Sara skrifaði:
Siete sorprendenti , non sapevo che potessero esistere tante varianti nell utilizzare i ferri circolari...Complimenti .
24.10.2026 - 21:29
Céline Blais skrifaði:
Très joli patron, je l' adore... si mon fil est du groupe A ... une grosseur fingering ,,, puis-je adapter et doubler mon fil ?
16.10.2026 - 00:23DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Blais, votre tension risque d'être différente, il vous faudra alors entièrement recalculer votre taille en fonction de votre propre échantillon. Bon tricot!
16.10.2026 - 16:31
October Magic Sweater#octobermagicsweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Saga. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og marglitu mynstri með graskerum og köttum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-48 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- UPPHÆKKUN: Til að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Byrjið frá réttu og prjónið 15-16-17-18-19-20-21 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar (fyrir miðju að aftan), snúið stykkinu og prjónið 30-32-34-36-38-40-42 lykkjur brugðið. Notið aðferðina German Short Rows, svo ekki myndist gat - lesið leiðbeiningar að neðan. Snúið stykkinu, herðið á þræði og prjónið 45-48-51-54-57-60-63 lykkjur slétt, snúið stykkinu og prjónið 60-64-68-72-76-80-84 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið 75-80-85-90-95-100-105 lykkjur slétt, snúið og prjónið 90-96-102-108-114-120-126 lykkjur brugðið. Snúið, herðið á þræði og prjónið slétt til baka að merkiþræði fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð í A.1. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef það herpist aðeins saman. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (jafnt yfir): Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um fyrir miðju undir ermum): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir hringlaga berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 106-110-114-118-122-128-132 lykkjur á hringprjón 3 með litnum Kirsuberjasulta í DROPS Saga. Prjónið 1 umferð slétt. Skiptið yfir í litinn Kaffi og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) hringinn í 5-5-6-6-6-6-6 cm. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (miðja að aftan). Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 22-22-22-22-22-24-28 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 128-132-136-140-144-152-160 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að framan), berustykkið er mælt frá þessu merki. Nú á að prjóna UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið leiðbeiningar að ofan. Prjónið sléttprjón hringinn með litinn Kaffi í 0-0-1-1-0-2-3 cm. Prjónið mynstur hringinn, jafnframt sem prjónaðar eru útaukningar sem útskýrðar eru að neðan – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og MYNSTUR í útskýringu að ofan. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið A.1 berustykkið hringinn. JAFNFRAMT í hverri umferð með ör í mynsturteikningu eru lykkjur auknar út eins og útskýrt er að neðan, munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. ÖR-1: Aukið út 44-44-44-44-44-48-60 lykkjur jafnt yfir = 172-176-180-184-188-200-220 lykkjur. ÖR-2: Aukið út 32-36-36-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir = 204-212-216-224-228-248-268 lykkjur. ÖR-3: Aukið út 24-28-32-36-44-48-48 lykkjur jafnt yfir = 228-240-248-260-272-296-316 lykkjur. ÖR-4: Aukið út 25-24-38-37-36-45-47 lykkjur jafnt yfir = 253-264-286-297-308-341-363 lykkjur. ÖR-5: Aukið út 19-28-22-27-36-31-37 lykkjur jafnt yfir = 272-292-308-324-344-372-400 lykkjur. ÖR-6: Aukið út 20-20-28-28-40-36-32 lykkjur jafnt yfir = 292-312-336-352-384-408-432 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 23-23-24-24-25-27-28 cm frá miðju að framan, öll útaukning verður að vera lokið. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á hæðina, heldur A.1 áfram á fram- og bakstykki og ermum. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar: Prjónið 44-48-52-54-58-64-68 (= hálft bakstykki), setjið næstu 58-60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 88-96-104-108-116-128-136 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 58-60-64-68-76-76-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 44-48-52-54-58-64-68 lykkjur (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-224-240-256-288-304 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð í aðra hliðina á stykki – fyrir miðju í 8-8-8-12-12-16-16 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir hvorri ermi. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á fram- og bakstykki, prjónið A.1 til loka. Prjónið A.2 yfir allar lykkjur. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litinn Kaffi þar til stykkið mælist 45-47-49-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-20-22-24-26-28-30 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 212-228-246-264-282-316-334 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) hringinn í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Fellið af aðeins laust. Peysan mælist ca 49-51-53-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og 54-56-58-60-62-64-66 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 58-60-64-68-76-76-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4. Prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-8-8-12-12-16-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 66-68-72-80-88-92-96 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi – þ.e.a.s. fyrir miðju í 8-8-8-12-12-16-16 nýjar lykkjur undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu, merkiþráðurinn er notaður þegar lykkjum er fækkað. Byrjið umferðina við merkiþráðinn og prjónið mynstur hringinn. Ef A.1 hefur ekki verið prjónað til loka á fram- og bakstykki, prjónið A.1 til loka. Prjónið síðan A.2. ATH! A.2 kemur ekki til með að ganga jafnt upp undir ermi, staðsetjið eitt grasker fyrir miðju ofan á ermi og prjónið mynstur eins langt út og hægt er. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn með litnum Kaffi. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 1 cm, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í hverjum 8-8-6-4-2½-2½-2 cm alls 5-5-6-9-12-13-14 sinnum = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 39-39-39-40-40-37-37 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið), í fyrstu umferð er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 68-70-72-74-76-78-80 lykkjur. Prjónið stroff hringinn í 3-3-3-3-4-4-4 cm. Skiptið yfir í litinn Kirsuberjasulta, prjónið stroff í 1 cm og fellið af aðeins laust. Ermin mælist ca 43-43-43-44-45-42-42 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #octobermagicsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-48
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.