Angie C skrifaði:
Just wondering if anyone has joined the backs using 3 needle cast off instead of sewing them together?
13.02.2019 - 01:04DROPS Design svaraði:
Dear Angie, we have no information if anyone did that, however it is a good idea, you can certainly try. Happy Knitting!
13.02.2019 - 01:36
Angie C skrifaði:
I am totally enjoying myself working on the Killian jacket! I had a few tense moments trying to figure out the neck decreases---thought I had to work decreases on the 10 stitches on the holder until I finally got it! Unravelling 16 rows was a bummer but it's all a learning experience and I'm having a blast! Thanks so much for a really interesting and challenging pattern!
13.02.2019 - 01:01
Cindy skrifaði:
The light bulb just went off! So easy. I’m embarrassed I struggled for a whole day over this.
12.08.2018 - 22:23
Cindy skrifaði:
Thank you for additional help. Am I to increase at both sides of the body piece? The directions do not say to do that.
12.08.2018 - 22:09DROPS Design svaraði:
Dear Cindy, see Increasing tip-1: you have to increase 1 st on each side of st with marker every other row. Happy knitting!
12.08.2018 - 22:27
Cindy skrifaði:
I’m having difficulty understanding section, Body Piece. Is the stitch marker placed at the second stitch from the last cast on stitch?
12.08.2018 - 05:01DROPS Design svaraði:
Dear Cindy, you have to work one row from right side and at the end of this row you have to cast on the number of sts indicated. Then you have to work a return row from wrong side. Finally, again on the right side, you put a marker in the second stitch, so the marker is at the opposite side of the new cast on sts. Happy knitting!
12.08.2018 - 17:17
Dorte Bonnerup skrifaði:
Jeg skal montere bukserne, men synes ikke vejledningen er helt skarp. Skal hvert ben sys sammen øverst langs kantmaskerne på de to "delte" centimeter, så hvert ben bliver de 2 cm længere, eller skal de aflukkede 5 masker på det ene bens forside sys sammen med de 5 aflukkede masker på det andet bens forside og det samme på bagsiden - hvorefter for og bag sys sammen i åbningen mellem benene?
31.03.2018 - 13:34DROPS Design svaraði:
Hei Dorte De 2 cm på toppen av hvert ben skal sys sammen innenfor kantmasken. Den totale lengden på benet er medregnet de 2 cm. Videre skal de avfelte maskene sys sammen slik: forstykke på det ene benet skal sys sammen med forstykke på det andre benet. Det samme gjelder bakstykket. Du får da en søm som går mellom bena fra baksiden til forsiden. God fornøyelse
05.04.2018 - 13:37
Jennie Lee skrifaði:
I have loved your patterns for years and have been able to download relevant patterns to go back and use time and time again. Please help as I can no longer download and keep. Many thanks Jennie
07.03.2018 - 19:04DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Lee, we successfully could print this pattern, you may have to check your browser/printer settings. Happy knitting!
08.03.2018 - 09:02
Vignal Chantal skrifaði:
Bonjour, le devant droit se présente comme une pointe plus longue que le dos, et les 47m tricotées ne sont plus dans l' alignement de la bordure du devant. Que faire avec cette partie?Que signifie plier en double à l' épaule pour mesurer le devant par rapport au dos?
18.11.2017 - 04:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Vignal, le devant doit ressembler au schéma, la ligne pointillé en diagonale à partir de la manche correspond à la maille avec le marqueur (les augmentations se font de part et d'autre de cette maille). Pour vérifier la hauteur, pliez l'ouvrage le long de la ligne pointillé de la manche (= milieu manche et épaule) et vérifiez que le devant soit aussi long que le dos. Bon tricot!
20.11.2017 - 08:33
Bine skrifaði:
Ein ganz tolles Jäckchen ist das!!! Mir ist allerdings auch nicht klar, was gemeint ist, wenn es beim Ärmel heißt: auf beiden Seiten aufnehmen. Soll ich eine Masche nach der ersten und vor der letzten M zunehmen? Oder wo genau, bitte? Denn bei Tipps zum Aufnehmen steht: auf beiden Seiten des Markierungsfadens. Aber hier befindet sich ja kein e Markierung.? Danke für eine Antwort
11.08.2017 - 22:20DROPS Design svaraði:
Liebe Bine, ja genau bei den Ärmeln wird es so aufgenommen - TIPP ZUM AUFNEHMEN gilt für später, wenn Sie auf beiden Seiten der Markierungsfaden aufnehmen. Viel Spaß beim stricken!
28.08.2017 - 10:13
Kirsten Labove skrifaði:
Was passiert mit den 10 (o.ä.) Maschen, die auf dem Hilfsfaden verbleiben? Hatte die Maschen liegen lassen und weiter am Vorderteil gestrickt. Musste alles wieder aufmachen, bis dahin, wo die 10 Maschen liegen. Bitte um verständliche Beschreibung. Kirsten Labove
10.05.2017 - 12:52DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Labove, diese Maschen werden für die Halskante gestrickt. Viel Spaß beim stricken!
10.05.2017 - 16:47
Killian#killianset |
||||
|
||||
Sett með prjónaðri peysu fyrir börn í garðaprjóni úr DROPS Fabel og buxur í stroffprjóni úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 18-25 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR (á við um peysu): Aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki, með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Til þess að koma í veg fyrir göt þá er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umferð (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um buxur): Aukið út um 1 l hvoru megin við 2 l sl hvoru megin við prjónamerki, við miðju að aftan. Aukið út með því að prjóna 2 l í 1 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í stroff. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um buxur): Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki fyrir miðju að framan. Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hlið. Prjónið 2 stykki sem saumuð eru saman á baki. Stykkin eru prjónuð frá ermi og að miðju á peysu. HÆGRI HELMINGUR: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 36-38-40 (40-42) l á hringprjóna nr 3 með Fabel. Prjónið sl fram og til baka í öllum umf til loka (= garðaprjón). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 6-6-5 (5-6) cm aukið út um 1 l í hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 8. hverri umf alls 6-7-9 (11-13) sinnum = 48-52-58 (62-68) l. Prjónið þar til stykkið mælist 17-19-20 (25-29) cm – passið uppá að prjóna síðustu umf frá röngu. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið 1 umf sl (= rétta), í lok umf eru fitjaðar upp 41-43-50 (53-58) l (= að bakstykki) = 89-95-108 (115-126) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið 1 umf til baka, snúið við, setjið eitt prjónamerki í 2. l á prjóni frá réttu (= hægri hlið). Prjónið áfram- JAFNFRAMT er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki í annarri hverri umf, alls 38-40-46 (48-50) sinnum – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNINGU. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8½-9-10½ (11-12) cm er einungis prjónað yfir síðustu 60-65-74 (79-86) l á vinstri hlið séð frá réttu (= bakstykki), lykkjurnar sem eru eftir eru settar á þráð. BAKSTYKKI: Prjónið þar til stykkið mælist 13-14-16 (17-18) cm (frá umf þar sem l fyrir bakstykki voru auknar út), fellið af. FRAMSTYKKI: Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn, en látið 9-10-10 (10-12) lykkjur að bakstykki vera áfram á þræði fyrir hálsmál. Haldið áfram með útaukningu í 2. hverri umferð - JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja við hálsmál (= að lykkjum á þræði) í 4. hverri umferð alls 6-7-7 (7-7) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14-15-17 (18-19) cm (frá umf þar sem útaukning á framstykki byrjar og við miðju að framan) fellið af 3-4-4 (5-5) fyrir hnappagötum þannig (frá hálsmáli, þ.e.a.s. frá röngu): Prjónið 2 l, fellið af 2 l, * prjónið 12-9-11 (9-10) l, fellið af 2 l *, endurtakið *-* alls 2-3-3 (4-4) sinnum, prjónið síðan sl út umf. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir allar l sem l voru felldar af. Eftir alla úrtöku og útaukningu eru 90-93-109 (115-121) l á prjóni. Þegar útaukningu í hægri hlið er lokið, fellið af 51-52-62 (66-70) l frá hálsmáli og niður að kanti að framan (fellið af frá röngu) = 39-41-47 (49-51) l eftir á prjóni. Prjónið áfram í garðaprjóni fram og til baka yfir þessar l í ca 1-1-2 (2-3) cm (brjótið stykkið saman tvöfalt við öxl og passið uppá að framstykki sé jafn langt og bakstykki). Fellið af. VINSTRI HELMINGUR: Prjónið á sama hátt og hægri helmingur nema án hnappagata – þetta stykki á að ganga frá með rönguna út. FRÁGANGUR: Leggið 2 stykkin að hverju öðru og saumið saman við miðju að aftan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Brjótið peysuna saman tvöfalda og saumið sauma undir ermum og hliðarsauma í eitt í ysta lykkjubogann. Saumið tölur í. HÁLSMÁL: Prjónið upp 55 til 75 l (meðtaldar l l af þræði) í kringum hálsmál á hringprjón nr 3 með Fabel. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið af. ------------------------------------------------------- BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring, byrjað er að prjóna skálmar. SKÁLM: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið þannig: 1 l sl, * 2 l br/2 l sl *, endurtakið frá *-* endið á 2 l br og 1 l sl. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að prjóna 2 l í 1 l, útauknar lykkjur eru prjónaðar inn í stroff. Endurtakið útaukningu í 5.-6.-8. (9.-12.) hverri umf, alls 8 sinnum = 72-76-80 (84-88) l. Þegar skálmin mælist 16-20-23 (25-33) cm er stykkinu skipt upp við prjónamerki og prjónið áfram fram og til baka – JAFNFRAMT er fitjuð upp 1 ný l í hvorri hlið fyrir saum = 74-78-82 (86-90) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (27-35) cm fellið af 5 l í hvorri hlið (= 1 kantlykkja, 1 l sl, 2 l br og 1 l sl) = 64-68-72 (76-80) l. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. BUXUR: Setjið skálmarnar saman á hringprjóna nr 3 = 128-136-144 (152-160) l. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan og 1 prjónamerki við miðju að aftan (bæði prjónamerkin eiga að vera mitt á milli 2 l sl). Haldið áfram með stroff = 2 l sl/2 l br – JAFNFRAMT er aukið út fyrir aftan og lykkjum fækkað að framan þannig: ÚTAUKNING AÐ AFTAN: Aukið út 2 l að aftan – sjá LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING að ofan. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf, alls 4 sinnum. ÚRTAKA AÐ FRAMAN: Fækkið um 2 l að framan – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 8 sinnum. Eftir alla útaukningu og úrtöku eru 120-128-136 (144-152) l á prjóni. Haldið áfram með stroff þar til stykkið mælist 38-42-47 (52-60) cm, fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman efst á innanverðu á hvorri skálm innan við 1 kantlykkju. Saumið síðan op í klofi saman – framstykki að bakstykki. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #killianset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.