Rosy skrifaði:
Love this dress. Will wear a long tunic under it.
14.12.2012 - 18:34
Jenny skrifaði:
A pity that the knickers will show through the pattern. Synd att underbyxorna kommer synas i hålmönstret
14.12.2012 - 12:10
Sylvie Malaise skrifaði:
Robe seyante qui sublime la silhouette.A porter sur une peau dorée,mmmmm
14.12.2012 - 00:20
Edith skrifaði:
In Nederland gaat hier echt anno 2013 niemand in lopen hoor....
13.12.2012 - 00:49
Daniela Massari skrifaði:
Delizioso
12.12.2012 - 10:37
Marie Danneels skrifaði:
Heel mooi en flatterend.
12.12.2012 - 10:04
Bente skrifaði:
Navn pretty rose
12.12.2012 - 09:52
Marie Wingerstad skrifaði:
Sommarskönhet
12.12.2012 - 09:23
Funder skrifaði:
Froufrou
11.12.2012 - 22:54
Eva F. skrifaði:
Denna vill jag sticka.
11.12.2012 - 16:56
Emma#emmadress |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður kjóll úr Cotton Light með stuttum ermum, gatamynstri og garðaprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS 148-12 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.4. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING Aukið er út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um þrengingu): Byrjið á 1 l á undan l með prjónamerki og fækkið lykkjum þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar (= 2 lykkjur færri). LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um úrtöku við ermar): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á undan merki og á undan kantlykkju þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir merki og á eftir kantlykkju þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp. KJÓLL: Fitjið laust upp 324-360-396-432-468-504 l á hringprjóna nr 4 með DROPS Cotton Light. Prjónið mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað eru 252-280-308-336-364-392 l á prjóni. Prjónið nú mynstur A.2 (= 9-10-11-12-13-14 mynstureiningar með A.2 í umf). Þegar A.2 hefur verið prjónað (stykkið mælist ca 10 cm), setjið 4 merki í stykkið þannig: Prjónið 42-42-42-56-56-70 lykkjur eins og áður, setjið 1 merki í síðustu l, prjónið 41-55-69-55-69-55 lykkjur eins og áður, setjið 1 merki í næstu l, prjónið 83-83-83-111-111-139 lykkjur eins og áður, setjið 1 merki í næstu l, prjónið 41-55-69-55-69-55 lykkjur, setjið 1 merki í næstu l og prjónið síðustu 41-41-41-55-55-69 lykkjur eins og áður. Prjónið nú sléttprjón hringinn (látið merkin fylgja með í stykkinu). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11 cm er fækkað um 2 l við hvert merki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (= 8 l færri). Endurtaki úrtöku í 4. hverri umf, 11-12-13-14-14-15 sinnum til viðbótar (= alls 12-13-14-15-15-16 úrtökur) = 156-176-196-216-244-264 l. Þegar stykkið mælist 30 cm í öllum stærðum er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 0-2-4-0-4-0 l jafnt yfir = 156-174-192-216-240-264 l. Fjarlægið merki, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið mynstur eftir A.3. Þegar stykkið mælist ca 49-50-51-52-53-54 cm (endið eftir 1 umf með gati), prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 8-10-12-14-14-14 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-250 l. Prjónið 1 umf brugðið, 1 umf slétt og 1 umf brugðið. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT sem fækkað er um 28-36-36-42-42-42 l jafnt yfir = 120-128-144-160-184-208 l. Prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.4. Þegar A.4 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-36-36-42-42-44 l jafnt yfir = 148-164-180-202-226-252 l. Prjónið 1 umf brugðið. Setjið 1 merki í byrjun umf og 1 merki eftir 74-82-90-101-113-126 l (= hliðar) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 3 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði merkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 6 og 9 cm = 160-176-192-214-238-264 l. Þegar stykkið mælist 10 cm – passið uppá að næsta umf er brugðin umf, fellið af 8-10-12-16-20-24 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 4-5-6-8-10-12 l hvoru megin við bæði merkin) = 72-78-84-91-99-108 l eftir á fram- og bakstykki. BAKSTYKKI: = 72-78-84-91-99-108 l. Byrjið á sl frá réttu og fellið af í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 1-1-2-2-2-2 sinnum í hvorri hlið = 68-74-76-83-91-100 l, klippið frá. Prjónið nú inn ermakúpur á bakstykki (1. umf = rétta) þannig: Fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjón, setjið 1 merki, prjónið 68-74-76-83-91-100 l frá bakstykki, setjið 1 merki og fitjið upp 30-30-32-34-36-38 l á prjóninn = 128-134-140-151-163-176 l. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka á hringprjóna nr 4. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka þannig – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 l í byrjun og lok umf innan við 1 kantlykkju: Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Fækkið JAFNFRAMT lykkjum í hvorri hlið við ermar (þ.e.a.s. á undan fyrsta merki og á eftir öðru merki séð frá réttu): Fækkið lykkjum í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 l alls 12-12-13-13-14-14 sinnum. Fækkið JAFNFRAMT lykkjum í hvorri hlið inn við bakstykki (þ.e.a.s. á eftir fyrsta merki og á undan öðru merki séð frá réttu): Fækkið lykkjum í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu): Fækkið um 1 l alls 0-2-2-4-7-9 sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm eru felldar af miðju 34-34-36-37-37-38 l frá réttu fyrir hálsmál og hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. HÆGRI ÖXL: Haldið áfram með úrtöku við ermakúpu eins og áður. Eftir síðustu úrtöku eru 23-24-24-27-28-32 l eftir á prjóni (þ.e.a.s. 17-18-18-19-20-22 l á öxl + 6-6-6-8-8-10 l eftir efst á ermakúpu). Prjónið 1 umf slétt frá röngu og setjið síðustu 6-6-6-8-8-10 l af ermakúpu á þráð. Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir 17-18-18-19-20-22 l á öxl JAFNFRAMT eru l frá ermakúpu prjónaðar saman með l á prjóni þannig: Prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjón aftur til baka á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu, * prjónið 1 umf slétt frá réttu þar til 1 l er eftir á vinstri prjóni, setjið síðustu l á hægri prjón án þess að prjóna hana, setjið til baka næstu l af þræði á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l af hægri prjóni til baka yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 2 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá röngu *, endurtakið þessar 2 umf frá *-* þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki og allur kjóllinn mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm. VINSTRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl en eftir síðustu úrtöku eru síðustu 6-6-6-8-8-10 l fyrir ermakúpu settar á þráð. Byrjið frá röngu og prjónið 1 umf slétt þar til 1 l er eftir á vinstri prjón, setjið síðustu l yfir á hægri prjón án þess að prjóna þær, setjið til baka fyrstu og aðra l af þræði yfir á vinstri prjón, steypið óprjónuðu l á hægri prjóni yfir á vinstri prjón og prjónið þessar 3 l slétt saman, snúið við, herðið á þræði og prjónið 1 umf slétt frá réttu, endurtakið síðan þessar 2 umf frá *-* eins og á hægri öxl (en með byrjun frá röngu) þar til allar l af þræði hafa verið prjónaðar saman með síðustu l á prjóni, fellið laust af. FRAMSTYKKI: = 72-78-84-91-99-108 l. Prjónið á sama hátt og bakstykki og fitjið upp fyrir ermakúpur í hvorri hlið eins og á bakstykki = 128-134-140-151-163-176 l. Fækkið nú lykkjum á framstykki og á ermakúpum á sama hátt og á bakstykki en þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm er fellt af miðju 34-34-36-37-37-38 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Haldið áfram með úrtöku og prjónið síðan hægri og vinstri öxl á bakstykki. Berustykkið mælist ca 25-26-27-28-29-30 cm frá prjónamerki. Kjólinn mælist ca 80-82-84-86-88-90 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsaumana og niður meðfram ermakúpum – saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #emmadress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 148-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.