Heidrun skrifaði:
Moin, ich habe eine Frage zu den verkürzten Reihen. Werden von beiden Seiten verkürzte Reihen gestrickt oder nur auf der Rückseite?
10.12.2024 - 21:11DROPS Design svaraði:
Liebe Heidrun, die verkürzten Reihen werden nur auf eine Seite gestrickt, sie beginnen bei einer Rückreihe beim rechten Vorderteil/Rückenteil und mit einer Hinreihe beim linken Vorderteil/Rückenteil. Viel Spaß beim Stricken!
11.12.2024 - 08:55
Christine skrifaði:
Ich komme mit der Spring Tide Anleitung nicht klar. Ribbel immer wieder auf. Ich kann das nicht mit diesen 33 Maschen zunehmen. 130 Maschen auf Nadel 33 Maschen verteilt zunehmen. Nehme ich nach 3 Machen 1 zu und nach jeder 4ten Masche eine, dann habe ich nachher 166 Maschen. Wie soll das gehen? Kann mir da bitte jemand helfen? Ich habe schon die Anleitungen dazu gelesen.. ich bekomme es nicht hin..
06.06.2022 - 17:41DROPS Design svaraði:
Liebe Christine, Sie sollen hier mehr mals abwechslunsweise nach jeder 3. und nach jeder 4. Masche zunehmen bis Sie die 33 Maschen zugenommen haben, dann stricken Sie die restlichen Maschen wie zuvor, ohne zuzunehmen. Viel Spaß beim stricken!
07.06.2022 - 10:15
Christine Krajewski skrifaði:
, oder muss ich da öfter hin und herstricken.... ??? Ich h bin gerade sehr ratlos. Dankeschön für die Antwort. LG Christine
22.12.2021 - 03:51DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Krajewski, ich verstehe Ihre Frage leider nicht, können Sie uns bitte mehr sagen? Danke im voraus für Ihr Verständnis!
22.12.2021 - 07:19Linda skrifaði:
Hi there. What is the finished bust measurement (cm) for the XL and XXL sizes? Thanks Linda
25.06.2018 - 13:35DROPS Design svaraði:
Dear Linda, you will find all finished measurements taken flat from side to side for each size in the chart at the end of the pattern. Compare these measurements (= half back piece for example) to a similar garment you have and like the shape to find out the matching size. Read more about sizing here. Happy knitting!
25.06.2018 - 16:07Mónica skrifaði:
Hola Ines, si te refieres a que la manga es la parte tejida en musgo, claro que está incluida en el patrón, además se le llamaría ribete u orilla de la sisa, pues los chalecos no tienen manga, pienso que a parte de ser decorativo es para que no se enrrolle.
15.12.2014 - 08:41
Ines skrifaði:
Perdón, pero donde están las dos mangas del chaleco? No aparecen en el patrón y si en la fotografía. Se trata de un error de las explicaciones? Aclaren ello, por favor, gracias.
13.12.2014 - 17:59DROPS Design svaraði:
Hola Ines. El chaleco no tiene mangas (no aparecen en la foto tampoco) y la cenefa en pt musgo para la abertura de la sisa se trabaja junto con el cuerpo. Lee atentamente a partir de:" Ahora rem para la sisa de la manera sig:......"
15.12.2014 - 12:18
Spring Tide#springtidevest |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónað vesti úr DROPS Merino Extra Fine með öldumynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS Extra 0-822 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Vegna lykkjufjöldans er stykkið prjónað fram og til baka á hringprjóna. Prjónað er frá miðju að aftan á hægra bakstykki og út að hlið, fellt er af fyrir handveg og síðan er prjónað að miðju að framan á hægra framstykki. Síðan er vinstra framstykki prjónað á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt, áður en stykkið er saumað saman mitt að aftan. HÆGRA BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI: Fitjið upp 110-114-118-122-126-130 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 4 umferðir GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan (umferð 1 = rétta). Haldið áfram í sléttprjóni en ystu 5 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni að loka máli. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-17-18-19-19 cm prjónið næstu umferð þannig – frá réttu: 5 lykkjur í garðaprjóni, 44-46-48-50-52-54 lykkjur sléttprjón, 50-52-54-56-58-60 lykkjur garðaprjón, 6 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið 5 umferðir svona. Fellið af fyrir handveg þannig: Í næstu umferð (frá röngu) eru fyrstu 16 lykkjur prjónaðar, síðan eru þær settar á þráð, fellið af næstu 36-38-40-42-44-46 lykkjur, prjónið 9 lykkjur garðaprjón, 44-46-48-50-52-54 lykkjur sléttprjón og 5 lykkjur garðaprjón = 58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið síðan sléttprjón með 5 lykkjur í garðaprjóni í hægri hlið og 9 lykkjur í garðaprjóni í vinstri hlið – séð frá réttu. Prjónið yfir þessar lykkjur þar til stykkið mælist alls 26-29-33-38-43-49 cm. Næsta umferð frá réttu er prjónuð þannig: 5 lykkjur garðaprjón, 44-46-48-50-52-54 lykkjur slétprjón, 9 lykkjur garðaprjón, fitjið upp 36-38-40-42-44-46 nýjar lykkjur, prjónið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 110-114-118-122-126-130 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð þannig – frá röngu: 5 lykkjur garðaprjón, 6 lykkjur sléttprjón, 50-52-54-56-58-60 lykkjur garðaprjón, 44-46-48-50-52-54 lykkjur sléttprjón, 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið 3 umferðir svona. Prjónið síðan sléttprjón með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 34-38-42-48-54-60 cm eru prjónaðar stuttar umferðir þannig – með byrjun frá röngu: Prjónið þar til eftir eru 8-6-10-8-6-10 lykkjur á prjóni, snúið og prjónið til baka yfir allar lykkjur. Prjónið þar til eftir eru 14-12-16-14-12-16 lykkjur, snúið og prjónið til baka yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram, í hvert skipti sem prjónað er frá röngu er snúið við þegar eftir eru 6 lykkjur fleiri en í fyrri umferð. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið stuttar umferðir yfir allar lykkjur. Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur (frá röngu). Prjónið 4 umferðir garðaprjón, JAFNFRAMT í umferð 1 er aukið út um 19-15-28-24-20-33 lykkjur jafnt yfir = 129-129-146-146-146-163 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað M.1 (7-7-8-8-8-9 mynstureiningar á breidd) með 5 lykkjum garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið M.1 alls 6 sinnum á hæðina, fellið laust af þegar stykkið mælist ca 44-48-52-58-64-70 cm, mælt í stystu hliðinni (neðst). VINSTRA BAKSTYKKI / FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægra bakstykki / framstykki, nema gagnstætt. Þ.e.a.s. þegar fellt er af fyrir handveg er það gert frá réttu: Setjið fyrstu 16 lykkjur á þráð (prjónið þær fyrst), fellið af næstu 36-38-40-42-44-46 lykkjur, prjónið 9 lykkjur garðaprjón, 44-46-48-50-52-54 lykkjur sléttprjón og 5 lykkjur í garðaprjóni = 58-60-62-64-66-68 m. Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir er prjónað með byrjun frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið stykkin saman mitt að aftan. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springtidevest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-822
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.