Nicole skrifaði:
Bonjour, si je veux tricoter an Magic loop, comment je dois procéder ? Et est ce que ce pulse tricote de haut en bas ou de bas en haut? Merci
16.11.2026 - 04:12DROPS Design svaraði:
Bonjour Nicole, ce pull se tricote de haut en bas; retrouvez ici, en vidéo comment tricoter en magic loop; vous pourrez tricoter ainsi pour le col et le début de l'empiècement (jusqu'à ce qu'il y ait suffisamment de mailles pour l'aiguille circulaire) et pour les manches (quand on les tricote seules). Bon tricot!
17.11.2026 - 15:59
Cassie skrifaði:
I have knitted as far as picking up the stitches for the sleeves, I’ve picked up 28 stitches along the edge of the left front and now I have reached the side edge of the back and not the 82 stitches. If I knit the stitches across the back there will be a big gap. Please help!
06.11.2026 - 23:46DROPS Design svaraði:
Dear Cassie, after you have picked up the 28 sts along left front piece you should have the stitches on back piece just following these stitches - see time code 01:00 in this video. Can this help?
09.11.2026 - 07:50
Pat skrifaði:
I definitely will be making this swearter
20.10.2026 - 14:35
Christina skrifaði:
Hallo, kann es sein, dass für das Rückenteil ein Teil der Anleitung fehlt? Sie endet an der Schulterschräge.
06.10.2026 - 22:04DROPS Design svaraði:
Liebe Christina, so ist es richtig, schauen Sie oben Tab "Video" (rechts von Tab "Anleitung"), dort können Sie mal jedes Teil/jeden Schritt im Video schauen. Die Maschen für Rückenteil werden stillgelegt dann später mit Vorderteil und Ärmel gestrickt. Viel Spaß beim Stricken!
07.10.2026 - 07:42
Autumn Hunter Sweater#autumnhuntersweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með evrópsku berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 271-34 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÉTTU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI – frá RÖNGU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í mynstrinu hafa verið notaðir stuttir og langir prjónar, byrjið á lengdinni sem passar og skiptið um ef þarf. Stykkið er prjónað samkvæmt útskýringu 1-5. 1. BAKSTYKKI: Fitjaðar eru upp lykkjur aftan í hnakka og bakstykkið er prjónað fram og til baka niður á við jafnframt því sem lykkjum er aukið út í hvorri hlið á stykki þar til fjöldi lykkja á axlavídd hefur verið náð. Bakstykkið hefur fengið litla skáhallandi öxl. 2. FRAMSTYKKI: Er prjónað í 2 stykkjum (= hvoru megin við hálsmál). Byrjað er á að prjóna upp lykkjur meðfram annarri öxlinni frá bakstykki, framstykkið prjónað niður á við jafnframt því sem lykkjur eru auknar út við hálsmál. Þetta er endurtekið á hinni öxlinni, síðan eru nýjar lykkjur fitjaðar upp fyrir hálsmál við miðju að framan = axlirnar eru settar saman í eitt stykki (= framstykki). Framstykkið er prjónað fram og til baka að tilgreindu máli. 3. BERUSTYKKI: Í næstu umferð eru allar lykkjur prjónaðar á sama hringprjón – prjónað er þannig: Lykkjur eru prjónaðar frá framstykki, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á framstykki, bakstykkið er prjónað, lykkjur prjónaðar upp fyrir ermi meðfram hlið á hinu framstykkinu = síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur. 4. ÚTAUKNING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt því sem berustykkið er prjónað, á að auka út lykkjur fyrir fram- og bakstykki og ermar, fyrst eru lykkjur einungis auknar út fyrir ermar og síðan eru lykkjur auknar út bæði á fram- og bakstykki og ermum. 5. FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar allar lykkjur hafa verið auknar út og berustykkið hefur verið prjónað að tilgreindu máli, á að skipta stykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við og í hring, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 34-34-36-36-38-38-38 lykkjur á hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Karisma eða DROPS Cotton Merino. UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt. UMFERÐ 3 (= ranga): Lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-2 og prjónið 3 lykkjur brugðið, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið brugðið þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið 3 lykkjur brugðið. Á EFTIR UMFERÐ 3: Prjónið UMFERÐ 2 og 3 alls 12-13-14-15-16-17-18 sinnum (= 24-26-28-30-32-34-36 umferðir prjónaðar), eftir síðustu útaukningu eru = 82-86-92-96-102-106-110 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Klippið þráðinn, setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón. VINSTRI ÖXL: Finnið vinstri öxl á bakstykki þannig: Leggið bakstykkið flatt með réttuna upp, leggið bakstykkið þannig að lykkjur frá þræði / hjálparprjóni snúa að þér, vinstri hlið á stykki = vinstri öxl. Nú eru lykkjur prjónaðar upp meðfram bakstykkis vinstri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við hálsmál og prjónið upp lykkjur út að handvegi þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-9-9 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 og prjónið 3 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt út umferðina. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 6-6-6-6-7-7-7 sinnum (= 12-12-12-12-14-14-14 umferðir prjónaðar) = 30-32-34-36-39-41-43 lykkjur. Útaukning fyrir hálsmáli er nú lokið. Stykkið mælist ca 10-11-12-12-13-14-14 cm frá merki. 2 cm af dýpt á hálsmáli nær að teygja sig yfir á bakstykkið. Setjið lykkjur á þráð eða á hjálparprjón, nú er hægri öxl prjónuð meðfram hægri bakstykkis skáhallandi öxl eins og útskýrt er að neðan. HÆGRI ÖXL: Prjónið upp lykkjur meðfram bakstykkis hægri skáhallandi öxl – byrjið frá réttu við handveg og prjónið upp lykkjur inn að hálsmáli þannig: Prjónið upp 1 lykkju í hverja prjónaða umferð, innan við ystu lykkju = 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur fyrir öxl. Setjið 1 merki í stykkið inn við hálsmál. Öll mál á lengdina á framstykki eru gerð frá þessu merki, mælt í lykkjustefnu. Prjónið sléttprjón (fyrsta umferð er prjónuð frá röngu). Þegar stykkið mælist 6-7-8-8-8-9-9 cm frá merki, aukið út lykkjur að hálsmáli þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt þar til 3 lykkjur eru eftir, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 3 lykkjur slétt – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðið án þess að auka út. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 6-6-6-6-7-7-7 sinnum (= 12-12-12-12-14-14-14 umferðir prjónaðar) = 30-32-34-36-39-41-43 lykkjur. FRAMSTYKKI: Í næstu umferð (= rétta) eru axlirnar settar saman fyrir framstykki þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið slétt yfir 30-32-34-36-39-41-43 lykkjur frá hægri öxl, fitjið upp 22-22-24-24-24-24-24 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok þessarar umferðar, prjónið slétt yfir 30-32-34-36-39-41-43 lykkjur frá vinstri öxl = 82-86-92-96-102-106-110 lykkjur. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir framstykki þar til stykkið mælist 13-13-14-15-15-16-17 cm frá merki – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Síðan er framstykkið og bakstykkið sett saman og lykkjur eru prjónaðar upp fyrir ermar, prjónið eins og útskýrt er að neðan. UMFERÐ 1: Prjónið fyrstu lykkju frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á framstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá framstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 28-28-30-32-32-34-36 lykkjur meðfram hlið á vinstra framstykki – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju, prjónið fyrstu lykkju frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), setjið 1 merki í umferð, prjónið slétt þar til 1 lykkja er eftir á bakstykki, setjið 1 merki í umferð, prjónið síðustu lykkjuna frá bakstykki slétt (= lykkjan tilheyrir ermi), prjónið upp 28-28-30-32-32-34-36 lykkjur meðfram hlið á hægra framstykki – lykkjurnar eru prjónaðar upp innan við ystu lykkju (= lykkjur fyrir ermi) = 220-228-244-256-268-280-292 lykkjur í umferð. Prjónið 1 lykkju slétt, þannig að umferðin byrjar við merki í skiptingunni á milli hægri ermi og framstykkis. BERUSTYKKI: Síðan er stykkið prjónað í hring. UMFERÐ 1: Prjónið slétt yfir allar lykkjur og aukið út 1 lykkju í hvorri hlið á hvorri ermi – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING-1 – aukið út 1 lykkju til vinstri í byrjun á ermi, aukið út 1 lykkju til hægri í lok á ermi, lykkjufjöldinn á hvorri ermi eykst, lykkjufjöldinn á framstykki og bakstykki verður óbreyttur. UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án útaukninga. Á EFTIR UMFERÐ 2: Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til aukið hefur verið út alls 9-9-10-10-11-8-5 sinnum (= 18-18-20-20-22-16-10 umferðir prjónaðar. Það eru 48-48-52-54-56-52-48 lykkjur á hvorri ermi og 80-84-90-94-100-104-108 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 256-264-284-296-312-312-312 lykkjur. Síðan á að auka út bæði á ermum og á fram- og bakstykki, aukið er út á fram- og bakstykki 2 lykkjur innan við merki þannig að það eru 2 lykkjur á milli útaukninga fyrir fram- og bakstykki og útaukningu fyrir ermi – prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið yfir á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri, þ.e.a.s. það hefur verið aukið út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma). UMFERÐ 2: Prjónið slétt yfir allar lykkjur án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-6-7-8-9-12-14 sinnum (= 8-12-14-16-18-24-28 umferðir prjónaðar. Það hefur verið aukið út alls 13-15-17-18-20-20-19 sinnum á ermum og 4-6-7-8-9-12-14 sinnum á framstykki/bakstykki = 56-60-66-70-74-76-76 lykkjur á hvorri ermi og 88-96-104-110-118-128-136 lykkjur á framstykki/bakstykki) = 288-312-340-360-384-408-424 lykkjur. Aukið síðan út á ermum og á fram- og bakstykki á sama hátt, en í 4. hverri UMFERÐ – prjónið þannig UMFERÐ 1: Prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á framstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki, aukið út um 1 lykkju til hægri, færið prjónamerkið á hægri prjón, prjónið 2 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt þar til 2 lykkjur eru eftir á bakstykki á undan merki, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 2 lykkjur slétt, færið merkið yfir á hægri prjón, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið slétt fram að næsta merki (= ermi), aukið út 1 lykkju til hægri, færið merkið á hægri prjón (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2-4: Prjónið allar lykkjur slétt án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 2-2-1-1-1-1-2 sinnum (= 8-8-4-4-4-4-4 umferðir prjónaðar). Aukið hefur verið út alls 15-17-18-19-21-21-21 sinnum á ermum og 6-8-8-9-10-13-16 sinnum á framstykki/bakstykki = 60-64-68-72-76-78-80 lykkjur á hvorri ermi og 92-100-106-112-120-130-140 lykkjur á framstykki/bakstykki = 304-328-348-368-392-416-440 lykkjur. Ermin mælist ca 12-14-14-14-16-16-16 cm – þegar peysan er brotin saman tvöföld við öxl, á stykkið að mælast ca 19-20-21-22-23-24-25 cm frá toppi á öxl og niður meðfram handveg. Ef stykkið mælist minna en þetta, er hægt að prjóna áfram að réttu máli án þess að auka út. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 92-100-106-112-120-130-140 lykkjur slétt (= framstykki), setjið næstu 60-64-68-72-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið næstu 92-100-106-112-120-130-140 lykkjur slétt (= bakstykki), setjið næstu 60-64-68-72-76-78-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 200-220-236-252-272-296-320 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 51-53-55-57-58-60-62 cm, mælt frá þar uppfitjunarkanti. Skiptið yfir á hringprjón 3, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT er aukið út um 44-44-48-52-56-60-64 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 244-264-284-304-328-356-384 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66-68 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan og 58-60-62-64-66-68-70 cm frá öxl. ERMAR: Setjið 60-64-68-72-76-78-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-74-80-86-92-96-100 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-10-12-14-16-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur með 2-2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili 3-5-7-8-9-10-11 sinnum = 58-60-62-64-68-70-72 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-37-36-36-33-33-33 frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-12-14-16-12-14-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 72-72-76-80-80-84-88 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-41-39-39-39 cm frá skiptingunni og 56-56-55-55-55-55-55 cm frá kanti þar sem lykkjurnar voru prjónaðar upp á öxl. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 3, byrjið frá réttu við aðra axlalínuna og prjónið upp ca 92-96-100-100-108-112-112 lykkjur í kringum hálsmál innan við 1 lykkju – lykkjufjöldinn verður að vera deilanlegur með 4. Prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) í 4-4-4-5-5-5-5 cm – stillið af þannig að 2 lykkjur slétt frá stroffi komi yfir 2 lykkjur slétt frá skáhallandi axlalínum á bakstykki. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #autumnhuntersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-34
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.