DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 145-5
DROPS Design: Mynstur nr w-465
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S/M - L/XL - XXL/XXXL

Efni:
DROPS PARIS frá Garnstudio
500-600-700 gr litur nr 30, gráblár

DROPS HEKLUNÁL nr 6 – eða þá stærð sem þarf til að ca 12 tbst á breidd og 6 umf með mynstri fyrir ermar verði = 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PICOT:
Heklið 4 ll, síðan 1 st í fyrstu ll sem hekluð var.

ÚRTAKA:
Fækkið um 3 tbst í byrjun og enda umf með því að heklað 4 fyrstu og 4 síðustu tbst saman.
Þetta er gert þannig: Heklið 1 tbst en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (þegar lykkjum er fækkað í byrjun umf, heklið 3 ll í stað 4), heklið 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 tbst til viðbótar en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið síðasta tbst, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 5 lykkjurnar á heklunálinni.

MYNSTUR –ERMI:
UMFERÐ 1: Heklið 4 ll (þessar koma í stað 1 fl + 3 ll), hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst , * 3 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* út umf. Snúið við.
UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (þessar koma í stað fyrsta tbst), heklið nú 2 tbst um hvern ll-boga og 1 tbst í hverja fl á milli ll-boga, endið með 3 tbst í síðasta ll-boga. Snúið við.
Endurtakið umf 1 og 2 til loka.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HRINGPEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring frá miðju að aftan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Heklið 4 ll með Paris með heklunál nr 6 og tengið í hring með 1 kl í fyrstu ll.
UMFERÐ 1: Heklið 3 ll (þær koma í stað 1 st), 11 st um ll-hringinn, endið á 1 kl í 3. ll í byrjun umf.
UMFERÐ 2: * Heklið 1 PICOT – sjá útskýringu að ofan – hoppið yfir 1 st, 1 kl í næsta st *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 picot og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 6 blöð.
UMFERÐ 3: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, * 7 ll, 1 fl efst á næsta blaði *, endurtakið frá *-* 6 sinnum, en endið á 1 kl í fl á toppi á fyrsta blaði í umf = 6 ll-bogar.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 6 sinnum, en endið á 1 kl í fyrstu ll á picot í byrjun umf = 12 blöð.
UMFERÐ 5: Heklið 3 ll, 1 fl efst á fyrsta blaði, 6 ll, * 1 fl efst á næsta blaði, 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 6: Heklið 4 ll + 5 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 6 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 72 tbst.
UMFERÐ 7: * Heklið 8 ll, hoppið yfir 6 tbst, 1 fl um ll á milli tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 8: Heklið kl að toppi á fyrsta ll-boga, 1 fl um ll-boga, * 10 ll, 1 fl um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 10 ll og 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 12 ll-bogar.
UMFERÐ 9: *Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl um sama ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* þannig að það verða 3 picot í hverjum ll-boga = 36 picot, endið á 1 kl í fyrstu ll á picto í byrjun umf.
UMFERÐ 10: Heklið 3 ll, 1 fl efst í fyrsta picot, * 3 ll, 1 fl efst í næsta picot *, endurtakið frá *-* út umf = 36 ll-bogar.
UMFERÐ 11: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 3 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf, endið á 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf =108 tbst.
UMFERÐ 12: * Heklið 8 ll, hoppið yfir 3 tbst + 1 ll + 3 tbst, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 8 ll og 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 18 ll-bogar.
UMFERÐ 13: * Heklið 1 picot, 1 fl um ll-boga, 1 picot, 1 fl í fl á milli ll-boga * , endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í fyrstu ll = 36 picot.
UMFERÐ 14: Heklið 2 ll, 1 kl efst í fyrsta picot, * 4 ll, 1 fl efst í næsta picot *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 4 ll og 1 kl efst á fyrsta picot = 36 ll-bogar.
UMFERÐ 15: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, * 1 ll, 4 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 kl í 4. ll frá byrjun umf = 144 tbst.
Stykkið mælist nú ca 20 cm frá miðju og út.

STÆRÐ S/M:
UMFERÐ 16: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, 29 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 tbst-hópa, 1 fl um næstu ll, endurtakið frá *-* 17 sinnum, 29 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 síðustu tbst-hópa, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 17: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 8 sinnum, í löngu ll-bogum fyrir handveg er heklað þannig: ** Heklið 1 tbst í hverja og eina af 4 fyrstu ll, 1 ll, hoppið yfir 1 ll ** , endurtakið frá **-** alls 5 sinnum, endið á 1 tbst í hverja og eina af 4 síðustu ll, 1 ll, endurtakið nú frá *-* 17 sinnum, þ.e.a.s. fram að næsta langa ll-boga fyrir handveg, heklið frá **-** yfir þær, endið á 1 tbst í hverja og eina af 4 síðustu ll, 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 152 tbst.
UMFERÐ 18: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um ll sem hekluð var á milli tbst-hópa * , endurtakið frá *-* umf hringinn, en í stað síðustu fl, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 38 ll-bogar.
UMFERÐ 19: Heklið 4 ll + 5 tbst um fyrsta ll-boga, heklið nú 5 tbst um hvern ll-boga en í tíunda boga eru heklaðir 6 tbst (þetta er gert til þess að lykkjufjöldinn verði deilanlegur með 3), endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 192 tbst.
UMFERÐ 20: Heklið * 3 ll í fyrsta tbst, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 1 kl í 1. ll í byrjun umferðar = 64 ll-bogar.
UMFERÐ 21: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-boga, 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, * 3 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 224 tbst.
UMFERÐ 22: Heklið eins og umf 20, en á 2 stöðum jafnt yfir, hoppið yfir 3 tbst í stð 2 = 74 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 33 cm frá miðju og út, klippið frá.
Nú er einungis heklað yfir 21 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 16 ll-boga efst við hnakka og 16 ll-boga neðst á baki.
Haldið áfram og sjá útskýringu á framstykki fyrir neðan.

STÆRÐ L/XL:
UMFERÐ 16: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 36 ll-bogar.
UMFERÐ 17: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 5 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll, 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 tbst um næst síðasta ll-boga, 1 ll og 5 tbst um síðasta ll-boga, 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 156 tbst.
UMFERÐ 18: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í ll sem hekluð var á milli ll-boga * , endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, 35 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 tbst-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 17 sinnum, 35 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 síðustu tbst-hópa, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 19: Heklið 4 ll + 4 tbst um fyrsta ll-boga, heklið nú 5 tbst um hvern af næstu 8 ll-bogum, í langa ll-bogann fyrir handveg er heklað þannig: * Heklið 1 tbst í hverja af fyrstu 5 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 tbst í hverja af síðustu 5 ll, heklið nú 5 tbst um hvern af næstu 17 ll-bogum, áður en heklað er yfir hinn langa ll-bogann á sama hátt og sá fyrri, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 190 tbst.
UMFERÐ 20: * Heklið 3 ll í fyrsta tbst, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll, hoppið yfir 3 síðustu tbst, 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 63 ll-bogar.
UMFERÐ 21: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-bogann, * 1 tbst í fl, 3 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 tbst í síðustu fl og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 221 tbst.
UMFERÐ 22: Heklið * 3 ll í fyrsta tbst, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn, endið með 3 ll, hoppið yfir síðasta tbst, 1 kl í 1. ll í byrjun umferðar = 74 ll-bogar.
UMFERÐ 23: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-bogann, * 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 3 tbst um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 tbst í síðustu fl, 2 tbst um síðasta ll-bogann og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 258 tbst.
UMFERÐ 24: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-*, í stað síðustu fl er endað á 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 86 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 36 cm frá miðju og út, klippið frá.
Nú er einungis heklað yfir 24 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 19 ll-boga efst við hnakka og 19 ll-boga neðst á baki.
Haldið áfram og sjá útskýringu á framstykki fyrir neðan.

STÆRÐ XXL/XXXL:
UMFERÐ 16: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 5 ll, 1 fl um næstu ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 36 ll-bogar.
UMFERÐ 17: Heklið 4 ll + 3 tbst um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 4 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, 5 tbst um næsta ll-boga, 1 ll, 4 tbst um næsta ll-boga, *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 4 tbst um næst síðasta ll-boga, 1 ll og 5 tbst um síðasta ll-boga, 1 ll og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 156 tbst.
UMFERÐ 18: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í ll sem hekluð var á milli ll-boga * , endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf = 36 ll-bogar.
UMFERÐ 19: Heklið 4 ll + 4 tbst um fyrsta ll-bogann, 1 ll, * 5 tbst um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 5 tbst um síðasta ll-bogann og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 180 tbst.
UMFERÐ 20: Heklið 1 ll (þessi kemur í stað fyrstu fl), * 6 ll, 1 fl í ll sem hekluð var á milli ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 9 sinnum, 41 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 tbst-hópa, 1 fl í næstu ll, endurtakið frá *-* 17 sinnum, 41 lausar ll (= handvegur), hoppið yfir 5 síðustu tbst-hópa, 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf.
UMFERÐ 21: Heklið 4 ll + 5 tbst um fyrsta ll-boga, 6 tbst í hvern af næstu 8 ll-bogum, í langa ll-boganum fyrir handveg er heklað þannig: * Heklið 1 tbst í hverja af fyrstu 6 ll, hoppið yfir 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 5 sinnum, endið á 1 tbst í hverja af síðustu 6 ll, heklið nú 6 tbst í hvern af næstu 17 ll-bogum, áður en heklað er yfir seinni langa ll-bogann á sama hátt og sá fyrri, endið á 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 228 tbst.
UMFERÐ 22: *Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 ll, hoppið yfir 2 síðustu tbst, 1 kl í 1. ll í byrjun umf = 76 ll-bogar.
UMFERÐ 23: Heklið 4 ll + 2 tbst um fyrsta ll-bogann, * 1 tbst í fl, 2 tbst um næsta ll-boga, 1 tbst í fl, 3 tbst um næsta ll-boga, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 1 tbst í fl, 3 tbst um síðasta ll-bogann, 1 tbst í síðustu fl og 1 kl í 4. ll í byrjun umf = 266 tbst.
UMFERÐ 24: Heklið eins og umf 22 en á 2 stöðum jafnt yfir er hoppað yfir 3 tbst í stað 2 = 88 ll-bogar.
UMFERÐ 25: Heklið eins og umf 23 = 308 tbst.
UMFERÐ 26: Heklið eins og umf 24 = 102 ll-bogar.
Stykkið mælist nú ca 40 cm frá miðju og út, klippið frá.
Nú er einungis heklað yfir 28 ll-boga í hvorri hlið – þ.e.a.s. að ekki er lengur heklað yfir 23 ll-boga efst við hnakka og 23 ll-boga neðst á baki.
Haldið áfram og sjá útskýringu á framstykki fyrir neðan.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 21-24-28 ll-bogar. Haldið áfram þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 tbst í hverja fl (fyrsti tbst er skipt út fyrir 4 ll) og 2 tbst um hvern ll-boga – JAFNFRAMT eru 4 fyrstu og 4 síðustu tbst í umf heklaðir saman SJÁ ÚRTAKA! – þ.e.a.s. að nú verða 6 tbst færri í umf í hvert sinn sem umf 1 er hekluð.
UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (jafngilda 1 fl + 3 ll) upp frá fyrsta tbst (þ.e.a.s. þeir 4 sem heklaðir voru saman), * hoppið yfir 2 tbst, 1 fl í næsta tbst, 3 ll *, endurtakið frá *-*, endið á 1 fl í síðasta tbst (þ.e.a.s. þeir 4 sem heklaðir voru saman). Endurtakið umf 1 og 2 alls 4-5-6 sinnum (= ca 13-17-20 cm). Nú eru 13-14-16 ll-bogar eftir síðast á framstykki. Klippið frá.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, yfir 21-24-28 ll-bogar í hægri hlið.

ERMI:
Stykkið er heklað fram og til baka og er saumað saman í lokin.
Heklið 42-46-49 lausar ll (meðtaldar 4 ll til þess að snúa við með) með heklunál nr 6 með Paris.
UMFERÐ 1: Hekli 1 tbst í 5. ll frá heklunálinni, 1 tbst í hverja af næstu 5-2-5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 tbst í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* þar til 4 ll eru eftir, hoppið yfir 1 ll og heklið 1 tbst í hverja af síðustu 3 ll = 34-37-40 tbst. Snúið við. Heklið 1 umf með 1 tbst í hvern tbst til baka (fyrsta tbst er skipt út fyrir 4 ll). Haldið áfram MYNSTUR fyrir ermi – sjá útskýringu að ofan!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 20 cm (passið uppá að næsta umf sem hekluð er, sé umf 2 í mynstri) aukið út um 3 tbst jafnt yfir. Endurtakið útaukningu með ca 8 cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 46-49-52 tbst alls í umf. ATH: Haldið stykkinu uppi þegar lengd á ermum er mæld, annars verður ermin of löng þegar hún er sett saman við fram- og bakstykki), fellið af fyrir ermakúpu í hvorri hlið þannig: Heklið kl yfir fyrstu 4 tbst, síðan eru heklaðir ll-bogar eins og áður þar til 3 tbst eru eftir, snúið við. Í næstu umf eru 4 fyrstu og 4 síðustu tbst heklaðir saman – SJÁ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf 2 sinnum til viðbótar. Klippið frá, stykkið mælist ca 59 cm í öllum stærðum. Saumið ermasauma kant í kant, svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Heklið 1 umf í kringum allt fram- og bakstykkið – byrjið við miðju að aftan við hnakka með 1 fl um fyrsta ll-bogann þannig: * Heklið 1 picot (= 4 ll, 1 st í fyrstu ll), hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* í kringum alls stykkið, endið á 1 kl í fyrstu fl.
Heklið eins að neðan í kringum ermar.
Saumið ermar í fram- og bakstykki – passið uppá að ermakúpan er saumuð inn efst við handveg, þ.e.a.s. þar sem er stysta bilið á milli handvegs.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 145-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (99)

country flag Titta Okkonen wrote:

Can I do this from Muskat cotton yarn? Or have you any this kind of patterns which are made from it?

01.04.2024 - 17:23

DROPS Design answered:

Dear Titta, This pattern is made from DROPS Paris, that belongs to group C, while DROPS Muskat belongs to yarn group B, which is considerably thinner, so you would not be able to make the same pattern without serious reclaculations. HERE you can find the circular jackets from our patterns, look for one that is made from a yarn belonging to yarn group B. Happy Crafting!

01.04.2024 - 20:21

country flag Heike Götte wrote:

Kann man die Dropsanleitungen auch ausdrucken?

13.09.2023 - 20:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Götte, doch schon :) Klicken Sie auf dem Knopf "Drucken" und "Anleitung" wählen, dann öffnet sich ein neues Fenster mit den Druckereinstellungen , dann einfach drucken. Viel Spaß beim stricken!

14.09.2023 - 09:55

Angeline wrote:

I finished the left and right front but I made definitely an error with the armholes. Is there a video that shows me how to do the armholes for this pattern? This is the first time I made a vest as I am still learning. I wish I could upload a foto so you can see what I did wrong.

17.02.2018 - 13:17

DROPS Design answered:

Dear Angeline, you will find a tutorial with pictures showing how to crochet the armholes for this kind of pattern, it shows the standard technique to be able to apply to a lot of patterns. Happy crocheting!

19.02.2018 - 09:06

Karen wrote:

After doing the decrease on the front panels first row then doing the chain 3, skip 2, sc on the second row do I put the last sc (finish with 1 sc in last treble (i.e. The 4 worked together) actually through the loops of the decrease or in the loop the decrease passes through???

05.08.2017 - 18:46

DROPS Design answered:

Dear Karen, the last sc will be crocheted in the first tr on previous row, ie the 4 tr crocheted tog. Happy crocheting!

07.08.2017 - 11:53

Karen wrote:

I've got to round 20 on the l/xl size & im really stuck. I just can't figure out the: ch3 in 1st tr, skip 2, 1 sc in next tr after the initial combo. Where do I do the next ch3? I just can't make 63 ch-spaces!

28.07.2017 - 22:22

DROPS Design answered:

Dear Karen, work 3-ch-loops, ie *3 ch, skip 2 dtr, 1 sc in next dtr* and repeat from *-* around, you will have 63 3-ch-spaces with 1 sc between each ch-space. Happy crocheting!

31.07.2017 - 09:38

country flag Phia Van Mil wrote:

Ik moet aan de mouwen beginnen en daar staat in toer 1: na het eerste dstk in de 5e l vanaf de haak; 1 dstk in elk van de 5-2-5 l. moet ik dit lezen als 5 dstk, 2l oversl, 5dstk?

16.03.2017 - 16:42

DROPS Design answered:

Hoi Phia, De mouw is voor alle maten beschreven en 5-2-5 heeft betrekking op de verschillende maten, dus 5 voor S/M, 2 voor L/XL en 5 voor XXL/XXXL.

17.03.2017 - 12:11

Chantelle wrote:

Hi, I want to use Elle premier cotton, which originally 3.5mm hook is needed. After reading your store calculation, I just want to make sure I understand it correctly. In order for me to get the gauge correct, do I need to use 2 strand with a 6mm? I also have t-shirt yarn, but I am not sure if it would be suitable. Thank you for a great pattern.

23.06.2016 - 13:22

DROPS Design answered:

Dear Mrs Chantelle, We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. You will therefore understand that we can only recomand you to contact our DROPS Store (select your country scrolling down) for any further help & assistance. Thank you for your comprehension.

23.06.2016 - 16:33

country flag Celia Watkinson wrote:

Can you use any yarn category C yarn? I am considering brushed alpaca silk, would it work?

13.06.2016 - 23:35

DROPS Design answered:

Dear Mrs Watkinson, Brushed Alpaca Silk has a different texture so that it will have a different look read more here about alternative and remember your DROPS store will help you to choose the alternative matching your desire, even per mail or telephone. Happy crocheting!

14.06.2016 - 09:22

country flag Tracee Winstone wrote:

When starting the left front piece, do you start with ch 4,? Also would you start in the chain loops or the dc (to the right of the first of the 28 loops) Thanks

31.05.2015 - 17:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Winstone, when starting left front piece, work 1 dtr in every dc (replace 1st dc with 4 ch at beg of row) and 2 dtr in every ch-loop - you should have 28 ch-loops (larger size) for each front and 23 ch-loops unworked at top by neck + 23 ch-loops at the bottom edge, ie start in a dc. Happy crocheting!

01.06.2015 - 10:11

country flag Andrea R. wrote:

Hallo Drops Team .. Jetzt ist die Jacke fertig und ich find sie toll. Super Wolle, tolles Muster und die Mitte hat sich 'ausgehangen', nichts wellt sich mehr :) Auch gute Anleitung, fuer mich als Anfänger, gut zu verstehn. Ich werde def mehr mit Drops arbeiten .. Danke :)

01.04.2015 - 18:22