Diana skrifaði:
Ein ganz schicke Jacke!! Hab die Hälfte schon fertig (in 3 Tagen!). Ich finde es toll, dass die Anleitung für zwei verschiedene Garnstärken geschrieben ist. Ich habe die dünnere Variante gewählt und mußte feststellen, dass die Anleitung für den Rücken einen Rechenfehler enthält (104 Maschen anschlagen, nach 5cm 14 M abnehmen sind doch nicht 80 sondern 90 Maschen!!!) der sich durch den gesamten Rest der Anleitung zieht. Also aufpassen, alles nachrechnen!
01.11.2008 - 10:02
DROPS Design skrifaði:
Yes, cast off 1 stitch and on next row cast on a new one. With this thick yarn that's enough for a hole. 1 button hole = Cast of the 4th st from the edge on the returning row cast on a new st at the same place.
15.10.2008 - 21:58
Sherry skrifaði:
I'm doing the buttonhole and am not sure how to do it, could you explain it in more detail. Am I only casting off 1 stitch and on the return row adding on 1 stitch?
15.10.2008 - 21:34
Diane skrifaði:
Need help understanding this pattern: I am going to make the XXXL; so am I casting on 86 stitches? Or do the 84 include the 2 stitches for the edges? Also I also don’t understand the line that says 2 rows of Rib with 1 edge st and 2 K st on each side; I don’t understand the 2 K st on each side; wouldn’t the last two stitch be purl stitches if you were doing K2, P2?
10.09.2008 - 03:45
DROPS Design skrifaði:
The pattern in SilkeAlpaca follows after the pattern in Eskimo.
04.07.2008 - 22:01
Marilyn skrifaði:
What is the best way to adapt the pattern to the Silke Alpaca gauge?
04.07.2008 - 18:24
DROPS Design skrifaði:
Tina, after casting off for neck you work each side seperately. From RS knit, cast off, knit, turn, knit to opening, turn, cast off 1 st, knit til end of row, turn etc. After casting off for the shoulder, cut thread. Now work the other shoulder the same way as the first side. Do not carry the yarn over at any time.
18.04.2008 - 18:06
Tina skrifaði:
I'm still confused. The pattern says: On the next row cast off 1 more st towards the neck = 20-21-22-21-23-24 sts left for each shoulder Does that mean I'll knit, cast off for the neck, knit and then on the next row knit again, casting off one more stitch for the neck? does that mean that I'll have this empty space where the neck stiches have been cast off that I'll need to carry yarn over in order to get to the other shoulder stitches?
17.04.2008 - 20:38
DROPS Design skrifaði:
Tina, after casting off for neck you work each side seperately. COntinue first with the side where you have the thread. After casting off for the shoulder you work the next side the same way as the first side.
16.04.2008 - 18:58
Tina skrifaði:
Ok... I've read the instructions a couple dozen times over and the one thing that continues to confuse me is this: When the peice measures 51 cm cast off the mid 20 for the nect. on the next row cast off 1 more st towards the neck = left for each shoulder. Does this mean I'll be carrying yarn over an empty space (the neck space)? Thank you for your help! Tina.
15.04.2008 - 04:47
Silver Haze |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Snow, DROPS Nepal eða DROPS Andes með ¾-löngum ermum. Stærð S- XXXL
DROPS 103-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- TVÖFALT PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * Prjónið 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið br yfir br og sl yfir sl. UMFERÐ 3: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* UMFERÐ 4: sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið umf 1-4 áfram upp úr. Athugasemd varðandi mynstur: Tvöfalt perluprjón við miðju að framan kemur til með að dragast aðeins saman þegar prjónað er. Þetta kemur til með að jafna sig þegar flíkin hefur verið prjónuð. STROFF: * Prjónið 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN: Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 4. l frá kanti og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: Stærð S: 33, 40 og 47 cm. Stærð M: 35, 42 og 49 cm. Stærð L: 37, 44 og 51 cm. Stærð XL: 38, 45 og 52 cm. Stærð XXL: 38, 46 og 54 cm. Stærð XXXL: 38, 47 og 56 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Fitjið upp 64-68-72-80-84-88 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með Snow eða Andes. Prjónið 2 umf slétt, prjónið síðan 2 umf STROFF með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu) – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm fellið af 1 l í hvorri hlið með 3½-3½-4½-4-5-5 cm millibili alls 8-8-7-8-7-7 sinnum = 48-52-58-64-70-74 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 0-0-1-2-3-3 sinnum og 1 l 1-2-3-3-3-4 sinnum = 40-42-42-44-46-48 l. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm fellið af miðju 12-12-12-14-14-14 l fyrir hálsmáli, í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 13-14-14-14-15-16 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 39-41-43-49-51-53 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með Snow eða Andes. Prjónið 2 sléttar umf, prjónið síðan 2 umf STROFF- sjá útskýringu að ofan - með 1 kantlykkju og 2 l br í hlið (séð frá réttu). Haldið áfram í sléttprjóni með 14-14-14-16-16-16 l við miðju að framan með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af í hlið á sama hátt og á bakstykki = 31-33-36-41-44-46 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki = 27-28-28-31-32-33 l. Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm fellið af 10 l við miðju við hálsmál. Setjið 1 prjónamerki eftir l sem felldar voru af. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 2-2-2-3-3-3 sinnum og 1 l 0-0-0-1-1-1 sinnum = 13-14-14-14-15-16 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan. ERMI: Tölur sem gefnar eru upp sem eru á undan () eiga við um ¾-stuttar ermar og tölur sem eru innan í () eiga við um langar ermar. Fitjið upp 34-34-34-38-38-38 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 8 með Snow eða Andes. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm er haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 11 (25) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 9-6-4½-6-4-2½ cm millibili alls 3-4-5-4-5-7 sinnum = 40-42-44-46-48-52 l. Þegar stykkið mælist 34-33-32-31-29-28 (49-48-47-46-44-43) cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 1 sinni og 1 l 2-3-4-4-6-7 sinnum, haldið áfram með úrtöku og fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 40 (55) cm, að lokum er fellt af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og síðan eru felldar af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 42 (57) cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. KRAGI: Prjónið upp ca 24-28 l á milli prjónamerkja við útröku fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. prjónið ekki upp þær 10 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan). Prjónið 2 umf slétt – í síðustu umf er aukið út um 10 l jafnt yfir = 34-38 l. Prjónið nú TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan með 1 l garðaprjón í hvorri hlið. Jafnframt er aukið út um 2 l í hvorum kanti að framan þannig: Aukið út með því að prjóna 2 l í síðustu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn sem prjónaður er snúinn í umf til baka (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í TVÖFALT PERLUPRJÓN. Aukið út um 2 l í byrjun hverrar umf alls 6 sinnum í hvorri hlið = 24 auka l = 58-62 l alls. Fellið af þegar kraginn mælist 12 cm við miðju að aftan. FRÁGANGUR: Saumið kragann við miðju að framan í hvorri hlið kant í kant, þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru saumaðar við þær 10 l sem felldar voru af í hvorri hlið. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. ________________________________________ DROPS NEPAL: PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 96-104-112-124-132-136 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 2 umf slétt, prjónið síðan 2 umf STROFF með 1 kantlykkju og 2 l sl í hvorri hlið (séð frá réttu) – sjá útskýringu að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 5 cm fellið af 1 l í hvorri hlið með 2½-2½-2½-2½-2½-3 cm millibili alls 11-12-12-13-12-11 sinnum = 74-80-88-98-108-114 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handvegi í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1-1-1-2-2-2 sinnum, 2 l 0-1-2-3-4-5 sinnum og 1 l 3-3-4-3-4-4 sinnum = 62-64-66-68-72-74 l. Þegar stykkið mælist 51-53-55-57-59-61 cm fellið af miðju 20-20-20-24-24-24 l fyrir hálsmáli, í næstu umf er felld af 1 l við hálsmál = 20-21-22-21-23-24 l eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp 59-63-67-75-79-81 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið 2 sléttar umf, prjónið síðan 2 umf STROFF- sjá útskýringu að ofan - með 1 kantlykkju og 2 l br í hlið (séð frá réttu). Haldið áfram í sléttprjóni með 22-22-22-26-26-26 l við miðju að framan með TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 5 cm er fellt af í hlið á sama hátt og á bakstykki = 48-51-55-62-67-70 l. Þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm fellið af fyrir handvegi í hlið á sama hátt og á bakstykki = 42-43-44-47-49-50 l. Þegar stykkið mælist 49-51-53-54-56-58 cm fellið af 16 l við miðju við hálsmál. Setjið 1 prjónamerki eftir l sem felldar voru af. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 2-2-2-4-4-4 sinnum og 1 l 2 sinnum = 20-21-22-21-23-24 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema spegilmynd. Fellt er af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan. ERMI: Tölur sem gefnar eru upp sem eru á undan () eiga við um ¾-stuttar ermar og tölur sem eru innan í () eiga við um langar ermar. Fitjið upp 50-50-54-54-58-58 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4,5 með Nepal. Prjónið TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 10 cm er haldið áfram í sléttprjóni. Jafnframt þegar stykkið mælist 11 (25) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 5-3-3-2-2-1½ cm millibili alls 5-7-7-9-9-11 sinnum = 60-64-68-72-76-80 l. Þegar stykkið mælist 34-33-32-31-29-28 (49-48-47-46-44-43) cm fellið af fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 3 l 1 sinni, 2 l 3 sinnum og 1 l 1-2-3-4-6-7 sinnum, haldið áfram með úrtöku og fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 41 (56) cm, að lokum eru felldar af 3 l 1 sinni í hvorri hlið og síðan eru felldar af þær l sem eftir eru. Stykkið mælist ca 42 (57) cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið axlarsauma. KRAGI: Prjónið upp ca 36-42 l á milli prjónamerkja við útröku fyrir hálsmáli (þ.e.a.s. prjónið ekki upp þær 16 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan). Prjónið 2 umf slétt – í síðustu umf er aukið út um 12 l jafnt yfir = 48-54 l. Prjónið nú TVÖFALT PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan með 1 l garðaprjón í hvorri hlið. Jafnframt er aukið út um 2 l í hvorum kanti að framan þannig: Aukið út með því að prjóna 2 l í síðustu l, sláið 1 sinni uppá prjóninn sem prjónaður er snúinn í umf til baka (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í TVÖFALT PERLUPRJÓN. Aukið út um 2 l í byrjun hverrar umf alls 9 sinnum í hvorri hlið = 36 auka l = 84-90 l alls. Fellið af þegar kraginn mælist 12 cm við miðju að aftan. FRÁGANGUR: Saumið kragann við miðju að framan í hvorri hlið kant í kant, þ.e.a.s. útauknar lykkjur eru saumaðar við þær 16 l sem felldar voru af í hvorri hlið. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 103-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.