Marx skrifaði:
Achja, klar! Vielen Dank! ich strickte zusammen statt abzuketten und dann eben an beiden Seiten des Ärmels in jeder Reihe...das wurde dann zu eng... jetzt hab ichs! Danke für die schnelle Abhilfe : )
28.04.2014 - 09:00
Marx skrifaði:
Hallo! ich wüsste gerne, ob die Abnahmen für die Armkugel (Ärmel) nur auf der Hin(=Re)reihe gemacht werden oder sowohl als auch, also auch in der Rückreihe, links?? Danke für eine Antwort!
27.04.2014 - 14:20DROPS Design svaraði:
Antwort siehe unten! :-)
28.04.2014 - 00:19
Marx skrifaði:
Hallo! ich wüsste gerne, ob die Abnahmen für die Armkugel (Ärmel) nur auf der Hin(=Re)reihe gemacht werden oder sowohl als auch, also auch in der Rückreihe, links?? Danke für eine Antwort!
27.04.2014 - 14:05DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Marx, Sie ketten für die Armkugel am Anfang jeder R ab, also auch am Anfang der Rück-R. Da Sie die M ja abketten und nicht durch Zusammenstricken abnehmen, können Sie nur am Anfang der R abketten und nicht am Ende. Da die Armkugel ja symmetrisch werden soll, müssen Sie die Abnahmen also immer am Anfang jeder Hin- und Rück-R arbeiten.
28.04.2014 - 00:19
Fisherman#fishermansweater |
||||||||||
|
||||||||||
Prjónuð peysa fyrir herra með sjalkraga og röndum úr DROPS Snow. Stærð S til XXXL.
DROPS 135-27 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 96-108-120-132-144-156 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós beige DROPS Snow. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br í 3 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt. Setjið prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 48-54-60-66-72-78 l (þau merkja hliðarnar). Haldið áfram með mynsturteikningu M.1 til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-17-18-19-20 cm, er fækkað um 1 l Á UNDAN báðum prjónamerkjum með því að prjóna 2 l sl saman = 94-106-118-130-142-154 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 25-26-27-28-29-30 cm. Fækkið nú um 1 l Á EFTIR báðum prjónamerkjum með því að prjóna 2 l snúnar slétt saman = 92-104-116-128-140-152 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm, er aukið út um 1 l Á UNDAN báðum prjónamerkjum – LESIÐ ÚTAUKNING! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm, aukið út um 1 l Á EFTIR báðum prjónamerkjum = 96-108-120-132-144-156 l. Þegar stykkið mælist 47-48-49-50-51-52 cm, prjónið næstu umf þannig: Fellið af 3 l fyrir handveg, prjónið 14-17-20-22-25-28 l, fellið af 14-14-14-16-16-16 l fyrir hálsmáli, prjónið 14-17-20-22-25-28 l, fellið af 6 l fyrir handveg, prjónið 42-48-54-60-66-72 l (= bakstykki), fellið af síðustu 3 l fyrir handveg. Hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 42-48-54-60-66-72 l. Haldið áfram með M.1 JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 0-0-1-1-2-2 sinnum og 1 l 0-1-1-3-3-5 sinnum = 42-46-48-50-52-54 l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist 65-67-69-71-73-75 cm, fellið af miðju 18-18-18-20-20-20 l af fyrir háls. Hvor öxl (= 12-14-15-15-16-17 l) er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 14-17-20-22-25-28 l. Fellið af fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 51-52-53-54-55-56 cm, fellið af 1 l við miðju að framan fyrir hálsmáli. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 56-57-58-59-60-61 cm. Eftir alla úrtöku eru 12-14-15-15-16-17 l eftir á prjóni. Fellið af þegar stykkið mælist ca 68-70-72-74-76-78 cm – ATH: Fellið af í sömu umf í mynstri eins og á bakstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 30-30-30-36-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós beige DROPS Snow. Prjónið stroff = 3 l sl, 3 l br í 7 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8, prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4-2-2-6-4-2 l jafnt yfir = 26-28-28-30-32-34 l. Haldið áfram með M.1. Setjið prjónamerki við miðju undir ermi. Þegar stykkið mælist 14 cm, aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 6-6-5-4-4-4 cm millibili alls 7-7-8-9-9-9 sinnum = 40-42-44-48-50-52 l. Þegar stykkið mælist 54-53-52-51-50-49 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla), fellið af 6 l við miðju undir ermi. Stykkið er prjónað til loka fram og til baka. JAFNFRAMT er fellt af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið: 2 l 1 sinni og 1 l 1-2-3-4-4-5 sinnum. Fellið nú af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 59 cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 61 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. SJALKRAGI: Byrjið fyrir miðju að framan á vinstri hlið við l sem fellt var af fyrir hálsmáli. Prjónið upp á hringprjóna nr 7 með ljós beige DROPS Snow. Prjónið 24 til 30 l upp að öxl, prjónið síðan upp 20 til 24 l aftan við hnakka, að lokum 24 til 30 l niður meðfram vinstri hlið við úrtöku við hálsmál = 68 til 84 l. (Ekki eru l teknar upp þar sem fellt var af framan við hálsmál). Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 70-74-78-82-86-90 l. Haldið áfram með slétt fram og til baka þar til kraginn mælist ca 8-8-8-9-9-9 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 12 l jafnt yfir þannig: Prjónið 13-15-17-19-21-23 l sl, * gerið 1 uppslátt, 4 l sl *, endurtakið frá *-* alls 12 sinnum, prjónið sl út umf (= 9-11-13-15-17-19 l). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo að ekki myndist göt = 82-86-90-94-98-102 l. Haldið áfram með slétt fram og til baka þar til kraginn mælist 11-11-12-12-14-14 cm. Fellið laust af. Leggið kragann tvöfaldan neðst við opið á hálsmáli og saumið hann niður við hálsmálið í gegnum bæði stykkin. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #fishermansweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.