Hanne Lejre skrifaði:
Hvad betyder Strik 1. Til 4. Pind totalt 6 g , 12 p er strikket Det er ved ærmegab ryg .skal jeg strikke udtagning ved hver 2. Eller ved 4. Pind Jeg håber at spørgsmål forstås.
30.10.2026 - 13:07DROPS Design svaraði:
Hei Hanne. BAGSTYKKE / UDTAGNING TIL ÆRMEGAB. Strikk etter forklaringen til Pinne 1 og etter forklaringen til Pinne 2 = du har strikket 2 pinner. Dette skal strikkes 6 ganger (= Pinne 1 + Pinne 2 + Pinne 1 + Pinne 2 + Pinne 1 + Pinne 2 + Pinne 1 + Pinne 2 + Pinne 1 + Pinne 2 + Pinne 1 + Pinne 2 = 6 pinner av Pinne 1 og 6 ganger av Pinne 2 = 12 pinner tilsammen). Det økes kun når Pinne 1 strikkes (= 6 ganger). mvh DROPS Design
02.11.2026 - 09:10
Bright Dream Vest#brightdreamvest |
|
![]() |
![]() |
Prjónað vesti úr DROPS Air og DROPS Kid-Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl, v-hálsmáli og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-10 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru prjónaðir 2 listar fyrir kant að framan = aftan í hnakka. Síðan eru lykkjurnar aftan í hnakka prjónaðar upp meðfram þessum lista. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem aukið er út hvoru megin á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið smá skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkin eru prjónuð. Framstykkin eru prjónuð með því að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki og lykkjur frá lista að framan eru settar inn í umferðina. Síðan er prjónað niður að handvegi JAFNFRAMT því sem aukið er út fyrir v-hálsmáli. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Við handveg eru framstykkin og bakstykkið sett á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað niður á við fram og til baka á hringprjóna áður en stykkinu er skipt upp fyrir klauf og hvert stykki er prjónað til loka fyrir sig. HÆGRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Fitjið upp 6 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Air og 1 þræði DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, prjónið 1 lykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til listi í kanti að framan mælist 6½-6½-6½-7½-7½-7½-7½ cm, endið eftir umferð frá röngu, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um garðaprjónslykkjuna með því að prjóna síðustu 2 lykkjurnar í umferð brugðið saman = 5 lykkjur fyrir kant að framan – setjið lykkjurnar á þráð. VINSTRI LISTI Í KANTI AÐ FRAMAN: Prjónið upp 1 lykkju í hverja lykkju af 6 lykkjum frá uppfitjunarkanti á hægri lista að framan – passið uppá að lykkjurnar séu prjónaðar upp þannig að lykkjurnar færist ekki til miðað við lykkjurnar á hægri lista að framan. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið, 2 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til listi í kanti að framan mælist 6½-6½-6½-7½-7½-7½-7½ cm, endið með umferð frá röngu, JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um garðaprjónslykkjuna með því að prjóna fyrstu 2 lykkjurnar í umferð brugðið saman = 5 lykkjur fyrir kant að framan – setjið lykkjurnar á þráð. Listi í kanti að framan mælist alls 13-13-13-15-15-15-15 cm. Nú á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri hliðinni á lista í kanti að framan og bakstykkið er prjónað eins og útskýrt er að neðan. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Notið hringprjón 5,5 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp 22-22-22-24-24-24-24 lykkjur meðfram hlið á lista í kanti að framan sem hafa lykkjur í garðaprjóni meðfram kanti (prjónið upp frá réttu innan við 1 lykkju í garðaprjóni) – stillið af að prjónaðar séu upp jafnmargar lykkjur hvoru megin við miðju á lista í kanti að framan (það er ekki prjónað yfir 5 lykkjurnar sem sitja á þræði í hvorri hlið). UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið slétt fram og til baka í sömu lykkju), prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið 2 lykkjur í fyrstu lykkju (prjónið brugðið fram og til baka í sömu lykkju), prjónið brugðið þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkju (= 2 lykkjur fleiri). Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið umferð 2 og 3 alls 10-11-12-13-14-15-16 sinnum (= 20-22-24-26-28-30-32 umferðir prjónaðar), á eftir síðustu útaukningu eru 62-66-70-76-80-84-88 lykkjur í umferð. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er stykkið mælt frá! Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til stykkið mælist 10-9-9-10-8-6-4 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi. Munið að fylgja prjónfestunni. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 4 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, prjónið brugðið þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið síðustu 4 lykkjur eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-6-6-8-10-13 sinnum (= 8-10-12-12-16-20-26 prjónaðar umferðir) = 70-76-82-88-96-104-114 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón með 3 kantlykkjum í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 14-14-15-16-16-17-18 cm mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri skáhallandi öxl frá bakstykki eins og útskýrt er hér að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttun upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði/hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið með vinstri lista í kanti að framan og prjónið frá réttu þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið og 2 lykkjur slétt, prjónið síðan upp lykkjur út við handveg þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur) = 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 10-10-10-10-11-12-13 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá yfirlit yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁLI: Aukið út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið fyrstu 4 lykkjur eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 síðustu lykkjurnar eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-8-8-9-9-9-9 sinnum. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 24-25-25-26-26-24-22 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið síðustu 4 lykkjurnar eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-6-6-8-10-13 sinnum (= 8-10-12-12-16-20-26 umferðir prjónaðar). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 37-40-43-46-50-54-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 28-30-31-32-34-35-36 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu. Klippið þráðinn, setjið lykkjurnar á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl frá bakstykki – lesið leiðbeiningar að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur), síðan er prjónað frá réttu yfir lykkjur frá hægri lista í kanti að framan þannig: 2 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt = 25-27-29-31-33-35-37 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón með 3 lykkjur i-cord í hvorri hlið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 2 (= rétta): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkju brugðið, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið umferð 2 og 3 þar til stykkið mælist 10-10-10-10-11-12-13 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. YFIRLIT YFIR NÆSTA KAFLA: Nú á að auka út fyrir v-hálsmáli, jafnóðum og einnig er aukið út í hlið við handveg. Útaukning í hlið byrjar áður en útaukning fyrir v-hálsmáli er lokið, lestu því báða næstu kafla áður en þú prjónar áfram, til að fá yfirlit yfir þegar útaukning fyrir handveg byrjar. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING FYRIR V-HÁLSMÁL: Aukið út við hálsmál þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið eins og áður þar til 4 lykkjur eru eftir í umferð, aukið út 1 lykkju til hægri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið síðustu 4 lykkjurnar eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið slétt með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið brugðið með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-8-8-9-9-9-9 sinnum. Haldið síðan áfram í sléttprjóni og 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: Þegar stykkið mælist 24-25-25-26-26-24-22 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp, aukið út í hlið við handveg þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 4 fyrstu lykkjurnar eins og áður, aukið út 1 lykkju til vinstri – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 3 kantlykkjur eins og áður. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið með 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-5-6-6-8-10-13 sinnum (= 8-10-12-12-16-20-26 umferðir prjónaðar). Þegar öll útaukning fyrir v-hálsmáli og handveg hefur verið gerð til loka, eru 37-40-43-46-50-54-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 28-30-31-32-34-35-36 cm, mælt frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp efst á framstykki, endið með umferð frá réttu. Nú eru framstykkin og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fyrsta umferð er prjónuð frá röngu- byrjið með lykkjur yfir hægra framstykki og prjónið umferðina þannig: Prjónið fyrstu 3 lykkjur eins og áður, prjónið brugðið út umferðina, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar (= í hlið fyrir miðju undir handvegi), prjónið brugðið yfir 70-76-82-88-96-104-114 lykkjur frá bakstykki, fitjið upp 1 nýja lykkju í umferð (= í hlið fyrir miðju undir handvegi), prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir á vinstra framstykki og prjónið síðustu 3 lykkjur eins og áður = 146-158-170-182-198-214-234 lykkjur í umferð. Setjið 1 merkiþráð í hvora hlið á fram- og bakstykki – merkiþráðurinn er settur utan við lykkju sem fitjuð var upp undir hvorum handvegi þannig að það eru 72-78-84-90-98-106-116 lykkjur á bakstykki og 37-40-43-46-50-54-59 lykkjur á hvoru framstykki. Látið merkiþræðina fylgja áfram með í stykkinu – merkiþræðirnir eru notaðar þegar stykkinu er skipt upp fyrir klauf í hvorri hlið. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eins og áður. Prjónið þar til stykkið mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp við miðju að aftan – endið með umferð frá röngu. Nú eru 72-78-84-90-98-106-116 lykkjur frá bakstykki settar á þráð og 37-40-43-46-50-54-59 lykkjur frá hægra framstykki eru settar á annan þráð. Prjónið síðan yfir lykkjur frá vinstra framstykki eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: = 37-40-43-46-50-54-59 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur í hvorri hlið á sama hátt og áður. Prjónið svona þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-5-6-7-7-7-8 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið) = 41-45-49-53-57-61-67 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir leiðbeiningar útaukning) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur eins og áður. Prjónið 1 umferð frá röngu með stroffi og 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð brugðið frá röngu og 1 umferð slétt frá röngu (yfir allar lykkjur = rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Framstykkið mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. HÆGRA FRAMSTYKKI: = 37-40-43-46-50-54-59 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur í hvorri hlið á sama hátt og áður. Prjónið svona þar til stykkið mælist 54-56-58-60-62-64-66 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp á öxl. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-5-6-7-7-7-8 lykkjur jafnt yfir í umferð (ekki er aukið út yfir 3 kantlykkjur í hvorri hlið) = 41-45-49-53-57-61-67 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur eins og áður. Prjónið 1 umferð frá röngu í stroffi og 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð brugðið frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu (yfir allar lykkjur = rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. BAKSTYKKI: = 72-78-84-90-98-106-116 lykkjur. Prjónið sléttprjón með 3 kantlykkjur í hvorri hlið á sama hátt og áður þar til stykkið mælist 56-58-60-62-64-66-68 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 9-9-11-13-13-15-17 lykkjur jafnt yfir í umferð = 81-87-95-103-111-121-133 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið 3 kantlykkjur eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 4 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 3 kantlykkjur eins og áður. Prjónið 1 umferð frá röngu í stroffi og 3 kantlykkjur í hvorri hlið eins og áður. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu, 1 umferð brugðið frá röngu og 1 umferð slétt frá réttu (yfir allar lykkjur = rúllukantur). Skiptið yfir á hringprjón 5,5 og fellið af með brugðnum lykkjum frá röngu. Bakstykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68-70 cm frá kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp fyrir miðju að aftan og 60-62-64-66-68-70-72 cm frá öxl – bakstykkið er lengra en framstykkin. SNÚRUBAND: Notið 2 stykki sokkaprjóna 4 og 1 þráð í hvorri tegund (= 2 þræðir). Prjónið upp 4 lykkjur frá réttu meðfram kanti fyrir miðju að framan á vinstra framstykki, byrjið beint fyrir neðan síðustu útaukningu fyrir v-hálsmáli, * ekki snúa stykkinu, heldur færið lykkjurnar yfir í hina hliðina á prjóninum, leggið þráðinn aftan við 4 lykkjurnar, herðið á þræði (til að snúran verði falleg er mikilvægt að herða vel á þræðinum) og prjónið 4 lykkjurnar aftur slétt frá réttu *, prjónið frá *-* þar til snúrubandið mælist ca 35 til 40 cm. Klippið þráðinn, þræðið þráðinn í gegnum lykkjurnar, herðið á þræði og festið vel. Prjónið samsvarandi snúruband fyrir hægra framstykki. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #brightdreamvest eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-10
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.