DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 16-2
DROPS Design: Mynstur nr ME-008-by
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
GALLI:
250-250-300 (350-400) g nr 01, natur.

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5 (40 cm fyrir 2 minnstu stærðirnar og 60 cm fyrir 3 stærri stærðirnar) – eða þá stærð sem þarf til að 20 l x 26 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA NR 503: 12-12-12 (14-14) st.

ALPAHÚFA:
Höfuðmál: 40/42-44/46-46/48 (48/50-50/52) cm
50-50-100 (100-100) g nr 01, natur.

DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 42 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5544.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚTAUKNING (á við um basker /alpahúfu):
Aukið út með því að slá uppá prjóninn, til þess að koma í veg fyrir göt er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umf (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á kanti framan á skálm. Á hægri skálm er fellt af frá réttu og á vinstri skálm er fellt af frá röngu.
1 HNAPPAGAT = Prjónið aðra og þriðju l frá kanti slétt saman og sláið uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagati þegar skálmin mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 2, 5, 8, 11 og 14 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 2, 6, 10, 14 og 18 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 2, 6, 11, 16 og 21 cm.
STÆRÐ 2 ára: 2, 6, 10, 14, 18 og 23 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 2, 7, 12, 17, 22 og 28 cm.
----------------------------------------------------------

GALLI:

HÆGRI SKÁLM:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 47-53-53 (59-65) l á hringprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf br frá röngu. Prjónið síðan frá réttu þannig: 4 l GARÐAPRJÓN – sjá skýringu að ofan – (kantur fyrir hnappagöt), stroff = 3 l sl/3 l br yfir næstu 36-42-42 (48-54) l, endið á 3 l sl og 4 l garðaprjón (= kantur fyrir tölur). Prjónið síðan áfram alveg eins með stroffi og garðaprjóni í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 2 cm er fellt af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 5 cm eru prjónaðar 2 umf slétt yfir allar l – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 11-13-9 (11-13) l jafnt yfir = 36-40-44 (48-52) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Haldið áfram í sléttprjón og 4 l garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 4 l garðaprjón. Endurtakið útaukningu í 3.-3.-4. ( 4.-4.) umf alls 9-10-11 (12-13) sinnum = 54-60-66 (72-78) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-30) cm fellið af 4 l í hvorri hlið = 46-52-58 (64-70) l. Geymið stykkið.

VINSTRI SKÁLM:
Prjónið eins og hægri, en með hnappagötin á gagnstæðri hlið.

BUXUR:
Setjið skálmarnar á sama hringprjón = 92-104-116 (128-140) l. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið = 46-52-58 (64-70) l á milli prjónamerkja. Næsta umf er prjónuð þannig – byrjið á vinstri hlið á stykkinu: 18-21-24 (27-30) l sléttprjón, 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l (= 4 l sl), 2 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l (= 4 l), 2 l br og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru = 96-108-120 (132-144) l. Næsta umf er prjónuð þannig: 18-21-24 (27-30) l sléttprjón, 2 l br, M.1, 2 l br, M.2, 2 l br og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 38-46-54 (59-66) cm. Þá skiptist stykkið við hliðarmerkin og fram- og bakstykki eru prjónuð til loka fyrir sig. ATH: Passið uppá að skipta stykkinu þannig að kaðlaumferðirnar í M.1 og M.2 verði á réttunni.

FRAMSTYKKI:
= 50-56-62 (68-74) l. Haldið áfram í sléttprjón og kaðla – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar l í hvorri hlið fyrir ermar. Fitjið upp í lok hverrar umf í hvorri hlið: 4 l 2-1-1 (1-1) sinnum, 6 l 0-1-1 (2-1) sinnum, 8 l 1-1-1 (1-2) sinnum og 9-9-13 (16-21) l 1 sinni = 100-110-124 (148-168) l. Nýjar l eru prjónaðar í sléttprjóni.

Þegar stykkið mælist 44-53-61 (67-75) cm prjónið l yfir 2 kaðlana saman tvær og tvær = 96-106-120 (144-164) l. Í næstu umf eru miðju l 10-10-12 (14-16) l settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL/ERMI:
Haldið áfram að prjóna eins og áður – JAFNFRAMT er fellt af í byrjun á hverri umf frá hálsi: 2 l 1 sinni og 1 l 2 sinnum = 39-44-50 (61-70) l á öxl/ermi. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 46-55-64 (70-78) cm er byrjað að prjóna garðaprjón yfir fyrstu 12-13-14 (15-16) l frá hálsi að öxl (aðrar l eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umf með garðaprjón er fellt af fyrir 4 hnappagötum frá réttu þannig. 2 l sl saman, sláið uppá prjóninn, 5-6-7 (8-9) l sl, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn. Prjónið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir fyrstu 12-13-14 (15-16) l í hálsmáli þar til stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm, fellið af.

VINSTRI ÖXL/ERMI:
Prjónið og fellið af fyrir hálsmáli eins og á hægri öxl, nema gagnstætt = 39-44-50 (61-70) l á öxl/ermi. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm, fellið af.

BAKSTYKKI:
= 46-52-58 (64-70) l. Fitjið upp nýjar l á hliðum fyrir ermar eins og á framstykki = 96-106-120 (144-164) l. Þegar stykkið mælist 46-55-64 (70-78) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) l fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig.

HÆGRI ÖXL/ERMI:
= 40-45-51 (62-71) l. Fellið síðan af 1 l í næstu umf frá hálsi = 39-44-50 (61-70) l. Þegar stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm fellið af fyrstu 27-31-36 (46-54) l neðst á ermi. Prjónið síðan 1½ cm í sléttprjóni og 1 l garðaprjóni í hvorri hlið yfir þær 12-13-14 (15-16) l sem eftir eru (= kantur fyrir tölur). Prjónið síðan 1 umf slétt frá röngu yfir allar l áður en fellt er af með sléttu frá réttu.

VINSTRI ÖXL/ERMI: Prjónið og fellið af fyrir hálsmáli eins og á hægri öxl, nema gagnstætt = 39-44-50 (61-70) l á öxl/ermi. Haldið síðan áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 48-57-66 (72-80) cm, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma með lykkjuspori – á hægri öxl/ermi er einungis saumað fram að kanti fyrir tölur.

STROFF:
Takið upp 38-44-50 (50-56) l á prjóna nr 3,5 neðst á annarri erminni. Prjónið 2 umf slétt, haldið áfram með stroff = 3 l sl/3 l br með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fellið af þegar stroffið mælist 5 cm.
Endurtakið á hinni erminni. Saumið sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 48 til 64 l í kringum háls (meðtaldar l af bandi að framan) á prjóna nr 4,5.
Prjónið 3 umf slétt, fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman kanta fyrir hnappagöt efst á framhlið á skálm og kant af fyrir tölur efst á bakhlið á skálm. Saumið tölur í kant á milli skálma og á öxl.
----------------------------------------------------------

ALPAHÚFA:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 90-92-94 (96-98) l á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 l sl/1 l br í 2 cm. Haldið áfram með slétt í hverri umf (= garðaprjón) – JAFNFRAMT í umf 1 er fækkað um 5-7-4 (6-3) l jafnt yfir = 85-85-90 (90-95) l. Setjið síðan 5 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: Fyrsta prjónamerkið er sett á eftir 1 l, næstu 4 prjónamerkin eru sett með 17-17-18 (18-19) l millibili, nú eru 16-16-17 (17-18) l á eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l vinstra megin við öll prjónamerkin – SJÁ ÚTAUKNING – að ofan. Endurtakið útaukningu í annarri hverri umf alls 6-7-8 (9-10) sinnum = 115-120-130 (135-145) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6½-7-7½ (8-8½) cm fækkið um 1 l vinstra megin við öll prjónamerkin með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 18-19-20 (21-22) sinnum = 25-25-30 (30-35) l eftir á prjóni. Prjónið allar l tvær og tvær saman, klippið frá og þræðiði þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Saumið húfuna saman að aftan yst í lykkjubogann.
Húfan mælist ca 15-16-17 (18-19) cm.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 16-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (133)

country flag Janni Platz Sthyr wrote:

Hej hvordan skal jeg forsætte når jeg skal til bukserne jeg forstår det ikke

05.04.2024 - 11:22

country flag Kerstin Debor wrote:

In der Anleitung wird leider nicht erklärt, dass die Beine schon geschlossen gestrickt werden müssen, in Runden also. Bitte um Rückmeldung.

04.04.2024 - 10:29

DROPS Design answered:

Liebe Frau Debor, bei diesem Modell werden die Beinen nicht zusammen gestrickt, da es eine Öffnung mit Knöpfe bei den Beinen gibt, so haben Sie beide Beine "frei" und nicht zusammen wie beim Video (im Video sind die Beinen in Runden gestrickt, nicht bei diesem Anzug). Viel Spaß beim Stricken!

04.04.2024 - 15:23

country flag Kerstin Debor wrote:

Wie stricke ich beide hosenbeine zusammen ? Die Anleitung ist leider nicht sehr verständlich. Welches Hosenbein kommt zuerst auf die Nadel, stricke ich in Runden.

03.04.2024 - 20:48

DROPS Design answered:

Liebe Frau Debora, stricken Sie die Maschen vom 1. Bein (beide sind gleich) und stricken Sie dann sofort die Maschen vom 2. Bein, dann stricken Sie bis die Hälfte vom 1. Bein, hier beginnen jetzt die Runden. In diesem Video zeigen wird wie man 2 Beine zusammen strickt, sie sind im Video in der Runde gestrickt, zusammenstricken wird das gleiche sein. Viel Spaß beim Stricken!

04.04.2024 - 08:23

country flag Rajshree Tandon wrote:

.Please help with . Work next round as follows: 18-21-24 (27-30) stocking sts, P2, M.1, P2, M.2, P2 and work remaining sts in stocking st. Continue like this until piece measures 38-46-54 (59-66) cm. .This means we are increasing the stitches.So how much should be the stitches after completing the length.

10.12.2023 - 16:47

DROPS Design answered:

Dear Rajshree, there are no increases. M.1 refers to the chart for the cables, which can be found next to the measurements chart after the pattern instructions. As you can see, before this round you have 96-108-120 (132-144) sts. And when you divide for the front and back when the piece measures 38-46-54 (59-66) cm you will have 50-56-62 (68-74) sts for the front piece + 46-52-58 (64-70) sts for the back piece, which adds up to the 96-108-120 (132-144) sts before. Happy knitting!

10.12.2023 - 21:04

country flag Mary wrote:

Pattern little lamb drops baby 16-2..I forgot to put that info in my question about the body once joining both legs, do you join in the round..I’m thinking NOT, BECAUSE you say to do stockinette stitch..but then the cable pattern doesn’t came out in the right place on the front

11.11.2023 - 20:21

DROPS Design answered:

Dear Mary, yes, after joining the legs you work in the round: you can still work in stocking stitch in the round. Simply knit all rounds. You should start the round in the left side of the body, that is, in the marker inserted in the left side of the body. Happy knitting!

12.11.2023 - 21:14

country flag Mary wrote:

When it says K2P2 in the next 2 stitches(=4) are we increasing two stitches here somehow…

07.11.2023 - 02:04

DROPS Design answered:

Hi Mary, You purl 2, then knit 2 in each of the next 2 stitches (so 2 stitches become 4), then purl 2, knit 2 in each of the next 2 stitches, purl 2, then work stocking stitch. Hope this helps and happy knitting!

07.11.2023 - 06:44

country flag Guneet Guram wrote:

Hi, So after putting both legs on 1 needle I have got 116 stitches(12-18 mths size). Now it says knit 24 and then increase as per instructions.Then it says knit remaining 120 stitches. There were only 116 stitches to begin with. We have already knit 24 stitches and then 10 stitches increased to 14. We only have 84 stitches left. So?? Please clarify. Sorry if u have already answered this in some other language. Thanks

03.10.2023 - 07:20

DROPS Design answered:

Dear Mrs Guram, after increasing you will have 120 sts. Just increase the 4 sts as explained in the pattern and knit the remaining stitches of the round. The "=" here means "there are now 120 sts on needle". Happy knitting!

03.10.2023 - 08:15

country flag Uschi wrote:

Beine Gr 50/56: Zu Rundstricknadel Nr. 4,5, wechseln und glatt mit 4 M. Kraussrippe auf beiden Seiten weiter stricken – GLEICHZEITIG nach 6 cm innerhalb der 4 M. Kraussrippe je 1 M. aufnehmen und bei jeder 3.-3.-4. (4.-4.) R. total 9-10-11 (12-13) Mal wiederholen = 54-60-66 (72-78) M. Soll innerhalb der 4 Krausre M zugenommen werden? Oder danach in gl re M? Sonst hätte ich ja 13 M Blende, das sieht auf den Fotos anders aus... Wie stimmt?

13.04.2023 - 15:40

DROPS Design answered:

Liebe Uschi, die Zunahmen sind gleichzeitg innerhalb 4 Maschen gestrickt, dh so: die 4 ersten Maschen kraus rechts stricken, 1 Masche zunehmen, dann stricken bis 4 Maschen übrig sind, 1 Masche zunehmen, die letzten 4 Maschen stricken. Die Zunahmen werden glatt rechts gestrickt (es sind immer noch 4 Maschen kraus rechts beidseitig). Viel Spaß beim stricken!

13.04.2023 - 16:39

country flag Ruth Strehle wrote:

Zur Baskenmütze: nachdem ich nach den Zunahmen 130 M auf der Nadel habe, beziehen sich dann die 7 cm auf die Gesamtlänge, ab Anfang oder ab dem Bündchen von 2cm ?

28.01.2023 - 22:25

DROPS Design answered:

Liebe Frau Strehle, die 7,5 cm messen Sie ab der Anschlagskante. Viel Spaß beim stricken!

30.01.2023 - 09:12

country flag Lucie wrote:

Est-il possible sans trop de difficulté de tricoter une taille 9/12 mois ? Des conseils ?

21.01.2023 - 13:31

DROPS Design answered:

Bonjour Lucie, ce modèle existe soit en taille 6/9 mois soit en taille 12/18 mois, mesurez un vêtement similaire que l'enfant porte et comparez ces mesures à celles du schéma, vous pourrez ainsi choisir la taille la plus appropriée. Bon tricot!

23.01.2023 - 08:54