DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Alpaca yarn
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 25740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS AW2425
DROPS 144-18

#queenofdiamondsblanket

DROPS Design: Mynstur nr z-630
Garnflokkur A + A
-----------------------------------------------------------

Stærð: ca 100 cm x 140 cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
650 gr litur nr 2020, ljós kamel
50 gr litur nr 618, ljós beige
50 gr litur nr 6736, bláfjólublár
50 gr litur nr 2925, dökk appelsínugulur
50 gr litur nr 607, ljós brúnn
50 gr litur nr 5565, vínrauður
50 gr litur nr 6360, blár
50 gr litur nr 6834, blár/turkos
50 gr litur nr 2923, sinnepsgulur
50 gr litur nr 7233, gulgrænn
50 gr litur nr 7815, grænn/turkos
50 gr litur nr 3770, dökk bleikur
50 gr litur nr 100, natur
50 gr litur nr 4434, fjólublár

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 33 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm með 2 þráðum af Alpaca (1 ferningur mælist ca 20 x 20 cm).
DROPS HEKLUNÁL NR 7 – fyrir frágang og heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 25740.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

FERNINGAR:
FERNINGUR 1 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 6360.
FERNINGUR 2 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 7815.
FERNINGUR 3 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 3770
FERNINGUR 4 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 0607
FERNINGUR 5 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 5565
FERNINGUR 6 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 7233
FERNINGUR 7 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 6736
FERNINGUR 8 = 1 þráður 0618 + 1 þráður 100
FERNINGUR 9 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 2923
FERNINGUR 10 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 2925
FERNINGUR 11 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 4434
FERNINGUR 12 = 1 þráður 2020 + 1 þráður 6834
Prjónið 3 stk af hverri tegund ferninga – en aðeins 2 stk af ferningi 12 = alls 35 ferningar.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l í byrjun hverrar umf þannig: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið sl út umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjuna).

ÚRTAKA:
Fækkið um 1 l í byrjun hverrar umf með því að prjóna fyrstu 2 l í umf slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Prjónaðir eru ferningar fram og til baka í garðaprjóni – þ.e.a.s. lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. Ferningarnir eru síðan heklaðir saman og kantur heklaður í kringum allt teppið í lokin.

TEPPI:
Fitjið upp 3 l á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca – LESIÐ FERNINGAR að ofan. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er aukið út um 1 l í byrjun umf – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu í byrjun hverrar umf þar til 47 l eru á prjóni. Prjónið 1 umf slétt, í næstu umf er fækkað um 1 l í byrjun umf – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í byrjun hverrar umf þar til 3 l eru eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt til baka, takið 1 l óprjónaða, prjónið 2 l sl saman, steypið óprjónuðu l yfir, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum síðustu l.

FRÁGANGUR:
Raðið ferningunum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Ferningarnir eru heklaðir saman fyrst á lengd og síðan á breidd. Leggið ferningana 2 og 2 ofan á hvorn annan, heklið þá saman með 3 þráðum af litnum ljós brúnn kamel með heklunál nr 7 þannig: Heklið 1 fl í efsta hornið í gegnum síðustu l á báðum ferningunum, * 2 ll, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fl í gegnum síðustu l á báðum ferningunum *, endurtakið frá *-*, endið með 1 fl í horni á báðum ferningunum. ATH: Passið uppá að það séu fallegar skiptingar milli ferninga þegar þeir eru heklaðir saman á lengdina.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant kringum allt teppið með 3 þráðum af litnum ljós brúnn kamel með heklunál nr 7 þannig: Heklið 1 fl efst uppi í horninu á teppinu, * 2 ll, hoppið yfir ca 2 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 1. fl. Passið uppá að kanturinn verði ekki stífur!

Mynstur

ferningur 1 = ferningur 1
Diagram for DROPS 144-18
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 144-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (35)

country flag Helen skrifaði:

What colours do you recommend to replace 2020, 6736 and 7233, non of which are available any more

21.02.2025 - 17:43

DROPS Design svaraði:

Hi Helen, neither colour 2020 nor 7233 are a problem, both shades are still available. Instead of 6736 you can use 6360. Happy knitting!

22.02.2025 - 07:09

country flag Marlies Den Boer skrifaði:

Ha, jammer genoeg lees ik de tip van Marijke nu pas :-) Ook ik heb 70 scheve 4-kantjes ...(deken dubbel gebreid). Hopelijk levert het met in elkaar haken geen problemen op. Iemand nog tip om het in elkaar haken mooi te laten worden? Telkens 2 cm over slaan voor ik weer een vaste zet geeft gaten Marlies

26.01.2025 - 22:46

country flag Anita Wedele skrifaði:

Ich versteh das zusammenhäkeln nicht ganz... Zuerst in der Längsrichtung... Hänel ich dann die Quadrate über die gesamte Länge zusammen? Dann habe ich quer ja immer unterbrochen... Oder längs immer nur nacheinander 2 Quadrate und dann die, Quer Reihen am Stück? Steh auf dem Schlauch ;-) und freu mich über eine Antwort hier. Vielen Dank und herzliche Grüße Anita

01.11.2024 - 09:52

DROPS Design svaraði:

Liebe Frau Wedele, am Anfang häkeln Sie 2 "Rader" Quadraten zusammen in der Breite, dh z.B. von unten nach oben und rechts nach links: Quadrat 5 und 7 zusammen, dann 4 und 9, dann 3 und 8, 2 und 7 und endlich 1 und 6. So weiter häkeln, dh dann 7 mit 3, 10 und 9, usw. Dann wird man die Quadraten zusammen in der Hôhe, dh rechts nach links; Quadrat 5 und 4, dann 7 und 9, 3 und 10 usw bis oben. und So bei jeder "Reihe mit Quadraten" weiter häkeln. Viel Spaß beim zusammenhäkeln!

01.11.2024 - 16:35

country flag Marijke skrifaði:

Ik had hetzelfde probleem als Margo (opmerking 26-01-2018): de eerste helft van het vierkantje wordt mooi, de tweede helft (met het minderen) wordt lubberig en heeft golvende randen. Het is eenvoudig op te lossen door een kleine aanpassing in het patroon: voor het minderen NIET de eerste twee steken samenbreien, maar 1 steek breien en steek 2 en 3 samenbreien. Levert een prachtig strak vierkant op!

05.07.2024 - 18:21

country flag Fausta Gina Cavaletto skrifaði:

Fatta ed e' venuta benissimo

04.06.2023 - 21:51

country flag Fausta Gina Cavaletto skrifaði:

Bellissima

20.02.2023 - 11:14

country flag Astrid Fortun skrifaði:

Hvordan fester jeg alle trådene etter at jeg har heklet sammen på langs og på tvers (før jeg hekler rundt teppet)????

04.03.2022 - 10:33

DROPS Design svaraði:

Hej Astrid, her ser du hvordan du kan hæfte tråde: Feste tråder

09.03.2022 - 09:50

country flag Nicole skrifaði:

Eine wunderbare Anleitung für eine nicht zu kleine aber auch nicht zu große Decke. Die Wolle ist perfekt dafür. Die Anleitung ist leicht umzusetzen. Danke, es war ein spaß diese Decke zu stricken. Eine weitere steht auf meine To do Liste die ich verschenke

24.06.2021 - 11:17

country flag Astrid Fortun skrifaði:

Hei. Jeg får det ikke fint på vrangen når jeg hekler sammen lappeteppet 144-18. Hva skal jeg gjøre???

12.06.2021 - 20:13

DROPS Design svaraði:

Hei Astrid. Hva er det som ikke blir pent på vrangen? Slik monteringen på dette teppet er, så vil retten og vrangen bli ulikt. mvh DROPS design

14.06.2021 - 14:07

country flag Astrid Fortun skrifaði:

Hei. Jeg prøver å hekle sammen lappeteppet 144-18, men det blir ikke fint på vrangen. Hva skal jeg gjøre?

12.06.2021 - 20:11