Stine skrifaði:
Jeg regner med at det er riktig, men vil forsikre meg om at fellingen i sidene ikke skjer midt inne i perlemønstret, men nærmere baken fordi den har 2x6 flere masker etter fellingen i skrittet? Det er bare min forkjærlighet for symetri (som det forsåvidt likevel blir) som gjør at jeg spør. Takk på forhånd :)
01.11.2014 - 20:39DROPS Design svaraði:
Hej Stine, når du sætter de sidste 2 mærketråde (i hver side) så skal du have lige mange masker mellem alle 4 mærketråde. Det betyder at du skal have lige mange masker på forstykket som bagstykket når du har lukket af til ærmegab. God fornøjelse!
03.11.2014 - 10:38
Anna skrifaði:
Dziękuję:)
25.08.2014 - 15:25
DROPS Design skrifaði:
Polskie tłumaczenie gotowe :-)
24.08.2014 - 18:05
Anna Kirstine skrifaði:
Hej. Tusind tak for svar. Jeg har vist ikke udtrykt mig så tydeligt kan jeg godt se. Jeg strikker str. 62/68. Når jeg strikker bukserne skal der tages ind midt foran, derefter sættes der mærker i siden så der er 34 m. mellem mærkerne, men fordi man kun tar ind foran bliver mærkerne i siden af bukserne ikke midt i siden af benene. Er det rigtigt?
10.08.2014 - 12:29DROPS Design svaraði:
Du sætter først mærkerne i siderne når du er klar med indtagningen mod midt foran. Mærkerne i siderne markerer hvor du lukker æf til ærmegab.
04.09.2014 - 11:47
Anna Kirstine skrifaði:
Hej. Er det rigtigt at snoningerne ikke er spejlvendte af hinanden på forsiden af benene, men vender til den samme side?
06.08.2014 - 23:05DROPS Design svaraði:
Hej Anne Kirstine. Ja, det er korrekt. Men hvis du selv synes det er pænere kan du altid spejlvende dem. God fornøjelse.
07.08.2014 - 11:57
Anna Kirstine Bendtsen skrifaði:
Hej. Kan det passe at buksedelen ikke skal deles midt i det patentstrikkede sidestykke når det deles til for og bagstykke. Man har jo kun taget ind på forstykket når benene er sat sammen til kroppen.
06.08.2014 - 19:32DROPS Design svaraði:
Hej Anna Kirstine. Jeg kan ikke helt følge dig her. Du deler bukserne på indersiden af benet = starten af pinden, så du deler ved glatstrikkede og ikke strukturmønstret på siden. Eller er det senere i opskriften du mener?
07.08.2014 - 12:05Anna skrifaði:
Can You translate it to polish?
31.07.2014 - 23:29DROPS Design svaraði:
Yes of course. It will be ready after the 10th of August
01.08.2014 - 18:53
Marie skrifaði:
Beim Stricken der Beinchen mit Knöpfen steht: Nach 4 cm von der rechten Seite 1 R. Bündchen stricken und GLEICHZEITIG alle 2 li. auf 3 li. erhöhen. Das ist mir soweit klar. Dann: 1 R. re. auf re. und li. auf li. stricken. Muss ich das schon in der Rückrunde machen oder erst beim nächsten Stricken von rechts und bezieht das die Blenden mit ein oder werden die weiter rechts auf rechts gestrickt?
17.02.2014 - 22:55DROPS Design svaraði:
Liebe Marie, die Anleitung war nicht ganz eindeutig und die Stelle wurde nun aktualisiert. Sie stricken nach der Hin-R mit den Zunahmen (2 M li auf 3 M li) dann in der Rück-R alle M so, wie sie erscheinen (d.h. re M re und li M li), beidseitig die Blenden-M aber weiter kraus re. Dann stricken Sie 1 Hin-R re, in der Sie wie beschrieben zunehmen, dann wechseln Sie zu Nadel Nr. 4,5 und stricken 1 Rück-R re. Viel Spaß beim Stricken!
18.02.2014 - 00:25
DROPS Deutsch skrifaði:
Bei uns ist "glatt" immer glatt rechts (glatt links = glatt mit der linken Seite nach aussen).
16.01.2012 - 09:50
Stephie skrifaði:
Hallo, ich habe eine Frage zur Anleitung "BabyDROPS 17-3". Dort ist in dem Anleitungsteil für das rechte Bein (ohne Knöpfe)folgender Satz zu finden: "1 R. li.stricken. Wie folgt weiterfahren: 7 M. glatt, M1 (=21M.), 2M. glatt...". Jetzt frage ich mich, was mit "glatt" gemeint ist. Glatt rechts, oder glatt links? Auf dem Foto meine ich rechte Maschen zu erahnen, bin mit jedoch unsicher. Kann mir jemand weiterhelfen? Grüße Stephie
14.01.2012 - 15:59
Cream Dream#creamdreamset |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Sett með prjónaðri húfu fyrir börn og buxum með eða án hnappagata á milli skálma úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 17-3 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á kanti framan á skálm. Á hægri skálm er fellt af frá réttu og vinstri skálm frá röngu. 1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar skálmin mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 2, 5, 9, 12 og 16 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 2, 7, 12, 16 og 20 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 2, 7, 12, 17 og 23 cm. STÆRÐ 2 ára: 2, 7, 12, 17, 22 og 27 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 2, 8, 14, 20, 26 og 32 cm. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2: Öll úrtaka er gerð frá réttu innan við 3 lykkjur garðaprjón með því að prjóna saman 2 lykkjur brugðið. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÆGRI SKÁLM (án hnappagata): Fitjið upp 32-36-40 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 cm stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru allar 2 lykkjur brugðið auknar út til 3 lykkjur brugðið = 40-45-50 (55-60) lykkjur. Prjónið 1 umferð = 2 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 30-29-30 (33-32) lykkjur jafnt yfir = 70-74-80 (88-92) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð (= innan á skálm). Prjónið 1 umferð brugðið. Haldið áfram þannig: 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón, M.1 (= 21 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, M.3 yfir næstu 10-14-18 (24-26) lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 21 lykkjur) og 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-19-22 (26-31) cm skiptist stykkið að innanverðu á skálm og áfram er prjónað fram og til baka (þetta er gert til að auðveldara verði að setja inn skálmarnar á saman hringprjón í lokin). Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið til að sauma í = 72-76-82 (90-94) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af kantlykkjum í hvorri hlið og geymið stykkið. VINSTRI SKÁLM (án hnappagata): Prjónið á sama hátt og hægri skálm. HÆGRI SKÁLM (með hnappagötum): Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 38-42-46 (50-54) lykkjur á hringprjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið (umferð 1 = rétta) 4 lykkjur garðaprjón (= kantur fyrir hnappagöt) – sjá GARÐAPRJÓN að ofan, * 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 4 lykkjur garðaprjón (= kantur fyrir tölur). Prjónið áfram stroffprjón og garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm, fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er prjónuð 1 umferð stroff frá réttu JAFNFRAMT þar sem allar 2 lykkjur brugðið eru auknar út til 3 lykkjur brugðið = 45-50-55 (60-65) lykkjur. Prjónið 1 umferð til baka með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið og garðaprjón í hvorri hlið. Prjónið síðan 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 33-32-33 (36-35) lykkjur jafnt yfir (ekki er aukið út yfir 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið) = 78-82-88 (96-100) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur. Haldið svona áfram: 4 lykkjur garðaprjón, 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón, M.1 (= 21 lykkjur), 2 lykkjur sléttprjón, M.3 yfir næstu 10-14-18 (24-26) lykkjur, 2 lykkjur sléttprjón, M.2 (= 21 lykkjur), 7-7-8 (9-10) lykkjur sléttprjón og 4 lykkjur garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið = 70-74-80 (88-92) lykkjur. Geymið stykkið. VINSTRI SKÁLM (með hnappagötum): Prjónið á sama hátt og hægri skálm, en með hnappagötum í gagnstæðri hlið. BUXUR: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjón 4,5 = 140-148-160 (176-184) lykkjur og setjið eitt prjónamerki í miðju að framan og eitt prjónamerki í miðju að aftan. Núna byrjar umferðin við miðju að aftan. Haldið áfram með mynstur eins og áður – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6 sinnum = 128-136-148 (164-172) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið = 32-34-37 (41-43) lykkjur á milli allra 4 prjónamerkja. Þegar stykkið mælist 39-47-55 (60-65) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið yfir 12 lykkjur í hvorri hlið (= 6 lykkjur í hvorri hlið við prjónamerkin í hliðum) – aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af miðju 6 lykkjur í hvorri hlið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. FRAMSTYKKI: = 58-62-68 (76-80) lykkjur. Prjónið eins og áður en 3 ystu lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju fyrir handveg í hvorri hlið – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 – í annarri hverri umferð alls 1-3-5 (6-6) sinnum = 56-56-58 (64-68) lykkjur. Haldið áfram með mynstur með 3 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 45-54-63 (68-74) cm fellið af miðju 8-8-10 (12-14) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hveri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 20-20-20 (22-23) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 49-58-67 (73-79) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 14-14-14 (16-17) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. BAKSTYKKI: = 58-62-68 (76-80) lykkjur. Prjónið mynstur og fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki = 56-56-58 (64-68) lykkjur. (ATH: Þar sem það eru fleiri lykkjur í sléttprjóni við miðju að aftan miðað við miðju að framan, fellið af lengra inn fyrir handveg á mynstri að aftan, þ.e.a.s. að mynstur á öxl að framan og að aftan verði ekki eins). Þegar stykkið mælist 48-57-66 (72-78) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig = 20-20-20 (22-23) lykkjur. Þegar stykkið mælist 49-58-67 (73-79) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 14-14-14 (16-17) lykkjur. Setjið lykkjur á þráð. FRÁGANGUR: KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ FRAMAN: Prjónið upp ca 32 til 44 lykkjur (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli að framan á hringprjón 3,5. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 lykkja garðaprjón, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 lykkju garðaprjón. Haldið áfram með stroff fram og til baka í 2 cm, fellið af. KANTUR Í HÁLSMÁLI AÐ AFTAN: Prjónið upp ca 28 til 36 lykkjur (deilanlegt með 4) meðfram hálsmáli að aftan á hringprjón 3,5. Prjónið eins og kantur í hálsmáli að framan. ÖXL AÐ FRAMAN: Setjið inn lykkjur af þræði frá annarri öxlinni á 1 sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur meðfram kanti í hálsmáli = 18-18-18 (20-21) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt fram og til baka. Í næstu umferð er fellt af fyrir hnappagötum frá réttu þannig: 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 9-9-9 (11-12) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt. Prjónið 3 umferðir slétt til viðbótar, fellið síðan af. Endurtakið meðfram hinni öxlinni að framan. ÖXL AÐ AFTAN: Setjið lykkjur af þræði frá annarri öxlinni á 1 sokkaprjón 3,5, prjónið að auki upp 4 lykkjur í kanti í hálsmáli = 18-18-18 (20-21) lykkjur. Prjónið 7 umferðir slétt fram og til baka, fellið af. Endurtakið meðfram hinni öxlinni að aftan. FRÁGANGUR (án hnappagata á milli skálma): Saumið saman efst að innanverðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan opið á milli skálma – framstykki að bakstykki. Saumið tölur í axlir. FRÁGANGUR (með tölur á milli skálma): Saumið saman kanta með hnappagötum efst á framhlið á skálm og kant fyrir tölur efst á bakhlið á skálm. Saumið tölur í, í kant fyrir tölur á milli skálma og saumið tölur í axlir. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp á topp. HÚFA: Fitjið upp 84-90-96 (102-108) lykkjur á hringprjón nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið nú stroff = 3 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið í 3 cm. Prjónið nú 1 umferð slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 9-10-11 (12-13) lykkjur jafnt yfir = 75-80-85 (90-95) lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón nr 4. Prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið. Setjið 5 prjónamerki í stykkið með 15-16-17 (18-19) lykkju millibili. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvert prjónamerki, endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 6-6-6 (7-7) sinnum – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 = 15-20-25 (20-25) lykkjur. Prjónið saman allar lykkjur 2 og 2, klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 14-15-16 (18-19) cm. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #creamdreamset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-3
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.