DROPS Super Sale · 30% AFSLÁTTUR á 5 tegundum af ullargarni
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10802.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Autumn & Winter 26/27

Sailing Memories Sweater

Prjónuð stór / oversize peysa úr DROPS Brushed Alpaca Silk og DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki, röndum og rúllukanti. Stærð XS - XXXL.

Velja stærð:


DROPS 271-9

#sailingmemoriessweater

DROPS Design: Mynstur as-221
Garnflokkur C + A eða D
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
XS - S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki C)
125-125-150-150-175-175-200 gr litur 21, Salvíugrænn
25-25-25-25-25-50-50 gr litur 40, Marsipan
Og notið:
DROPS ALPACA frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
200-200-200-250-250-300-300 gr litur 7323, Sjávarþoka
50-50-50-50-50-50-50 gr litur 9039, Sandur

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 6: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4,5: Lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4,5.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 17 umferðir á hæð með sléttprjóni með 1 þræði í hvorri tegund (= 2 þræðir) með prjóna nr 6 = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpaka, 23% Jedwab
frá 902.00 kr /25g
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 1078.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10802.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

0
0

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1:
Öll útaukning er gerð með grunnlit.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2:
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn.
AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU:
Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1.
Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni – passið uppá að herða ekki á þráðunum þegar mynstrið er prjónað.

LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – skipting yfir í stroff:
Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið.

LEIÐBEININGAR ERMI:
Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist.

LEIÐBEININGAR ÚRTAKA:
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig:
Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 3 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 3 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum.
Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum.
Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5.
1. BAKSTYKKI:
Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl.
2. FRAMSTYKKI:
Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = axlirnar eru settar saman í eitt stykki (= framstykki). Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli.
3. BERUSTYKKI:
Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Prjónið lykkjur frá bakstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, prjónið upp lykkjur fyrir ermi meðfram hinni hliðinni á framstykki = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur.
4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. Samtímis sem aukið er út á fram- og bakstykki og ermum eru einnig prjónaðar rendur.
5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring.

-------------------------------------------------------

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 25-25-25-27-27-27-27 lykkjur á hringprjón 6 með 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Salvíugrænn og 1 þræði DROPS Alpaca í litnum Sjávarþoka (= 2 þræðir).
UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið.
UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt.
UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið.
Á EFTIR UMFERÐ 3:
Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 7-8-9-9-10-10-11 sinnum (= 14-16-18-18-20-20-22 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 53-57-61-63-67-67-71 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón.

VINSTRI ÖXL:
Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl.
Notið 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Salvíugrænn og 1 þráð í DROPS Alpaca í litnum Sjávarþoka (= 2 þræðir) og prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 14-16-18-18-20-20-22 lykkjur).
Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-5-6-6 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-10-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 19-21-23-24-26-26-28 lykkjur.
Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-11-12-12-13-13 cm frá merki. Ca 2 cm að dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið.
Klippið þráðinn. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan.

HÆGRI ÖXL:
Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig:
Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju = 14-16-18-18-20-20-22 lykkjur fyrir öxl.
Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu.
Prjónið sléttprjón (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu).
Þegar stykkið mælist 4-5-5-5-5-6-6 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið.
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-5-6-6-6-6 sinnum (= 10-10-10-12-12-12-12 umferðir prjónaðar) = 19-21-23-24-26-26-28 lykkjur.
Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-11-12-12-13-13 cm frá merki. Ca 2 cm að dýpt á hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið.

FRAMSTYKKI:
Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig:
Prjónið slétt yfir 19-21-23-24-26-26-28 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 15 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 19-21-23-24-26-26-28 lykkjur frá vinstri öxl = 53-57-61-63-67-67-71 lykkjur.
Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 12-13-15-15-16-16-17 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu.
Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. Klippið þráðinn. Byrjið á að prjóna yfir bakstykkið og prjónið þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu lykkju frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð (= byrjun umferðar), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 17-19-21-21-23-23-23 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu lykkju frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 17-19-21-21-23-23-23 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju) = 140-152-164-168-180-180-188 lykkjur, lykkjum er skipt þannig: 19-21-23-23-25-25-25 lykkjur fyrir hvora ermi og 51-55-59-61-65-65-69 lykkjur fyrir framstykki/bakstykki.

BERUSTYKKI:
Síðan er stykkið prjónað í hring. Það er einungis aukið út fyrir ermar, prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur.
UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án útaukninga.
Á EFTIR UMFERÐ 2:
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út 2-2-2-2-2-1-1 sinnum (= 4-4-4-4-4-2-2 umferðir prjónaðar = 23-25-27-27-29-27-27 lykkjur á hvorri ermi og 51-55-59-61-65-65-69 lykkjur á framstykki/bakstykki = 148-160-172-176-188-184-192 lykkjur.

Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki JAFNFRAMT sem MYNSTUR er prjónað – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið eins og útskýrt er að neðan, aukið er út á fram- og bakstykki 1 lykkju innan við merki þannig að það er 1 lykkja á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi (þessi lykkja er alltaf prjónuð í grunnlit) – prjónið þannig:
UMFERÐ 1: * Prjónið 1 lykkju slétt (með grunnlit), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt (með grunnlit), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 1 lykkju slétt (með grunnlit), aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 þar til 1 lykkja er eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 lykkju slétt (með grunnlit), færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.1 fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. aukið hefur verið út 1 lykkja hvoru megin við 1 lykkju í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermi).
UMFERÐ 2: Prjónið A.1 yfir allar lykkjur án þess að auka út – ATH: Lykkja sem aukin er út hvoru megin er alltaf prjónuð í grunnlit.
Á EFTIR UMFERÐ 2:
Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 2 8-9-9-11-13-14-15 sinnum (= 16-18-18-22-26-28-30 umferðir prjónaðar).
Það hefur verið aukið út alls 10-11-11-13-15-15-16 sinnum á ermum og 8-9-9-11-13-14-15 sinnum á framstykki/bakstykki = 39-43-45-49-55-55-57 lykkjur á hvorri ermi og 67-73-77-83-91-93-99 lykkjur á framstykki/bakstykki = 212-232-244-264-292-296-312 lykkjur.

Ermin mælist ca 12-13-13-15-18-18-19 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 18-19-20-23-26-26-27 cm frá yst á öxl og niður meðfram handveg. Prjónið stykkið síðan án þess að auka út þar til stykkið mælist 20-21-22-24-26-27-28 cm frá yst á öxl og niður meðfram handvegi. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig:
Prjónið fyrstu 67-73-77-83-91-93-99 lykkjur í A.1 eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 39-43-45-49-55-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-7-11-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 67-73-77-83-91-93-99 lykkjur í A.1 eins og áður (= framstykki), setjið næstu 39-43-45-49-55-55-57 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 5-5-7-7-7-11-13 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi).
Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 144-156-168-180-196-208-224 lykkjur. Prjónið A.1 hringinn eins og áður og passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki.
Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-55-57-59 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan, en stillið rendurnar af þannig að prjónaðir séu minnst 3 til 5 cm sléttprjón með grunnlit á eftir síðustu rönd á undan stroffi.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 30-34-36-38-42-44-48 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 174-190-204-218-238-252-272 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, skiptið yfir í 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Marsipan og 1 þráð DROPS Alpaca í litnum Sandur (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð stroff eins og áður, prjóni 1 umferð slétt og fellið síðan aðeins laust af með sléttum lykkjum.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá uppfitjunarkanti við miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá efst á öxl.

ERMAR:
Setjið 39-43-45-49-55-55-57 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 6 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 5-5-7-7-7-11-13 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 44-48-52-56-62-66-70 lykkjur.
Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 5-5-7-7-7-11-13 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn.
Prjónið A.1 eins og áður hringinn og passið uppá að mynstrið haldi rétt áfram yfir lykkjur frá berustykki – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 1-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 0-0-1-2-3-4-5 sinnum = 42-44-46-48-50-52-54 lykkjur í umferð.
Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-41-40-38-34-35-34 cm frá skiptingunni og stillið rendurnar af þannig að það séu prjónaðir minnst 3 til 5 cm sléttprjón með grunnlit á eftir síðustu rönd á undan stroffi.
Skiptið yfir á sokkaprjóna 4,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-10-12-12 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 50-52-56-58-60-64-66 lykkjur.
Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm, skiptið yfir í 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Marsipan og 1 þráð DROPS Alpaca í litnum Sandur (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð stroff eins og áður, prjóni 1 umferð slétt og fellið síðan aðeins laust af með sléttum lykkjum.
Ermin mælist ca 46-45-44-42-39-40-39 cm frá skiptingunni og 58-58-57-57-57-58-57 cm frá kanti þar sem lykkjurnar voru prjónaðar upp á öxl.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Notið hringprjón 4,5 og 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Salvíugrænn saman með 1 þræði DROPS Alpaca í litnum Sjávarþoka (= 2 þræðir). Byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 70 til 84 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 3½-3½-3½-4-4-4-4 cm. Skiptið yfir í 1 þráð DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Marsipan og 1 þráð DROPS Alpaca í litnum Sandur (= 2 þræðir). Prjónið 1 umferð stroff eins og áður, prjóni 3 umferðir slétt og fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 12.10.2026
Uppskriftin hefur verið uppfærð - leiðrétting í útskýringu í mynsturteikningu

Mynstur

grunnlitur: 1 þráður DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Salvíugrænn og 1 þráður DROPS Alpaca í litnum Sjávarþoka = grunnlitur: 1 þráður DROPS Brushed Alpaca Silk í litnum Salvíugrænn og 1 þráður DROPS Alpaca í litnum Sjávarþoka
mynsturlitur: 1 þráður Brushed Alpaca Silk í litnum Marsipan og 1 þráður DROPS Alpaca í litnum Sandur = mynsturlitur: 1 þráður Brushed Alpaca Silk í litnum Marsipan og 1 þráður DROPS Alpaca í litnum Sandur
prjónið sléttprjón með grunnlit í 5-5-5-5½-5½-6-6 cm = prjónið sléttprjón með grunnlit í 5-5-5-5½-5½-6-6 cm
Diagram for DROPS 271-9
Diagram for DROPS 271-9

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér. Lærðu að prjóna

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!
Ertu búin að klára þetta mynstur?
Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #sailingmemoriessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery.

Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (3)

country flag Camilla skrifaði:

Diagram1 finns inte med i mönstret. Hoppas att det kan rättas till så fort som möjligt. Mvh Camilla

20.10.2026 - 20:15

country flag Jana skrifaði:

Ich schliesse mich meiner Vorschreiberin an: auch ich kann das Diagramm A1 nicht öffnen! Für Ihre Hilfe wäre ich dankbar! Liebe Grüsse

12.10.2026 - 17:18

DROPS Design svaraði:

Liebe Jana, das Diagramm sollte nun wieder sichtbar sein. Viel Spaß beim Stricken!

12.10.2026 - 23:44

country flag Ina skrifaði:

Das Diagramm A1 wird nicht angezeigt bzw. kann nicht geöffnet werden.

12.10.2026 - 12:24

DROPS Design svaraði:

Liebe Ina, das Diagramm sollte nun wieder angezeigt werden. Viel Spaß beim Stricken!

12.10.2026 - 23:45