Snow Field Sweater#snowfieldsweater |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu og tvöföldu perluprjóni. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-10 |
|||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÍTÖLSK UPPFITJUN (Einföld aðferð): Með þessari uppfitjun er helmingur af lykkjunum fitjaður upp sem gefinn er upp í mynstri, síðan eykst lykkjufjöldinn í fyrstu umferð á eftir uppfitjuninni. Gerið upphafslykkju með DROPS Andes eða DROPS Snow. Haldið 2 stykkjum af hringprjónum 8 saman og setjið upphafslykkjuna utan um þessa tvo prjóna. Fitjið upp 28-28-28-30-34-34-36 lykkjur á hefðbundinn hátt utan um báða prjónana, dragið síðan út annan hringprjóninn. Nú er lykkjufjöldinn aukin út þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju brugðið, aukið um 1 lykkju þannig: Leggið hægri prjóninn fyrir framan/að þér, síðan undir og aftan við stykkið, upp fyrir framan þráðinn og dragið prjóninn með þræðinum áfram og aftur fyrir framan stykkið (= 1 ný lykkja á hægri prjóni) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn 56-56-56-60-68-68-72 lykkjur í umferð (lykkjufjöldinn hefur núna tvöfaldast. Skiptið yfir á hringprjón 6 og tengið stykkið saman þannig að prjónað er í hring. UMFERÐ 2: * Prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt (= þráðurinn sem tekinn var upp) *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 3: Prjónið brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur. Endurtakið 3. umferð þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-4-4-4-5-5 cm. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið fram að lykkju með merki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju brugðið (= lykkja með merki), sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn þannig að útauknar lykkjur passi við A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið e.t.v. ÍTÖLSK UPPFITJUN – lesið leiðbeiningar að ofan, eða fitjið upp aðeins laust 56-56-56-60-68-68-72 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Andes eða DROPS Snow. Fylgið útskýringu í stroffi með einfaldri ítalskri uppfitjun, eða prjónið stroff þannig: * 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-4-4-4-5-5 cm. Setjið 1 merki eftir fyrstu 20-20-20-22-24-24-24 lykkjur (= fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 8. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í brugðna lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og aukið er út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Setjið 1. merki í 1. lykkju, teljið 11-11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 15-15-15-15-19-19-23 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-13-13-13-11 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 15-15-15-15-19-19-23 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið MYNSTUR hringinn og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar í mynstri að ofan hvernig auka á út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið A.1 yfir lykkjur á ermum, framstykki og bakstykki, prjónið laskalykkjur brugðið og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri fyrir laskalínu = 64-64-64-68-76-76-80 lykkjur – ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Haldið áfram með A.1 yfir lykkjur á ermum, framstykki og bakstykki og prjónið laskalykkjurnar brugðið (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-5-7-7-7-5-7 sinnum (= 6-10-14-14-14-10-14 umferðir prjónaðar) = 80-96-112-116-124-108-128 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út þannig: UMFERÐ 1: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn í sitt hvora áttina). UMFERÐ 3: Prjónið mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið mynstur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 6-6-6-6-6-8-8 sinnum (= 24-24-24-24-24-32-32 umferðir prjónaðar = 6-6-6-6-6-8-8 sinnum útaukning á ermum og 12-12-12-12-12-16-16 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki) = 152-168-184-188-196-204-224 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 15-17-19-19-19-21-23 sinnum á framstykki/bakstykki og 9-11-13-13-13-13-15 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 21-24-27-27-27-30-33 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 29-33-37-39-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 47-51-55-55-59-63-71 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 29-33-37-39-39-39-41 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-10-10-14-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 46-50-54-54-58-62-70 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 106-114-122-130-138-154-170 lykkjur. Prjónið síðan A.1 hringinn yfir allar lykkjur – stillið af að mynstrið haldið rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki – ATH: Ef mynstrið passar ekki í hliðinni undir hvorri ermi er hægt að jafna lykkjufjöldann út með því að fækka eða auka út 1 lykkju fyrir miðju undir hvorri ermi, þannig að mynstrið verði rétt. Prjónið þar til stykkið mælist ca 42-44-46-47-48-50-53 cm frá merki fyrir miðju að framan – endið umferð eftir 2 umferðir perluprjón á hæðina. Skiptið yfir á hringprjón 6, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – stillið af að stroffið sé prjónað með brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá perluprjóni). Þegar prjónaðar hafa verið 3-3-3-3-5-5-5 umferðir í stroffi, prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-57 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 29-33-37-39-39-39-41 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-10-10-14-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 35-39-43-49-49-53-55 lykkjur. Setjið 1 merki í fyrstu lykkju í umferð, umferðin byrjar við merkið. Prjónið A.1 hringinn, en lykkjan með merki er prjónuð brugðið í hverri umferð - stillið af að A.1 haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 3 cm frá skiptingunni, aukið út 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING. Aukið svona út í hverjum 8-7-7-7-5-4-3 cm alls 5-5-5-5-6-7-8 sinnum = 45-49-53-59-61-67-71 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-38-39-37-35-31 cm frá skiptingunni – endið eftir 2 umferðir í perluprjóni á hæðina. Skiptið yfir á sokkaprjóna 6 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) – JAFNFRAMT sem fækkað er um 1 lykkju í umferð 1 – stillið af að stroffið sé prjónað með brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur og sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur frá perluprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 3-3-3-3-5-5-5 umferðir í stroffi, prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-43-41-42-41-39-35 cm frá skiptingunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowfieldsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.