Red Moon Sweater#redmoonsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-35 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 – skipting yfir í stroff: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = axlirnar eru settar saman í eitt stykki (= framstykki). Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. ------------------------------------------------------- BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 37-37-37-37-39-39-39 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Fiesta. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 10-11-12-13-13-14-15 sinnum (= 20-22-24-26-26-28-30 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 77-81-85-89-91-95-99 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja) = 21-23-25-27-27-29-31 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-8-8-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið, endið með að fitja upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 25-27-29-31-32-34-36 lykkjur. Útaukningu fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 9-9-10-11-12-13-14 cm frá merki. Ca 2 cm að dýpt af hálsmáli kemur til með að teygja sig yfir á bakstykkið. Klippið þráðinn. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl (= kantlykkja), prjónið síðan upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 20-22-24-26-26-28-30 lykkjur) = 21-23-25-27-27-29-31 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferðin er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-6-7-8-8-9-10 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt, endið með að fitja upp 1 nýja lykkju í lok umferðar. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-4-5-5-5 sinnum (= 8-8-8-8-10-10-10 umferðir prjónaðar) = 25-27-29-31-32-34-36 lykkjur. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: Prjónið slétt yfir 25-27-29-31-32-34-36 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 27 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 25-27-29-31-32-34-36 lykkjur frá vinstri öxl = 77-81-85-89-91-95-99 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 12-12-14-14-14-14-16 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu lykkju frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð (= byrjun umferðar), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 25-25-29-29-29-29-33 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki (= lykkjur fyrir ermi – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju), prjónið fyrstu lykkju frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 25-25-29-29-29-29-33 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki (= lykkjur fyrir ermi - lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju) = 204-212-228-236-240-248-264 lykkjur. Prjónið fyrstu lykkju slétt, þannig að umferðin byrjar við merki í skiptingunni á milli hægri ermi og framstykkis. Það eru 27-27-31-31-31-31-35 lykkjur á hvorri ermi og 75-79-83-87-89-93-97 lykkjur á framstykki/bakstykki. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án útaukninga. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-12-12-12-10-9-5 sinnum (= 20-24-24-24-20-18-10 umferðir prjónaðar. Aukið hefur verið út alls 10-12-12-12-10-9-5 sinnum á ermum = 47-51-55-55-51-49-45 lykkjur á hvorri ermi og 75-79-83-87-89-93-97 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 244-260-276-284-280-284-284 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 9-10-12-13-17-19-23 sinnum (= 18-20-24-26-34-38-46 umferðir prjónaðar). Það hefur verið aukið út alls 10-11-13-13-14-15-16 sinnum á ermum og 9-10-12-13-17-19-23 sinnum á fram- og bakstykki = 65-71-79-81-85-87-91 lykkjur á hvorri ermi og 93-99-107-113-123-131-143 lykkjur á framstykki/bakstykki = 316-340-372-388-416-436-468 lykkjur. Ermin mælist ca 14-16-17-18-19-20-20 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 20-22-24-25-26-27-28 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 93-99-107-113-123-131-143 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 65-71-79-81-85-87-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 93-99-107-113-123-131-143 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 65-71-79-81-85-87-91 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-10-12-12 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 194-210-226-242-266-286-310 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 4-6-6-8-10-12-12 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm, mælt frá þar uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 38-42-46-50-54-58-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 232-252-272-292-320-344-374 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er prjónuð 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Peysan mælist ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá miðju að aftan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá efst á öxl. ERMAR: Setjið 65-71-79-81-85-87-91 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-10-12-12 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 69-77-85-89-95-99-103 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 4-6-6-8-10-12-12 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-3-4-4 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur með 10-5-3-3-2½-2-2 cm millibili 3-6-9-9-11-11-12 sinnum = 59-61-63-65-67-69-71 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 37-35-34-34-32-31-31 frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 11-13-13-13-13-15-15 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-3 = 70-74-76-78-80-84-86 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm prjónið 1 umferð slétt. Fellið af með sléttum lykkjum. Ermin mælist ca 41-39-38-38-37-36-36 cm frá skiptingunni og 55-55-55-56-56-56-56 cm frá kanti þar sem lykkjurnar voru prjónaðar upp á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3. Byrjið frá réttu frá miðju að aftan og prjónið upp ca 104-104-106-108-116-118-120 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju. Prjónið sléttprjón hringinn í 3-3-3½-3½-4-4-4½ cm. Prjónið 2 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið). Prjónið 2 umferðir slétt. Fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redmoonsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 30 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.