Elisabeth skrifaði:
Meget meget fin trøje
23.05.2011 - 18:01
Lisa skrifaði:
Meget fin trøje.
23.05.2011 - 09:42
Janice skrifaði:
Really pretty
21.05.2011 - 19:59
Greta skrifaði:
Romantico!!
20.05.2011 - 14:59
Emilia skrifaði:
Lovely
20.05.2011 - 14:58
Sabine skrifaði:
Eine wunderschöne Jacke, kann's nicht erwarten, die Anleitung nachzuarbeiten!
20.05.2011 - 13:46
Christine skrifaði:
Sehr schön.
20.05.2011 - 11:35
Anna skrifaði:
Elegant och söt på samma gång!
20.05.2011 - 10:30
Saara skrifaði:
Everything is perfect in this one, and I can't wait to test this yarn.
20.05.2011 - 09:43
Wenche Johansen skrifaði:
Denne må jeg stikke men en annen farge
20.05.2011 - 08:55
Tender Temptation#tendertemptationcardigan |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Prjónuð peysa með gatamynstri úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð S - XXXL
DROPS 134-2 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): * 1 umf slétt og 1 umf brugðið *, endurtakið frá *-* MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu. Umf 1 = rétta. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. HNAPPAGAT = fellið af fjórðu l frá kanti. Í næstu umf er fitjuð upp ein ný l yfir þá l sem felld var af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 11, 19, 28, 36, 45 og 54 cm. STÆRÐ M: 2, 11, 20, 29, 38, 47 og 56 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 58 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 18, 27, 35, 43, 51 og 60 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 19, 28, 36, 45, 53 og 62 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 64 cm. Þ.e.a.s. það eru ca 2 cm að loka máli eftir síðasta hnappagati. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 199-219-239-259-289-319 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 2 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 6 kantlykkjur að framan Í garðaprjóni, 1 l sléttprjón, M.1A þar til 12 l eru eftir, endið með M.1B (= 6 l), 6 kantlykkjur að framan Í garðaprjóni. Haldið nú áfram þannig: ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 53-58-63-68-75-83 l inn frá hvorri hlið = 93-103-113-123-139-153 l á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 8-8-9-9-10-10 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6 cm millibili alls 5 sinnum = 219-239-259-279-309-339 l. ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstri í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist ca 37-38-39-40-41-42 cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu og að það hafa verið prjónaðar 3 eða 5 umf í sléttprjóni á eftir umf með gatamynstri – fellið af 10-10-10-12-12-12 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 93-103-113-121-137-151 l á bakstykki og 53-58-63-67-74-82 l á hvoru framstykki. Geymið stykkiið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Setjið prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 3 cm er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3 og næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 0-0-1-2-3-4 l í sléttprjóni, M.1A þar til eftir eru 6-6-7-8-9-10 l, endið með M.1B (= 6 l) og 0-0-1-2-3-4 l í sléttprjóni. Haldið áfram að prjóna eins. Þegar stykkið mælist 8-8-9-10-10-8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi (aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki). Endurtakið útaukningu með 4-3-2-5-2-2-2 cm millibili alls 10-13-14-16-17-18 sinnum = 76-82-86-92-96-100 l. ATH! Útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni þar til þær ganga upp í mynstur. Þegar stykkið mælist ca 46-46-45-45-44-44 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) – passið uppá að prjónaðar séu jafn margar umf í sléttprjóni eftir 1 umf með gatamynstri eins og á fram- og bakstykki – fellið af 10-10-10-12-12-12 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 66-72-76-80-84-88 l. Setjið l á þráð og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 331-363-391-415-453-491 l. Prjónið 1 umf sléttprjón (umf 1 = br frá röngu og kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni eins og áður til loka) JAFNFRAMT er fækkað um 5-13-5-3-3-5 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kantlykkjur að framan) = 326-350-386-412-450-486 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5, prjónið 1 umf slétt frá réttu og setjið 10-10-10-10-11-11 prjónamerki í stykkið þannig: Setjið fyrsta prjónamerkið eftir 28-31-31-34-35-38 l, síðan eru sett 9-9-9-9-10-10 prjónamerki með 30-32-36-38-38-41 l millibili, eftir síðasta prjónamerki eru 28-31-31-35-35-38 l. Allt berustykkið er prjónað í garðaprjóni (umf 1 = ranga): Prjónið 1-1-3-3-1-1 umf án þess að fækka lykkjum og fækkið síðan lykkjum hægra megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l saman. Endurtakið úrtöku í fjórðu hverri umf til skiptis hægra og vinstra megin við prjónamerkin, alls 16-17-17-19-21-22 sinnum = 166-180-216-222-219-244 l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu eftir síðustu umf með úrtöku. Prjónið nú einungis M.2 með 6 kantlykkjum að framan í hvorri hlið (í umf 9 og 23 er síðasta l á undan kantlykkjum að framan prjónuð slétt) JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í umferðum 5, 17 og 25 þannig: Í umf 5 er fækkað um 15-19-29-29-28-33 l jafnt yfir = 151-161-187-193-191-211 l. Í umf 17 er fækkað um 18-20-30-32-30-34 l jafnt yfir = 133-141-157-161-161-177 l. Í umf 25 er fækkað um 14-18-30-30-26-36 l jafnt yfir = 119-123-127-131-135-141 l. Eftir M.2 er fellt laust af með sléttu frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tendertemptationcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.