DROPS Design skrifaði:
Hei! Jakken strikkes i glattstrikk med vrangen ut, mens flettene strikkes i glattstrikk med retten ut. Slik at når du sier at du får fine fletter på vrangen, så er dette retten! Hvis du ser i diagrammet så står det at flettene (4 m) strikkes rett fra retten og vrang fra vrangen, mens partiet mellom flettene skal strikkes vrang fra retten og rett fra vrangen. Lykke til! Mvh DROPS
13.11.2007 - 11:46
Nina skrifaði:
Hei Jeg får ikke helt til flettene i denne oppskriften, tror jeg. Synes det ser ut som om det blir fine fletter på vrangen og bare "klumper" på retten. Er dette bare pga at flettene er i rillestrikk på fremsiden så det er vanskelig å se?
11.11.2007 - 16:05
Inger Øra skrifaði:
Hei. Jeg har strikket jakken i str 1/3 mnd. Jeg mener det må være en feil i mønsteret når det gjelder ermet: M2B på slutten av omg må sløyfes, ellers blir det 2 fletter ved siden av hverandre! Ellers ble jakken fin.
06.03.2007 - 13:06
Drops Design skrifaði:
Hei! Det skal være 63 totalt med stolpemaskene. Hvis du synes den er litt stram i halsen kan du felle av med f.eks pinne nr. 3,5 - da vil den bli litt løsere. Lykke til! Mvh Drops Design/Garnstudio.
08.02.2007 - 14:52
Malin skrifaði:
Jeg strikker jakken i str 1/3 mnd. Jeg er helt på slutten av bærestykket og har avsluttet mønsteret. Jeg skal da felle jevnt fordelt til 63 m, det skal ikke felles over stolpen. Det jeg lurer på er om de 63 m er medregnet stolpemaskene, eller om det totalt skal være 73 m? Jeg syns det ble litt trangt i halsen, men det kan være fordi jeg ikke strikket løst nok. Hilsen Malin
24.01.2007 - 10:18Eva skrifaði:
Fargen var aldeles nydelig! Og jakken hadde en flott fasong. Denne likte jeg godt
23.03.2006 - 17:19
camilla skrifaði:
dejligt med gammelt nostalgisk baby strik i nyt design
21.03.2006 - 16:42
Helle skrifaði:
Meget kær - og i en skøn farve.
15.03.2006 - 19:35Elena skrifaði:
Fantastiskt söt kofta som man kan sticka matchande praktiska vantar till med snöre!
15.03.2006 - 12:55Elena skrifaði:
Fantastiskt söt kofta som man kan sticka matchande praktiska vantar till med snöre!
15.03.2006 - 12:55
Lille Trille#lilletrilleset |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og köðlum, húfa með dúsk, vettlingar og sokkar úr DROPS Alpaca. Stærð 1 - 3 ára.
DROPS Baby 14-2 |
||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu þannig: Prjónið 2. og 3. l frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt). Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 5, 12, 19 og 26,5 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 7, 14, 21 og 28,5 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 8, 16, 24 og 32,5 cm. STÆRÐ 2/3 ára: 9, 16, 23, 30 og 37,5 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 179-199-213 (246) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umf garðaprjón (umf 1 = rétta), prjónið nú 1 umf sléttprjón, þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka – JAFNFRAMT í þessari umf er aukið út um 15-15-17 (20) l jafnt yfir (aukið ekki út yfir l í kanti að framan) = 194-214-230 (266) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 kantlykkjur, M.1B (= 4 l), M.1A yfir næstu 180-200-216 (252) l (veldu rétta stærð, á röngu er mynstrið lesið frá vinstri til hægri) og endið á 5 kantlykkjum. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-5-5 (6) cm er fækkað um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna 2 miðju l br saman (séð frá réttu). Endurtakið úrtöku með 3½-3½-4½ (5) cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 10-12-10 (10) br l eftir í hverri mynstureiningu = 154-174-182 (210) l á prjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (23) cm prjónið næstu umf þannig: Prjónið 39-43-45 (52) m (= framstykki), fellið af 6-8-8 (8) l fyrir handvegi, prjónið 64-72-76 (90) l (= bakstykki), fellið af 6-8-8 (8) l fyrir handvegi og prjónið þær 39-43-45 (52) sem eftir eru (= framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Fitjið upp 40-42-44 (48) l skipt á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 5 cm, prjónið síðan 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-18 (20) l jafnt yfir í umf = 44-48-62 (68) l. Næsta umf er prjónuð þannig – munið eftir mynstri í réttri stærð: STÆRÐ 1/3 mán: M.2B (= 4 l), 4 l br, M.2A yfir næstu 28 l, M.2B (= 4 l) og 4 l br. STÆRÐ 6/9 mán: M.2B (= 4 l), 4 l br, M.2A yfir næstu 32 l, M.2B (= 4 l) og 4 l br. STÆRÐ 12/18 mán: 1 l br, M.2A yfir næstu 56 l, M.2B (= 4 l) og 1 l br. STÆRÐ 2/3 ára: M.2B (= 4 l), 2 l br, M.2A yfir næstu 56 l, M.2B (= 4 l) og 2 l br. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og látið prjónamerkið fylgja með stykkinu (í stærð 1/3 mán + 6/9 mán + 2/3 ára er prjónamerkið sett mitt í fyrsta kaðal í umf) = miðja undir ermi. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er frá að ofan – jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi (í stærð 1/3 mán + 6/9 mán + 2/3 ára er aukið út um 1 l hvoru megin við kaðal við miðju undir ermi). Aukið út um 2 l alls 5-8-5 (9) sinnum í stærð 1/3 mán: í 6. hverri umf, stærð 6/9 mán: Í 5. hverri umf, stærð 12/18 mán: Í 8. hverri umf, stærð 2/3 ára: Í 7. hverri umf = 54-64-72 (86) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Þegar stykkið mælist 15-17-17 (24) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð í sömu umf í mynstri eins og á fram- og bakstykki þannig að mynstur heldur áfram í sömu umf þegar framstykki, bakstykki og ermar eru settar saman – fellið af 6-8-8 (8) l miðja undir ermi = 48-56-64 (78) l eftir á prjóni. Prjónið aðra ermi á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 238-270-294 (350) l. Nú eiga að vera 10-12-10 (10) l br (séð frá réttu) milli kaðla umf hringinn. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið 3 eða 4 umf áður en úrtaka byrjar (í stærð 2/3 ára eru prjónaðar 7 eða 8 umf) – passið uppá að 1. umf með úrtöku er gerð frá réttu. Fækkið nú um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna 2 miðju l br saman frá réttu. Fellið af í 6. hverri umf 0-0-6 (8) sinnum, í 4. hverri umf: 8-8-2 (0) sinnum og síðan í annarri hverri umf: 0-2-0 (0) sinnum. Eftir síðustu úrtöku eru 2 l br á milli kaðla alla umf hringinn og það eru 110-110-134 (158) l á prjóni. Endið mynstur þegar prjónuð hefur verið 1 umf á eftir köðlum. Nú er prjónuð 1 umf slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 63-65-69 (73) l (ekki fækka lykkjum yfir kant að að framan). Prjónið 3 umf slétt, prjónið nú gatakant frá réttu þannig: Prjónið 5 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið á 4 l sl. Prjónið 2 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá röngu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. Brjótið upp neðstu 5 cm á hvorri ermi og saumið niður með nokkrum smáum sporum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. HÚFA: Fitjið laust upp 104-109-114 (120) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN (sjá útskýringu að ofan). Þegar stykkið mælist 5-6-6 (7) cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (merkir uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 5-6-6 (7) cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 112-128-126 (140) l í umf. Prjónið nú M.2a (munið eftir að fylgja réttri stærð í mynstri). Þegar stykkið mælist 12-12-14 (16) cm fækkið um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna saman 2 miðju l br í hverri umf (í síðasta skipti er 1 l br prjónuð saman með 1 l sl) þar til 32-32-36 (40) l eru eftir á prjóni. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 15-16-17 (19) cm frá prjónamerki. FRÁGANGUR: Brjótið kantinn í garðaprjóni tvöfaldan við réttu við prjónamerki og saumið niður í hvorri hlið með nokkrum smáum sporum – saumið að innan/röngu svo að sporin sjáist ekki frá réttu. DÚSKUR: Gerið 1 dúsk ca 5-6 cm að þvermáli og festið efst á húfuna. ------------------------------------------------------- VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.Tvær stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumalfingur, þær 2 minni stærðirnar eru án þumalfingurs. VETTLINGUR: Fitjið laust upp 34-36-36 (38) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4 (2) l jafnt yfir = 28-32-32 (36) l. Prjónið nú stroff 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 4-4-5 (6) cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 32-36-36 (40) l – setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og eftir 16-18-18 (20) l – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Prjónið nú br l jafnframt er mynstur M.3 prjónað yfir miðju 12 l ofan á hönd (fyrstu 16-18-18 (20) l í umf = ofan á hönd) – ör í mynstri merkir miðju. TVÆR STÆRSTU STÆRÐIR: Jafnframt eftir 1 (2) cm í mynstri eru 5 (6) síðustu l í umf settar á þráð fyrir þumalfingur. Fitjið upp 5 (6) nýjar l yfir l af þræði í næstu umf. ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 6-7-8 (9) cm – stillið af að prjónaðar séu 1 eða 2 umf á eftir snúning á kaðli – fækkið um 8-9-9 (10) l jafnt yfir í annarri hverri umf alls 3 sinnum = 8-9-9 (10) l eftir (fækkið um 1 lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman). Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. ÞUMALFINGUR: Setjið 5 (6) l af þræði til baka á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 7 (8) l í kantinn yfir þær = 12 (14) l alls. Prjónið umf br þar til þumalfingurinn mælist 3 (4) cm. Prjónið síðan allar l saman 2 og 2. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að. Prjónið annan vettling á sama hátt, en þumalfingurinn er prjónaður í gagnstæða hlið (á við um 2 stærstu stærðir). SNÚRA: Fitjið upp 4 l á prjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið túbuprjón þannig: * Prjónið 1 l sl, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (að þér), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, leggið þráðinn fyrir aftan stykkið (frá þér) *, endurtakið frá *-* í öllum umf þar til snúran er með lengd barns frá úlnlið til úlnliðs = ca 62-67-74 (86 til 96) cm. Fellið af og saumið snúruna að innan verðu á hvorum vettlingi. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-52 (56) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan stroff með 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 8-8-9 (10) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-8 (8) l jafnt yfir = 40-40-44 (48) l. Prjónið nú hæl þannig: Prjónið 3-3½-3½ (4½) cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-16 (18) við miðju að aftan. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 = rétta: Prjónið 9-9-9 (10) l sl, 2 l snúnar br saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 3-3-3 (4) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 4-4-4 (5) l sl, 2 l snúnar br saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 5-5-5 (6) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 6-6-6 (7) l sl, 2 l snúnar sl saman, 1 l sl, snúið við. UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 7-7-7 (8) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við. UMFERÐ 7: Prjónið 2 l slétt saman, 6-6-6 (8) l sl, 2 l snúnar sl saman = 8-8-8 (10) l á prjóni (= alls 32-32-36 (40) l). Prjónið upp 7-8-8 (11) l hvoru megin við hællykkjur og setjið allar l á sama prjón = 46-48-52 (62) l. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við efstu 18-20-22 (26) l í annarri hverri umf 7 sinnum = 32-34-38 (48) l. Þegar fóturinn mælist 8-9-9 (11) cm (frá byrjun hælúrtöku) er sett 1 prjónamerki í hvora hlið og lykkjum fækkað fyrir tá. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf (= 4 l færri í hverri umf) alls 7-7-8 (10) sinnum. Þræðið þráðinn í gegnum þær 4-6-6 (8) l sem eftir eru og festið vel. Prjónið annan sokk á sama hátt. ----------------------------------------------------------- TEPPI: DROPS Baby 14-20 HRINGLA: DROPS Baby 13-32 |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #lilletrilleset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-2
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.