Mary skrifaði:
I do not understand why I am to end on the wrong side when working both left and right front pieces before placing the 6 central stitches on a holder. The last row for the neckline cannot be the wrongside for both pieces as they are mirror images of each other.
15.04.2010 - 06:43
Guro skrifaði:
Dette burde jo står mye før. Også under montering, der hvor det står at skuldersømmene skal sys sammen. Bare min mening.
08.04.2010 - 16:05
DROPS Design skrifaði:
Helt i slutten ved heklekanten står det "Sy et lite sting for å feste den høyre siden av splitten bak den venstre".
06.04.2010 - 09:30
Guro skrifaði:
Hvis disse 6 maskene som skal legges opp midt foran, skal legges bak de først 6 maskene. Som det blir svart den 10.02.2010 av Drops design. Hvorfor står ikke det i oppskriften da? For det ser ikke sånn ut på bilde - der ser det ut til at disse 12 maskene midt foran er ved siden av hverandre.
03.04.2010 - 14:09
Jacqueline skrifaði:
Ziet er fantastisch uit. Ben van plan hem te gaan maken
18.03.2010 - 22:20
DROPS Design skrifaði:
All patterns are free to print from our website! Just click the link under the picture.
08.03.2010 - 19:58
Linda skrifaði:
La bordure blanche de ce pull ajoute un élément féminin et délicat. J'ai hâte d'être capable de le tricoter.
07.03.2010 - 23:45Krissu skrifaði:
Where do I get the instruction to knit it? It is a very beautiful sweater.
07.03.2010 - 12:42
Reidun Sandal skrifaði:
Lurer også på disse 6 maskene som skal legges opp midt foran. Hadde det ikke vært finere å strikke riller over 12 masker midt foran en omg, for så å dele til hals med 6 m på hver side?
02.03.2010 - 10:20
Laila N. Rindal skrifaði:
Nydelig design!
02.03.2010 - 01:45
Jane Austen#janeaustensweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa með hettu í sléttprjóni og hekluðum kanti úr 1 þræði DROPS Paris eða 2 þráðum DROPS Alpaca. Stærð S-XXXL.
DROPS 120-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MÆLING: Vegna þyngdar á garninu verður að öll mæling að gerast þegar stykkinu er haldið uppi, annar verður flíkin allt of löng þegar hún er mátuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 204-216-232-248-264-284 l á hringprjóna nr 5 með 1 þræði í litnum gráblár Paris eða 2 þráðum í litnum gráfjólublár Alpaca. Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið sléttprjón hringinn yfir allar l. LESIÐ MÆLING! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 36 cm í öllum stærðum er skipt yfir á hringprjóna nr 3,5. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 prjónamerki eftir 102-108-116-124-132-142 l. Prjónið nú 14 umf garðaprjón á hæðina, JAFNFRAMT í umf 1 er prjónað þannig: 11-14-18-22-28-33 l garðaprjón, 2 l slétt saman þar til 11-14-18-22-28-33 l eru eftir á undan 1. prjónamerki, 22-28-36-44-56-66 l garðaprjón, 2 l slétt saman þar til eftir eru 11-14-18-22-28-33 l innan við 2. prjónamerki, garðaprjón yfir þær 11-14-18-22-28-33 l sem eftir eru = 124-136-152-168-188-208 l. Þegar prjónaðar hafa verið 14 umf með garðaprjóni á hæðina er prjónuð 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er aukið út um 12 l jafnt yfir í öllum stærðum, aukið út með ca 9-10-11-12-14-16 l millibili (passið uppá að auknar eru út 6 l hvoru megin við prjónamerki) 136-148-164-180-200-220 l. Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 45-46-47-48-49-50 cm er prjónað þannig: Prjónið 31-34-38-42-47-52 l með sléttprjóni, 6 l garðaprjón, snúið við (héðan er nú prjónað fram og til baka), prjónið 6 l garðaprjón, prjónið sléttprjón yfir þær l sem eftir eru, fitjið upp 6 nýjar l við miðju að framan = 142-154-170-186-206-226 l. Haldið áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón við miðju að framan í hvorri hlið. JAFNFRAMT í næstu umf er fellt af 6 l fyrir handveg í hvorri hlið (fellt er af 3 l hvoru megin við hvort prjónamerki). Hvert stykki er nú prjónað til loka fyrir sig. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 34-37-41-45-50-55 l. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í byrjun hverrar umf frá hlið þannig: Fellið af 2 l 1-2-3-4-6-8 sinnum og 1 l 1-1-2-3-4-4 sinnum = 31-32-33-34-34-35 l. Þegar stykkið mælist 58-60-61-63-64-66 cm (passið uppá að síðasta umf er frá röngu) setjið 6 l í garðaprjóni við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í byrjun umf við miðju að framan þannig: Felli af 5-6-6-6-6-7 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum og 1 l 1 sinni = 15-15-16-17-17-17 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. ATH! Passið uppá að síðasta umf á undan úrtöku fyrir hálsmáli er frá röngu eins og á vinstra framstykki. BAKSTYKKI: = 62-68-76-84-94-104 l. Haldið áfram að fella af fyrir handveg í hvorri hlið á sama hátt og á framstykki = 56-58-60-62-62-64 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 62-64-66-68-70-72 cm fellið af miðju 24-26-26-26-26-28 l af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 15-15-16-17-17-17 l. Fellið af þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-74 cm. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. HETTA: Prjónið upp 64-68-71-71-78-78 l (meðtaldar l af þræði) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði í litnum gráblár Paris eða 2 þráðum í litnum gráfjólublár Alpaca. Prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka á hringprjóna. Prjónið nú næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 20-22-23-23-26-26 l, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sléttprjón *, endurtakið frá *-* alls 12-12-13-13-14-14 sinnum, endið á 20-22-23-23-26-26 l sléttprjón og 6 l garðaprjón = 76-80-84-84-92-92 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br. Haldið áfram í sléttprjóni með 6 l garðaprjón í hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 34-34-35-35-36-36 cm. Leggið hettuna tvöfalda saman og saumið hana saman efst á toppnum. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 42-44-46-48-50-50 l á sokkaprjóna nr 5 með 1 þræði í litnum gráblár Paris eða 2 þráðum í litnum gráfjólublár Alpaca. Prjónið 2 umf garðaprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Prjónið nú sléttprjón. Þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-2½-2½-2-1½-1 cm millibili alls 6-8-9-10-12-14 sinnum = 54-60-64-68-74-78 l. Þegar stykkið mælist 30-29-29-28-27-25 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellið af 6 l við miðju undir ermi (fellt er af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Prjónið nú stykkið fram og til baka, JAFNFRAMT er haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 l 2-2-2-2-3-3 sinnum, 1 l 3-5-6-7-7-9 sinnum, fellið síðan af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 38-38-39-39-40-40 cm. Fellið af 3 l 1 sinni í hvorri hlið. Fellið af. Saumið ermar í. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með heklunál nr 4 með 1 þræði í litnum natur Paris eða 2 þráðum í litnum natur Alpaca í hring á neðri kanti á fram- og bakstykki þannig: Heklið 1 fl, * 4 ll, 1 st í 1. ll, hoppið yfir 2 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í 1. fl. Heklið á sama hátt í kringum ermar, í kringum hettu og niður opi á hálsmáli. Saumið lítið spor til þess að festa hægri hlið á opi við hálsmáli fyrir aftan það vinstra. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #janeaustensweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 120-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.