tölur. Teljið 99-112-125-138-150-163 st frá miðju að aftan og setjið 1 prjónamerki (= miðja að framan). Teljið 3 st til hægri á undan prjónamerki (þegar stykkið liggur fyrir framan þig), byrjið og heklið hér með 1 kl og 3 ll, heklið nú 1 st í hvern st kringum allan kjólinn fram að byrjun umf, endið ekki umf með 1 kl, heldur heklið 1 st á bakhlið og hver og einn af þeim 6 fyrstu st sem heklaðir voru (svo að það skarist við framkant) = 204-230-256-281-306-331 st. Snúið við og haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, fækkið um 22-23-23-23-23-24 st jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 6-4-6-7-9-3 st, heklið 2 st saman, * heklið 1 st í hvern af næstu 7-8-9-10-11-12 st, heklið 2 st saman *, endurtakið *-* þar til eftir eru 7-4-6-8-9-4 st, heklið 1 st í hvern af þessum = 182-207-233-258-283-307 st.
Heklið nú áfram með 1 st í hvern st.
Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm, fækkið um 16-17-19-20-23-25 jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 7-6-7-14-8-8 st, heklið 2 st saman, * heklið 1 st í hvern af næstu 9-10-10-10-10-10 st, heklið 2 st saman *, endurtakið frá *-* þar til eftir eru 8-7-8-14-9-9 st, heklið 1 st í hvern af þessum = 166-190-214-238-260-282 st.
Heklið nú 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 46-47-48-49-50-51 cm.
Í næstu umf er aukið út um 14 l jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 12-8-4-14-8-16 st, * hekli 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 10-12-14-15-17-18 st *, endurtakið frá *-* út umf = 180-204-228-252-274-296 st.
Heklið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm.
Í næstu umf er aukið út um 14 l jafnt yfir þannig: Heklið 1 st í hvern af fyrstu 12-8-4-14-8-16 st, * heklið 2 st í næsta st, 1 st í hvern af næstu 11-14-15-16-18-19 st *, endurtakið frá *-* út umf = 194-218-242-266-288-310 st.
Haldið áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 64-65-66-67-68-69 cm. Nú byrjar handvegur og fram- og bakstykki er heklað til loka fyrir sig.

FYRRA FRAMSTYKKI:
STÆRÐ S:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 47 st. JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 1 st við handveg með því að hekla 2 st í næst síðustu st (= öxl). Endurtakið útaukningu í hverri umf 6 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 70 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 14 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir útaukningu fyrir öxl og úrtöku við hálsmál eru 30 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 18 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 82 cm, klippið frá.

STÆRÐ M:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 52 st. JAFNFRAMT í umf 3 er aukið út um 1 st við handveg með því að hekla 2 st í næst síðustu st (= öxl). Endurtakið útaukningu annarri hverri umf 4 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 71 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 14 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir útaukningu fyrir öxl og úrtöku við hálsmál eru 33 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 19 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 84 cm, klippið frá.

STÆRÐ L:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 57 st. JAFNFRAMT í umf 4 er aukið út um 1 st við handveg með því að hekla 2 st í næst síðustu st (= öxl). Endurtakið útaukningu umf 8 (þ.e.a.s. alls 2 útaukningar). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 72 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 15 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir útaukningu fyrir öxl og úrtöku við hálsmál eru 34 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 20 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 86 cm, klippið frá.

STÆRÐ XL:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 62 st. JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 st við handveg með því að hekla 2 st síðustu st saman = 61 st. Þegar stykkið mælist 73 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 15 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir úrtöku eru 36 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 21 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 88 cm, klippið frá.

STÆRÐ XXL:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 67 st. JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 st við handveg með því að hekla 2 st síðustu st saman, endurtakið úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 64 st. Þegar stykkið mælist 74 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 16 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir úrtöku eru 38 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 22 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 90 cm, klippið frá.

STÆRÐ XXXL:
Heklið st fram og til baka yfir fyrstu 71 st. JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 st við handveg með því að hekla 2 st síðustu st saman, endurtakið úrtöku í hverri umf 5 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 76 cm, byrjar úrtaka fyrir hálsmáli þannig: Heklið þar til 16 st eru eftir við miðju að framan, snúið við. Fækkið nú lykkjum í hverri umf þannig: 3 st 1 sinni, 2 st 2 sinnum og 1 st 3 sinnum – SJÁ ÚRTAKA! Eftir úrtöku eru 39 st í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 23 cm frá byrjun handvegs, þ.e.a.s. stykkið mælist alls ca 92 cm, klippið frá.

SEINNA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og fyrra framstykki, nema spegilmynd.

BAKSTYKKI:
Heklið st fram og til baka yfir miðju 88-98-108-118-126-136 st (6-8-10-12-14-16 st á hvorri hlið = handvegur). Aukið (í 3 minnstu stærðum) / fækkið (í 3 stærstu stærðum) í hvorri hlið við handveg eins og á framstykki. Eftir alla útaukningu/úrtöku eru 102-108-112-116-120-124 st í umf. Þegar stykkið mælist 16-17-18-19-20-21 cm á hæð, heklið 2 cm yfir einungis 30-33-34-36-38-39 st í hvorri hlið (miðju 42-42-44-44-44-46 st = hálsmál), klippið frá. Stykkið mælist alls ca 82-84-86-88-90-92 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Heklið 2 umf með fl í kringum hálsmálið (fyrsta umf er hekluð frá röngu) – passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur eða víkkar út hálsmálið.

BYLGJULAGA KANTUR AÐ NEÐAN:
Heklið meðfram annarri hliðinni á ferningunum neðst niðri á kjólnum – byrjið við miðju að aftan þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 4 st um hvern af stóru ll-bogunum í horninu á ferningunum og 3 st um hvern af litlu ll-bogum = 14 st hver ferningur og 308-336-364-392-420-448 st alls.
UMFERÐ 2: Heklið 4 ll, hoppið yfir 1 st, * 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 154-168-182-196-210-224 ll-bogar.
UMFERÐ 3: Heklið 2 ll, 1 fl efst á fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 4 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 4: Heklið 2 ll, 1 fl efst á fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 5 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 5: Heklið eins og umf 4.
UMFERÐ 6: * Heklið 6 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 7: Heklið eins og umf 6.
UMFERÐ 8: * Heklið 7 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf.
UMFERÐ 9: Heklið um hvern ll-boga þannig: Heklið 3 fl, 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll) og 3 fl. Endið á 1 kl í fyrstu fl í umf, klippið frá og festið enda.

BYLGJULAGA KANTUR Í KRINGUM HANDVEG:
Byrjið lengst út í umf 4, talið frá þar sem handvegur byrjar.
UMFERÐ 1: Heklið 1 fl í síðustu l, * heklið nú 3 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* fram að umf 4 í hinni hliðinni, snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 2 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga, * 4 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, snúið við.
UMFERÐ 3: Heklið 2 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga, * 5 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 2 ll í byrjun umf), snúið við.
UMFERÐ 4: Heklið 3 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 6 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 2 ll í byrjun umf), snúið við.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 6 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 3 ll í byrjun umf), snúið við.
UMFERÐ 6: Heklið 4 ll, 1 fl efst í fyrsta ll-boga frá fyrri umf, * 7 ll, 1 fl í næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf (ekki er heklað í 3 ll í byrjun umf), snúið við.
UMFERÐ 7: Heklið nú í hvern ll-boga þannig: Heklið 3 fl, 1 picot (= 3 ll, 1 fl í fyrstu ll), og 3 fl. Klippið frá og festið enda.
Heklið á sama hátt meðfram hinum handveginum.

Saumið tölur í vinstra kant að framan – efsta talan á að vera 1 cm frá toppi, síðan er þeim deilt niður með jöfnu millibili niður úr, hneppið í gegnum lykku.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 keðjulykkja
symbols = 1 stuðull
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (43)

country flag Ingrida wrote:

Is Round 10 for a XL sized skirt is correct? Why such a different No. of dc? Work 1 dc in each of the first 4-6-6-1-8-8 dc.... Thank fou for the reply.

26.02.2023 - 17:03

DROPS Design answered:

Dear Ingrida, the pattern is correct. The number of dc may depend on the initial amount and may vary in order to adjust to the correct amount of dc for that. You should have 38 decreased stitches after the round, and the final number of stitches should match to having worked 1dc before starting with decreases. Happy crocheting!

26.02.2023 - 20:27

country flag Lovisa wrote:

Hej! Efter att ha virkat rutorna längst ned och sedan första varvet med stolpar ovanför dem, fortsätter man då i en spiral eller vänder man för varje varv så att varannat varv är rätsida och varannat avigsida?

23.05.2022 - 17:35

DROPS Design answered:

Hej Lovisa, du virkar runt från mitt bak :)

25.05.2022 - 12:59

country flag Misha wrote:

Hello, Can you please clarify if I have to make buttonholes or I just have to sew both sides together with the buttons.

04.04.2022 - 15:17

DROPS Design answered:

Dear Misha, you won't make buttonholes, you will sew buttons on one front piece and crochet buttons between 2 stitches through the other front piece. Happy crocheting!

04.04.2022 - 15:37

country flag Lone wrote:

Hej - jeg er ved at være oppe ved sidste indtagning (ved 43 cm i størrelse XXL). I flg tegningen skal den måle 55 cm, men min måler 75 cm... Jeg har nøjagtig fulgt hæklefastheden præcis. Blondekanten måler 90 cm, som den skal i følge tegningen... Er der en fejl mht startmålene eller taljemålene?

21.03.2019 - 14:34

DROPS Design answered:

Hei Lone. Etter siste felling har du i XXL 260 staver. 6 av disse inngår i stolpene, altså det er 254 staver som utgjør midje-målet. Med en heklefasthet på 23 staver i bredden = 10 cm, blir dette 110 cm rundt hele og 55 cm tvers over. Har du kanskje for mange staver? God fornøyelse

26.03.2019 - 15:16

country flag Loredana wrote:

J’ai réussi a la crocheter alors que c’est mon tout premier ouvrage en crochet,elle est juste magnifique! Merci Drops,vous me rendez heureuse et belle!

23.06.2014 - 12:04

country flag Orsetta wrote:

Bonjour, Avec la base composée de 22 carrés, j'arrive à une taille beaucoup trop large (13 cm de trop). Je souhaite recommencer sur une base de 14 carrés. Comment puis-je réajuster mes calculs pour dessiner la silhouette de la robe ? Puis-je me baser sur les diminutions indiquées pour la taille S par exemple ? Merci d'avance pour votre aide.

22.06.2014 - 14:23

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Orsetta, Ce modèle a été écrit sur la base d'un carré = 6x6 cm + 23 B x 13 rangs de B = 10 x 10 cm. Sur la base de votre échantillon et du schéma des mesures en bas de page, vous pouvez tout recalculer pour avoir l'ouvrage qui vous convient. Bon crochet!

23.06.2014 - 09:07

country flag Hluchaniuc Ileana wrote:

Elle est ravissante! De 1 à 4 quel niveau de difficulté on peut attribuer à cette robe ? Merci

30.05.2014 - 14:21

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Hluchaniuc, pour vous aider à réaliser cette robe, vous trouverez différentes vidéos sous l'onglet "Vidéos", si nécessaire, n'hésitez pas à demander de l'aide à votre magasin DROPS ou sur le forum DROPS. Bon crochet!

03.06.2014 - 08:54

country flag Loredana wrote:

Merci pour vos conseils .. J'aimerais savoir s'il existe une astuce ,concernant le travail en rond, pour que la démarcation (comme une couture) là où on change de rang soit invisible (comme pour le tricot par ex) ou moins apparente? Aussi si vous connaissez des techniques pour cacher cela(comme dans le cas de cette robe) une fois déjà crocheté ?

27.05.2014 - 21:57

DROPS Design answered:

Bonjour Loredana, la vidéo ci-dessous montre comment crocheter des brides en rond - un blocage (lavage et mise en forme)aide souvent à obtenir un ouvrage plus régulier. Bon crochet !

28.05.2014 - 09:04

country flag Loredana wrote:

Bonjour. Vous dites "crocheter 1 B derrière chacune des 6 premières B crochetées au début du tour (pour que les bordures devant se chevauchent) = 204-230-256-281-306-331 B " mais je ne suis pas sûre de la manière à faire. Comment crocheter derrière les brides? Merci

22.05.2014 - 14:17

DROPS Design answered:

Bonjour Loredana, vous crochetez ces 6 brides dans les mêmes mailles du rang précédent où vous avez crocheté les 6 premières brides du début du rang. Bon crochet !

22.05.2014 - 15:58

country flag Carmen Maria wrote:

Me gusta mucho incluso en versión corta para poner con vaqueros. Tambien lo tengo en la lista

14.01.2013 - 11:59