DROPS Design NL skrifaði:
Hoi. Vergeet niet dat u bij het samenbreien ook een omslag maakt. In deze naald breit u 1 omslag, 1 st r afh, 2 st recht samen, afgeh st overh, 1 omsl. Dwz, u mindert 2 st, maar u krijgt ook deze 2 st terug door de 2 omslagen. Helpt dit? Gr. Tine
25.08.2010 - 11:23
Ingrid Tulkens skrifaði:
Bij teltekening M4 de 9e nld kom ik waar de twee 'wybertjes' samenkomen één steek tekort. Doe ik iets fout of zit het in het patroon? De eerste lukt, maar dan bij het samenbreien kom ik één steek tekort. Dank voor het antwoord.
23.08.2010 - 20:38
Inger skrifaði:
MEGET ELEGANT.
31.07.2010 - 19:59
Ulla skrifaði:
Åh så vacker!Verkar kul att sticka!
24.07.2010 - 18:28
Eva skrifaði:
Ein ganz tolles Teil !
11.07.2010 - 10:25
Vicki skrifaði:
Beautiful!! That yarn is just gorgeous.
06.07.2010 - 17:17
Anne skrifaði:
Nydelig!! :) Må strikke dette!!!
03.07.2010 - 15:15
Kari skrifaði:
Gleder meg til å ta fatt!!!
01.07.2010 - 11:26
Brita skrifaði:
Ge mig mönstret nu! :) Super fin!
28.06.2010 - 18:25Martin skrifaði:
Superbe , ou trouve t'on les explications en français si possible
27.06.2010 - 10:06
Heart's Desire#heartsdesireblanket |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónað teppi úr DROPS Delight og DROPS Alpaca með ferningum með fjölbreytilegri áferð.
DROPS 124-20 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITASKIPTI: Til þess að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með. LITIR Á FERNINGUM: A = Delight + bláfjólublár Alpaca B = Delight + ljós beige Alpaca C = Delight + bleikur Alpaca Sjá teikningu 1 hvernig ferningarnir eru prjónaðir í tengingu við hvern annan. MYNSTUR: Prjónið 4 mismunandi mynstur á ferningunum – sjá útskýringu að neðan. MYNSTUR M.1: Prjónið 5 l slétt yfir allar l (umf 1= rétta). Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 3 l br, 3 l sl, 3 l br, 2 l sl, 4 l br, 2 l sl, 3 l br og 3 l sl. Í næstu umf er aukið út um 16 l þannig: * 3 l sl, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l, 2 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 2 l sl, prjónið 2 l sl í næstu l, 2 l sl, prjónið 2 l sl í hverja af næstu 3 l *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, endið á 3 l sl = 53 l. Haldið áfram með mynstur M.1 og með 3 l garðaprjón í hvorri hlið (umf 1 = ranga). Í fyrstu umf á eftir M.1 er fækkað um 16 l þannig: * Prjónið 3 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l sl, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar með 3 l sl = 37 l. Prjónið 3 l slétt umf. M.2, M.3 og M.4: Prjónið 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Haldið áfram með M.2, M.3 eða M.4 með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið (umferð 1 = rétta). Þegar mynsturteikning hefur verið prjónuð til loka eru prjónaðar 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TEPPI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka í 4 lengjum sem síðan eru saumaðar saman í lokin. Hver lengja samanstendur af 5 ferningum, ferningarnir eru prjónaðir með 4 mismunandi áferðum og með 3 mismunandi litasamsetningum – sjá útskýringu að ofan á MYNSTUR og LITIR Á FERNINGUM. Lesið LITASKIPTI að ofan. LENGJA 1: Fitjið upp 37 l með 1 þræði af Delight + 1 þræði af litnum bláfjólublár Alpaca. Prjónið M.1 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn ljós beige, prjónið M.2 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn bleikur, prjónið M.3 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn bláfjólublár, prjónið M.4 eftir útskýringu að ofan. Skiptið Alpaca þræðinum út fyrir litinn ljós beige, prjónið M.1 eftir útskýringu að ofan. Setjið lykkjur á þráð og geymið stykkið. LENGJA 2: Prjónið á sama hátt og lengja 1, nema með mynstur og litaskipti eins og útskýrt er í mynsturteikningu 1 – þ.e.a.s. byrjið með litinn bleikur Alpaca og M.2. LENGJA 3: Prjónið á sama hátt og lengja 1, nema með mynstur og litaskipti eins og útskýrt er í mynsturteikningu 1 – þ.e.a.s. byrjið með litinn beige Alpaca og M.3. LENGJA 4: Prjónið á sama hátt og lengja 1, nema með mynstur og litaskipti eins og útskýrt er í mynsturteikningu 1 – þ.e.a.s. byrjið með litinn bláfjólublár Alpaca og M.4. FRÁGANGUR: Saumið saman lengjurnar kant í kant með Delight og 1 spori í aðra hverja umf. KANTUR: Prjónið nú kant út frá hvorri hlið á teppinu sem að lokum er saumaður saman á hornum. Kantarnir eru prjónaðir í garðaprjóni fram og til baka á hringprjón nr 6 með Delight + litinn bleikur Alpaca. SKAMMHLIÐ EFST: Setjið allar lykkjur af þræði efst frá hverri lengju á hringprjón nr 6 = 148 l. Prjónið garðaprjón fram og til baka – byrjið frá röngu – JAFNFRAMT í umf 2 er aukið út um 1 l í hvorri hlið fyrir horn með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við síðustu l – í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf þar til prjónaðar hafa verið 20 umf í garðaprjóni. Í næstu umf frá réttu er fellt laust af. SKAMMHLIÐ NEÐST: Prjónið upp frá réttu 1 l í hverja l frá uppfitjunarkanti á öllum lengjum = 148 l. Prjónið nú alveg eins og SKAMMHLIÐ EFST – sjá útskýringu að ofan. LANGHLIÐ: Prjónið upp frá réttu 1 l yst í annarri hverri umf meðfram annarri langhliðinni = 150 l. Prjónið 1 umf slétt til baka JAFNFRAMT er aukið út um 30 l jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í 5. hverri l – í umf til baka er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt. Prjónið síðan eins og skammhliðar með sömu útaukningu á báðum endum fyrir horn. Endurtakið á sama hátt í hinni langhliðinni. FRÁGANGUR: Saumið saman hornin, kant í kant með einu spori í annarri hverri umf. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #heartsdesireblanket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 124-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.