Marianne skrifaði:
Ich verstehe das Muster nicht, für was braucht man den Blendenstreifen, wo sitzt er in der Zeichnung? Die Zahlenangaben bei Muster L scheinen nicht zu stimmen. Es passt nie. MFg Marianne
24.11.2026 - 12:44DROPS Design svaraði:
Liebe Marianne, in diesem Video zeigen wir, wie man die Blenden separat strickt (im Video Krausrechts, hier sollen Sie wie beschrieben stricken); und wie man dann die Maschen dazwischen anschlägt um die Passe zu stricken. An welcher Stelle soll die Maschenanzahl in L nicht stimmen, können Sie uns mehr sagen? Danke im voraus.
25.11.2026 - 08:02
Kyoto Cardigan#kyotocardigan |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, v-hálsmáli, rúllukanti og belti. Stærð XS – XXXL.
DROPS 272-10 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. V-HÁLSMÁL: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn 11-11-11-11-13-13-13 kantlykkjur að framan. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Í BYRJUN UMFERÐAR: Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, færið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum): Byrjið 3 lykkjum á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst eru prjónaðir 2 kantlistar að framan, síðan eru lykkjur prjónaðar upp fyrir berustykki á milli kantlista að framan Berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Kantlistinn að framan frá hvoru framstykki er saumaður saman, saumur = miðja að aftan, síðan er kantlistinn að framan saumaður við berustykki aftan í hnakka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. HÆGRI KANTLISTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Andes eða 1 þræði DROPS Snow og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur slétt, 1 lykkju brugðið, 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN, prjónið 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlisti að framan mælist 7-7-7-7½-7½-8½-8½ cm innst þar sem hann er minnstur (kantlisti að framan mælist ca 14-14-14-15-15-17-17 cm yst meðfram i-cordkanti), prjónið síðan UMFERÐ 1 og 2 áfram þar til allur kantlistinn að framan mælist 17-17-17-17½-19½-20½-20½ cm innst þar sem hann er minnstur, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn og geymið stykkið. VINSTRI KANTLISTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur á hringprjón 8 með 1 þræði DROPS Andes eða 1 þræði DROPS Snow og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt, 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN, prjónið 4-4-4-4-6-6-6 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 4 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 7-7-7-7-9-9-9 lykkjur slétt. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlisti að framan mælist 7-7-7-7½-7½-8½-8½ cm innst þar sem hann er minnstur (kantlistinn að framan mælist ca 14-14-14-15-15-17-17 cm yst meðfram i-cordkanti), prjónið síðan einungis UMFERÐ 1 og 4 (umferðir 2 og 3 eru ekki prjónaðar), þar til allur kantlistinn að framan mælist 17-17-17-17½-19½-20½-20½ cm innst þar sem hann er minnstur, endið með umferð frá röngu. Ekki klippa þráðinn, næsta umferð er prjónuð frá réttu eins og útskýrt er að neðan í BERUSTYKKI. BERUSTYKKI: Nú á að fitja upp lykkjur fyrir berustykki á milli kantlista að framan. Notið hringprjón 8 og prjónið fyrstu umferð frá réttu þannig: Prjónið vinstri kantlista að framan eins og áður, fitjið upp 41-41-41-43-47-49-49 nýjar lykkjur í umferð, prjónið lykkjur frá hægri kantlista eins og áður (yfir allar lykkjur) = 63-63-63-65-73-75-75 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, en ystu 4 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 12-12-12-12-14-14-14 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 13-13-13-15-15-17-17 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru 12-12-12-12-14-14-14 lykkjur eftir á eftir síðasta merki (= bakstykki). UPPLÝSINGAR ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM: Prjónið sléttprjón fram og til baka, en ystu 4 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar eins og áður. Jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA og V-HÁLSMÁL – lesið leiðbeiningar að ofan hvernig auka á út og prjónið eins og útskýrt er að neðan – lestu því báða kaflana að neðan áður en prjónað er áfram. Munið að fylgja prjónfestunni. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar alls 7-10-13-13-13-14-12 sinnum (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Haldið síðan áfram með útaukningu þannig: Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð á framstykkjum og bakstykki en á ermum er nú einungis aukið út í 4. hverri umferð (= til skiptis 4 og 8 lykkjur fleiri), endurtakið þessa útaukningu alls 8-6-4-6-6-6-10 sinnum á framstykkjum og bakstykki og 4-3-2-3-3-3-5 sinnum á ermum. Aukið hefur verið út alls 15-16-17-19-19-20-22 sinnum fyrir laskalínu á framstykkjum og bakstykki og 11-13-15-16-16-17-17 sinnum á ermum. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 21-23-24-27-27-29-31 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Það eru eftir 1-1-0-1-1-1-1 útaukningar fyrir v-hálsmáli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. V-HÁLSMÁL: Aukið út fyrir v-hálsmáli í 6. hverri umferð alls 3-3-3-4-4-5-5 sinnum, aukið er út innan við ystu 11-11-11-11-13-13-13 lykkjur í hvorri hlið. Síðan er aukið út fyrir v-hálsmáli í 8. hverri umferð alls 2 sinnum = alls 5-5-5-6-6-7-7 sinnum útaukning fyrir v-hálsmáli í hvorri hlið. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 33-35-37-39-42-45-47 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 31-33-37-39-39-39-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 47-51-53-59-61-67-71 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 31-33-37-39-39-39-39 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 33-35-37-39-42-45-47 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 125-133-143-153-165-181-193 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 4 kantlykkjum í hvorri hlið eins og áður. Þegar síðasta útaukning fyrir v-hálsmáli hefur verið gerð, eru 127-135-143-155-167-183-195 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 45-47-49-51-51-53-55 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-24-24-24-28-32-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir ystu 4 lykkjur í hvorri hlið) = 147-159-167-179-195-215-227 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): 4 kantlykkjur eins og áður: * 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 lykkjur slétt og 4 kantlykkjur eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 4 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-6-8-8-8 umferðir prjónaðar). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Peysan mælist 49-51-53-55-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 31-33-37-39-39-39-39 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 8 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 37-39-45-47-49-51-53 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í 3. hverjum cm 1-1-3-3-3-3-3 sinnum = 35-37-39-41-43-45-47 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 40-38-38-35-35-36-34 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-7-9-7-9-7-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 40-44-48-48-52-52-56 lykkjur. Skiptið yfir á hringprjón 6 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 * 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 3-3-3-3-4-4-4 sinnum (= 6-6-6-6-8-8-8 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan 2 umferðir sléttprjón til viðbótar (= rúllukantur). Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 45-43-43-40-41-42-40 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman kantlista að framan frá hvoru framstykki – saumur = miðja að aftan. Saumið síðan kantlista að framan við uppfitjunarkantinn í kringum hálsmál. BELTI: Fitjið upp 8 lykkjur á sokkaprjón 8 með 1 þræði DROPS Andes / Snow. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, snúið. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til beltið mælist ca 150-160-170-185-200-215-230 cm – togið aðeins í stykkið á meðan prjónað er til að lykkjurnar leggist fallega. Þegar réttri lengd er náð, prjónið allar lykkjur snúnar slétt saman 2 og 2 = 5 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum. Beltið er hnýtt um mitti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #kyotocardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.