Patricia skrifaði:
Simple and stylish! Love it.
23.06.2011 - 14:52
Janet Ekbøl skrifaði:
Hej den vil jeg meget gerne lave når opskriften kommer hilsen janet
22.06.2011 - 22:06
Alexandra skrifaði:
Erg mooi haakvestje. Te gebruiken als casual vest en als net jesje. Verheug me op het patroon om ermee aan de slag te gaan.
19.06.2011 - 09:36
Robert skrifaði:
Très jolie je veux l explication merci
10.06.2011 - 11:56
Ann skrifaði:
Prachtig! Ik kan haast niet wachten om dit te maken.
28.05.2011 - 20:32
Anne skrifaði:
Geweldig mooi model ! Graag meer klassieke kledingstukken, vesten coltruitjes en korte blazerjasjes omdat breimodellen vanwege het hadnwerk tijdloos moeten zijn.
27.05.2011 - 11:40
Penny skrifaði:
More crochet items like this please!
25.05.2011 - 13:29
Elisabeth skrifaði:
Flot model
23.05.2011 - 18:08
Gabriele skrifaði:
Super. Einer meiner Favoritenmodelle. Bitte mehr Häkeljacken.
23.05.2011 - 14:30
Lise skrifaði:
Den er fin. Jeg kunne som Saara tænke mig den i tyndere garn.
22.05.2011 - 16:56
Fresh Beauty#freshbeautycardigan |
||||
|
||||
Hekluð peysa með sjalkraga úr DROPS Snow.
DROPS 134-18 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ST-UMFERÐ: Snúið stykkinu með 3 ll = fyrsti st, haldið áfram með 1 st í hverja l, endið umf með 1 st í 3. ll frá fyrri umf. FL-UMFERÐ: Snúið stykkinu með 1 ll (ATH: reiknast ekki sem fyrsta fl), haldið áfram með 1 fl í hverja l, endið umf með 1 fl í 1. fl frá fyrri umf. ÚRTAKA: Í byrjun umf: Skiptið út þeirri l sem fækka á með 1 kl í hverja l. Í byrjun umf: Snúið stykkinu við þegar eftir er sá fjöldi l sem fækka á, heklið síðan eins og áður. KRABBAHEKL: Krabbahekl: Fl sem er hekluð frá réttu en í gagnstæða átt, þ.e.a.s. frá vinstri til hægri. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. BAKSTYKKI: Heklið lausar 33-37-41-45-49 ll með Snow með heklunál nr 10. Í umf 1 (= rétta) er heklað þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá nálinni, 1 st í næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja og eina af næstu 3 ll *, endurtakið frá *-* = 24-27-30-33-36 st í umf, snúið við – Lesið ST-UMFERÐ að ofan. Haldið áfram að hekla 1 st í hverja l. Þegar stykkið mælist 11-11-12-12-13 cm er aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í síðustu l. Endurtakið útaukningu 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist 22-23-24-24-25 cm = 28-31-34-37-40 st. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umf þannig: Fækkið um 2 st 1-1-1-2-2 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA að ofan, 1 st 0-1-2-1-2 sinnum = 24-25-26-27-28 st. Þegar stykkið mælist ca 50-52-54-56-58 cm (2 umf að loka máli) heklið 2 st-umferðir yfir síðustu 9-9-9-10-10 st í hvorri hlið = hægri/vinstri öxl, klippið frá. Þ.e.a.s. heklið ekki yfir miðju 6-7-8-7-8 st (= hálsmál). Stykkið mælist ca 53-55-57-59-61 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið laust 12-13-14-15-16 ll. Í umf 1 (= rétta) er heklað þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá nálinni, 1 st í næstu 8-9-10-11-12 ll = 10-11-12-13-14 st, snúið við. Í næstu umf (= ranga) er aukið út fyrir skáa í peysuna við miðju að framan þannig: Aukið út um 1 st í byrjun umf með því að hekla 2 st í fyrstu l, haldið áfram með 1 st í hverja l. Endurtakið útaukningu með 1 st í byrjun hverrar umf frá röngu alls 12-13-13-14-14 sinnum JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 11-11-12-12-13 cm og 22-23-24-24-25 cm er aukið út í hliðum eins og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm er fækkið lykkjum fyrir handveg í hliðum eins og á bakstykki. Þegar útaukningu er lokið eru 22-23-23-24-24 st eftir. Þegar stykkið mælist ca 43-45-47-49-51 cm (útaukning við miðju að framan á að vera lokið) fækkið lykkjum fyrir hálsmáli í næstu umf frá réttu þannig: Heklið þar til 10 st eru eftir í umf, snúið við og heklið til baka. Fækkið um 1 st við háls í hverri umf 3-4-4-4-4 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA að ofan = 9-9-9-10-10 st eftir á öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 53-55-57-59-61 cm, klippið frá. HÆGRA FRAMSTYKKI: Heklið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. ERMI: Stykkið er heklað fram og til baka. Heklið laust 26-26-27-27-29 ll. Í umf 1 (= rétta) er heklað þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá nálinni, 1 st í næstu ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í herja og eina af 3 næstu ll *, endurtakið frá *-* og endið með 1 st í síðustu 1-1-2-2-0 ll = 19-19-20-20-21 st, snúið við. Haldið áfram að hekla 1 st í hvern st. Þegar stykkið mælist ca 5 cm er fækkað um 2 st jafnt yfir í umf með því að hoppa yfir 1 l frá fyrri umf. Endurtakið úrtöku 1 sinni til viðbótar þegar stykkið mælist ca 10 cm (= kantur með uppábroti) = 15-15-16-16-17 st. Þegar stykkið mælist ca 20 cm er aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í síðustu l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu með 12-10-10-7-7 cm millibili alls 3-4-4-5-5 sinnum = 21-23-24-26-27 st. Þegar stykkið mælist ca 56-57-57-54-54 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fækkið lykkjum fyrir handveg í hvorri hlið í hverri umf þannig: Fækkið um 2 st 1 sinni, 1 st 4-4-4-6-6 sinnum, síðan 2 st 1 sinni = 5-7-8-6-7 eftir. Klippið frá, stykkið mælist ca 66-67-67-67-67 cm. Heklið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Heklið saman öxl þannig: Heklið 1 kl í 1. ll á öxl á bakstykki, 1 ll, 1 fl í 1. l frá öxl á framstykki, * 1 ll, 1 fl í næstu l á öxl á bakstykki, 1 ll, 1 fl í næstu l á öxl á framstykki *, endurtakið frá *-*. Heklið ermar í og heklið saman erma- og hliðarsauma í eitt á sama hátt. KRAGI: Stykkið er heklað fram og til baka frá ystu brún á kraga. Heklið laust 51-53-53-57-57 ll. Heklið 1 fl í 2. ll frá nálinni og síðan 1 fl í hverja ll = 50-52-52-56-56 fl. Heklið nú 1 fl-umferð – Sjá FL-UMFERÐ að ofan. Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 fl í fyrstu 22-23-23-25-25 fl, heklið 2 fl í hverja af 6 næstu fl, heklið 1 fl í næstu 22-23-23-25-25 fl = 56-58-58-62-62 fl. Heklið að auki 2 fl-umferðir. Fækkið nú um 1 fl í hvorri hlið í hverri umf alls 15-16-16-18-18 sinnum = 26 l í öllum stærðum. Í 2 næstu umf er fækkað um 2 fl í hvorri hlið = 18 fl eftir í öllum stærðum. Klippið frá. Saumið þær 18 fl við hálsmál á bakstykki, saumið hliðar við hálsmálið á framstykki. KANTUR: Kanturinn er heklaður frá réttu með byrjun neðst á kanti á hægra framstykki þannig: Heklið fl upp meðfram hægra framstykki, kringum kraga, niður meðfram vinstra framstykki. Kanturinn á að vera aðeins fastur en ekki að brettast upp. Í næstu umf er heklað krabbahekl – sjá KRABBAHEKL að ofan – upp meðfram vinstra framstykki, kringum kraga, niður meðfram hægra framstykki, haldið áfram með krabbahekli meðfram öllum neðri kantinum á peysunni, klippið frá. Brjótið upp á neðri hluta erma ca 10 cm, heklið 1 umf krabbahekl í kringum kant á ermum frá réttu, klippið frá. Lokið peysunni með belti eða nælu. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #freshbeautycardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-18
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.