Mette Jørgensen skrifaði:
Jeg har strikket ponchoen et par gange til min datter i flere størrelser. Hun har nu ikke brugt den særlig meget, men det er stadig et rigtig fint håndarbejde. Anden gang jeg strikkede den lavede jeg den i rester og jeg synes næsten den blev endnu finere af at farverne skifter.
16.09.2011 - 11:44
Petra skrifaði:
Jag har precis avslutat min tredje ponscho till vår äldsta dotter. Jag älskar den men nu när hon snart är fem räcker ju inte storlekarna i mönstret längre men det var verkligen lätt att öka på detta själv. Ponschon har blivit en stor favorit här hemma som går i arv till lillasyster. Vi har inte märkt att ponschon skulle hindra våra tjejer i deras lekar.
20.11.2010 - 00:36
Françoise skrifaði:
Il est super ce poncho et très facile à faire, j'avais une autre laine, mais comme j'avais une autre laine, je l'ai doublée, le résultat est magnifique, ma petite fille va être adorable, sa maman voulait un poncho depuis un moment. Grands mercis
07.03.2010 - 17:21
Sissel skrifaði:
Jeg har nettopp strikket denne i Alpaca og den var veldig tøyelig. Så jeg vil påstå at det ikke er noe problem for et barn å røre på seg i denne.
18.10.2006 - 05:32
Rita skrifaði:
Hei! Kan noen hjelpe meg med dette? 1. Når man er ferdig med å strikke øverste del av ponchoen med splitt, skal man fortsatt øke på hver andre omg? Eller på hver omgang? 2. Hvordan skal man strikke kast-masken (omgangen etter man har laget den), rett el vrang? Tenkte kanskje man skulle strikke den vrang siden den ble strikket rett på vrang-omgangene tidligere. Takk takk! :-)
10.10.2006 - 09:53
campodabarca skrifaði:
K 4, Yo, K23, Yo, K8, Yo, K23, Yo, K4.
17.09.2006 - 17:56
campodabarca skrifaði:
knit 31 stitches, put marker, knit 31 stitches(62)-3/4 years old. ''Knit stocking sts with the 2 outermost sts each side (mid front) in garter sts. At the same time, increase 4 sts on every other row (= from the right side) as follows: knit 4, 1 yo, 1 yo on each side of the middle 8 sts and 1 yo when there are 4 sts left on needle''......1 edge stitch, knit 4, yo...go till 4 stitches before marker yo, knit 8(4 before and after marker)yo,...knit till 5 stitches before end...yo, knit 4 , 1 edge stitch... slit=marker 2 outermost sts = edge stitches
17.09.2006 - 13:09randi skrifaði:
en søt modell. har ventet en stund på oppskrift på poncho.men har vært en fordel å øke mere masker kansje? litt for trang til ei lita tulle som skal røre på seg. men kjempesøt var den.
16.03.2006 - 15:27
eva holm skrifaði:
hvor er det en skønt sæt - alt skal ikke være så praktisk.
15.03.2006 - 20:47Mii skrifaði:
"Gåbortsfin"!!! =Jättegulligt! ;O)
15.03.2006 - 14:49
Little Sprout#littlesproutset |
|
![]() |
![]() |
Prjónað poncho fyrir börn með dúskum og prjónaðir sokkar úr DROPS Alpaca og hekluð húfa úr DROPS Snow.
DROPS Baby 14-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR (á við um húfu): Fyrsta stuðli í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður með 3 þráðum Alpaca. PONCHO: Fitjið upp 54-56-58 (60-62) l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Alpaca í hverjum lit (= 3 þræðir). Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðjulykkja (= miðja að aftan). Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka frá miðju að framan, haldið áfram fram og til baka (= op efst í hálsmáli) þannig: Prjónið sléttprjón en 2 síðustu l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni í öllum umf. JAFNFRAMT í annarri hverri umf (= rétta í umf með garðaprjóni) aukið út um 4 l þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 8 miðjulykkjur og sláið 1 sinni uppá prjóninn þegar 4 l eru eftir á prjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður í sléttprjóni (það á myndast gat). Þegar stykkið mælist 6-7-8 (9-10) cm endar klauf og haldið er áfram að prjóna í hring – prjónið allar l í sléttprjóni. Haldið áfram að auka út á sama hátt, þ.e.a.s. hvoru megin við 8 miðjulykkjur að framan og við miðjulykkjur að aftan. Nú eru 138-148-158 (168-178) l í umf og prjónuð er 1 umf brugðið, síðan 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í 4. hverja lykkju umf hringinn. Í næstu umf eru allar l felldar af með br. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með Snow og heklunál nr 8 neðst í kringum allt stykkið þannig: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu af 4 ll, hoppið yfir 3 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið umf með 1 kl í fyrstu fl. Heklið í kringum hálsmál og meðfram klauf þannig – (byrjið efst á vinstri hlið á klauf , séð þegar stykkið liggur fyrir framan þig): 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir 2 l/umf, 1 fl í næstu l/umf *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í fyrstu fl. Heklið síðan kant í kringum hálsmál (ekki meðfram opi) þannig: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu af 4 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-*. SNÚRA: Heklið 1 ll-snúru ca 60-65-70 (75-80) cm og þræðið í gegnum 1. hekluðu umf í kringum hálsmál. Gerið 2 litla dúska með Snow ca 4 cm að þvermáli. Festið einn dúsk í hvorn enda á ll-snúrunni. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. HÚFA: Heklið 6 ll, tengið í hring með því að hekla 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 10 st um ll-hringinn – LESIÐ HEKLEIÐBEININGAR! UMFERÐ 2: 1 st í fyrsta st, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 ll og 1 kl í fyrst st í umf. UMFERÐ 3: * 1 st í st, 2 st um ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrsta st í umf (= 30 st). UMFERÐ 4: 1 st í fyrsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrsta st (= 15 st). UMFERÐ 5: Haldið áfram með 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll, en heklið 2 st í 0-2-4 (6-8) st jafnt yfir í umf = 30-32-34 (36-38) st. Heklið 2-3-3 (4-4) v með 1 st í hvern st. Síðasta umf er hekluð þannig: 1 fl í fyrsta st, * 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl í umf. Húfan mælist ca 15-17-17 (19-19) cm á hæðina. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-56 (56) l á prjóna nr 2,5 með 2 þráðum Alpaca. Takið annan þráðinn frá og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 5-6-6 (7) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18 (14) l jafnt yfir = 34-38-38 (42) l. MEÐ GATAUMFERÐ: Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *- og endið með 1 l sl. Prjónið 1 umf br frá röngu. ÁN GATAUMFERÐAR: Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf brugðið frá röngu. Setjið nú síðustu 12-13-13 (15) l í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm í garðaprjóni yfir miðju 10-12-12 (12) l. Setjið l af þráðum aftur á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) l í hvorri hlið um miðju stykki = 54-60-64 (74) l alls á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm í garðaprjóni yfir allar l jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er fækkað um lykkjur í annarri hverri umf til loka þannig: Fækkið um 1 l í byrjun og lok stykkis og prjónið 2 l slétt saman hvoru megin við 2 miðju-l. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þræðið silkiborða í gegnum gataumferðina. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant efst á sokknum með heklunál nr 2,5 og Alpaca þannig: 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, 1 st í fyrstu af 3 ll, 1 fl í hverja af 3 næstu l *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í fl í byrjun umf. Prjónið annan sokk á sama hátt. ---------------------------------------------------------- FROSKUR: Sjá mynstur DROPS baby 13-25 |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlesproutset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.