Peach Whisper Top#peachwhispertop |
||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||
Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Paris. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með rúllukanti, hringlaga berustykki og gatamynstri á berustykki. Stærð XS - XXXL.
DROPS 268-22 |
||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. UPPHÆKKUN: Til að gera peysuna aðeins hærri aftan í hnakkanum þegar prjónað er í kringum berustykkið, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er hér að neðan. Sleppið þessum kafla ef þið viljið ekki upphækkun. Setjið 1 merkiþráð í byrjun umferðar (= miðja að aftan), lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN og prjónið næstu 6 umferðir fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 12-13-14-15-16-17-18 lykkjur slétt fram hjá merkiþræði í byrjun umferðar, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga):Prjónið 24-26-28-30-32-34-36 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 36-39-42-45-48-51-54 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið 48-52-56-60-64-68-72 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið 60-65-70-75-80-85-90 lykkjur slétt, snúið stykkinu. UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið 72-78-84-90-96-102-108 lykkjur brugðið, snúið stykkinu. Prjónið slétt til baka að merkiþræði fyrir miðju að aftan. Prjónið síðan berustykki eins og útskýrt er í mynstri. LEIÐBEININGAR PRJÓN: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5 (mynsturteikning A.5 á einungis við um stærð XL, XXL og XXXL). LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Ef upphækkun aftan í hnakka er prjónuð á eftir kanti í hálsmáli, er upphækkunin prjónuð fram og til baka áður en afgangur af stykki er prjónað í hring. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 90-94-98-100-104-108-112 lykkjur á hringprjón 5 með DROPS Paris. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 (fitjað er upp með grófari prjónum til að uppfitjunarkanturinn verði ekki of stífur) og prjónið þannig: Prjónið 4 umferðir sléttprjón (= rúllukantur). Prjónið síðan 3 umferðir stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið). Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skipið yfir á hringprjón 5 og prjónið 1 umferð sléttprjón þar sem aukið er út um 10-16-17-25-26-27-28 lykkjur jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 100-110-115-125-130-135-140 lykkjur í umferð. Ef prjónuð er UPPHÆKKUN aftan í hnakka – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið síðan eins og útskýrt er að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónaðu áfram eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 2½-2½-3½-3½-2½-3½-4½ cm frá merki, aukið út lykkjur á berustykki með því að prjóna MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan og prjónið þannig: A.1: Prjónið A.1 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram þar til A.1 hefur verið prjónað til loka = 140-154-161-175-182-189-196 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 6½-6½-7½-7½-6½-7½-8½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.2: Prjónið A.2 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum berustykkið hringinn. Haldið svona áfram þar til A.2 hefur verið prjónað til loka = 180-198-207-225-234-243-252 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 10½-10½-11½-11½-10½-11½-12½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.3: Prjónið A.3 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum berustykkið hringinn = 200-220-230-250-260-270-280 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.3 hefur verið prjónað til loka. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 14½-14½-15½-15½-14½-15½-16½ cm frá merki. Næsta umferð er prjónuð þannig: A.4: Prjónið A.4 alls 20-22-23-25-26-27-28 sinnum berustykkið hringinn = 220-242-253-275-286-297-308 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.4 hefur verið prjónað til loka. Mynstur með útaukningu hefur nú verið prjónað til loka í stærð XS, S, M og L – prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. Í stærð XL, XXL og XXXL er prjónað sléttprjón þar til stykkið mælist 0-0-0-0-18½-19½-20½ cm frá merki, síðan er aukið út í síðasta skipti í A.5 eins og útskýrt er að neðan. A.5 Prjónið A.5 alls 0-0-0-0-26-27-28 sinnum berustykkið hringinn = 220-242-253-275-312-324-336 lykkjur. Haldið svona áfram þar til A.5 hefur verið prjónað til loka – prjónið síðan frá ALLAR STÆRÐIR. ALLAR STÆRÐIR: Þegar allar mynsturteikningarnar hafa verið prjónaðar til loka, prjónið sléttprjón -JAFNFRAMT eftir 1 cm er aukið út um 8-10-11-17-4-8-16 lykkjur jafnt yfir í næstu umferð = 228-252-264-292-316-332-352 lykkjur. Prjónið þar til stykkið mælist 19-20-22-22-23-25-27 cm frá merki. Nú skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT og næsta umferð er prjónuð, skiptið berustykkinu fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 34-38-40-44-47-51-55 lykkjur sléttprjón (= hálft bakstykki), setjið næstu 46-50-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 68-76-80-88-94-102-110 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 46-50-52-58-64-64-66 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), og prjónið síðustu 34-38-40-44-47-51-55 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 148-164-176-192-208-228-248 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 42-44-46-47-48-50-52 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 28-28-32-32-36-40-44 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 176-192-208-224-244-268-292 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur, eða fellið af með ítalskri affellingu. Peysan mælist 45-47-49-50-52-54-56 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 46-50-52-58-64-64-66 lykkjur af erminni af öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-8-10-12-14 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir erminni - sjá LEIÐBEININGAR ERMI = 52-56-60-66-74-76-80 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 6-6-8-8-10-12-14 nýjar lykkjur undir erminni - umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir erminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm alls 2-2-2-2-2-1-0 sinnum = 48-52-56-62-70-74-80 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 12-12-10-12-10-9-7 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-12-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-60-66-72-82-88-94 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 15-15-13-15-14-13-11 cm frá skiptingunni. |
||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||
|
||||||||||
![]() |
||||||||||
![]() |
||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #peachwhispertop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 268-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.