Sofia skrifaði:
Glöm det, jag tänkte fel. Det stämmer såklart :)
15.04.2013 - 01:25
Sofia skrifaði:
Precis när man ska börja med M.2 på bakstycket, har man st ett avigt v, men M.2 verkar börja med ett avigt v eftersom alla flätor ska st från rätsidan. Är det fel i diagrammet?
15.04.2013 - 01:11Jana P skrifaði:
Dobry den, vo vysvetlivkach k nakresu je chyba v preklade, pri "sipke" nahor ma byt popis 2 oka odlozime na pomocnou jehlici PRED praci, 2 oka spleteme hladce, oka z pomocne jehlice upleteme hladce. Povodny popis sposobi zly vzor.
18.02.2013 - 09:28Jana P skrifaði:
Dobry den, v navode na model 123-9 DROPS propínací svetřík z příze "Nepal" s copánkovým vzorem, je zly preklad pri vysvetlivkach k osmickam / pri "sipke" nahor ma byt popis: 2 oka odlozime na pomocnou jehlici PRED praci, 2 oka spleteme hladce, oka z pomocne jehlice upleteme hladce. Povodny popis v cestine sposobi pokazenie vzoru.
18.02.2013 - 09:25
Lillian skrifaði:
In patroon M2. wordt er op een gegeven moment geminderd waardoor je steken moet meerderen om het juiste aantal steken te behouden. Mijn vraag is: in welke steek kan ik het beste meerderen zodat de rechte lijnen in het patroon behoud?
14.12.2012 - 21:51DROPS Design svaraði:
Je moet het telpatroon volgen en minderen en meerderen (eerst komen de minderingen en later weer de meerderingen) volgens M.2. Je moet niet zelf extra gaan meerderen tussen de st om een rechte lijn te houden. Volg jij het telpatroon dan komt het goed.
15.12.2012 - 17:09Pilar Guerrero skrifaði:
Me encantó la página, estoy recién iniciandome en el tejido y me ha resultado muy educativa, muchas gracias
02.06.2012 - 05:42
DROPS Deutsch skrifaði:
Vielen dank für den Tipp. Ich habe das gleich angepasst.
06.10.2011 - 08:56
Manuela Burkhardt skrifaði:
Ich möchte gerne auf einen Fehler in der deutschen Anleitung hinweisen: Beim Rückenteil ist gleich am Anfang zwischen den Sternen eine dreimalige Wiederholung der Zunahme aufgeschrieben, es sind aber nur zwei Wiederholungen richtig! Danke und viele Grüße!
05.10.2011 - 12:05
Lenka skrifaði:
V návodu je drobná chybička - odložíme "ZA" práci .-)
14.05.2011 - 17:55
Anna Larsson skrifaði:
Är det fel i mönsterdiagrammet? Mönster 1 startar och slutar med avigt varv? När jag gör 2 M1 efter varandra blir det 2 aviga varv efter varandra?
14.07.2010 - 11:52
Lady Love |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa með köðlum úr DROPS Nepal. Stærð S til XXXL.
DROPS 123-9 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu (umferð 1 = ranga). ÚRTAKA (á við um hálsmál): Fækkið lykkjum frá réttu innan við 5 lykkjur garðaprjón. Fækkið lykkjum á EFTIR 5 lykkjum þannig: takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á UNDAN 5 lykkjum þannig: 2 lykkjur slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig: 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 3, 10, 16, 22 og 28 cm. STÆRÐ M: 3, 10, 16, 23 og 29 cm. STÆRÐ L: 3, 10, 17, 23 og 30 cm. STÆRÐ XL: 4, 11, 18, 24 og 31 cm. STÆRÐ XXL: 4, 11, 18, 25 og 32 cm. STÆRÐ XXXL: 4, 11, 19, 26 og 33 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 76-84-92-100-108-116 lykkjur (meðtaldin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón nr 4 með Nepal. Prjónið 3 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 14-17-20-23-26-29 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt *, 36-38-40-42-44-46 lykkjur slétt, endurtakið frá *-*, 14-17-20-23-26-29 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 84-92-100-108-116-124 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-8-11-14-17-20 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1 (= 21 lykkjur), 3 lykkjur slétt, 18-20-22-24-26-28 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1 (= 21 lykkjur), 3 lykkjur slétt, 5-8-11-14-17-20 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með M.1 tvisvar sinnum á hæðina. Aðrar lykkjur halda áfram með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Eftir 2 sinnum af M.1 er prjónað M.2 með úrtöku og útaukningu samkvæmt mynsturteikningu (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar lykkjur eru fæstar á prjóni eru 68-76-84-92-100-108 lykkjur á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar M.2 hefur verið prjónað til loka eru 84-92-100-108-116-124 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með M.3 yfir M.2 til loka (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 4-5-6-7-8-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 2-2-4-4-6-6 sinnum = 68-70-72-74-76-78 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur, fellið síðan af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl (= 27 lykkjur) eru prjónaðar til loka fyrir sig. Haldið áfram með 5 lykkjur að hálsmáli. Þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir M.3 = 23 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 43-47-51-55-59-63 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjón 4 með Nepal. Prjónið 3 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu með byrjun frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 14-17-20-23-26-29 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 18-19-20-21-22-23 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 47-51-55-59-63-67 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-10-11-12-13-14 lykkjru brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1 (= 21 lykkjur), 3 lykkjur slétt, 5-8-11-14-17-20 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með M.1 tvisvar sinnum á hæðina. Aðrar lykkjur halda áfram með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið síðan M.2 yfir M.1 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar lykkjufjöldinn er sem minnstur eru 39-43-47-51-55-59 lykkjur á prjóni. Þegar M.2 er lokið eru 47-51-55-59-63-67 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með M.3 yfir M.2 til loka (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm prjónið 2 umferðir fram og til baka einungis yfir 5 lykkjur garðaprjón á kanti að framan (þetta er gert til að hálsmálið falli betur að). Haldið síðan áfram að prjóna yfir allar lykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 7-8-9-10-11-12 sinnum og síðan í 4. Hverri umferð 5 sinnum í öllum stærðum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki. Þegar öll úrtaka og affelling hefur verið gerð til loka fyrir handveg og hálsmáli eru 27 lykkjur á prjóni. Haldið áfram að prjóna samkvæmt mynstri. Þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir M.3 = 23 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum meðfram kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ERMI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 49-51-53-55-57-59 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í báðum hliðum) á prjón 4 með Nepal. Prjónið 3 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 21-22-23-24-25-26 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 21-22-23-24-25-26 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 5, næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 12-13-14-15-16-17 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1, 3 lykkjur slétt, 12-13-14-15-16-17 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með M.1 einu sinni á hæðina, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Eftir M.1 er prjónað M.2 og síðan M.3 til loka (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin innan við kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 6-6-5-4-3½-3 cm millibili alls 6-6-7-8-9-10 sinnum = 65-67-71-75-79-83 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-4-5-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 57 cm, að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 58 cm í öllum stærðum. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 17 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 123-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.