Hélène ESCANDE skrifaði:
Bonjour, j 'ai enfin compris ce problème de symétrie de couleur !! je viens préciser que la symétrie parfaite n'arrive qu'au 11ieme rang du M1, après la 1ière diminution de l'encolure. Veuillez excuser mon insistance !! et merci pour ce que vous faites
13.06.2025 - 08:28
Hélène ESCANDE skrifaði:
Merci beaucoup pour votre réponse !! Vous m'indiquez une nouvelle fois la technique bien comprise ! Considérant que l'axe de symétrie est le devant, la partie gauche n'est pas la même que la partie droite pour la position des couleurs bien-sûr !!... Pas grave : on ne doit pas se comprendre !! Merci quand même
10.06.2025 - 10:27
Hélène ESCANDE skrifaði:
Bonjour, J'ai la même réflexion de Mme Preschey !! Je ne vois pas la symétrie !! Au départ j'ai 1 lisière + 6 noires +1 blanche A l'arrivée j'ai 1 blanche +5 noires +1 lisière Je ne vois pas la symétrie !! Eclairez moi Merci
08.06.2025 - 10:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Escande, lorsque vous répétez les mailles de A.1, il va vous rester 2 mailles à la fin du rang, tricotez la 1ère maille de A.1 (vu sur l'endroit), et terminez par 1 m lisière (pensez à bien lire les diagrammes de bas en haut, autrement dit, M.1 se tricote en commençant par 11 mailles, puis on diminue aux endroits indiqués dans chaque M.1 pour terminer par 4 mailles dans chaque A.1). Bon tricot!
09.06.2025 - 10:02
PRESCHEY skrifaði:
Bonjour Pour effectuer l'empiècement, arrivé en coloris noir une fois les diminutions faites, restent 388 m. Le diagramme est de 11m + 1 m lisière à chacune des extrémités . 11 m X 35 fois le digramme = 387 m . + 2 m lisières = 389 m . Que dois-je comprendre ? Pouvez-vous m'éclairer ? Merci pour votre retour
19.03.2025 - 15:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Preschey, tricotez ces 388 mailles ainsi: 1 m lisière, puis répétez 35 fois les 11 mailles de M.1 (385 m), tricotez la 1ère maille de M.1 (pour que le motif soit symétrique) et 1 m lisière soit 1+385+1+1=388. Bon tricot!
20.03.2025 - 09:06
Sally skrifaði:
When I click on the picture for the pattern, it is a short sleeved top, but the pattern is for a cardigan. How do I find instructions for the top please
13.03.2025 - 17:16DROPS Design svaraði:
Hi Sally, There is no short sleeved top corresponding to this pattern. Write "short sleeved top" in the search box and our range of patterns for tops will come up, which you can then choose from. Happy crafting!
13.03.2025 - 17:45
Lauren skrifaði:
Hi. Can I ask which method you used for the cast on? Is it the Italian CO or just an long tail CO?
05.03.2025 - 09:13DROPS Design svaraði:
Dear Lauren, we usually use the continental method but feel free to use your favorite cast-on method, just make sure it's not too tight to avoid a tight edge. Happy knitting!
05.03.2025 - 13:38
Lauren skrifaði:
Hello. I don’t see a black color in DROPS glitter yarn. Is it not on sale anymore? If it’s no longer on sale, what yarn can I use instead?
30.01.2025 - 07:41DROPS Design svaraði:
Dear Lauren, DROPS Glitter is not available anymore in black, you can use instead gold or silver, or just keep it away, Glitter is a very thin thread that doesn't alter the tension. Happy knitting!
30.01.2025 - 10:23
VICKY skrifaði:
Merci pour votre réponse Bonne journée
10.01.2025 - 13:08
Vicky skrifaði:
Bonjour, Pourquoi monter les mailles avec 2 fils de couleur différentes, les côtes sont unies . et jusquà l'empiècement Merci pour votre aide
09.01.2025 - 18:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Vicky, on tricote ici avec 1 fil Fabel noir + 1 fil Glitter = 1 fil tout fin qui apporte juste de la brillance sans surépaisseur, vous pouvez aussi tricoter simplement avec 1 fil Alpaca tant que vous avez la bonne tension. Bon tricot!
10.01.2025 - 08:07
Helene skrifaði:
Hej! Jag tänkte sticka mönstret som en tröja istället för en kofta som ”dropsfan gallery” bilderna, men undrar hur jag ska göra med framstycket . Är det bara att upprepa mönsterrapporten eller måste jag lägga till/dra ifrån maskor från mönstret för att mönstret ska bli rätt? Stickar i storlek L, alternativt XL.
09.01.2025 - 18:11DROPS Design svaraði:
Hei Helene. Sjekk maskeantallet i str. L uten stolpemaskene og rätst og se om diagrammet går opp og at det er like mange masker foran og bak. mvh DROPS design
13.01.2025 - 13:34
Winter Fantasy |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með mynstri og hringlaga berustykki úr DROPS Alpaca og DROPS Glitter. Stærð S til XXXL. Prjónaðir háir sokkar úr DROPS Fabel með sama mynstri. Stærð 35-43.
DROPS 116-1 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2– Mynsturteikningin sýnir mynstur frá réttu og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri. Sokkarnir eru ekki prjónaðir með Glitter. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l sl saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, 2 l snúnar sl saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 8-9-9 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 7-8-8 l eru eftir, 2 l snúnar sl saman, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 7-8-8 l eru eftir, 2 l br saman, snúið við. Haldið svona áfram með úrtöku með því að prjóna þar til eftir er 1 l færri í hvert skipti, áður en prjónaðar eru 2 l saman, þar til 14-14-16 l eru eftir á prjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 314-354-394-434-474-514 l á hringprjóna nr 2,5 með 1 þræði í litnum svartur Alpaca + 1 þræði Glitter. Prjónið stroff (umf 1 = rétta): Prjónið 1 kantlykkju með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 2 l sl / 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: Prjónið 2 l sl, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stroffið mælist 2 cm. Fækkið nú öllum 3 l br að 2 l br (séð frá réttu) = 252-284-316-348-380-412 l. Haldið áfram með stroff = 2 l sl / 2 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 12 cm er fækkað öllum 2 l br að 1 l br (séð frá réttu) = 190-214-238-262-286-310 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm er næsta umf prjónuð þannig frá réttu: Prjónið 41-47-54-59-65-71 l (= framstykki), fellið af 12 l fyrir handveg, 84-96-106-120-132-144 l (= bakstykki), fellið af 12 l fyrir handveg, 41-47-54-59-65-71 l (= framstykki) = 166-190-214-238-262-286 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 80-80-80-88-88-88 l á sokkaprjóna nr 2,5 með 1 þræði í litnum svartur Alpaca + 1 1 þræði Glitter. Prjóni stroff = 2 l sl / 2 l br. Þegar stykkið mælist 10 cm er fækkað öllum 2 l br að 1 l br = 60-60-60-66-66-66 l. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf. Skiptið yfir á sokkaprjón nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 11-11-11-14-14-14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju undir ermi, endurtakið útaukningu með 4½-3½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 8-11-14-13-15-17 sinnum = 76-82-88-92-96-100 l. Þegar stykkið mælist 48 cm er fellt af 12 l við miðju undir ermi = 64-70-76-80-84-88 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 3 eins og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 294-330-366-398-430-462 l. Prjónið 3-5-9-13-15-17 umf sléttprjón með litnum svartur Alpaca + Glitter – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 5-8-11-10-9-8 l jafnt yfir = 289-322-355-388-421-454 l. Nú er prjónað og lykkjum fækkað eftir M.1 (umf 1 = rétta) með 1 kantlykkju í hvorri hlið, næst síðasta l í umf er prjónuð eins og fyrsta M.1 en ekki fella af í þessari l. Eftir úrtöku eru 107-119-131-143-155-167 l á prjóni og stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm upp að öxl. Prjónið 1 umf í litnum natur ( frá röngu) og fækkið um 15-19-23-27-31-35 l jafnt yfir = 92-100-108-116-124-132 l. Prjónið nú upphækkun að aftan í litnum natur þannig: Prjónið 56-60-64-68-72-76 l, snúið við, prjónið 20 l, snúið við, prjónið 30 l, snúið við, prjónið 40 l, haldið svona áfram að prjóna 10 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til prjónað hefur verið yfir alls 60-80-80-100-120 l, snúið við og prjónið úr umf, prjónið 1 umf til baka yfir allar l, setjið l á þráð. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp um 180 til 212 l (deilanlegt með 4) innan við 1 kantlykkju meðfram vinstra framstykki með 1 þræði í litnum svartur Alpaca + 1 þræði Glitter á hringprjóna nr 2,5. Prjónið stroff (umf 1 = ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l br /2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br þar til stroffið mælist 3 cm, fellið laust af. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið á sama hátt og vinstri kantur að framan en eftir 1 cm er fellt af fyrir 9 hnappagötum jafnt yfir (hnappagötin eru felld af í brugðnum einingunum séð frá réttu). 1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2 l br og sláið 1 sinni uppá prjóninn – neðsta hnappagatið á að vera í annarri brugðnu einingunni frá neðri kanti og efsta ca 6 cm frá efri kanti (það á líka að fella af fyrir 1 hnappagati í hálsmáli). HÁLSMÁL: Hálsmálið er prjónað með 1 þræð í litnum svartur Alpaca + 1 þræði Glitter á hringprjóna nr 2,5 þannig: Prjónið upp 8 l yfir hægri kant að framan (innan við 1 kantlykkju), prjónið inn þær 92-100-108-116-124-132 l af þræði í kringum hálsmál og prjónið upp 8 l yfir vinstri kant að framan = 108-116-124-132-140-148 l. Prjónið 1 umf br frá röngu jafnframt er aukið út um 20 l jafnt yfir = 128-136-144-152-160-168 l. Prjónið nú stroff (frá réttu) þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, *2 l sl /2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með sl yfir sl og br yfir br. Þegar hálsmálið mælist 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati fyrir ofan hin sem eru í kanti að framan. Þegar hálsmálið mælist 3 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. Saumið saman op undir ermum. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 108-108-116 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum natur. Prjónið stroff = 2 l sl / 2 l br í 8 cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón – JAFNFRAMT sem fækkað er um 20 l jafnt yfir = 88-88-96 l. Haldið áfram með M.2. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar M.2 hefur verið prjónað mælist stykkið ca 21 cm. Setjið eitt prjónamerki í stykkið í byrjun umf. Haldið áfram í sléttprjóni og litinn svartur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA, endurtakið úrtöku í 4.- 5.- 5. hverri umf alls 16-14-16 sinnum = 56-60-64 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 42-44-46 cm, haldið eftir fyrstu 28-30-32 l á prjóni fyrir hæl og síðustu 28-30-32 l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Haldið áfram í sléttprjóni fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm. Setjið 1 prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 13-14-16 l hvoru megin við hæl og 28-30-32 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 68-72-80 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 28-30-32 l ofan á fæti. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 l Á UNDAN fyrra prjónamerki snúnar slétt saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og prjónið saman 2 fyrstu l Á EFTIR seinna prjónamerki á fæti slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 8-8-10 sinnum = 52-56-60 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 18-19-22 cm frá prjónamerki á hæl (= ca 4-5-5 cm að loka máli). Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 26-28-30 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin þannig: Á UNDAN prjónamerki: Prjónið 2 l slétt saman. Á EFTIR prjónamerki: Prjónið 2 l snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-5-5 sinnum og síðan í hverri umf alls 7-7-8 sinnum = 8 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 116-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.