DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Bomull-Lin yarn
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS 147-22

#jeanbag

DROPS Design: Mynstur nr l-121
Garnflokkur C
----------------------------------------------------------

Stærð:
Ummál: ca 62 cm
Hæð: ca 33 cm (án axlarólar)

Efni:
DROPS BOMULL LIN frá Garnstudio
200 gr litur nr 21, dökk blár

Eða notið:
DROPS PARIS frá Garnstudio
200 gr litur nr 28, sæblár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 st verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Bomull-Lin
DROPS Bomull-Lin
53% Bómull, 47% Hör
frá 792.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3168.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GALDRAHRINGUR:
Byrjið með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á bandinu og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 3 ll, (telst sem 1. st) heklið nú sl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir,dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið endann á bakhlið.

HEKLLEIÐBEININGAR:
Allar umf með st byrja á 3 ll (talin sem 1. st), heklið st í hvern st, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf.

ST-HÓPUR:
1 st-hópur = í sama st eru heklaðir 2 st, 2 ll og 2 st.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TASKA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring. Axlarólin er hekluð fram og til baka og saumuð á í lokin.

TASKA:
Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá skýringu að ofan – í botninn á töskunni með Bomull Lin með heklunál nr 4.
UMFERÐ 1: Heklið 16 st um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 2 st í hvern st = 32 st.
UMFERÐ 3: * Heklið 1 st í næsta st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 48 st.
UMFERÐ 4: * Heklið 1 st í hvorn af næstu 2 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 64 st.
UMFERÐ 5: Hekli 1 st í hvern st.
UMFERÐ 6: * Heklið 1 st í hvern af næstu 3 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 80 st.
UMFERÐ 7: Hekli 1 st í hvern st.
UMFERÐ 8: * Heklið 1 st í hvern af næstu 4 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 96 st.
UMFERÐ 9: Hekli 1 st í hvern st.
UMFERÐ 10 * Heklið 1 st í hvern af næstu 5 st, heklið 2 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 112 st.
UMFERÐ 11-13: Hekli 1 st í hvern st.
Heklið nú mynstur A.1 – sjá teikningu – þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 5 ll (kemur í stað 1 st og 2 ll), hoppið yfir fyrstu 3 st, * heklið 1 ST-HÓPUR – sjá útskýringu að ofan – í næsta st, 2 ll, hoppið yfir næstu 3 st, 1 st í næsta st, 2 ll, hoppið yfir 3 st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 st-hóp, 2 ll, hoppið yfir síðustu 3 st og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 14 st-hópar.
UMFERÐ 2: Í sömu ll er heklaður 1 st-hópur, * 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll, 1 st-hópur í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 2 ll, 1 st um ll-boga í síðasta st-hóp, 2 ll og 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 14 st-hópar.
UMFERÐ 3: Heklið 5 ll, * 1 st-hópur í næsta st, 2 ll, 1 st um ll-boga í næsta st-hóp, 2 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 st-hóp í síðasta st, 2 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 14 st-hópar.
Endurtakið umf 2 og 3. Heklið A.1 í ca 18 cm (stykkið mælist ca 30 cm á hæð).
Heklið nú þannig: Um hvern ll-boga (jafnvel um ll-boga í st-hópum) í umf eru heklaðir 2 st, í hvern st (ekki í st í st-hóp)heklið 2 st (þ.e.a.s. 8 st yfir hverja mynstureiningu af A.1) = 112 st alls. Heklið 1 umf með 1 st í hvern st, klippið ekki frá, nú mælist stykkið ca 33 cm á hæðina. Setjið 1 prjónamerki í umf og 1 prjónamerki eftir 56 st (= miðja á hlið).

AXLARÓL:
Stykkið er heklað fram og til baka þannig: Snúið við og heklið kl að 5. st eftir 1. prjónamerki, snúið við og heklið 1 st í hvern af næstu 10 l (prjónamerkið er staðsett mitt á milli þessa l), snúið við. Heklið 1 st í hvern st í umf þar til axlarólin mælist ca 80 cm frá prjónamerki (eða að óskaðri lengd). Klippið frá og festið enda. Saumið endann á axlarólinni beint yfir prjónamerki í annarri hliðinni á töskunni þannig: Saumið með smáu spori yst í lykkjubogann í síðustu umf.

Mynstur

loftlykkja = loftlykkja
stuðull = stuðull
ST-HÓPUR: Í sama stuðu eru heklaðir 2 stuðlar, 2 loftlykkjur og 2 stuðull = ST-HÓPUR: Í sama stuðu eru heklaðir 2 stuðlar, 2 loftlykkjur og 2 stuðull
umferð 1 = umferð 1
heklstefna = heklstefna
Diagram for DROPS 147-22
Diagram for DROPS 147-22
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Ariadna skrifaði:

Hola! El bolso es precioso pero tengo una duda con el asa. Pone que ponga un marcapunto en el inicio de la vuelta y en el p.a 56. Pero cuando luego dice que haga 5 p.a. me encontraré con el primer marcapuntos. Eso no lo entiendo porque no le cuadra. Gracias

02.09.2019 - 13:44

DROPS Design svaraði:

Hola Ariadna. Los marcapuntos están situados en el centro del asa a cada lado. Trabajamos puntos enanos desde el primer marcapuntos hasta el 5º punto de la vuelta para empezar el asa. El asa se trabaja con puntos bajos de ida y vuelta , con 5 puntos a cada lado de los marcapuntos (= un total de 10 puntos el ancho del asa).

05.09.2019 - 20:44

country flag Cande skrifaði:

Bonjour sauf erreur de ma part vous ne dites pas comment crocheter le 12 eme rang c'est comme le 10 eme? merci pour ce modèle

04.07.2019 - 22:32

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Cande, les tours 11 à 13 se crochètent de la même façon, c'est-à-dire avec 1 bride dans chaque bride tout le tour. Bon crochet!

05.07.2019 - 08:35

country flag StefanieSenger skrifaði:

Im Folgenden ein Vorschlag, wie man die Enden der Netzrunden unsichtbar machen kann. 1. Man beginnt die Reihe mit 5 Lm, dann direkt 2 Stb ins gleiche Loch. 2. Wenn man die Runde durch hat und am Ende ist, häkelt man 2 Lm, wie gewohnt. dann macht man ein Stb in das erste Loch der Reihe und vervollständigt damit die Stb-Gruppe. 3. 1 Km in die 3. Lm vom Rundenanfang 4. 1Km in den anliegenden Lm-Bogen, jetzt ist man in der Mitte der Gruppe nächste Runde beginnen

09.10.2018 - 08:56

country flag Anikjl56 skrifaði:

Oh merciiii bcp pour votre réponse rapide!!!! Tbon vendredi à vs !!😘!

10.11.2017 - 09:35

country flag Anikjl56 skrifaði:

Bonjour Je suis étr in de faire se sac Et jen suis au tout début pour faire les point fantaisies A1! Je suis au tour 1 quand sa dit 1 ) faire 5 ml (remplacent 1B et 2ml) Est se que je ne doit faire que les 5ml? se qui remplacent bien les 1Bet les 2ML?c bien sa??? En vous remerciant pr votre aide bon vendredi à bientot!!

10.11.2017 - 07:33

DROPS Design svaraði:

Bonjour Anikjl56, tout à fait, au début du tour 1, on crochète 5 mailles en l'air pour remplacer la 1ère bride et les 2 premières mailles en l'air, répétez ensuite la partie de *-*. Bon crochet!

10.11.2017 - 08:09

country flag Andrea Schwarz skrifaði:

Hallo, ich habe Probleme beim Übergang von der 3. Runde im Muster A.1. Die Übergänge der einzelnen Runden 2 und 3 sehen bei mir komisch aus, wenn ich nach der Anleitung stricke. Es kommen immer Maschen dazu. Ich häkel nach der Kettmasche für die nächste Reihe immer erst 3 Luftmaschen. Ist das richtig? Vielen Dank für eine Antwort und liebe Grüße, Andrea

18.06.2016 - 17:18

DROPS Design svaraði:

Liebe Andrea, haben Sie beachtet, dass das erste Stb jeweils durch 3 Lm ersetzt wird?

20.06.2016 - 20:30

country flag Jocelyn skrifaði:

I am having trouble at the start of row 3 on A1. After joining to the third chain from the beginning, it says chain 5 then a treble group in the next trable - but what about the treble in the first treble loop? Thanks

01.07.2015 - 16:44

DROPS Design svaraði:

Dear Jocelyn, on row 3 in A.1 the 5 ch are made for: 3ch replacing 1st tr + 2 ch. Happy crocheting!

02.07.2015 - 09:43

country flag Lory skrifaði:

Grazie per lo schema, chiaro e ben spiegato! La borsa finita è molto, molto carina! A presto, Lory

07.06.2015 - 16:11

Andrea Calabresi skrifaði:

Algo está errado. Minha amostra de 18 pa ficou com 13cm. No entanto, quando comecei o ponto fantasia ficou nítido o tamanho infinitamente menor do que a foto. Vocês podem me orientar?

29.04.2014 - 02:21

DROPS Design svaraði:

Tente fazer uma amostra no ponto fantasia para verificar se corresponde. O facto de o ponto fantasia ter ficado muito menor indica que seu ponto pode ser bem mais apertado. Tente mudar para uma agulha maior. Bom croché!

05.08.2014 - 10:58

Andrea Calabresi skrifaði:

Algo está errado. Minha amostra de 18 pa ficou com 13cm. No entanto, quando comecei o ponto fantasia ficou nítido o tamanho infinitamente menor do que a foto. Vocês podem me orientar?

29.04.2014 - 02:21