DROPS Children 49 · Fullt af nýrri hönnun fyrir börn!
Product image DROPS Ice yarn
DROPS Ice
55% Bómull, 45% Polyakryl
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS AW2425
DROPS Extra 0-830

#sweetladybluesweater

DROPS Design: Mynstur nr TT-051
Garnflokkur E
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ICE frá Garnstudio
600-650-700-750-850-900 gr litur 09, blár
eða notið:
DROPS Snow frá Garnstudio
550-600-650-700-750-850 gr litur nr 21, bláfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 10 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 16 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 10 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Ice
DROPS Ice
55% Bómull, 45% Polyakryl
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
* Prjónið 1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MÆLING:
Öll mæling er gerð þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að ekki strekkist á stykkinu þegar það er mælt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 80-88-96-104-112-120 l á hringprjóna nr 10 með DROPS Ice eða DROPS Snow. Prjónið stroff (1 l sl, 1 l br) í 5 cm, prjónið nú garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 37-38-39-40-41-42 cm er sett eitt prjónamerki í byrjun umf og eitt prjónamerki á eftir 40-44-48-52-56-60 cm. Í næstu umf er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 2-2-3-3-4-4 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4-4-6-6-8-8 færri l hvoru megin). Prjónið nú hvort stykki til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 36-40-42-46-48-52 l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun og eitt prjónamerki í lok umf (hér eru ermarnar prjónaðar upp síðar). Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til stykkið mælist 52-54-56-58-60-62 cm. Fellið nú af miðju 12-12-14-14-16-16 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 11-13-13-15-15-17 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

FRAMSTYKKI:
= 36-40-42-46-48-52 l. Setjið prjónamerki í byrjun og prjónamerki í lok hverrar umf (hér eru ermarnar prjónaðar upp síðar). Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka þar til stykkið mælist 47-49-50-52-53-55 cm. Fellið nú af miðju 6-6-8-8-10-10 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 2 l 1 sinni, 1 l 2 sinnum = 11-13-13-15-15-17 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma yst í lykkjubogann.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Prjónið upp frá réttu ca 30-40 l á milli prjónamerkja meðfram öðrum handveg (ATH: ekki eru prjónaðar upp l yfir þær l sem felldar voru af fyrir handveg). Í næstu umf er prjónað sl JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 30-32-34-36-38-40 l. Prjónið garðaprjón í 3-3-4-4-5-5 cm, fellið síðan af 1 l (með því að prjóna saman 2 l) í hvorri hlið á stykkinu. Endurtakið úrtöku með 11-8-8-6-6-5 cm millibili alls 5-6-6-7-7-8 sinnum = 20-20-22-22-24-24 l. Haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist 49-48-48-46-46-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), prjónið nú stroff (1 l sl, 1 l br) í 5 cm, fellið af allar l með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 54-53-53-51-51-50 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

HEKLAÐUR KANTUR.
Heklið með heklunál nr 10 í kringum hálsmál (byrjið við miðju að aftan) þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir ca 1½ cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í 1. fl, klippið frá og festið enda. ATH: Passið að heklaði kanturinn verði ekki of stífur.

Mynstur

Diagram measurements for DROPS Extra 0-830
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-830

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag William skrifaði:

Could this be worked in a lighter cotton yarn for summer? Such as Drops Cotton Light

16.02.2017 - 00:04

DROPS Design svaraði:

Dear William, Ice & Eskimo belong both to yarn group E, you could then use instead 2 yarns group C - read more here. Happy knitting!

16.02.2017 - 09:50

country flag Marion Mauger skrifaði:

Bonjour, Je suis en train de tricoter le sweat lady blue. J'ai terminé le devant/derrière et m'attaque aux manches. Il est expliqué que je dois relever des mailles entre les deux marqueurs, cela signifie qu'il y aura 6 mailles où je ne relèverai rien. Cela ne risque-t-il pas de créer un trou sous le bras ? Ou bien est-il préférable que je répartisse les mailles relevées sur toute l'emmanchure ? Merci beaucoup pou votre aide, et pour les modèles mis en ligne ! Bine cordialement,

22.01.2017 - 15:24

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Mauger, vous relevez les mailles entre les marqueurs, le long des emmanchures, c'est-à-dire pour la manche droite, commencez au marqueur du dos, relevez les mailles jusqu'à l'épaule puis relevez les mailles le long du devant jusqu'au marqueur (pour la manche gauche, commencez au marqueur du devant jusqu'à l'épaule puis jusqu'au marqueur du dos. Bon tricot!

23.01.2017 - 10:57

country flag Helen skrifaði:

Hi - Where can I find a size guide for this pattern please? For example, would a UK size 16 be a M, L or XL? (or an XXL even!) Thanks!

28.12.2016 - 14:45

DROPS Design svaraði:

Hi Helen! How to choose the right size please see the lesson How to read a schematic drawing. Happy knitting!

28.12.2016 - 23:03

country flag Cristina skrifaði:

Buonasera, vorrei realizzarla in cotone, quale consigliate? grazie

27.04.2016 - 14:05

DROPS Design svaraði:

Buongiorno Cristina. Può usare i cotoni del gruppo A (Loves You 6, Loves You 7, Safran) lavorandoli a quattro capi, oppure i cotoni del gruppo C (Loves You 5 e Paris) lavorandoli a due capi. Buon lavoro!

27.04.2016 - 14:13

country flag Ineke Meijerink skrifaði:

Dag, deze trui wil ik graag breien, maar ik kan niet tegen wol. Heb je ook een ander advies voor me?Eventueel iets met glans. Groet, ineke

22.09.2014 - 17:29

DROPS Design svaraði:

Hoi Ineke. Je kan vervangen door 1 draad DROPS Peak of een dubbele draad DROPS Paris. U kunt ook bij jouw DROPS verkooppunt vragen voor meer mogelijkheden.

24.09.2014 - 17:08

country flag Lynn skrifaði:

Can you please advise what yarn this is knitted in. Is it Chunky? Thanks

13.01.2014 - 15:39

DROPS Design svaraði:

Dear Lynn, this jumper is worked either in DROPS Ice (discontinued) or in Eskimo - to read more about your yarns, click on link to shademap above or here. Happy knitting!

13.01.2014 - 15:42

country flag Paprikana skrifaði:

Bonjour Question d'une débutante: pourquoi une aiguille circulaire si on fait des allers et retours ? et comment faire ? merci pr vos lumières

26.09.2013 - 15:57

DROPS Design svaraði:

Bonjour Paprikana, le dos et le devant du pull se tricotent en rond - sur aig. circulaire - jusqu'aux emmanchures. Chaque partie est ensuite terminée séparément, en allers et retours. Les manches se tricotent sur aig. circulaire en allers et retours mais vous pouvez utiliser des aig. droites si vous en avez de la bonne taille. Bon tricot!

26.09.2013 - 16:20

Vanessa skrifaði:

Is it possible you have this design with a v-neck and/or can add instructions to create a v-neck rather than round please? Or guide me to a pattern with the garter stitching and a v neck?

02.09.2013 - 06:11

DROPS Design svaraði:

Dear Vanessa, it is possible to work a v-neck, you can get help from any other pattern using same tension, such as 75-7 eg. Do not hesitate to get help from the store where you bought your yarn or any knitting forum. Happy knitting!

02.09.2013 - 10:27

country flag Romy skrifaði:

Bonjour, je suis bien désolée car je ne sais pas comment tricoter 80 mailles sur mes aiguilles circulaires n°10 en 80 cm, cela est impossible et je ne dispose pas d'aiguilles plus courtes... Dommage ce pull est ravissant.. Cordialement

02.08.2013 - 04:48

DROPS Design svaraði:

Bonjour Romy, le bas du pull se tricote en rond sur aiguille circulaire 80 cm, soit inférieure à la circonférence du pull. La vidéo ci-dessous pourra sûrement vous aider à visualiser comment on fait. Bon tricot !

02.08.2013 - 09:40

country flag Loes skrifaði:

Hallo! In dit patroon maat S staat dat je 2 x 2 steken moet afkanten voor de armsgaten. Bij het opnemen van steken voor de armen moet je geen steken opnemen bij deze afgekante steken. Maar blijft er dan niet een gat over? Hoe los je dat op?

01.12.2012 - 17:39

DROPS Design svaraði:

Deze naad naai je samen bij het dichtnaaien van de mouwnaad.

03.12.2012 - 15:52