DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Sprout

Prjónað poncho fyrir börn með dúskum og prjónaðir sokkar úr DROPS Alpaca og hekluð húfa úr DROPS Snow.

DROPS Baby 14-1
DROPS design: Mynstur nr z-048-by
--------------------------------------------------------

Poncho:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)
Mál mælt fyrir miðju að framan: ca 32-34-36 (38-41) cm

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
50-50-50 (100-100) gr litur nr 3140, ljós bleikur
50-50-50 (100-100) gr litur nr 3720, bleikur
50-50-50 (100-100) gr litur nr 7300, lime

Og notið:
DROPS Snow frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) gr litur nr 35, lime

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 14 l x 18 umf með 3 þráðum og sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 8 – fyrir heklaðan kant.

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál: Ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (46/48 - 50/52) cm

Efni:
DROPS Snow frá Garnstudio
50-50-50 (100-100) gr nr 35, lime

DROPS HEKLUNÁL NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 8 st x 5 umf verði 10 x 10 cm.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
50-50-50 (50) gr litur nr 3140, ljós bleikur

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni og 26 l x 52 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3520.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður með 3 þráðum Alpaca.

PONCHO:
Fitjið upp 54-56-58 (60-62) l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði Alpaca í hverjum lit (= 3 þræðir).
Setjið 1 prjónamerki á milli 2 miðjulykkja (= miðja að aftan). Prjónið 2 umf garðaprjón fram og til baka frá miðju að framan, haldið áfram fram og til baka (= op efst í hálsmáli) þannig: Prjónið sléttprjón en 2 síðustu l á hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni í öllum umf.
JAFNFRAMT í annarri hverri umf (= rétta í umf með garðaprjóni) aukið út um 4 l þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4 l, sláið 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 8 miðjulykkjur og sláið 1 sinni uppá prjóninn þegar 4 l eru eftir á prjóni.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður í sléttprjóni (það á myndast gat). Þegar stykkið mælist 6-7-8 (9-10) cm endar klauf og haldið er áfram að prjóna í hring – prjónið allar l í sléttprjóni. Haldið áfram að auka út á sama hátt, þ.e.a.s. hvoru megin við 8 miðjulykkjur að framan og við miðjulykkjur að aftan.
Nú eru 138-148-158 (168-178) l í umf og prjónuð er 1 umf brugðið, síðan 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 1 lykkju í 4. hverja lykkju umf hringinn. Í næstu umf eru allar l felldar af með br.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með Snow og heklunál nr 8 neðst í kringum allt stykkið þannig: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu af 4 ll, hoppið yfir 3 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*, endið umf með 1 kl í fyrstu fl.
Heklið í kringum hálsmál og meðfram klauf þannig – (byrjið efst á vinstri hlið á klauf , séð þegar stykkið liggur fyrir framan þig): 1 fl í fyrstu l, * 1 ll, hoppið yfir 2 l/umf, 1 fl í næstu l/umf *, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í fyrstu fl.
Heklið síðan kant í kringum hálsmál (ekki meðfram opi) þannig: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu af 4 ll, hoppið yfir 1 ll, 1 fl í næstu ll *, endurtakið frá *-*.

SNÚRA:
Heklið 1 ll-snúru ca 60-65-70 (75-80) cm og þræðið í gegnum 1. hekluðu umf í kringum hálsmál.

Gerið 2 litla dúska með Snow ca 4 cm að þvermáli. Festið einn dúsk í hvorn enda á ll-snúrunni.

----------------------------------------------------------

HÚFA:

HEKLLEIÐBEININGAR:
Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er heklað ofan frá og niður.

Heklið 6 ll, tengið í hring með því að hekla 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 10 st um ll-hringinn – LESIÐ HEKLEIÐBEININGAR!
UMFERÐ 2: 1 st í fyrsta st, * 1 ll, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 ll og 1 kl í fyrst st í umf.
UMFERÐ 3: * 1 st í st, 2 st um ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrsta st í umf (= 30 st).
UMFERÐ 4: 1 st í fyrsta st, * 1 ll, hoppið yfir 1 st, 1 st í næsta st *, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið með 1 kl í fyrsta st (= 15 st).
UMFERÐ 5: Haldið áfram með 1 st í hvern st og 1 st um hverja ll, en heklið 2 st í 0-2-4 (6-8) st jafnt yfir í umf = 30-32-34 (36-38) st.
Heklið 2-3-3 (4-4) v með 1 st í hvern st.
Síðasta umf er hekluð þannig: 1 fl í fyrsta st, * 2 ll, hoppið yfir 1 st, 1 fl í næsta st *, endurtakið frá *-*, endið á 1 kl í fyrstu fl í umf.
Húfan mælist ca 15-17-17 (19-19) cm á hæðina.
----------------------------------------------------------

SOKKUR:
Stykkið er prjónað fram og til baka frá miðju að aftan.

Fitjið upp 48-52-56 (56) l á prjóna nr 2,5 með 2 þráðum Alpaca. Takið annan þráðinn frá og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 5-6-6 (7) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá röngu. Prjónið nú 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18 (14) l jafnt yfir = 34-38-38 (42) l.

MEÐ GATAUMFERÐ:
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 1 l sl, * 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *- og endið með 1 l sl. Prjónið 1 umf br frá röngu.

ÁN GATAUMFERÐAR:
Prjónið 1 umf slétt frá réttu og 1 umf brugðið frá röngu.
Setjið nú síðustu 12-13-13 (15) l í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm í garðaprjóni yfir miðju 10-12-12 (12) l. Setjið l af þráðum aftur á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) l í hvorri hlið um miðju stykki = 54-60-64 (74) l alls á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm í garðaprjóni yfir allar l jafnframt eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm er fækkað um lykkjur í annarri hverri umf til loka þannig: Fækkið um 1 l í byrjun og lok stykkis og prjónið 2 l slétt saman hvoru megin við 2 miðju-l. Fellið af og saumið saum undir fæti og upp meðfram miðju að aftan yst í lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Þræðið silkibandi í gegnum gataumferðina.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant efst á sokknum með heklunál nr 2,5 og Alpaca þannig: 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, 1 st í fyrstu af 3 ll, 1 fl í hverja og eina af 3 næstu l *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í fl í byrjun umf.

Prjónið annan sokk alveg eins.
----------------------------------------------------------

FROSKUR:
Sjá mynstur DROPS baby 13-25

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (34)

country flag Lisa wrote:

For the last knit row of the poncho is the increase supposed to be a yarn over or other method? - 'purl 1 round, and then knit 1 round whilst inc 1 st in every 4th st on round. On next round, bind off in purled sts.' Thank you.

02.03.2014 - 05:18

DROPS Design answered:

Dear Lisa, inc with a yo as before, and P yo into back of loop on next round while casting off. Happy knitting!

03.03.2014 - 09:34

country flag Norma Coles wrote:

Used baby Merino as an alternative, which is a gorgeous wool but I've just finished the poncho and there isn't enough of two of the colours to cast off. So the balls must have varying amounts of wool and i don't know what to do. Do I need to buy 2 more balls of wool just to cast off or cast off in one colour?

01.11.2013 - 23:05

country flag Debs Coles wrote:

I'm new to crochet and don't quite work out what "1 dc in 1st st" means? What does the st st stand for? I don't suppose it's meant to be sl st?

13.10.2013 - 20:35

DROPS Design answered:

Dear Gwen, this mean *1 dc in first stitch*, so start crochet border with 1 dc and crochet the border around as stated under written pattern, the video below should help you to crochet the border. Happy crocheting!

14.10.2013 - 09:13

country flag Norma Coles wrote:

The instructions did not point out that when you discontinue the slit and knit all the time, you only make the increases on every other row. I ended up with 178 stitches, ran out of wool and it only measured 23 cms. Unpicking it now!

15.09.2013 - 16:42

country flag Riganides Anne wrote:

Je voudrai realiser ce modele pour une taille d 1 an bonnet et chaussette combien de pelote de laine s v p merci

03.08.2013 - 18:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Riganides, les fournitures pour le bonnet et les chaussons sont indiqués plus bas sur la page, soit 50 g Eskimo pour le bonnet et 50 g Alpaca pour les chaussettes, sur la base d'un échantillon conforme. Bon tricot et bon crochet !

05.08.2013 - 09:10

country flag Maja De Rijke wrote:

Kan ik deze poncho ook met gewone breinalden breien en later aan elkaar zetten? Ik vin het niet makkelijk om met rondbreinaalden te werken.

29.10.2012 - 14:24

DROPS Design answered:

Je zou kunnen doorgaan met heen en weer breien na het afmaken van de split middenvoor (zet dan 1 st op aan beide kant voor de naad), maar de naad komt dan middenvoor en ik denk niet dat het resultaat mooi zal zijn, maar het is te proberen natuurlijk.

01.11.2012 - 15:07

country flag Amanda Lavorini wrote:

Hi, I'm thinking there must be an error in the number of stitches there should be on the round right before you're supposed to bind off and do the crochets edges. Whae I came to have the stated amount, my garment was only 15 cm. What went worng?

17.10.2012 - 17:40

country flag Neveux wrote:

Bonjour, J'aurais voulu savoir si les laines DROPS Alpaca de Garnstudio et DROPS Eskimo de Garnstudio convenaient pour des enfants ? Sont-elles douces, non grattantes et non piquantes ? Merci d'avance pour votre réponse. Cordialement. Marilyne NEVEUX

25.08.2012 - 11:43

DROPS Design answered:

Bonjour Marilyne, nous proposons plusieurs modèles pour bébé et enfant en Alpaca et Eskimo. Pour plus d'informations sur ces qualités, vous pouvez lire les informations sur la page de leurs nuanciers et n'hésitez pas à contacter votre magasin DROPS. Bon tricot !

27.08.2012 - 09:02

country flag FORTEZ Jocelyne wrote:

J'essaye de réaliser le modèle BabyDROPS 14-1. Je viens de contacter un revendeur qui ne peut répondre à mon problème. Sur les explications de ce modèle, il n'y a pas le patron et je me demande si ce que je tricote correspond bien. Je n'ai aucune dimension auxquelles me référer. Merci de m'en donner.

16.02.2012 - 15:48

DROPS Design answered:

Bonjour Jocelyne, il n'existe effectivement aucun schéma pour ce modèle. Si vous avez l'échantillon recommandé, vous obtiendrez la taille choisie en suivant les indications. Bon tricot !

17.02.2012 - 11:09

country flag Mette Jørgensen wrote:

Jeg har strikket ponchoen et par gange til min datter i flere størrelser. Hun har nu ikke brugt den særlig meget, men det er stadig et rigtig fint håndarbejde. Anden gang jeg strikkede den lavede jeg den i rester og jeg synes næsten den blev endnu finere af at farverne skifter.

16.09.2011 - 11:44