Katrine Louise skrifaði:
Hej, Jeg har et par spørgsmål til opskriften: For det første når jeg lukker af, så lukker jeg af kun af i den side jeg starter.. så forstår ikke hvordan jeg skal kunne lukke af i hver side på en pind? Også når jeg har lukket af to gange 5 = 10 m, også 1m tre gange = 3 m, også skal jeg tage 1 m ud i hver side to gange = 4 m.. også skulle der være 29 m tilbage på pinden, det får jeg det bare ikke til - jeg får det til der er 30 m tilbage på pinden.
07.11.2015 - 15:34DROPS Design svaraði:
Hej. Ja det är kanske lite otydligt men du lukker av i början av pinnen. Du har 37 m sen tager du ut 1 m i var sida till sidosöm =39 m. Lukker av 5 m i varje sida 1 gång (10 m), 1 m i varje sida 2 gånger (4 m) och sen tager du ut 1 m i varje sida 2 gånger (4 m). 39-10-4+4= 29 m. Lycka till!
11.11.2015 - 11:58
Sofia skrifaði:
Hei Jeg sliter litt med å tolke fremgangsmåten for ryggstykket... Det er den andre setningen som ikke gir noe mening: "Etter 3 p neste fra retten: 2 r, 2 vr, strikk glstrikk og fell jevnt fordelt til det er 4 m igjen på p, 2 vr, 2 r = 19 (23) 23 (27) m" Jeg skal felle til jeg har fire masker igjen, også har jeg pluteslig 19 masker? Er dette bare veldig feil formulering? Hva skal jeg egentlig gjøre her? -Sofia
15.09.2014 - 17:27DROPS Design svaraði:
Hej Sofia, der er "sket noget" med den norske... vi skal sørge for at få den rettet. Men så længe kan du følge den danske, den stemmer. God fornøjelse!
17.09.2014 - 12:04
Joyce Berwick skrifaði:
Drops 1-81. On cast off for arms holes, it says, each side every other row, 5stiches 1time. Does this mean cast off 5 stitches on ext 2 rows, as you would for arms in other patterns, I just can't understand quite what they are telling you to do. Joyce
09.12.2013 - 17:24DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Berwick, you are correct you will cast of at the beg of each row each side: 5 sts 1 time (= 5 sts at the beg of next 2 rows) and 1 st 2-2-3-3 times. Happy knitting!
10.12.2013 - 09:06
Elli Koivisto skrifaði:
Takakappaleen ohjeessa virhe: "Kun olet neulonut 3 krs, neulo seuraava krs (= oikea puoli) näin: 2 o, 2 n, neulo sileää neuletta ja kavenna samalla tasavälein silmukoita, kunnes työssä on jäljellä 4 s, 2 n, 2 o = 19 (23) 23 (27) s." Alussa on luotu 14 (18) 18 (22) silmukkaa, joten ohjeen pitäisi olla LISÄÄ silmukoita, kunnes työssä on jäljellä 4 s,...
02.12.2012 - 20:35
Gerd skrifaði:
Garnet räcker inte! 5nystan går åt till den största.
16.11.2011 - 13:41
Drops Design skrifaði:
Denne oppsk. finnes bare på dansk og svensk.
31.05.2010 - 09:06
Reidun Andersen skrifaði:
Hei!! Har dere oppskrift til denne genseren den er ikke på siden her...
28.05.2010 - 15:30
Evelina skrifaði:
Blev jättefint i isblå vilket jag gjorde till min svarta hund, dock gick det åt lite mer garn än vad som stod.
16.11.2009 - 11:47
hilde skrifaði:
gjett omm vovvoven min skal få genser nå! så innmari søt, da
29.05.2006 - 11:03
Blue Shadow |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Snow. Stykkið er prjónað frá skotti að hási í sléttprjóni og stroffprjóni. Stærð XS - L.
DROPS Extra 0-81 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar áfram í sléttprjóni efst á bakstykki og í stroffprjóni á magastykki. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá skotti og upp að hálsmáli. Fyrst er bakstykkið prjónað fram og til baka, eftir það er magastykkið prjónað fram og til baka. Stykkin eru síðan sett saman og hálsmálið er prjónað í hring. Bakstykki og magastykki er saumað saman í lokin. BAKSTYKKI: Fitjið upp 14-18-18-22 lykkjur á prjóna 7 með DROPS Snow. Prjónið stroffprjón þannig (fyrsta umferð er frá röngu): Prjónið stroffprjón (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til prjónaðar hafa verið alls 3 umferðir. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): Prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið 6-10-10-14 lykkjur sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 5 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið ÚTAUKNING, endið með 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt = 19-23-23-27 lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir miðjulykkjurnar og 4 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið jafnframt því sem áfram er aukið út innan við 4 lykkjur í stroffprjóni í hvorri hlið í annarri hverri umferð – munið eftir ÚTAUKNING. Endurtakið þessa útaukningu alls 7-7-8-8 sinnum = 33-37-39-43 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-12-14-14 cm fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið, nýjar lykkjur eru prjónaðar í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan = 35-39-41-45 lykkjur. Bakstykki og magastykki er síðar saumað saman í þessar garðaprjónslykkjur. Þegar stykkið mælist 27-31-35-41 cm, prjónið allar lykkjur í sléttprjóni jafnframt því sem lykkjur eru felldar af fyrir opi fyrir framfætur í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: Fellið af 5 lykkjur 1 sinni, 1 lykkju alls 2-2-3-3 sinnum. Prjónið eftir það 2 umferðir þar sem fitjaðar eru upp 2 nýjar lykkjur í hvorri hlið (hér endar op fyrir framfætur) = 25-29-29-33 lykkjur, stykkið mælist ca 33-37-42-48 cm. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón og geymið stykkið. MAGASTYKKI: Fitjið upp 8-8-16-16 lykkjur á sokkaprjóna 6 með DROPS Snow. Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, prjónið stroffprjón (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroffprjón svona fram og til baka þar til stykkið mælist 15-17-20-26 cm, setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, prjónamerkin sýna hvar hvort op fyrir framfætur byrjar og eru síðar notuð fyrir frágang. Prjónið áfram eins og áður þar til stykkið mælist 20-24-28-35 cm. Nú er lykkjum aukið út innan við 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið í annarri hverri umferð þannig: 1 lykkja alls 2 sinnum = 12-12-20-20 lykkjur – munið eftir ÚTAUKNING – nýjar lykkjur eru prjónaðar í stroffprjóni. Magastykkið mælist ca 23-27-31-38 cm. HÁLSMÁL: Nú eru lykkjur frá magastykki og bakstykki settar saman, það á að skipta þeim niður á 4 sokkaprjóna nr 6 þannig: 12-12-20-20 lykkjur frá magastykki eru fyrst settar á prjóninn (1. prjónn), 25-29-29-33 lykkjur frá bakstykki jafnt yfir á hina þrjá sokkaprjónana = 37-41-49-53 lykkjur. Byrjið á að prjóna magastykki: Prjónið 2 lykkju í sléttprjóni, stroffprjón eins og áður yfir næstu 10-10-18-18 lykkjur, 1 lykkja í sléttprjóni (1. prjónn), prjónið sléttprjón og fellið af 1-1-5-5 lykkjur jafnt yfir lykkjur á bakstykki = 36-40-44-48 lykkjur. Nú er prjónuð lítil upphækkun við hálsmál þannig: * Prjónið 12-12-20-20 lykkjur á 1. prjóni eins og áður, snúið stykkinu. Prjónið til baka eins og áður, snúið stykkinu. Prjónið 1 umferð stroffprjón (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) yfir allar lykkjur *, prjónið frá *-* alls 2-2-3-4 sinnum. Setjið eitt prjónamerki til að mæla frá. Prjónið stroffprjón yfir allar lykkjur í 5-7-8-10 cm. Fellið laust af. FRÁGANGUR: Nú á að sauma bakstykki og magastykki saman í hvorri hlið á peysunni. Byrjið á að sauma þar sem fitjuð var upp 1 lykkja í garðaprjóni í hvorri hlið á bakstykki og saumið innan við 1 lykkju garðaprjón meðfram hlið á magastykki og upp að prjónamerki sem var sett í hvorri hlið á magastykki. Þeir cm sem eftir eru á bakstykki og magastykki stykki sem prjóna á upp lykkjur fyrir framfætur. FRAMFÓTUR: Prjónið upp ca 24-28-28-32 lykkjur (deilanlegt með 4) fyrir op fyrir framfætur með sokkaprjóna 6. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) í ca 5-6-7-8 cm. Fellið laust af. Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-81
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.