Misty Sunrise Jacket#mistysunrisejacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Fabel. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með evrópskri öxl, trompetermum, i-cord og belti. Stærð XS – XXXL.
DROPS 271-30 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar stuttar umferðir eru prjónaðar, þá kemur oft lítið gat þegar stykkinu er snúið – það er hægt að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Setjið þráðinn yfir á hægri prjón og herðið á þræðinum vel að aftan (með þessu þá myndast tvær lykkjur á prjóni). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Fyrst eru prjónaðir 2 kantlistar = aftan í hnakka. Síðan eru lykkjur prjónaðar upp aftan í hnakka meðfram þessum kantlistum. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Prjónið síðan niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin prjónuð. Framstykkið er prjónað með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki og lykkjur frá kantlista eru settar inn í umferð. Prjónið niður á við að handvegi JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli. Endurtakið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpuna og síðan er ermin prjónuð niður á við í hring. Í lokin er prjónað belti. HÆGRI KANTLISTI: Fitjið upp 13-13-13-15-15-17-17 lykkjur á hringprjón 7 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Fabel (= 2 þræðir). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 10-10-10-12-12-14-14 lykkjur slétt. Snúið stykkinu og lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 5-5-5-6-6-7-7 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 5-5-5-6-6-7-7 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 9-9-9-11-11-13-13 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlistinn mælist 6½-6½-6½-7½-7½-7½-7½ cm – mælt frá þar sem stykkið er minnst /styst, endið með umferð frá röngu, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna síðustu 2 lykkjurnar í umferð slétt saman = 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir kantlista – setjið lykkjurnar á þráð. VINSTRI KANTLISTI: Notið hringprjón 7 og prjónið upp 1 lykkju í hverja af 13-13-13-15-15-17-17 lykkjum frá uppfitjunarkanti í hægri kantlista – passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar upp þannig að lykkjurnar færast ekki til miðað við lykkjur á hægri kantlista. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 9-9-9-11-11-13-13 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Snúið stykkinu og munið eftir LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið og prjónið 10-10-10-12-12-14-14 lykkjur slétt. Snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 5-5-5-6-6-7-7 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= rétta): Prjónið 5-5-5-6-6-7-7 lykkjur slétt, snúið stykkinu. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 þar til kantlistinn mælist 6½-6½-6½-7½-7½-7½-7½ cm – mælt frá þar sem stykkið er minnst /styst, endið með umferð frá röngu, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju með því að prjóna fyrstu 2 lykkjurnar í umferð snúnar slétt saman = 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur fyrir kantlista – setjið lykkjurnar á þráð. Kantlistinn mælist alls 13-13-13-15-15-15-15 cm. Nú á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri hliðinni á kantlista og bakstykkið er prjónað eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Notið hringprjón 7 og 1 þráð DROPS Melody og 1 þráð DROPS Fabel (= 2 þræðir). Prjónið upp 18-18-18-20-20-20-20 lykkjur meðfram annarri hliðinni á kantlista sem hefur lykkjur í garðaprjóni meðfram kanti (prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju í garðaprjóni) – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við miðju á kantlista (það á ekki að prjóna yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur sem eru á þræði í hvorri hlið). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 2 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 2 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 2 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 9-10-10-11-11-12-13 sinnum (= 18-20-20-22-22-24-26 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 54-58-58-64-64-68-72 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið síðan í sléttprjóni - Munið að fylgja prjónfestunni – þar til stykkið mælist 10-11-8-10-9-7-7 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-3-2-4-5-6 sinnum (= 2-2-6-4-8-10-12 umferðir prjónaðar) = 56-60-64-68-72-78-84 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-12-13-14-14-15 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt á borð með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur af þræði/hjálparprjóni snúi að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið með vinstri kantlista og prjónið frá réttu yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur slétt, prjónið síðan upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur) = 30-32-32-36-36-40-42 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið þar til 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur eru eftir, prjónið 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið slétt út umferðina. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-16-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 12-12-12-14-14-16-16 fyrstu lykkjur eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út – útaukna lykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Aukið svona út í hverjum 4-4-4-3½-3½-3½-3½ cm alls 9-9-9-10-10-10-10 sinnum. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 26-27-26-28-27-27-27 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið 4 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-3-2-4-5-6 sinnum (= 2-2-6-4-8-10-12 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-30-31-32-34-35 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram á fram- og bakstykki). Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 18-20-20-22-22-24-26 lykkjur), síðan er prjónað frá réttu yfir 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur frá hægri kantlista þannig: 8-8-8-10-10-12-12 lykkjur, 1 lykkja brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt = 30-32-32-36-36-40-42 lykkjur í umferð. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið brugðið út umferðina. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 12-13-14-14-15-16-16 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú byrjar útaukning fyrir V-hálsmáli, jafnframt því sem einnig er aukið út í hlið fyrir handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukningu fyrir V-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla að neðan áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið síðustu lykkjurnar eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út – útaukna lykkjan er prjónuð í sléttprjóni. Aukið svona út í hverjum 4-4-4-3½-3½-3½-3½ cm alls 9-9-9-10-10-10-10 sinnum. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 26-27-26-28-27-27-27 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið eins og áður út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-1-3-2-4-5-6 sinnum (= 2-2-6-4-8-10-12 umferðir prjónaðar). Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-30-31-32-34-35 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu (útaukning fyrir v-hálsmáli heldur áfram á fram- og bakstykki). Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Héðan er stykkið mælt frá! FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu – byrjið með lykkjur frá hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið eins og áður yfir lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 56-60-64-68-72-78-84 lykkjur frá bakstykki í sléttprjóni, fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið eins og áður yfir lykkjur frá vinstra framstykki. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 2-2-2-2-4-4-4 lykkjur sem fitjaðar voru upp – merkiþræðirnir eru notaðir þegar auka á út í hliðum. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kantlista að framan eins og áður og haldið áfram með útaukningu fyrir v-hálsmáli, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm frá þar sem stykkið var sett saman er aukið út hvoru megin við hvorn merkiþráð – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3, aukið út hvoru megin 2 lykkjur við hvorn merkiþráð með 5-5-5-4-4-3-3 cm millibili alls 2-2-2-3-3-3-3 sinnum. Þegar útaukningu fyrir v-hálsmáli og í hliðum er lokið eru 148-156-164-180-192-208-220 lykkjur í umferð. Prjónið þar til stykkið mælist ca 52-54-56-58-59-61-63 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu og aukið jafnframt út 3 lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 151-159-167-183-195-211-223 lykkjur. Í næstu umferð byrjar stroff, skiptið yfir á hringprjón 5,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur í kantlista eins og áður, * 3 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt *, prjónið frá *-* þar til 15-15-15-17-17-19-19 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur brugðið og prjónið 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur í kantlista eins og áður. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur í kantlista eins og áður, * * 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-* þar til 15-15-15-17-17-19-19 lykkjur eru eftir, prjónið 3 lykkjur slétt og prjónið 12-12-12-14-14-16-16 lykkjur í kantlista eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm – endið með umferð frá réttu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu yfir allar lykkjur og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan og 58-60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = miðja ofan á öxl – ATH: Miðja ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykki. Notið hringprjón 7 og prjónið upp lykkjur fasta (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið fyrir miðju í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 46-48-50-54-58-60-62 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur og fái betra form er prjónað sléttprjón með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 5-5-5-5-4-3-3 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 5-5-5-5-4-3-3 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 12-14-16-16-20-24-24 sinnum (= 6-7-8-8-10-12-12 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin er frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er prjónuð, endar umferðin með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun umferðar (= miðja undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja áfram með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjóni yfir allar lykkjur JAFNFRAMT sem lykkjum er fækkað undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-4-4-4 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 4-4-3-3-3-3-3 sinnum = 34-36-40-42-44-46-48 lykkjur í umferð. Þegar ermin mælist 21-22-22-23-26-29-29 cm frá merki fyrir miðju ofan á öxl (passið uppá að það séu prjónaðir minnst 2 cm sléttprjón á eftir síðustu útaukningu), aukið út 4 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3. Aukið svona út í hverjum 5-5-5-5-4-4-3½ cm alls 3 sinnum, prjónið 5-5-5-5-4-4-3½ cm og aukið út 2 lykkjur jafnt yfir = 48-50-54-54-58-60-62 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 49-48-49-48-48-47-47 cm frá miðju ofan á öxl. Í næstu umferð byrjar stroff, skiptið yfir á sokkaprjóna 5,5 og prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. UMFERÐ 2: * Prjónið uppsláttinn og lyftu lykkjuna slétt saman, prjónið 1 lykkju brugðið *, prjónið frá *-* umferðina hringinn. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm – endið eftir 2. umferð. Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 53-52-53-52-53-52-52 cm frá miðju ofan á öxl. BELTI: Fitjið upp 10 lykkjur á prjón 7 með 1 þræði DROPS Melody og 1 þræði DROPS Fabel. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, snúið. UMFERÐ 2 (= ranga): * Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt *, prjónið frá *-* út umferðina, snúið. Endurtakið UMFERÐ 1 og 2 þar til beltið mælist ca 160-170-185-200-215-230-255 cm – togið aðeins í stykkið á meðan prjónað er til að lykkjurnar leggist fallega. Þegar réttri lengd er náð, prjónið allar lykkjur snúnar slétt saman 2 og 2 = 5 lykkjur eftir. Fellið af með brugðnum lykkjum. Beltið er hnýtt um mitti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mistysunrisejacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.