Maria Grazia skrifaði:
Buongiorno, vorrei realizzare questo maglioncino con i ferri tradizionali. Potreste per favore inviarmi le istruzioni per taglia 42? Vi ringrazio in anticipo. M. Grazia
22.11.2026 - 13:48DROPS Design svaraði:
Buonasera Maria Grazia, il capo è lavorato in piano, per cui può utilizzare i ferri dritti. Buon lavoro!
22.11.2026 - 21:11
Evi skrifaði:
Kann es wirklich sein, dass beim Vorderteil (Zusammensetzen des linken und rechten Teil) bis zur Zunahme für den Arm 28 cm gestrickt werden sollen? Ist das nicht ein wenig viel? Ab welchem Punkt wird gemessen? Ab der Schulter? Vielen Dank für eine klärende Antwort und vielen Dank für Ihre vielen Anleitungen.
13.11.2026 - 23:00DROPS Design svaraði:
Liebe Evi, ja richtig, bei solchen Modellen mit europäischen Schulter wird das Vorderteil länger (messen Sie ab die Maschen, die augefassen wurden) als das Rückenteil, so ist das Rückenteil + das Vorderteil (nach Zunahmen für die Armlöcher) / 2 die gesamte Armauschnitt - schauen Sie unter Tab Videos/Lektionnen, dort können Sie mal schauen, wie man solche Pullover strickt. Viel Spaß beim Stricken!
16.11.2026 - 15:32
Antonella skrifaði:
Bellissima maglia,bellissimo filato e spiegato molto bene in ogni dettaglio grazie
11.11.2026 - 12:09
Isabella skrifaði:
Chiedo gentilmente quanti grammi di lana Fabel e Fiesta devo usare per questo modello Grazie per una taglia, M
09.11.2026 - 11:30DROPS Design svaraði:
Buonasera Isabella, può utilizzare 14 gomitoli di DROPS Fabel, che apprtiene allo stesso gruppo filati. Buon lavoro!
09.11.2026 - 22:50
Hortus skrifaði:
Je tricote le modèle taille M et j'en suis à tricoter le devant avant l'augmentation des emmanchures. L'indication de tricoter le devant jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 25 cm est ambiguë. Faut il comprendre 25 cm après le marqueur posé au début des devants ?
09.10.2026 - 12:15DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Hortus, on mesure les devants à partir du marqueur que l'on a mis après avoir relevé les mailles, vous devez donc commencer les emmanchures devant quand le devant mesure 25 cm en M depuis les mailles relevées pour l'une des épaules. Bon tricot!
09.10.2026 - 16:12
Maria skrifaði:
Hello dear Drops Team, I'm not sure about this instruction on the back side: "Insert 1 marker on one side. The piece is now measured from here! Continue stocking stitch until the piece measures 10-9-9-9-10-8-7 cm from the marker. Now increase for the armholes." For the XL size, is it really 10 cm to be worked? Logically should be 9 or 8 cm from the marker since this size seems to be descending. Best regards and thank you!
26.09.2026 - 21:18DROPS Design svaraði:
Dear Maria, you have to work until piece measures 10 cm then start increasing for armholes, when armhole is done piee measures 14 cm (the length before armhole depends on the number of rows worked for the increases). Happy knitting!
28.09.2026 - 09:09
Megan skrifaði:
"Start from the right side by the armhole on the right back shoulder and knit up 1 stitch outermost on the shoulder, then knit up 1 stitch in each row worked, inside the outermost stitch as far as the neckline." I don't understand this part. Do you have a video for this?
22.09.2026 - 22:59DROPS Design svaraði:
Hi Megan, Here is a link to our video showing you how to pick up stitches: https://www.garnstudio.com/video.php?id=58&lang=us Regards, Drops Team.
23.09.2026 - 06:54
Megan skrifaði:
"Continue working until the piece measures 11-12-13-13-14-14-14 cm = 4⅜"-4¾"-5⅛"-5⅛"-5½"-5½"-5½" from the marker, measured along the armhole", for XS size, you only need to knit 1cm, correct? But what does "measured along the armhole" mean? Thank you.
22.09.2026 - 22:57DROPS Design svaraði:
Hi Megan, You measure from outermost on the shoulder and down the edge, which is the armhole. Regards, Drops Team.
23.09.2026 - 06:57
Autumn Fjord Sweater#autumnfjordsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópskri öxl / skáhallandi öxl. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-22 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er fyrst prjónað fram og til baka á hringprjóna. Byrjað er á að fitja upp lykkjur aftan í hnakka. Síðan er bakstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. Síðan er prjónað niður að handvegi. Nú er bakstykkið látið bíða og framstykkið er prjónað. Framstykkið er fyrst prjónað í 2 hlutum. Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, samtímis sem aukið er út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni. Hægra og vinstra framstykki er sett saman þegar útaukning fyrir hálsmál hefur verið gerð til loka. Síðan er framstykkið prjónað niður að handvegi. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett inn á sama hringprjón og fram- og bakstykki er prjónað niður á við í hring á hringprjóna. Lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar í kringum handveg og ermarnar eru prjónaðar niður á við. Fyrst er prjónað fram og til baka með stuttum umferðum til að forma ermakúpu, síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og prjónaður er kantur í hálsmáli. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-34-36-36-40-40-40 lykkjur á hringprjón 4 með DROPS Merino Extra Fine eða DROPS Cotton Merino. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 15-16-17-19-20-22-24 sinnum (= 30-32-34-38-40-44-48 umferðir prjónaðar), prjónið síðan UMFERÐ 2 1 sinni til viðbótar. Á eftir síðustu útaukningu eru = 96-100-106-114-122-130-138 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Setjið 1 merki yst í hliðina. Héðan er nú stykkið mælt! Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 10-9-9-9-10-8-7 cm frá merki. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-4-5-5-5-8-10 sinnum (= 2-8-10-10-10-16-20 umferðir prjónaðar) = 98-108-116-124-132-146-158 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 11-12-13-13-14-14-14 cm, mælt frá merki yst meðfram handvegi, endið með umferð frá röngu. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er vinstra framstykkið prjónað meðfram vinstri öxl eins og útskýrt er að neðan. VINSTRA FRAMSTYKKI: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju (= 31-33-35-39-41-45-49 lykkjur), endið með að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl = 32-34-36-40-42-46-50 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-7-7-8-8-8 sinnum (= 14-14-14-14-16-16-16 umferðir prjónaðar) = 39-41-43-47-50-54-58 lykkjur (næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Stykkið mælist ca 10-10-11-11-12-12-12 cm frá merki. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægra framstykkið prjónað meðfram hægri öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRA FRAMSTYKKI: Nú eru prjónaðar upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við öxl og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Byrjið á að prjóna upp 1 lykkju alveg yst í horni á öxl, síðan er prjónuð upp 1 lykkja í hverja prjónaða umferð innan við ystu lykkju (= 31-33-35-39-41-45-49 lykkjur) = 32-34-36-40-42-46-50 lykkjur. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessum kanti þar sem lykkjur voru prjónaðar upp. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 5-5-6-6-6-6-6 cm, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 7-7-7-7-8-8-8 sinnum (= 14-14-14-14-16-16-16 umferðir prjónaðar) = 39-41-43-47-50-54-58 lykkjur (= næsta umferð sem er prjónuð á að vera frá réttu). Stykkið mælist ca 10-10-11-11-12-12-12 cm frá merki. Síðan eru framstykkin sett saman eins og útskýrt er að neðan. FRAMSTYKKI (hægra og vinstra stykki sett saman): Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið slétt yfir 39-41-43-47-50-54-58 lykkjur frá hægra framstykki, fitjið upp 18-18-20-20-22-22-22 lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið síðan slétt yfir 39-41-43-47-50-54-58 lykkjur frá vinstra framstykki = 96-100-106-114-122-130-138 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 26-25-25-27-28-28-29 cm. Nú er aukið út í hvorri hlið fyrir handveg. ÚTAUKNING FYRIR HANDVEG: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 1-4-5-5-5-8-10 sinnum (= 2-8-10-10-10-16-20 umferðir prjónaðar) = 98-108-116-124-132-146-158 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til stykkið mælist 27-28-29-31-32-34-36 cm, endið á umferð frá röngu. Nú er framstykkið og bakstykkið sett saman fyrir fram- og bakstykki eins og útskýrt er að neðan. Framstykkið er lengra en bakstykkið og ca 2 cm að dýpt frá hálsmali kemur til með að teygja sig yfir á bakhlið á stykki. FRAM- OG BAKSTYKKI: Prjónið slétt yfir 98-108-116-124-132-146-158 lykkjur frá framstykki, fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í lok þessarar umferðar (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið slétt yfir 98-108-116-124-132-146-158 lykkjur frá bakstykki og fitjið upp 2-2-2-2-4-4-4 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undi ermi) = 200-220-236-252-272-300-324 lykkjur í umferð. Prjónið hringinn í sléttprjóni þar til stykkið mælist ca 50-52-54-56-57-59-61 cm, mælt frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið), JAFNFRAMT sem aukið er út um 44-44-48-52-56-60-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 244-264-284-304-328-360-388 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64-66 cm mælt frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Ermin er prjónuð frá handveg og niður á við. Leggið stykkið flatt og setjið 1 merki efst í handveg = mitt ofan á öxl – ATH: Mitt ofan á öxl er ekki á sama stað og lykkjur voru prjónaðar upp fyrir framstykki, heldur nokkra cm niður á framstykki. Notið hringprjón 4 og prjónið upp lykkjur aðeins fast (notið e.t.v. fínni prjón). PRJÓNIÐ UPP LYKKJUR ÞANNIG: Byrjið mitt í nýjum lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – prjónið upp 78-82-86-90-96-100-104 lykkjur – stillið af að prjónaðar séu upp jafn margar lykkjur hvoru megin við merki. ERMAKÚPA: Til að flíkin passi betur er prjónað í sléttprjóni með stuttum umferðum fram og til baka yfir ermakúpuna, umferðin byrjar fyrir miðju undir ermi og prjónað er þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 9-9-10-10-10-13-13 lykkjur fram hjá merki ofan á öxl, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 9-9-10-10-10-13-13 lykkjur fram hjá merki, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 3-3-3-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 3-3-3-3-3-2-2 lykkjur fram hjá þar sem snúið var við í fyrra skipti, snúið stykkinu. Endurtakið síðan UMFERÐ 3 og 4. Prjónið þar til snúið hefur verið við alls 18-20-20-20-22-26-26 sinnum (= 9-10-10-10-11-13-13 sinnum í hvorri hlið og síðasta prjónaða umferðin sé frá röngu). Á EFTIR SÍÐASTA SKIPTI SEM SNÚIÐ ER VIÐ: Í síðasta skipti sem umferð 4 er endurtekin, endið umferð með að snúa stykkinu, prjónið síðan frá réttu að byrjun á umferð (fyrir miðju undir ermi). Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju undir ermi, það á að nota hann þegar fækka á lykkjum undir ermi. Látið merkiþráðinn fylgja með í stykkinu. ERMIN ÁFRAM NIÐUR: Nú er prjónað í hring í sléttprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT því sem fækka á lykkjum undir ermi, lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð er fækkað um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 2-2-2-2-1½-1½-1 cm 8-9-10-10-12-13-14 sinnum = 56-58-60-64-66-68-70 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 48-48-48-47-45-44-43 cm frá miðju ofan á öxl. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-10-12-12-14-12-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 68-68-72-76-80-80-84 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 52-52-52-51-50-49-48 cm frá miðju ofan á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp 96-96-104-104-116-116-116 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-5-5-6-6 cm – stillið af að 2 lykkjur slétt frá stroffi komi yfir 2 lykkjur slétt frá skásettu axlalínunni á bakstykki. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnfjordsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.