DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

BFF's Jumper

Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað frá skotti að hálsi í sléttprjóni með röndum og opi á bakstykki. Stærð XS-L.

DROPS Extra 0-84
DROPS Design: Mynstur nr u-011-h
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS –S – M – L

MÁL:
Lengd á bakstykki: ca 25-33-41-50, mælt meðfram baki.
Yfirvídd: ca 34/38 - 44/48 - 54/58 - 58/62 cm.

Dæmi um hundategundir:
XS = Chihuahua, S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel, L = Liten Boxer

GARN:
DROPS Merino Extra Fine Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-100-150-150 g litur 32, dökk bleikur
50-50-50-50 g litur 20, dökk blár

TÖLUR:
DROPS TALA NR 513: 5-6-7-8 stk

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4: Lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: Lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3,5.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í lok umferðar frá réttu þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman og prjónið 2 lykkjur í garðaprjóni. Í næstu umferð (ranga) er uppslátturinn prjónaður slétt, þannig að það myndist gat.
Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu þegar stykkið mælist ca 2½ cm. Eftir það er fellt af fyrir 4-5-6-7 næstu hnappagötum með ca 5-4½-5-5 cm milli hverra hnappagata.

RENDUR:
* 6 umferðir með litnum dökk bleikur, 2 umferðir með litnum dökk blár *, prjónið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka frá skotti og upp, með opi á bakstykki. Fram- og bakstykkið skiptist í 3 stykki, stykkin eru prjónuð fram og til baka þannig að það verði op fyrir framfætur. Eftir það eru stykkin sett saman og berustykkið er prjónað fram og til baka að hálsmáli. Hálsmálið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir op fyrir framfætur sem prjónað er í hring á sokkaprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 78-98-118-126 lykkjur á hringprjón 3,5 með litnum dökk bleikur. Prjónið stroffprjón þannig, fyrsta umferð er frá röngu: 6 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, prjónið stroffprjón (2 lykkjur brugðið / 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur í garðaprjóni.
Prjónið garðaprjón yfir garðaprjón, sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. Prjónið þar til stroffprjón mælist 3 cm.
Setjið eitt prjónamerki mitt í stykkið, stykkið er nú mælt héðan.

Nú á að prjóna fram og til baka í hvorri hlið á stykki svo að peysan fái betra form og passi betur.
Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið næstu umferð frá réttu þannig:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni. Snúið stykkinu.
Vinstri hlið:
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 5-6-7-8 lykkjur brugðið, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3 (rétta): Prjónið slétt þar til 6 lykkjur eru eftir og prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, snúið stykkinu.
Endurtakið umferð 2 og 3 áfram, en í hverri umferð frá röngu er prjónað yfir 5-6-7-8 lykkjur fleiri þar til í síðasta skipti er prjónað yfir 36-42-49-54 lykkjur frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið til baka frá réttu. Snúið stykkinu.
Prjónið 1 umferð yfir allar lykkjur frá röngu eins og áður (sléttprjón með 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið).
Hægri hlið:
UMFERÐ 1 (rétta): Prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, prjónið 5-6-7-8 lykkjur slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið brugðið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið 6 kantlykkjur í garðaprjóni, snúið stykkinu. Endurtakið umferð 1 og 2 áfram, en í hverri umferð frá réttu, prjónið yfir 5-6-7-8 lykkjur fleiri þar til í síðasta skipti er prjónað yfir 36-42-49-54 lykkjur frá réttu. Snúið og prjónið til baka frá röngu.

Nú er prjónað yfir allar lykkjur, haldið áfram í sléttprjóni með 6 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið eins og áður og RENDUR – lesið útskýringu að ofan, munið eftir – HNAPPAGAT.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 5-8-11-13 cm mælt frá prjónamerki sem situr mitt í stykki – stillið af eftir 2 umferð með litnum dökk blár. Prjónið næstu umferð frá réttu þannig: Prjónið 31-37-45-47 lykkjur eins og áður (hægri hlið, bakstykki), fellið af 2 lykkjur fyrir opi fyrir framfót, prjónið 12-20-24-28 lykkjur eins og áður (miðjustykki, magastykki), fellið af 2 lykkjur fyrir op fyrir framfót, prjónið 31-37-45-47 lykkjur eins og áður (vinstri hlið, bakstykki). Nú er stykkið prjónað fram og til baka í stykkjum hvert fyrir sig og héðan er nú stykkið mælt.

VINSTRI HLIÐ (bakstykki):
Haldið áfram í sléttprjóni, garðaprjóni og röndum og fellið af 1 lykkju fyrir opi fyrir framfót í 2. hverri umferð alls 5-6-7-8 sinnum = 26-31-38-39 lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 6-8-10-12 cm frá skiptingu eru lykkjur settar á þráð eða á hjálparprjón.

HÆGRI HLIÐ (bakstykki):
Prjónið á sama hátt og vinstri hlið – stillið af að rendurnar passi við vinstri hlið.

MIÐJUSTYKKI (magastykki):
= 12-20-24-28 lykkjur. Prjónið rendur þar til miðjustykkið mælist ca 9-11-13-15 cm frá skiptingu - stillið af að rendurnar passi við vinstri og hægri hlið. Miðjustykkið er aðeins lengra en hægri og vinstri hlið til að fá meira pláss yfir brjóstið. Nú eru allar lykkjur settar til baka á sama prjón = 64-82-100-106 lykkjur.
Berustykkið er nú mælt héðan.

BERUSTYKKI:
Haldið áfram með rendur, sléttprjón og garðaprjón þar til berustykkið mælist 4-6-8-10 cm frá þar sem stykkið var sett saman. Notið litinn dökk bleikur og byrjið frá réttu. Fellið af fyrstu 6 kantlykkjurnar, prjónið sléttprjón jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 56-76-96-112 lykkjur.

HÁLSMÁL:
Nú er stykkið prjónað í hring frá réttu í litnum dökk bleikur.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-4-6-9 cm. Fellið af aðeins laus með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.
Peysan mælist ca 25-33-41-50 cm mælt meðfram bakstykki.

FRAMFÓTUR:
Notið sokkaprjóna 3,5 og litinn dökk bleikur. Prjónið upp ca 40-52-60-68 lykkjur í kringum op fyrir framfót (lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4) og prjónið hringinn í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í ca 2-4-6-8 cm cm. Fellið af.
Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Þær 6 kantlykkjur sem felldar voru af í annarri hliðinni eru saumaðar niður að innanverðu við hinar kantlykkjurnar þannig að þær skarast. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 07.11.2023
Mynstrið hefur verið endurskoðað og umorðað.

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-84

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (64)

country flag Babs wrote:

Ich kann die Beschreibung auch nicht verstehen. Übersetzung ist sehr schlecht\r\nDies betrifft auch andere Strickanleitungen, welche auch von der Dame übersetzt wurden.

17.11.2023 - 13:22

country flag Sirkka Immonen wrote:

What does it mean in assembly that side seams (in plural) are sown? The garment is open from the back - there are no side seams. Why is there need to leave opening for legs in the "side seams"? The leg holes have already been knitted. A picture would have been helpful.

04.01.2023 - 21:00

DROPS Design answered:

Dear Sirka, the opening for legs are worked whan you divide piece (when casting off 2 sts 2 times for 2 opening for legs) and then continue left side, right side and middle piece separately to the end. Then you have to sew the pieces together leaving 8-9-10-11 cm open for legs, and then work the edge around legs. Happy knitting!

05.01.2023 - 11:01

country flag Angelika wrote:

Ein Strickpulover mit Klettverschluss? Da ist er bald kaputt!

06.12.2022 - 11:03

country flag Alexandra wrote:

Hvilken lengde på rundpinne 4.5 skal det være?

09.08.2022 - 20:59

DROPS Design answered:

Hej Alexandra, arbejdet strikkes frem og tilbage, så du kan strikke på rundp 60 eller 80 cm så du får plads til alle masker :)

10.08.2022 - 07:35

country flag Myricoud Myriam wrote:

Bonjour. J ai des difficultés à visualiser le modèle fini. Je ne comprends pas où l\'ouverture fermée ( velcro ou boutons etc) ce fait est-ce sous le ventre avec une ouverture de 11 cm (pour mon chien)J ai fais le corps, le col, les bordures des pattes. D avance merci de me répondre. Cordialement

20.06.2022 - 14:18

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Myricoud, l'ouverture fermée se trouve au-dessus du dos, autrement dit, vous avez tricoté le ventre (partie centrale) et les côtés (en haut du chien), c'est le long des côtés que vous relèverez les mailles pour tricoter la bordure en côtes 2/2. les coutures sont faites pour coudre les côtés à la partie ventre en laissant l'ouverture pour les pattes à partir de la division. Bonne continuation!

20.06.2022 - 15:20

country flag Evita wrote:

No entiendo este patrón. Ya acabé el tejido principal y no veo manera alguna de que se corresponda con la foto. Y las explicaciones de los remates son muy confusas

13.09.2021 - 11:52

DROPS Design answered:

Hola Evita, puedes concretar cuál es tu pregunta, ¿qué secciones te resultan problemáticas?

19.09.2021 - 22:49

country flag Eliana Bernedo wrote:

Hola por favor me pueden enviar el tutorial de la chompita magenta con negro, no entiendo la explicación. Gracias

15.05.2021 - 17:10

DROPS Design answered:

Hola Eliana. No hacemos tutoriales personalizados. Tienes varios vídeos explicativos bajo el patrón que te podrán ayudar a realizar la labor.

16.05.2021 - 17:11

country flag Avely wrote:

Raske on aru saada, kas kootakse edasi/tagasi või ringselt. Teiseks võiks olla mainitud,kuhu jääb kudumi viimistletud takjakinnis, kas kõhu alla, seljale vm. Praegu koon proovikudumit ja ei teagi kas jääb proovikaks. Koera kudumil peaks selja pealt pikem olema kui kõhu alt aga kas on?

09.02.2021 - 11:52

DROPS Design answered:

Tere Avely! Kootakse edasi tagasi, tehes 1 ääresilmuse mõlemal küljel ripskoes. Kudum on seljaosal pikem, seljale tuleb pärast õmblus. Soovitan vaadata ka uuemaid mustreid kus on juhendid pikemalt lahti seletatud. Võtmesõna "kampsun koerale". Head kudumist!

26.05.2021 - 12:47

country flag Elli wrote:

Gibt es auch eine Zeichnung wie das aussehen soll? Ich kann die Anleitung ohne Bild nicht verstehen. Danke und viele Grüße!

17.01.2021 - 19:47

DROPS Design answered:

Liebe Elli, wir haben für dieses Modell keine Zeichnung nor Skizze. Der Pulli wird von hinten nach vorne (= bis zum Kragen) gestrickt. Nach 10-19 cm (siehe Grösse) wird die Arbeit in 3 Teile gestrickt und jedes Teil wird separat für die Beine gestrickt dann stricken Sie Bündchen für den Kragen. Hoffentlich kann es Ihnen helfen. Viel Spaß beim stricken!

18.01.2021 - 10:23

country flag Gitte wrote:

Når man først har knækket koden ( strikkes på 2 p fra neden og op )er det en god opskrift. Kan bedst lide den i rib ( 2r + 2 v ) ⭐️⭐️⭐️⭐️⭐️

02.01.2021 - 21:11